Morgunblaðið - 04.02.1988, Síða 34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4, FEBRÚAR 1988
Bandríkin:
33
Kappsfullur — Já, það er Chirac!
I niðurstöðum skoðanakönnunar — sem birtist í franska vikublað-
inu París Match í gær — um fylgi frambjóðenda til forsetakjörs
í Frakklandi, hlaut Jacques Chirac forsætisráðherra í fyrsta
skipti i rúmt ár meira fylgi en aðalkeppinautur hans meðal
hægrimanna, Raymond Barre, 22% á móti 19,5%. Francois Mitter-
rand, sem enn hefur ekki tilkynnt, hvort hann býður sig fram
eða ekki, hlaut 38% atkvæðanna í þessari könnun. f gær hóf
Chirac mikla veggspjaldaherferð um allt Frakkland til að styrkja
stöðu sína fyrir kosningamar. Á veggspjaldinu,- sem sést hér á
myndinni, stendur „Kappsfullur — Já, það er Chirac.
Persaflói:
Skotið á norskt olíuskip
Dubai. Reuter.
AHOFN íransks byssubáts skaut
í gær á norska oliuskipið Petro-
bulk Ruler á Persaflóa. Skip-
stjóri og vélstjóri skipsins
særðust litillega. Olía lak úr skip-
inu sem skemmdist ekki mikið
og var það flutt til hafnar í Dubai
til viðgerðar.
Á þriðjudag gerðu Phantom F-4
þotur eldflaugaárás á olúskip frá
Líberíu en misstu marks. Voru þetta
fyrsta loftárásir írana á oliuskip á
Persaflóa í 18 mánuði. Að sögn
heimildamanna Reuters virðast Ir-
anir ætla að bregðast við samræmd-
um aðgerðum vestrænna ríkja til
að veija olíuflutinga með því að
beita orrustuþotum í stað byssu-
báta. Talið er að eldflaugarnar sem
notaðar voru á þriðjudag séu banda-
rískar af Maverick-gerð.
Sovéskur kafbátur af Yankee-gerð. Venjulega bera þeir 12-16 lang-
drægar kjamorkuflaugar, með einum eða tveimur kjarnaoddum.
Nú hafa Sovétmenn einnig komið fyrir stýriflaugum i þeim.
Kólaskaga er aðalbækistöð Rauða
flotans. Undanfarin ár hefur þar
orðið vart mikillar hemaðarupp-
byggingar.
I máli Holst kom einnig fram að
norsk stjómvöld hefðu nú til athug-
unar beiðni frá hermálanefnd
Atlantshafsbandalagsins um að
koma fyrir meiri vistum og búnaði
fyrir flota vamarbandalagsins í
Noregi. „Hér ræðir um meiri elds-
neytisbirgðir, hefðbundin skotfæri
og aðgang að skipasmíðastöðvum
til viðgerða á stríðstímum.“ Áður
en hægt verður að fallast á beiðni
þessa þarf málið þó að hljóta sam-
þykki norska þingsins.
Vopnaður maður heldur
26 börnum í gíslingu
Tuscaloosa í Alabama, Reuter.
Reuter
Tveir feður halda á bömum sínum, eftir að vopnaður maður hafði
haldið þeim í gislingu í hálfan sólarhring.
VOPNAÐUR maður, sem er geð-
veikur og fyrrverandi hermaður
í Víetnam-stríðinu, hélt 26 böra-
um og kennslukonu í gislingu í
tólf klukkustundir á þriðjudag.
Maðurinn fékkst til að gefast upp
þegar lögreglan hafði lofað hon-
um blaðamannafundi. Gíslarnir
sluppu heilir á húfi.
Maðurinn réðist inn í bamaskóla
bæjarins Tuscaloosa ásamt öðrum
vopnuðum manni og náði 60 bömum
og tveim kennslukonum á sitt vald.
