Morgunblaðið - 04.02.1988, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1988
Byggðastofnun:
Lán ekki veitt nema
næg veð liggi fyrir
- segir Bjami Einarsson aðstoðarforstjóri
Hraðfrystihús Patreksfjarðar á veð fyrir hinu 35 milljón króna láni
sem fyrirtækið fær frá Byggðastofnun, enda gerir stofnunin nýög
strangar veðkröfur þegar lán eru veitt, að sögn Bjarna Einarssonar,
aðstoðarforstjóra Byggðastofnunar.
Lán Byggðastoftiunar til H.P. er
til 10 ára, en engar afborganir eru
af því fyrstu 2 árin. Ekki hefur ver-
ið fullkomlega ákveðið hvers eðlis
lánið verður, að sögn Bjama, en það
verður annaðhvort verðtryggt eða
gengistryggt.
Lánið verður tilbúið til útborgunar
þegar upplýsingar um flárhagslega
endurskipulagningu fyrirtækisins
liggja fyrir frá eigendum og Lands-
bankanum, en von er á þeim mjög
fljótlega. Þessi lánveiting er miðuð
við það að Hraðfrystihús Patreks-
ijarðar geti staðið jafnfætis öðrum
fyrirtækjum í frystiiðnaði, sagði
Bjami. Hhann sagðist bjartsýnn á
að þetta lán gæti komið fyrirtækinu
á réttan Iq'öl hvað fjármögnun þess
snerti.
3. ársfjórðungur 1986 til 3. ársfjórðungs 1987:
Kaupmáttur jókst um
18,3% að meðaltali
Kaupmáttur minnkaði frá 2. ársfjórðungi 1987
KAUPMÁTTUR fólks í aðildar-
félögum Alþýðusambands ís-
lands jókst að meðaltali um 18,3%
frá 3. ársfjórðungi 1986 til 3.
ársfjórðungs 1987, að því er fram
kemur í nýútkomnu fréttabréfi
Kjararannsóknanefndar. Hækk-
unin var hins vegar mjög misjöfn
eftir stéttum og var kaupmáttar-
aukning iðnaðarmanna langmest
eða 34,1%, en minnst þjá skrif-
stofukonum eða 8,9%. Vinnutími
styttist lítilleg^ á þessu tímabili.
Á tímabilinu hækkaði greitt
tímakaup um 44,2% að meðaltali,
en framfærsluvísitalan hækkaði um
20,3%. Kaupmáttur verkamanna
jókst um 13,6%, verkakvenna um
16,3%, afgreiðslukarla um 16,6%,
afgreiðslukvenna um 21,5% og
skrifstofukarla um 11,1%.
Frá 2. ársfjórðungi 1987 til 3.
ársfjórðungs sama árs lækkaði
kaupmáttur að meðaltali um 0,7%,
þar sem greitt tímakaup hækkaði
um 4,9% á sama tíma og fram-
færsluvísitalan hækkaði um 5,7%.
Þannig minnkaði kaupmáttur
verkamanna um 2,1% á þessu tíma-
biíi, jókst hjá verkakonum um 1,4%
og iðnaðarmönnum um 4,9%,
minnkaði hjá afgreiðslukörlum um
2,9%, hjá afgreiðslukonum um
1,5%, hjá skrifstofukörlum um 6,2%
og skrifstofukonum um 5,2%. Vinn-
utími styttist að meðaltali um 0,3
stundir á þessu tímabili.
Egg, kjúklingar og kartöflur:
Sexmannanefnd svar-
ar bændum á morgun
Framleiðendur leggja fram sinn verðlagsgrundvöll
VERÐLAGSNEFND búvara, öðru nafni sexmannanefnd, tók í gær
fyrir ósk félaga alifugla- og kartöflubænda og Stéttarsambands
bænda um að nefndin verðleggi egg, kjúklinga og kartöflur til fram-
leiðenda. Nefndin kemur saman næstkomandi föstudag til að ganga
VEÐURHORFUR í DAG, 4.2.88
YFIRLIT í gær: Gert er róö fyrir stormi á suðvestur, suður- og
suðvesturdjúpi. Yfir Norðaustur-Grænlandi er 1.030 mb lægð aust-
ur við Noreg, önnur lægð um 984 mb djúp við suðvesturströnd
írlands ó suðausturleið. Kalt verður áfram.
SPÁ: í dag verður norður og norðaustan-átt ó landinu, víða stinn-
ingskaldi eða allhvasst en lægir líklega dálítið þegar líður ó daginn.
Él verða um norðan- og austanvert landið og e.t.vi vestur með
suðurströndinni en annars bjart veöur. Frost 2—8 stig.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Norðaustanótt og tals-
vert frost. Bjart veður sunnanlands og vestan en ól viö noröur-
og austurströndina.
TÁKN: s, Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- 10 Hitastig: 10 gráður á Celsius
Heiðskírt stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. y Skúrir * V E' / = Þoka
Léttskýjað / / / / / / / Rigning
/ / / * / * = Þokumóða ’, ’ Súld
- Skýjað r * r * Slydda / * / ÖO Mistur
—J- Skafrenningur
Alskýjað * * * * Snjókoma * * * |y Þrumuveður
• VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavlk hltl 0 2 veður tnjókoma úrk. Igr.
