Morgunblaðið - 04.02.1988, Qupperneq 50
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1988
49
Samtök herstöðvaandstæðinga:
i
Skora á fyrirtæki að
taka ekki þátt í fram-
kvæmdum hersins
SAMTÖK herstöðvaandstæðinga
hafa sent frá sér ályktun þar sem
skorað er á íslensk fyrirtæki að
taka ekki þátt í framkvæmdum
við hernaðarmannvirki hér á
landi.
Ályktunin er fram komin í tengsl-
um við komu fulltrúa frá erlendum
fyrirtækjum í boði NATO vegna
útboðs í lokaáfanga ratsjárstöðva
hér á landi og hugsanlegri þáttöku
íslenskra fyrirtækja sem undirverk-
taka. í þessu sambandi vilja Samtök
herstöðvaandstæðinga meðal ann-
ars benda á „að þeir fjármunir sem
um er að ræða sýni fram á gífur-
legt umfang hemaðarframkvæmda
hér á landi. Það sé öfugþróun að á
sama tíma og friðarvilji og tilraunir
til að snúa við vígbúnaðarkapp-
hlaupinu séu ráðandi í heiminum
skuli vera haldið áfram að byggja
hemaðarmannvirki hér á landi af
meiri krafti en nokkra sinni fyrr,“
eins og segir í ályktuninni. „ís-
lensku hugviti og verkkunnáttu er
betur varið til annarra hluta og
skoram við á íslensk fyrirtæki að
neita að taka þátt í baráttunni um
að komast að IqÖtkötlum hemaðar-
hyggjunnar," segir m.a. í ályktun
herstöðvaandstæðinga.
(Úr fréttatilkynningu.)
Leiðrétting
Ranghermt var í Morgunblaðinu í-
gær í samtali við Hrafn Bachmann
að Gylfí Ingason matreiðslumaður
hefði rekið fískbúðina í Austurveri.
Hið rétta er að Jón Bjömsson rekur
þessar verzlun, en Gylfí hefur starf-
að þar.
4NNLENTV
Arlegt þorrablót Þing-
eyinga á Suðurnesjum
ÁTTHAGAFÉLAG Þingeyinga á
Suðumesjum verður með sitt
árlega þorrablót föstudaginn 6.
febrúar nk. í Stapa. Félagið varð
15 ára 14. janúar sl.
Átthagafélag Þingeyinga á Suð-
umesjum var stofnað 14. janúar
1973 af 40 félögum. Markmið með
stoftiun félagsins var að auka kynni
meðal Þingeyinga búsettra á Suður-
nesjum og halda tengslum við
heimabyggðina, segir í fréttatil-
kynningu. Ennfremur segir að
starfsemi félagsir.s hafí verið með
miklum blóma frá upphafi.
Félagið gengst árlega fyrir
þorrablóti í byijun febrúar og í ár
verður það nk. föstudag. Einnig
hefur félagið verið vikulega með
félagsvist, myndakvöld og dans-
leiki.
Rúmlega 100 manns era í félag-
inu.
Úr umferðinni í Reykjavík 2. febrúar 1988
Árekstran 24.
Kl. 14.36 varð 8 ára bam fyrir bifreið á Höfðabakka/Dverghöfða og
var flutt með sjúkrabíl á Slysadeild.
Radarmælingar: 10 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur.
Ártúnsbrekka: 92 og 96 km/klst.
Elliðavogur: 84 km/klst.
Reykjanesbraut: 84—88—90 og 98 km/klst.
Sætún: 90 og 92 km/klst.
Ekið mót rauðu ljósi á götuvita: 6 ökumenn kærðir.
Klippt númer af 8 bifreiðum vegna vanrækslu á að fara til skoðunar.
Kranabifreið fjarlægði 12 ökutæki af vettvangi vegna slæmrar stöðu.
í þriðjudagsumferðinni voru tveir ökumenn granaðir um ölvun við
akstur.
Samtals 43 kærar fyrir umferðarlagabrot á þriðjudag.
Frétt frá lögreglunni i Reykjavík.
Samþykkt st}órnarfundar SUS á Egilsstöðum:
Varað við afskiptum
stjórnvalda af vöxtum
I ALYKTUN, sem samþykkt
var á stjóraarfundi Sambands
ungra sj álfstæðismanna á Eg-
Osstöðum síðastliðinn föstu-
dag, er varað við hugmyndum
Steingríms Hermannssonar
um að stjóravöld hafi áhrif á
vaxtaákvarðanir, en þess í stað
lagt til að dregið verði úr
þenslu og verðbólgu með al-
mennum aðgerðum og frelsi í
gjaldeyrisverslun aukið.