Hinn maðurinn gafst upp nokkrum
klukkustundum seinna, bömunum
var sleppt smám saman og önnur
kennslukonan, sem var vanfær, fékk
einnig að yfírgefa skólann skömmu
eftir árásina.
Vopnaði maðurinn krafðist þess
að Ronald Reágan, forseti Banda-
ríkjanna, Veitti honum sakaruppgjöf
og að hann fengi umfjöllun í sjón-
varpi í beinni útsendingu. Hann sagði
við fréttamann, sem náði tali af hon-
um meðan á gíslingunni stóð, að með
þessum aðgerðum vildi hann vekja
athygli á vandamálum heimilislausra
í Bandaríkjunum og fyrrverandi her-
manna úr Víetnam-stríðinu. Hann
sagði að aðgerðir hans væm af
pólitískum toga, og hann hefði ekki
ætlað að gera bömunum mein.
Lögreglan náði manninum með því
að lofa honum blaðamannafundi, og
handtók hann um leið og hann kom
út, við mikinn fögnuð foreldranna
sem beðið höfðu fyrir utan.
Suður-Afríka:
Nítján Zúlú-menn falla í
átökum s vertingj ahópa
Jóhannesarborg, Briissel, Reuter.
NÍTJÁN Zúlúmenn voru drepnir um síðustu helgi í átökum milli tveggja
hreyfinga, Inkatha-hreyfingarinnar og UDF (Sameinuðu lýðræðis-
fylkingarinnar), sem beijast gegn kynþáttastefnu stjóraarinnar í
Suður-Afríku. Ennfremur herma fréttir frá Brilssel að stjórn Suður-
Afriku hafi sent þijá starfsmenn suður-afriska sendiráðsins þar i borg
til Suður-Afriku að ósk belgískra stjóravalda, sem eru ósátt við að
belgískri konu sé haldið i fangelsi i Jóhannesarborg.
Talsmenn UDF í Suður-Afriku
saka Inkatha-hreyfínguna um að
beita ofbeldi til að ná völdum yfir
sveitaþorpum og segja að stuðnings-
menn hennar hafi meðal annars
haldið ijöldafund, vopnaðir spjótum
og kylfum, í bænum Sweetwaters,
þar sem fímm manns hafí látist.
Talsmenn Inkatha-hreyfíngarinnar
segjast hins vegar aðeins vera að
veija sig fyrir UDF, sem beiti
Inkatha ógnunum. Samkvæmt opin-
berum skýrslum hafa 100 svertingjar
látist í janúar vegna deilna Inkatha
og UDF, sem er mesta mannfall á
einum mánuði síðan deilumar hófust
fyrir ári.
Utanríkisráðherra Belgíu, Leo
Tindeman, sagði í síðustu viku að
belgísk yfírvöld hefðu óskað eftir að
suður-afrísku sendiráðsmennimir
yrðu sendir úr landi vegna máls
Helene Passtoors, 45 ára konu, sem
hlotið hefur 10 ára fangelsisdóm fyr-
ir að styðja skæruliða í Suður-Afríku.
Talsmenn stjómar Suður-Afríku
segja að þessi ákvörðun belgískra
stjómvalda eigi eftir að hafa slæm
áhrif á samskipti ríkjanna og að hún
leiði ekki til þess að Passtoor verði
sleppt.
n Jeep
V\ Jeep EGILL 1/ILHJÁLMSSON HF.
EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 — 77202
BASE.................1.074.000.-
PIONEER..............1.166.000.-
CHIEF................1.219.000.-
LAREDÓ...............1.334.000.-
6 cyl. vél 177 hö........44.100.-
Sjálfskipting............52.500.-
4ra dyra.................52.900.-
Rafdrifnar rúður.........30.400-.
LL ÁRSIIMS 1988
Verð:
Var kosinn 4x4 bíll
ársins 1984 og sem
CHOMANCHE 1986
Verð á aukabúnaði:
EIIXIU SINNI ENN
B