Morgunblaðið - 04.02.1988, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1988
— 1
VELALEGUR
AMC Mercedes Benz
Audi JS Mitsubishi
bmw ám Nissan
Buick- Chevrolet Oldsmobile Opel
Chrysler Perkins
Citroén Peugot
Daihatsu Renault
Datsun Range Rover
Dodge Saab
Fiat Scania
Ford Subaru
Honda Suzuki
International Toyota
Isuzu Volkswagen
Lada t/rt j| Volvo
Landrover . Wiflýs
M. Ferguson 2'“
P. JÓNSSON & CO
SKEIFAN 17 k S. 84.113 - 84516 Á
RÚMGÓÐ
LAUSN
WHF.OFNASMISJAN
söludeild
HÁTEIGSVEGI7 S: 21220
SIEMENS
Siwamat 5830þvotta-
vélin frá Siemens
fyrir vandlátt fólk
• Frjálst hitaval.
• Áfangaþeytivinding fyrir allan
þvott, líka ull. Mesti vindu-
hraði 1200 sn./mín.
•Sparnaðarkerfi þegar þvegið
er í hálffylltri vél.
•Skyndiþvottakerfi fyrir íþrótta-
föt, gestahandklæði og annað
sem lítið er búið að nota.
• Hagkvæmnihnappur til að
minnka hita og lengja þvotta-
tíma: Sparar rafmagn.
• Hægt er að fá þurrkara með
sama útliti til aö setja ofan á
vélina.
• Allar leiðbeiningar á íslensku.
Hjá SIEMENS eru gæði, ending
og fallegt útlit ávaitt sett á
oddinn.
Smith og Norland
Nóatúni 4,
s. 28300.
Heilar tennur árið 2000!
I tilefni tannverndardag's
eftir Árna Þórðarson
Á sama tima og við íslendingar
búum við heilbrigðiskerfi sem
aðrar þjóðir gætu tekið sér til
fyrirmyndar, iægstu tíðni ung-
baraadauða sem um getur,
langlífi og mjög gott almennt
heilsufar, erum við enn talsvert
langt á eftár nágrannaþjóðum
okkar hvað tannheilsu varðar.
Samkvæmt rannsóknum sem
gerðar hafa verið á tíðni tannátu
i íslendingum á tímabilinu 1970
til 1986 hefur tannstuðull 12 ára
baraa, þ.e. samanlagður fjöldi
skemmdra, viðgerðra og úrdreg-
inna fullorðinstanna minnkað úr
8,7 niður i 6,6, eða um tæp 25%.
Á sama tima hefur tíðni tannátu
minnkað um allt að 70% á hinum
Norðurlöndunum. Við verðum
þvi að horfast i augu við þá stað-
reynd, að þrátt fyrir bætta
tannlæknaþjónustu og þátt hins
opinbera í kostnaði við tann-
viðgerðir, almenna notkun
flúortannkrems og aukna
fræðslu hefur okkur miðað ótrú-
lega hægt miðað við flest önnur
vestræn ríki.
Það er í raun bæði einfalt, ódýrt
og sársaukalaust að koma í veg
fyrir að tennur bama og unglinga
skemmist. Til þess þarf þó sam-
stillt átak nokkurra aðila, þ.e.
foreldra, kennara, starfsfólks á
dagvistarstofnunum, heilbrigðis-
yfirvalda, tannfræðinga og tann-
lækna. Hér á eftir verður einkum
Qallað um þátt foreldranna.
Tannlækni á hvert heimili
Sennilega vekur millifyrirsögnin
„tannlækni á hvert heimili" nokkra
undrun við fyrstu sýn. Hér er þó
ekkert grín á ferðinni, öðru nær.
Ódýrasta en um leið mikilvægasta
tannlæknisþjónusta sem bömin fá
er sú sem fram fer kvölds og
morgna allan ársins hring inni á
heimilinu og á að hefjast strax og
fyrsta tönnin birtist í munninum.
