Morgunblaðið - 04.02.1988, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1988
-4-
FALLEG
OG VÖNDUÐ
HÚSGÖGN
í ALLA ÍBÚÐINA
íSSrr^as»5-“3a
Þar sem góöu kaupin gerast.
Smiöjuvegi 2 Kópavogi
sími 44444
INNRÉTTINGA- OG HÚSGAGNASÝNING UM HELGINA
OPIÐ LAUGARDAG KL 10 - 16 OG SUNNUDAG 14 -17
Morgunblaðið/Bjami
Rúdolf Kristinsson formaður FornbUaklúbbs íslands og Örn Sigurðs-
son markaðsstjóri Bifreiðastöðvar íslands, fyrir framan fyrsta
sýningarbilinn, Ford model A, „nýja Ford“ árgerð 1929, í eigu Rú-
dolfs.
Gamlir bílar sýndir á
Umferðarmiðstöðinm
BIFREIÐASTÖÐ íslands og
Fornbílaklúbbur íslands hafa nú
hafið samstarf um sýningar gam-
alla bíla á Umferðarmiðstöðinni.
Ætlunin er að skipta um bfla
mánaðarlega, svo almenningi gefist
kostur að líta augum sem flestar
gerðir gamalia bfla, sem að öðrum
kosti væru lokaðir inni í myrkum
geymslum, þar sem ekkert bflasafn
er til á íslandi.
„Á Umferðarmiðstöðina í
Reykjavík koma árlega rúmlega
700.000 manns, en það er álíka
ijöldi og Þjóðminjasafn íslands fær
til sín á 20 árum. Segja má því að
hér sé sprottinn upp vísir að all-
mjmdarlegu safni,“ segir í frétt frá
Umferðarmiðstöðinni.
Kaldrananes-
kirkja:
Áheit þykja
gefast vel
Laugarhóli, Bjarnarfirði.
Kaldrananeskirkja í Bjarnar-
firði á Ströndum er upphaflega
vígð Guði, heilagri Mariu, Micha-
el höfuðengli og heilögum
Þorláki. Það þarf þvi ekki að
þykja neitt undarlegt, að hún
skuli hafa orðið svo vel við áheit-
um á undanförnum árum að til
þess er tekið bæði hér í Kaldr-
ananeshreppi og ekki síður
meðal brottfluttra hreppsbúa,
sem jafnvel hafa stofnað reikn-
inga í nafni kirkjunnar til að
leggja inn á áheitin.
Það eru nokkur ár síðan að menn
fóru að veita þvf athygli að Kaldr-
ananeskirkja brást einstaklega vel
við áheitum. Stofnaði kona nokkur
reikning við Sparisjóð Vestur-
Húnvetninga á Hvammstanga og
lagði þar inn áheit sitt. Lét aðra
vita um þetta og munu nú vera
komnar um 20 þúsund krónur inn
á þessa bók. Þá hafa og áheit safn-
ast víðar að til kirkjunnar.
Kirkjan hefir verið útkirkja frá
Stað í Steingrímsfirði lengst af, en
heyrir nú undir sóknarprestinn á
Hólmavík, en hann er Baldur Rafn
Sigurðsson. Formaður sóknar-
Morgunblaðifl/Sigurður H. Þorateinsson
Altari og sálmatafla í Kaldrana-
neskirkju.
nefndar er svo Jóhann Bjöm
Amgrímsson í Framnesi.
Upphaflega er kirlqa sú er nú
stendur í Kaldrananesi byggð árið
1851 og er því að verða 137 ára
gömul. Arið 1891 var hún svo end-
urbætt og meðal annars sett jám
á þak og tum, en þetta er annars
timburkirkja. Nú er hún enn farin
að láta á sjá og þarfnast gagn-
gerðra endurbóta. Hefir núverandi
sóknamefnd til athugunar hversu
það megi verða. Heitir hún jafn-
framt á alla velunnara kirkjunnar
að aðstoða í þeim efnum.
- SHÞ
Seltjarnarneskirkja
Kirkjubyggingunni á Seltjarn-
arnesi miðar nú vel áfram. Sjá
Seltimingar fram til þess dags
með björtum augum að kirkju-
skipið á efri hæðinni verði vigt
á þessu ári. Með þeirri aðstöðu
sem komin er í kjallara kirkjunn-
ar hafa fyrstu skrefin verið
stigin í sjálfstæðu safnaðarstarfi
á Seltjaraaraesi, en nauðsynlegt
er að nýta megi alla bygginguna
sem fyrst. Lokaátakið er fram-
undan og þvi er brýnt að sam-
staða safnaðarins verði sýnd í
verki á þessu ári.
Nk. sunnudag þann 7. febrúar
verður messa í kjallara kirkjunnar
kl. 14 eins og venjulega. Eftir
messu verður kaffisala í hliðarsaln-
um, sem við köllum „hvíta húsið“,
og flóamarkaður til styrktar kirkju-
byggingunni. Þar verða á boðstól-
um glæsilegar flóamarkaðsvömr,
m.a. húsgögn. Auk þess verður
happdrætti, þar sem vinningar
verða ekki af verri endanum.
Þau sem að þessum mikla fjáröfl-
unardegi safnaðarins standa hvetja
Seltiminga til að sýna kirkju sinni
samstöðu og sækja messu næsta
sunnudag og styrkja kirkjubygg-
inguna með því að kaupa kaffi og
annað, sem á boðstólum verður.
Sóknamefnd.
N