Morgunblaðið - 04.02.1988, Síða 55

Morgunblaðið - 04.02.1988, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1988 55 Bankarán eru daglegt brauð Það er mikið álag á bankastarfs- mönnum Ástralíu. Vart rennur sá dagur upp að það komi ekki hettu- klæddur maður vopnaður byssu og miði á gjaldkera í banka. Og það jafnvel oft sama daginn. Enginn bankamaður er óhultur því þar eru flestir starfsmenn gjaldkerar ásamt öðru. Kreditkortanotkun Ef íslendingar halda að þeir eigi met í notkun kreditkorta ættu þeir að koma hingað. Ástralir eiga víst metið í plastpeninganotkun. Hér hafa margar verslanir slík kort og eru iðnar við að bjóða þau án þess að kynna sér að neinu leyti fjár- hagsstöðu eða getu viðkomandi einstaklings til að borga. Og kerfið er þannig að ekki þarf endilega að greiða allan reikninginn við lok greiðsluttmabils. Þú getur greitt inn á pg greiðir svo vexti af afgangn- um. Margir hafa með þessu skapað sér skuldahala sem mun endast þeim út ævina. Eitt sinn er ég var í búð að skoða vöru og sagðist myndu koma seinna þegar ég ætti peninga var mér boðið kreditkort. Það var ekki einu sinni spurt hvað ég gerði, en ég hafði engan áhuga á kortinu. Þessi stóru nöfn eins og John Martins og David Jones ná með þessu móti taki á stórum hópi fólks. Ástralir eru sagðir skulda tvo og hálfan milljarð dollara vegna notk- unar korta. Eða tvö þúsund dollara á mann. Áramótaskrif blaðsins „The Advertíser“ En lítum aðeins á áramótaskrif blaðsins „The Advertiser": Land okkar er örlátt og gjafmilt og lofts- lagið gott. En þjóðin er gráðug að auki. Kröfur okkar eru meiri en möguleikamir að uppfylla þær. Við höfum ekki sömu hæfileika til að láta enda ná saman á sama hátt og forfeður okkar. Sjálfstraust okk- ar hefur minnkað og við höfum tilhneigingu til að láta eftir okkur að vera löt í sólinni að vilja fá hluti án þess að vinna fyrir þeim. Aukn- ingin á því að báðir aðilar vinni utan heimilis er að hluta afleiðing af því, en að hluta afleiðing eftia- hagsástandsins. Þegar við getum ekki brúað þetta bil getur útkoman orðið ljót og eyðilagt fjölskyldulífið. Það getur svo leitt af sér slæmt þjóðfélagsástand. Fátækt, atvinnu- leysi og ofbeldi. Það er sama þó að við viljum horfa í aðra átt, þess- ar ástæður verða alltaf fyrir hendi. Þær munu ekki hverfa á meðan við höldum áfram þeim eigingjama leik að eyða um eftii fram. Svo mörg voru þau orð. Mann- kynið virðist alls staðar samt við sig í þessum efnum. fHiorjgfw- í Kaupmannahöfn F/EST Í BLADASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTA- STÖDINNI, KASTRUPFLUGVELLI OG Á RÁÐHÚSTORGI Christopher Lambert fer með aðalhlutverkið í myndinni Sikileyingur- inn sem Bíóborgin hefur hafið sýningar á. Sikileyingurinn BÍÓBORGIN hefur hafið sýning- ar á myndinni Sikileyingurinn sem gerð er af leikstjóranum Michael Cimino. Hann gerði m.a. myndirnar „Deer Hunter“ og „Year of the Dragon“. Með aðal- hlutverk í myndinni fer Christ- opher Lambert. Myndin er byggð á sögu eftir Mario Puzo („The Godfather") og hefur komið út í íslenskri þýðingu. Sikileyingurinn var ein af metsölu- bókunum vestan hafs þegar hún kom þar út, en myndin þykir fylgja bókinni mjög vel eftir. I fréttatilkynningu segir m.a. um efni myndarinnar: „Oldum saman hefur Sikiley verið stjómað af bandalagi stjómmálaflokka, kaþ- ólsku kirkjunnar og Mafíunnar, svo að umbótasinnuð öfl hafa alltaf átt erfítt uppdráttar og forvígismenn þeirra hafa oft verið drepnir, ef þeir létu ekki af mótþróa við þetta spillta kúgunarafl. Eftir síðari heimsstyijöld kemur nýr maður fram á sjónarsviðið og gerir kröfu um jarðnæði fyrir leiguliða og vinnufólk á stóijörðum, þar sem stór flæmi vora oft í órækt af því að stórbændumir töldu sig ekki hafa hag af að nytja slíkt land, Salvatore Giuliano, en svo hét þessi maður, gat sér fyrst orð fyrir djarfleg rán, því hann lét ráns- fenginn renna til styrktar fátækum. Tschnics • SONY • DENON »Panasonic • cgSAMSUNG 10- 40 % afí sláttur Hljómtækjasamstæður frá kr. 11.600,- Magnarar (Sony) frá kr. 9.950,- • Geislaspilari (Technics) 14.700,- Kassettutæki (Denon) frá kr. 12.700,-Plötuspilarar (Panasonic) frá kr. 4.810,- Útvarpstæki (Sony) frá kr. 7.500,- • Hátalarar (Sony) frá kr. 8.800,- Vídeómyndavélar VHS-C frá kr. 81.700,- • Myndbandstæki VHS 24.900,- Sjónvarpstæki frá kr. 17.600,- • Ferðaútvarp m/kassettu frá kr. 3.800,- VHS spólur 3ja tíma frá kr. 380,- • Kassettur 60 mín. 3 stk. frá kr. 295,- Heyrnartól frá kr. 850,- • Vasadiskó-útvarp frá kr. 1.980,- • og margt fleira. Góð greiðslukjör. JAPISS BRAUTARHOLT 2 • KRINGLAN • SÍMI 27133

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.