Það mun vera ótrúlega algengt
að böm séu meira eða minna sjálf-
ráð um tannburstun strax á unga
aldri. Skýringar sem foreldrar gefa
eru t.d. „hann heimtar að fá að
bursta sjálfur" eða „ég fæ ekki að
bursta nema einstaka sinnum". Og
reyndar er það svo, að meðan orðið
agi er eitur í eyrum íslendinga
munu bömin okkar fá að ráðskast
með þetta eins og fleira. Böm eru
ekki einfær um að bursta tennumar
fyrr en þau eru orðin 10—11 ára
gömul. Þangað til ber foreldrum
að hjálpa þeim við tannhirðuna,
með góðu eða illu!
í nýlegri norskri skýrslu kemur
fram það álit, að notkun flúor-
tannkrems sé áhrifaríkasti þáttur-
inn í tannvemdinni og sé sá liður,
sem mestu varðar í þeirri fækkun
tannskemmda sem orðið hefur hjá
Norðmönnum. Ef þetta er rétt ligg-
ur beint við að spyija: Hvers vegna
hefur almenn notkun flúortann-
krems ekki valdið sömu fækkun
tannskemmda hér á íslandi? Við
þessari spumingu hefur höfundur
þessarar greinar eftirfarandi svar,
en lætur lesendum eftir að dæma
um réttmæti þess: Forsenda þess
að flúor í tannkremi komi að fullum
notum er sú, að tennumar komist
í snertingu við flúortannkrem
kvölds og morgna alla daga ársins,
ár eftir ár. Ef tannburstun er tilvilj-
anakennd og stopul samfara tíðu
sykuráti fæst ekki sú lækkun á tíðni
tannátu sem reglubundin notkun
flúortannkrems sannanlega veitir.
Sykurneysla og mataræði
íslendingar em alræmdir sykur-
hákar. Ekki mun Qarri lagi að árleg
neysla sykurs sé á bilinu 60—70
kg á hvert mannsbam. Þetta sykur-
ofát á tvímælalaust stóran þátt í
bágri tannheilsu okkar, enda vom
tannskemmdir nánast óþekktar í
íslendingum áður en innflutningur
á sykri hófst hér að einhveiju ráði.
En þrátt fyrir að ótvíræð tengsl séu
á milli sykumeyslu og'tannátu virð-
ist tíðni tannátu ekki ávallt haldast
í hendur við aukningu í sykur-
neyslu. Nærtækt dæmi er reynsla
Svía í þessu efni, en þar hefur tíðni
tannátu minnkað stöðugt undan-
fama áratugi á sama tima og
sykumeysla hefur aukist jafnt og
þétt. Sennilega er skýringin á þessu
margþætt, þ.e. bætt tannlækna-
þjónusta, flúomotkun, fræðsla og
áróður samfara breyttum neyslu-
venjum.
Það virðist því ekki vera sjálft
sykurmagnið sem ræður úrslitum,
heldur hveraig neyslan fer fram.
„Sífellt nart skaðar tennur," segir
í áróðri tannvemdarráðs. Þótt það
kosti nokkrar fortölur, er reglan
um „laugardagssælgæti" ótrúlega
áhrifaríkt tannvemdartæki. Ekki
má heldur gleymast, að fleira
skemmir tennur en karamellur og
lakkrís. Bam sem byijar daginn
Arai Þórðarson
„Börn eru ekki einfær
um að bursta tennurnar
fyrr enþau eru orðin
10—11 ára g’ömul.
Þangað til ber foreldr-
um að hjálpa þeim við
tannhirðuna, með góðu
eða illu!“
viss; orð eins og mamma og pabbi
eru endurtekin í sífellu daginn út
og daginn inn.
— Jákvæðar, örvandi undirtektir
þegar bamið byijar að tala.
— Hröð framför vegna stöðugra
æfinga.
— Eljusemi foreldranna við að
rækta móðurmálskunnáttu bams-
ins og sú ánægja sem bamið finnur
fyrir er það öðlast þessa nýju hæfni.
