Morgunblaðið - 28.05.1987, Page 52

Morgunblaðið - 28.05.1987, Page 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1987 Frumurannsóknastofa okkar mun flytja úr Skógarhlíð 8 í Lækna- stöðina, Alfheimum 74 (Glæsibæ), þann 1. júnínk. Frumurannsóknastofan verðuropin virka daga kl. 08.00-16.00 og verður sýnum veitt mótttaka í afgreiðslu Læknastöðvarinnar. Stungusýni til frumugreiningar verða tekin á mánudögum og miðvikudögum kl. 13.00- 16.00. Tímapantanir eru í síma 686311. Margrét Snorradóttir, læknir, Gunnlaugur Geirsson, læknir. ________ — y Gömlu mennirnir halda enn velli í bridsheiminum: Attatíu og tveggja ára spilari í landsliði Spánar á Evrópumóti Morgunblaðið/GSH Norman Kay og Edgar Kaplan spila á heimsmeistaramótinu í Miami síðastliðið haust. Andstæðingar þeirra þarna eru hollen- skar konur og þær unnu leikinn með miklum yfirburðum. Síðan hafa Kaplan og Kay tekið sig á. Brids GuðmundurSv. Hermannsson KENNINGIN segir að menn séu á hátindi andlegs þroska milli þrítugs og fertugt. Það virðist samt ekki há sumum mönnum í bridsíþróttinni þótt þeir séu farnir að sjá hilla und- ir síðari hluta æfinnar og allt í kringum þá séu sigraþyrstir ungir spilarar glefandi í hvert stig. Sífellt eru að berast frétt- ir af góðum árangri manna sem að einhverra dómi ættu að vera sestir í hægindastólinn með pípuna og bókina í stað þess að vera að keppa i einni erfið- ustu hugaríþrótt sem til er. Nú er nýlokið í Bandaríkjunum keppni um hveijir skipa landsliðið á heimsmeistaramótinu í Jamaica í haust. Fjórar sveitir kepptu um þann heiður og tvær voru skipað- ar ungum ljónum en hinar tvær mönnum sem hafa spilað keppnis- brids jafnlengi og hinir hafa lifað. Þetta var útsláttarkeppni og í undanúrslitunum unnu sveitir Chip Martel og Edgar Kaplan sína leiki. í sveit Martels spila auk hans Lew Stansby, Peter Pender, Hugh Ross, Bob Hamman og Bobby Wolff, sem allir eru komn- ir yfir fimmtugt nema Martel. Að vísu var sigurinn ekki stór yfir sveit Eric Rodwell því að venjuleg- um spilafjölda loknum var staðan jöfn. Þá var bætt við 12 spilum og að þeim loknum hafði Martel unnið með 1 impa! í sveit Kaplans spila Norman Kay, Bill Root, Richard Pavlicek, Harold Lilie og David Berkowitz. Þrír þeir fyrstnefndu eru allir komnir yfír sextugt og hafa verið taldir í hópi bestu spilara heims í yfir 30 ár en samt hefur þeim aldrei gengið eins vel og undan- farin 4-5 ár. I úrslitaleik þessara tveggja sveita hefur þó úthaldið kannski sagt til sín og „ungu mennirnir" unnu hann nokkuð auðveldlega. Þeir fá því tækifæri til að verja heimsmeistaratitilinn sem þeir unnu í Brasilíu 1985. En þótt þessir kappar séu að komast á efri ár gætu þeir þó vel unnið stórmót og spilað í landsliði í 20 ár í viðbót. Þannig hafa tveir Bandaríkjamenn unnið landsmót þar á síðustu árum, þótt þeir væru komnir um og yfir áttrætt. Þetta voru B. J. Becker og Os- wald Jacoby og báðir spiluðu þeir í sveit með Kaplan, Kay og Root þegar þeir unnu titlana. Waldemar von Zedtwitz vann heimsmeistaramót í tvímenningi árið 1970 þegar hann var 74 ára gamall og