Morgunblaðið - 04.02.1988, Page 27
26
Útifíísar
Karsnesbraut 106. Simi 46044
IrViWI
Hljóðeinangrandi
loftplötur til
límingar í loft.
ÍSLEMZKA
VERZLUriARFELAGlÐ HE
UMBOÐS- & HEILDVER2LUN
Bíldshöfða 16,
sími 687550.
Vmnuborð
og vognor
Iðnaöarborö, öll sterk og
stillanleg. Meöog án hjóla. Hafðu
hvern hlut viö hendina, það léttir
vinnuna og sparar tímann.
Leitið upplýsinga.
UMBODS OGHEILOVERSLUN
Það er dýr hver
rúmmetri í lager-
húsnæði.
N ýtið hann þvível.
Þungavörukerfl
©HF.OFNASMIIJAN
SÖLUDEILD
HÁTEIGSVEGI7. S.: 21220
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1988
Meðferð, skóli og
vinna í Krýsuvík
eftir Ragnar Inga
Aðalsteinsson
Ef svo fer sem horfir mun
Krýsuvíkurskólinn hefja starfsemi
sína á þessu ári. Framkvæmdir þar
ganga vel, hægt en markvisst og
sá hluti skólahússins sem ætlunin
er að taka í notkun til að byija
með er óðum að taka á sig endan-
lega mynd. Ætlunin er að fara hér
fáeinum orðum um það sem þar á
að fara fram þegar þar að kemur.
Lykilorðin að dagskrá Krýsuvík-
urskólans eru; meðferð, skóli,
vinna. Á þessum þremur þáttum
verður öll starfsemin byggð, þetta
þrennt verður grunnurinn undir öllu
sem gert verður.
Meðferðin verður byggð á þeim
leiðum sem tvímælalaust hafa skil-
að hér bestum árangri. Hér er átt
við svokallað 12 spora kerfi sem
gjaman er kennt við AA-samtökin
og hefur verið þekkt hér á landi í
rúm 30 ár. Kerfí þetta byggist á
því að einstaklingurinn sjálfur tak-
ist á við vandamál sín og læri í
gegnum aga og ábyrga iifnaðar-
hætti hvemig hann getur lifað
hamingjusömu lífi þrátt fyrir vímu-
gjafavandamál sitt. Um þetta kerfi
er óþarft að flölyrða og nægir að
vísa til SÁÁ þar sem það hefur
verið notað með árangri sem öllum
er nú kunnur.
Rétt er að taka fram að í
Kiýsuvík verður ekki afvötnun,
amk. ekki til að byija með. Talið
er óþarft að kosta því til þar sem
afvötnunarstöðvar eru fyrir hendi
hjá öðrum stofnunum.
Lögð verður mikil áhersla á sam-
skipti vistmanna við ijölskyldur
sínár. Mun stöfnunin leggja mikið
upp úr fjölskyldumeðferð ýmiskon-
ar, þ.e. fundum vistmanna með
ástvinum sínum svo og ráðgjöf fyr-
ir aðstandendur en þeir eru sem'
kunnugt er oft mjög illa leiknir og
langþreyttir þegar þama er komið.
Víkjum því næst að skóiaþættin-
um. Rökstuðningur fyrir því að
yfírleitt skuli rækja þennan skóla-
þátt er m.a. sá að í könnun sem
gerð var af starfsmönnum ungl-
ingadeildar, útideildar og unglinga-
ráðgjafar og gefin út á vegum
unglingadeildar Félagsmáladeildar
Reykjavfkurborgar í maí 1987 kem-
ur eftirfarandi fram um unglinga í
vímuefnavanda. Af 83 einstakling-
um sem könnunin náði til höfðu
51,3% ætt í skóla áður en skyldu-
námi lauk. Rúmlega helmingur
þeirra sem ekki luku skyldunámi
hafa hætt í skóla í 8. bekk. 81,9%
heildarhópsins eiga við námserfið-
leika að etja, tæpir Vz eru sagðir
eiga í félagslegum erfiðleikum í
skóla og rúmur helmingur er sagð-
ur eiga í hegðunarerfíðleikum.
Það gefur augaleið að unglingar
sem hafa horfið frá námi þegar í
8. bekk eiga mjög erfitt uppdráttar
í þvi samfélagi sem við lifum í.
Þegar við bætast svo andlegir,
líkamlegir og félagslegir erfíðleikar
vegna langvarandi vímuefnaneyslu
þá sér hver maður að hér hlýtur
að vera nánast um óyfírstíganlega
erfiðleika að ræða í mörgum tilvik-
um.
Skólaþættinum er ætlað að koma
þegsum einstaklingum aftur inn í
samfélagið, gera þá hæfa til að
takast á við lífið á sama grundvelli
og annað ungt fólk á íslandi.
Krýsuvíkurskóli verður sérskóli,
starfræktur samkvæmt því sem
grunnskólalög kveða á um slíka
skóla og miðaður við það að þangað
komi nemendur með ákveðnar sér-
þarfir. I greinargerð Kiýsuvíkur-
samtakanna segir m.a. svo um
námsleiðir:
„ ... reynt verður að mæta sér-
stökum þörfum hvers einstaka
nemanda.
Meðal annars verður lögð áhersla
á þroskamiðað nám með sérstöku
tilliti til félagslegra samskipta.
Einnig verður lögð áhersla á stuðn-
ingsmiðað nám í þeim námsgreinum
sem tekin eru samræmd próf í, þ.e.