Þessa einföldu en áhrifaríku
kennsluaðferð heimfærði Suzuki
síðan yfir á tónlistarsviðið. Megin-
áhersla var lögð á atriði eins og
að bömin byiji ung, endurtaka í
sífellu sömu lögin (böm fá aldrei
leið á að endurtaka eitthvað sem
þau kunna vel), stöðuga örvun og
jákvæða umræðu um tónlistamám-
ið o.s.frv. Og auðvitað urðu
mamman eða pabbinn að læra svo-
lítið líka til að geta sinnt hlutverki
kennarans á heimilinu.
Ég læt lesendum mínum eftir að
fínna hliðstæður milli Suzuki-að-
ferðar við tónlistarkennslu og
tannvemdar inni á heimilunum.
Sjálfur er ég ekki í neinum vafa
um, að ef foreldrar og uppalendur
um land allt legðu jafn mikla rækt
við tennur bamanna sinna eins og
móðurmálskennsluna, væri ástand-
ið í þessum málum margfalt betra
en raun ber vitni.
Heilar tennur árið 2000!
með sykmðu morgunkomi og jóg-
úrt gæti frá tannvemdarsjónarmiði
allt eins byijað daginn með sætind-
um úr sjoppunni.
Suzukiog tannvernd
Fyrir allmörgum árum kynnti
Japaninn Shin-ichi Suzuki nýja að-
ferð til tónlistarkennslu sem gaf svo
góða raun, að hún hefur nú verið
tekin upp við marga af fremstu
tónlistarháskólum Vesturlanda.
Suzuki-aðferðin eða „móðurmálsað-
férðin" byggir á hugmyndafræði
sem er bæði einföld og glettilega
rökrétt: Böm um allan heim tala
móðurmál sitt reiprennandi, jafnvel
flókin tungumál eins og japönsku
eða íslensku. Hvemig má það vera
að öll böm, án tillits til gáfna eða
námshæfíleika, uppruna eða aðset-
urs, ná þvílíkri leikni í að tala eins
og raun ber vitni? Ástæðumar gætu
m.a. verið þessar:
— Móðurmálskennslan hefst
strax eftir fæðingu.
— Kennslan verður fljótt mark-
Alþjóða heilbrigðisstofnunin hef-
ur sett það markmið, að árið 2000
verði tannstuðull 12 áira bama kom-
inn niður fyrir 3 í öllum löndum
heims. Um næstu áramót eru ná-
kvæmlega 12 ár til loka ársins
2000. Þau böm sem fæðast á þessu
ári, árið 1988, verða 12 ára árið
2000, og munu því mynda þennan
örlagaríka viðmiðunarhóp. Þá mega
þau ekki hafa fleiri en þijár
skemmdar, viðgerðar eða úrdregnar
fullorðinstennur, sem er yfir 50%
minnkun á tíðni tannátu frá núver-
andi ástandi. Okkur tókst að
minnka tannskemmdir um 25% á
sfðustu 15 árum, nú þurfum við að
minnka tannskemmdir um rúm 50%
á 12 ámm ef við eigum að geta
horft kinnroðalaust framan í ná-
grannaþjóðir okkar um aldamótin.
Er þetta hægt? Að sjálfsögðu er
þetta hægt. En það er deginum ljós-
ara, að til að þetta markmið náist
þarf að btýna önnur vopn en bor
og sondu.
HSfundur er tannlæknir og starf-
ar við tannréttingar i Akureyri.
1972 1986 2000
Tannstuðull 12 ára baraa á íslandi árin 1972 og 1986. Súlan lengst
til hægrí er markmið Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar fyrir þennan
aldurshóp árið 2000.
Taflan sýnir þróun á tfðni tannskemmda f 12 ára börnum frá 1970
á íslandi og f nokkrum nágrannalöndum okkar. Tannstuðull: Saman-
lagður fjöldi skemmdra, viðgerðra og úrdreginna fullorðinstanna.
Engin útborgun - Engir vextir
Kynntu þér sértilboð okkar
Vörumarkaðurinn hl
Kringlunni, sími 685440.