Morgunblaðið - 04.02.1988, Page 24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1988
23
Þetta skelfilega fyrir-
bæri móðir. Og dóttirin
Erlendar bækur
Jóhanna Kristjónsdóttir
Marilyn French: Her Mother’s
Daughter
Útg. Heinemann, London 1987
Það er kunnarp. en frá þurfi að
segja, að það er erfítt að vera kona.
Þó kemst það ekki í hálfkvisti við
það erfíði, sem fylgir því að vera svo
móðir í ofanálag. Og þó virðist erfíð-
ast af öllu að vera dóttir móður
sinnar. Móðir og dóttir geta aldrei
skilið hvor aðra, nema að takmörk-
uðu leyti. Þær eru í einhvers konar
innbyrðis keppni, það er líklegt að
það sé hlutskipti dóttur að hata
móðurina. Fyrir að geta ekki skilið
og vegna þess að hún bregst alltaf
rangt við og eigingimi móðurinnar
er dótturinni óbærileg. Að vísu elsk-
ar hún hana í leiðinni. Og það ekkert
smáræði. En dóttirin sver þess dýran
eið — hver kynslóð náttúrlega — að
hún skuli draga lærdóm af uppeldi
sínu og afstöðu móðurinnar til henn-
ar. Dóttirin ætlar sem sé ekki að
gera sömu skyssumar, þegar hún
eignast dóttur. Hún ætlar að elska
hana og hlú að henni og skilja hana
og tala við hana og ekki keppa við
hana. Hún ætlar að verða vinur henn-
ar. Svo eignast dóttirin dóttur og hún
gerir sitt bezta og vel það og það
er áreiðanlega dásamlegt samband
milli þeirra og allt öðruvísi en var
hjá næstu móður og dóttur á undan.
Því kemur það eins og þmma úr
heiðskíru lofti, að dóttir dótturinnar
leggur svona ámóta hatur á hana
og hjá næstu kynslóð á undan. Sekt-
arkenndin er óbærileg. Hvar á leið-
inni varð dóttur móðurinnar á í
messunni? Hvað gerði hún af sér?
Það er álitamál, hvort hún hafi gerzt
sek um nokkuð annað en það að
vera móðir dóttur sinnar. Og dóttir
getur ekki annað, hún hlýtur að hata
móður sína — og elska. Samtímis.
Móðirin er þungamiðjan í lífí dóttur
sinnar hvað sem á dynur, hvemig
lífí sem lifað er. Þungamiðja góðs
og ills í tilfínningalífí dóttur. Og
sennilega ætlar hver móðir að bæta
dóttur sinni upp það sem henni var
gert — af móður hennar. Sennilega
er hver móðir uppfull af vilja í þessa
átt. Áformin em fögur. En það er
óhugsandi að nokkur breyting verði
á. Milli móður og dóttur getur aldrei
ríkt kyrrð. Það er ástar- og haturs-
samband eins og það gerist kröftug-
ast.
Þetta er, að mínu viti, mergurinn
málsins í nýjustu bók Marilyn
French. Það sem hún vill segja með
bók sinni, sem kom út í Bretlandi
fyrir skemmstu, og v.erður innan
tíðartil sölu hér, ef að líkum lætur.
Marilyn French gat sér fyrst orð
með bókinni Kvennaklósettinu, sem
varð um hríð eins konar kvenna-
biblía. Næsta bók hennar „Þótt blæði
hjartasár" varð ekki jafnumdeild né
eins mikið lesin, en mér fannst það
raunar langtum skipulegri og læsi-
legri bók en sú hin fyrsta. Staða
konunnar er það sem Marilyn French
Qallar um og hún hefur gert það á
þann hátt, að hún hefur hrist upp í
fólki. Maður er ekki alltaf sáttur við
skoðanir hennar, en þær em bomar
fram á þann hátt að það er sjálfsagt
að virða þær og oft vekja þær til
umhugsunar.
I nýjustu bókinni hennar segir frá
fjórum kynslóðum kvenna. Fyrst í
rcðinni er Frances, pólskur innflytj-
andi til Bandaríkjanna. Hún stendur
uppi slypp og snauð 1913, þegar eig-
inmaður hennar — óreglusamur
leiðindagaur — deyr. Hún er þá með
fjögur ung böm og hún neyðist til
að koma þremur á munaðarleysingja-
hæli. Hjá henni er telpan Bella, sem
tekur í arf sorgina og harminn, sem
var að buga móðurina. Sektarkennd-
in gerir það að verkum, að hún getur
sem bam ekki litið glaðan dag, enda
er hún sannfærð um, að móðirin
hati sig og elski bömin sem hún
varð að láta frá sér. Bella ætlar sér
að lifa öðm lifí sjálf, viðmót við henn-
ar dóttur skal verða annað og betra.