orðinn nærri blindur. Það er þó ekki sérlega hár aldur ef miðað er við helstu von Spán- veija á Evrópumótinu sem haldið verður í Brighton nú í sumar. Þar er nefnilega skráður til leiks Joel Tarlo, sem kominn er á 83. aldurs- ár. Tarlo var í hópi gullaldar- manna Breta fyrir 20-30 árum og var meðal annars í landsliði þeirra sem vann Evrópumótið í Baden-Baden árið 1963. Tarlo var síðan lengi fyrirliði breskra lands- liða en árið 1968 flutti hann til Spánar og er nú spænskur ríkis- borgari. Og núna spilaði hann sig inn í spænska landsliðið ásamt öðrum þekktum spilara frá Bret- landseyjum, íranum Desmond Deery, sem einnig hefur fengið spænskan ríkisborgararétt. Austurríkismenn vinna nýtt stórmót Sunday Times tvímenningurinn var á sínum tíma talinn vera sterkasta tvímenningur heims, en þá var árlega safnað saman völd- um pörum, yfirleitt 16 að tölu, úr öllum heimi og þau spiluðu butler. Tvö íslensk pör, Hjalti Elíasson og Ásmundur Pálsson, og Stefán Guðjohnsen og Símon Símonarson fengu meðal annars þann heiður að vera boðin þátt- taka. Þetta mót var dýrt í framkvæmd og að lokum fór svo að blaðið gafst upp á að halda mótið. Nú hefur hollenskur banki end- urreist þetta mót og það var haldið í vor sem sama sniði og Sunday Times mótið áður. Það voru aust- urrísku Evrópumeistararnir Fucic og Terraneo sem unnu mótið, en Norðmennimir Helness og Stabell voru í öðru sæti. I þriðja sæti voru Bretamir Sheehan og Flint en aðrir austurrískir Evrópumeist- arar, Berger og Meinl voru í 4. sæti. Koistinenbræður Finnlandsmeistarar Sveit Kauko Koistinen vann Finnlandsmótið í sveitakeppni sem haldið var nýlega. Mótið var spilað með sama sniði og íslands- mótið: 8 sveitir spiluðu til úrslita um titilinn. I sigursveitinni voru bræðurinir Kauko og Kalvero Koistinen, Antti Elsinen, Eero Salmenkivi, Osmo Kiema og Jari Erkkila. Þetta em allt ungir menn sem hafa verið fastir landsliðsmenn Finna undanfarin ár og hafa rek- ið slyðruorðið af finnskum lands- liðum með góðum árangri á alþjóðamótum. Haukur kyrr- settur á Siglufirði Siglufirði. FLUTNINGASKIPIÐ Haukur var kyrrsett á Siglufirði á laug- ardag þar sem haffærnisskír- teini skipsins var fallið úr gildi og fékkst ekki endurnýjað fyrr en eftir að búið var að gera end- urbætur á skipinu. Haukur var að lesta loðnumjöl hjá Síldarverksmiðjum ríkisins og lauk því fyrir hádegi á laugardag. Skipið fékk að halda áfram ferð sinni á sunnudagskvöldið þegar gert hafði verið við brunadælu og fleira um borð. Matthías Morgunblaðið/Matthías Flutningaskipið Haukur í Siglu- fjarðarhöfn um helgina. ifTV 75ÁRA VEG6SP Á 75 áraferli sínum hefurTHORO fundið svar við nánast öllum vandamálum sem kunna að koma upp, þegar um steypu er að ræða. THORITE er eitt af undraefnunum frá THORO. THORITE er fljótharðnandi viðgerðarefni sem ,. reynist framúrskarandi vel til viðgerðaá sprung- um og steypugöllum. Eru sprungur eða aðrir steypugallar á þlnu húsi? N6UR? BYGGINGAVÖRUR Suðurlandsbraut 4, Slmi 33331 og Nethyl 2, Ártúnsholti, Slmi 671440

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.