í ályktuninni segir meðal ann-
ars: „Stjóm Sambands ungra
Sjálfstæðismanna varar eindreg-
ið við hugmyndum Steingríms
Hermannssonar, formanns
Framsóknarflokksins, um bein
afskipti stjómvalda af vaxtaákv-
örðunum. Með ófreskjutali
Steingríms er raglað saman or-
sök og afleiðingu. Verðbólga og
ofQárfesting era meinsemdimar
í íslensku atvinnulífí, en ekki
vextimir. Vaxtastefnan var mót-
uð í tíð síðustu ríkisstjómar, sem
sat undir forsæti Steingríms
Hermannssonar. Hann ber því
fulla ábyrgð á henni eins og aðr-
ir ráðamenn þjóðarinnar."
Stjóm SUS gerir einnig að
umtalsefni þau umskipti, sem
orðið hafí frá „Framsóknarára-
tugnum“, en þá hafí vextir verið
neikvæðir um 15 -20% og fé
sparifjáreigenda brannið upp.
„Ungt sjálfstæðisfólk hafnar
þessari framsóknarleið og varar
við afleiðingum hennar," segir í
ályktuninni.
Að lokum segir í samþykkt
fundarins: „Hyggilegasta leiðin
til lækkunar vaxta eru almennar
ráðstafanir sem vita að því að
draga úr verðbólgunni, slá á
þenslu og auka frelsi í verslun
með gjaldeyri. Jafnframt er
nauðsynlegt að auka samkeppni
útlánafyrirtækja með því að hið
opinbera dragi úr lántökum
sínum og að rýmkaðar verði
heimildir fyrir erlenda aðila að
veita fé í íslenskan atvinnurekst-
ur í formi lána eða áhættufjár-
magns án ríkisábyrgðar.
Stjómvöld geta gengið á undan
með góðu fordæmi með því að
lækka opinber gjöld og stuðla
að hallalausum ríkisbúskap."
Hvatt til stofnunar
fríhafnar á Seyðisfirði
Á fundi stjómar SUS var jafn-
framt samþykkt ályktun um
byggðamál. Þar er hvatt til þess
að úánnagn lífeyrissjóða og
sjóða atvinnuveganna verði lán-
að til framkvæmda á lands-
byggðinni og þannig tryggt að
fjármagn nýtist þeim er þess
afla.
í lok píaggsins segir: „Með
stórátaki ríkisstjómarinnar í
samgöngu- og fjarskiptamálum
gefast mun fleiri möguleikar til
eflingar atvinnustarfsemi hér á
Austurlandi, ekki síst í þjónustu-
greinum. Ungt sjálfstæðisfólk
hvetur til þess að strax verði
kannaðir möguleikar á rekstri
fríhafnar á Seyðisfírði í tengslum.
við ferðamannaiðnað."
Ungir sjáJfstæðismenn skoða
fyrirtæki á Austurlandi
Egilsstöðnm.
STJÓRN Sambands ungra
sjálfstæðismanna hélt opinn
stjórnarfund í Samkvæmisp-
áfanum í Fellabæ sl. laugar-
dag og fjallaði um málefna-
starf SUS og ástand í
þjóðmálum. í leiðinni notuðu
fundarmenn tækifærið og
heimsóttu nokkra staði hér á
Austurlandi, skoðuðu atvinnu-
fyrirtæki og kynntu sér
viðhorf fólks til margvislegra
málefna.
Fundarmenn notuðu tækifæ-
rið og heimsóttu Eskifjörð þar
sem þeir kjmntu sér fískvinnslu
og útgerðarfyrirtæki á staðnum.
Aðalsteinn Jónsson, útgerðar-
maður, tók á móti hópnum og
sýndi þeim fyrirtæki sín og gafst
þar gott tækifæri til að kynnast
flestum greinum íslensks sjávar-
útvegs og fískvinnslu. Gestir
luku miklu lofsorði á móttökum-
ar hjá Aðalsteini og töldu mikinn
feng í að kynnast þessari undir-
stöðuatvinnugrein landsmanna
undir leiðsögn manns sem hefur
áratugareynslu af þessum
rekstri. Sérstaka athygli vakti
hin mikla uppbygging sem ríkir
á staðnum og bjartsýni fólks
yfír framtíð þessarar atvinnu-
greinar.
Einnig heimsóttu fundarmenn
Verslunarfélag Austurlands und-
ir leiðsögn Sigurðar Grétarsson-
ar, framkvæmdastjóra, og
kynntust rekstri verslunar á
landsbyggðinni og ekki síður
rekstri sláturhúss og afurðasölu-
fyrirtækis, en Verslunarfélag
Austurlands er eitt fárra fyrir-
tækja sem starfa að slátrun og
afurðasölu og era í einkaeign.
Einnig skoðuðu menn aðstöðu
ferðaþjónustu bænda á Skipalæk
í Fellum. _ Björa
Morgunblaðið/Bjöm Sveinsson
Stjórnarmenn SUS skoða netaverkstæði á Eskifirði undir leiðsögn Aðalsteins Jónssonar, sem er
annar frá hægri. .__