Svo giftist hún Ed, sem er hvimleið-
ur leiðindagaur eins og flestir
karlmenn í þessari bók. Nema rétt
fyrst, þegar þeir em að koma sér í
mjúkinn hjá konunum, þá em þeir
nógu smeðjulegir. En þeir taka aldr-
jei ábyrgð, allra sízt á bömunum og
þeir skilja ekki konur. Hins vegar
kemur fyrir að þeir elski þær. Og
•Ed elskar Bellu, sem mér fannst
raunar alveg óskiljanlegt, jafn önug
og neikvæð og hún er eiginlega frá
fyrstu tíð, í hans garð.
Og Bella eignast dótturina Ana-
stasiu og saumar handa henni fína
kjóla og er henni, eftir því sem mér
sýndist, bara reglulega góð að mörgu
leyti. En Anastasia, sem er sögumað-
urinn í bókinni, túlkar orð og gerðir
móður sinnar út og suður. Hún stend-
ur í þeirri trú, að móðirin elski sig
ekki og sjálf skal hún reynast sinni
dóttur betur. Hvað sem móðir hennar
gerir eða gerir ekki, túlkar hún það
eftir sínu höfði, hvemig það passar
inn í geðslagið eða umhverfíð hveiju
sinni. Og sagan endurtekur sig hér.
Anastasia hatar móður sína, hefur á
henni andúð, virðir hana, dáir hana,
elskar hana.
Þar kemur að Anastasia giftist
Brad, rétt einn leiðindakarldraugur-
inn. Þau eignast telpuna Arden og
strákinn Billy og Anastasia er ákaf-
lega góð móðir, vandar sig mikið og
vill í hvívetna reynast bömum sínum,
dótturinni ekki sízt, sá trausti bak-
hjarl sem hún þurfti sjálf á að halda
en var að eigin dómi svikin um.
Anastasia vill samt líka eiga sitt
líf. Það er raunar ýmislegt sem bend-
ir til að ömmu hennar og mömmu
hafí á sínum tíma langað til þess líka,
hún hefur þó ekki brotið heilann um
það fyrr. Anastasia fer að taka ljós-
myndir og tekst að selja þær. Henni
hundleiðist í hjónabandinu og á út-
spekúleraðan hátt kemur hún málum
svo fyrir, að Brad vill skilja við hana.
Þar með hefur hún tryggt sér ákveð-
ið frelsi. Sem hún veit raunar ekki
almennilega hvemig hún á að nota
í upphafí. Að Brad taki þátt í fram-
færslu áfram, þar sem hann er
„sökudólgurinn." Og hún er komin í
hina klassísku stöðu konunnar, hún
er píslarvotturinn.
Þetta er löng og seinlesin bók og
margt á eftir að gerast í lífí Anastas-
iu þegar hér er komið sögu: hún
verður fímafrægur ljósmyndari og
fer um allan heiminn. En svo koma
þessi hroðalegu tímamót, hún verður
fertug, og verður að komast að niður-
stöðu um hvað hún á að gera við
það sem eftir er af lífínu? Blaðið sem
hún vann hjá farið á hausinn, bömin
hrakyrða hana og vilja ekki hafa
með hana að gera og dóttirin býr í
kommúnu í óttalegri eymd.
Samt er sýn Marilyn French ekki
eingöngu svartsýni. Það má finna
ýmsar lausnir með lífíð sitt og það
tekst Anastasiu undir lokin. Þó er
greinilegt að höfundur telur fátt ör-
uggt né fullkomlega traust. Enda
nokkuð til í því.
ÞJÓNUS
Almenn skattframtalsþjónusta.
Væntanleg gjöld reiknuð út. Álagning
yfirfarin og kærð ef þörf gerist.
Ráðgjöf vegna nýrra skattalaga.
VERTU VISS UM RÉTT ÞINN!
Lögfræöiþjónustan hf
Verkfræöingahúsinu, Engjateigi 9
105 Reykjavík, sími: (91)-689940
Ingólfur Hjartarson • Ásgeir Thoroddsen
William Thomas Möller • Kristján Ólafsson
Lára Hansdóttir • Ingibjörg Bjarnardóttir
WILO
Þróuð þýsk
framleiðsla.
Hagstœtt verð.
LANDSSMIÐJAN HF.
Miðstöðvardœlur
Verslun Ármúla 23 - S. (91)20680
Þrýstimælarí
úrvali — gott verd
G.J. Fossberg
vélaverslun hf.
Skúlagötu 63 - Reykjavík
Símar 18560-13027
RYÐFRÍAR
i.npn M
PHtzPA -
DÆLUR
= HÉÐINN =
VÉLAVERSLUN SÍMI 624260
SÉRFRÆÐIÞJONUSTA - LAGER