íslensku, stærðfræði, dönsku og
ensku. Nauðsynlegt verður að gefa
nemendum möguleika á því að taka
samræmd próf. Þriðja námsleið
verður færnimiðuð. Þar verður að-
aláhersla lögð á að auka fæmi
nemenda til að sækja vinnu á al-
mennum vinnumarkaði, taka þátt í
Ragnar Ingi Aðalsteinsson
„Krýsuvíkurskólinn er
að verða að veruleika.
Athvarf fyrir útilegu-
menn okkar tíma,
heimili fyrir þá heimil-
islausu, skóli fyrir þá
sem flæmst hafa út úr
skólunum, vinna fyrir
þá sem þurfa verndað-
an vinnustað í samfé-
lagi streitu og
vímuefna.“
heilbrigðu tómstundastarfi, sinna
heimilisverkum og búa nemendur
undir þátttöku í samfélaginu."
Krýsuvíkurskóli er staðsettur í
Reykjanesumdæmi og því hyggjast
samtökin fara fram á kennslufræði-
lega ráðgjöf hjá Fræðsluskrifstofu
Reykjanesumdæmis. Hefur þetta
verið rætt nokkuð og Helgi Jónas-
son fræðslusijóri sýnt þessu málefni
velvild og áhuga.
Verð á rafmagni til dælingar í fisk-
eldisstöðvum á orkuveitusvæði RARIK
eftir Kristján
Jónsson
í frétt í Morgunblaðinu 24.
janúar sl. er ijallað um raforku-
sölu til fiskeldis og kemur þar
fram, að fískeldisfyrirtæki í Þor-
lákshöfn þurfí að greiða 70 til
80 mills fyrir kílówattstundina
af raforku. Haft er eftir forsvars-
mönnum fískeldisfyrirtækja, að
stjómendur Radfmagnsveitna
ríkisins og Landsvirlgunar sýni
málinu ekki skilning. Þá er og
haft eftir Þorsteini Pálssyni, for-
sætisráðherra, að þetta háa verð
væri fráleitt. „Það þyrfti að nota
betra skipulag á raforkudreifíng-
unni og lækka verð.“
Vegna ofangreindra ummæla
vilja Rafmagnsveitur ríkisins
taka fram eftirfarandi:
Kristján Jónsson
Rafmagnsveitumar selja raf-
magn til dælingar í fískeldis-
stöðvum skv. gjaldskrárlið B1 og
er verðið 2.841 kr./kWh miðað
við 8.000 h nýtingartíma, þ.e.
70—80 mills, eins og segir í frétt-
inni. í eftirfarandi dæmi er sýnt,
hvemig kostnaður notandans
skiptist milli Landsvirkjunar,
ríkissjóðs og RARIK.
I dæminu er gert ráð fyrir, að
RARIK kaupi af Landsvirkjun á
66 kV spennu, sem gildir t.d.
fyrir Ölfus og Kelduhverfi, sem
em aðalfískeldissvæðin á orku-
veitusvæði RARIK og notaður er
nýtingartími heildarorkukaupa
RARIK af Landsvirkjun, eða
5.600 (hámarksnýtingartími
samkvæmt samkomulagi).
Skipting kostnaðar:
Gjaldskrárverð Landsvirkjunar 1,806 kr/kWh 63,6%
töp, ca. 10% 0,181 kr/kWh 6,4%
söluskattur 0,568 20,0%
tilRARIK 0,280 10,0%
2,881 kr/kWh 100,0%
ii
Ein mynda Vigfúsar úr síidinni á Siglufirði.
Ljósmynda-
sýning’ í Leik-
skemmu LR
SÝNING á gömlum ljósmyndum
Vigfúsar Sigurgeirssonar ljós-
myndara sem teknar voru á
Siglufirði og viðar var opnuð
þriðjudaginn 2. febrúar í Leik-
skemmu LR v/Meistaravelli i
Vesturbænum í Reykjavik.
Myndimar eru flestar tengdar
síldveiði og sfldarverkun.
Vigfús tók flestar þessar myndir
á árunum 1925—40 og eru þær
ómetanlegar sem heimildir um
síldarvinnu o.m.fl. frá liðnum
tímum.
Sonur Vigfúsar, Gunnar G. Vig-
fússon ljósmyndari, hefur stækkað
þessar myndir og gengið frá þeim.
Gunnar hélt sýningu á myndunum
á Siglufírði sl. haust og vöktu þær
mikla athygli og ^ðdáun bæjarbúa.
Myndimar eru til sölu.
Leikskemma LR er opin alla daga
vikunnar frá kl. 16 til 20. Veitinga-
hús er á staðnum og er það opið
sýningardaga kl. 18—20, og eftir
leiksýningartil kl. 1 eftir miðnætti.
(Úr fréttatilkynningti)
Hugleiðingar
Sigurbjörns
Einarssonar
í Kirkjuhvoli
BRÆÐRAFÉLAG Garðakirkju
gengst fyrir samkomum alla
laugardagsmorgna í febrúar og
verður sú fyrsta laugardags-
morguninn 6. febrúar í safnaðar-
heimilinu Kirkjuhvoli í Garðabæ.
Dr. Sigurbjöm Einarsson biskup
hugleiðir efiiið „Hið innra líf“. Fyr-
irlestramir hefjast kl. 11.00 og að
þeim loknum verða umræður. Allir
eru velkomnir.