Bergen B akýjað
Hetelnki -H) snjókoma
Jan Msyen +10 tkafrennlngur
Kaupmanneh. B tkýjað
Nintarsiuiq +1.6 skafrenningur
Nuuk +3 anjókoma
Ostó 4 tnjókoma
Stokkhólmur 3 akýjað
Þórshðfn 3 akúr
Algarve 14 helðsklrt
Amaterdam S Mttakýjað
Aþena 15 lóttakýjað
Barcölono 13 hélfakýjað
Berlln s akúr
Chicago +3 altkýjað
Feneyjar 9 I 1
Frankfurt 7 akýjað
Qlaagow vantar
Hamborg 6 akúr
LasPalmea 18 skýjað
London 8 akýjað
LoaAngelea 8 helöskírt
Lúxemborg 6 akýjað
Madrid 8 þokumóða
Melaga 16 léttskýjað
Mallorca 12 alskýjað
Montraal +20 léttakýjað
NewVork 2 alskýjað
Paris 8 rlgnlng
Róm 14 léttskýjað
Vln 13 akýjað
Washlngton 2 alskýjaft
Winnlpeg +27 helftakfrt
Valencia 12 léttakýjaft
frá svari sínu.
Samkvæmt búvörulögunum ber
sexmannanefnd að semja um verð-
lagsgrundvöll sé þess óskað og mun
ekki vera ágreiningur um það í
nefndinni. Einhvem tíma mun taka
að semja um verðlagsgrundvöll, þar
sem það hefur ekki verið gert áð-
ur, en framleiðendur munu óska
eftir verðlagningu til bráðabirgða á
grundvelli þeirra eigin útreikninga
á framleiðslukostnaði sem þeir hafa
haft til viðmiðunar á undanfömum
árum.
í verðlagsgrundvelli eggjabænda
er eggjakílóið verðlagt á 160 krónur
í heildsölu, miðað við verðlag í nóv-
ember, en verð án magnafsláttar
er núna um 160 krónur.
í núverandi verðlagsgrundvelli
kjúklinga er kílóið verðlagt á 340
krónur í heildsölu, sem þýðir um
það bil 200 krónur til framleiðenda.
Steinullarverksmiðjan á Sauðárkróki:
Tapið minna en
áætlað hafði veríð
REKSTRARTAP SteinuIIarverksmiðjunnar hf. á Sauðárkróki
varð 20 milljónum króna minna á síðasta ári en áætlað hafði
verið og var 10 milljónir króna, en ekki 30 miiyónir, eins og
gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun vegna endurskipulagningar
fyrirtækisins. Árið 1987 var salan innanlands 3.030 lestir saman-
borið við 2.250 lestir árið áður og á þessu ári er gert ráð fyrir
vaxandi sölu á steinull á heimamarkaði og auknum útflutningi
til Færeyja og Bretlands.
í fréttatilkynningu frá fyrirtæk-
inu segir að í fyrra hafí verksmiðj-
an náð betri árangri í framleiðslu
og sölu, en áætlað hafí verið þeg-
ar reksturinn var endurskipulagð-
ur frá grunni árið 1986 og ytri
skilyrði hafí að mörgu leyti verið
hagstæðari og hafí meðal annars
fastgengisstefnan stuðlað að til-
tölulega litlu gengistapi af langtí-
malánum fyrirtækisins. Eðliiegar
verðhækkanir hafí náðst á fram-
leiðslunni vegna bættrar sam-
keppnisstöðu á heimamarkaði og
útflutningur hafí aukist úr 200
tonnum 1986 í 630 tonn í fyrra.
Söluhorfur á nýbyijuðu ári séu
góðar, en gengisfelling myndi að
öllum líkindum eyða þeim afkomu-
bata, sem annars sé fyrirsjáanleg-
ur og leiða til nýs taprekstar á
þessu ári.
Stokkhólmsóperan:
Sýningum aflýst vegna
veikinda Garðars Cortes
GARÐAR Cortes, óperusöngv-
ari, getur ekki sungið með
Stokkhólmsóperunni á tveimur
sýningum i lok mánaðarins,
eins og ákveðið hafði verið,
vegna þess að hann er ekki
búinn að ná sér eftir slæma
hálsbólgu.
Ákveðið hafði verið að Garðar
syngi hlutverk hertogans í Rígó-
lettó með Stokkhólmsóperunni á
sýningum þann 23. og 25. febrúar
næstkomandi, en ákveðið var að
fresta þeim sýningum þegar Garð-
ar hafði samband við Óperuna og
tjáði þeim að hann væri með háls-
bólgu sem illa gengi að lækna til
fulls. óperan vildi hins vegar ekki
sleppa samningnum við Garðar
og vonast hann til að geta sungið
í Rígólettó í Stokkhólmi síðar þeg-
ar hann hefur náð sér til fulls.
Garðar sagðist hafa veikst fyrst
í haust, en kvefveiran lét síðan
aftur á sér kræla í janúar, þannig
að hann fékk hálsbólgu og kom
hann þá heim frá Engiandi til að
vera undir umsjá sinna eigin
lækna, en röddin hefur enn ekki
náð að jafna sig að fullu. Garðar
hyggst syngja í lok mars annað-
hvort í óperunni II Trovatore á
írlandi eða á tvennum tónleikum
á Spáni, en vonandi verður röddin
komin í fullt lag þá.