Morgunblaðið - 04.02.1988, Síða 60
í>0
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1988
Helga Sigurðar-
dóttir - Minning
Fædd 6. júní 1899
Dáin 25. janúar 1988
Mjólkurbíllinn staðnæmdist við
brúsapallinn og Bubbi mjólkurbíl-
stjóri sagði mér að ég væri kominn
í sveitina. Ég labbaði heim Bæjar-
holtið á Ormstöðum í Grímsnesi og
hugsaði hvort nokkur myndi eftir
því, að ég ætti að koma þennan
dag. í sömu mund kom Helga á
móti mér og spurði hvort ég væri
ekki svangur og þreyttur. Eg var
kominn í sveit.
Það er mikið ævintýri fyrir átta
ára rolling að komast í sveit. Lífíð
blasir við í allri sinni dýrð. Lömbin
að fæðast út um allt, kálfamir baula
eftir mjólk í fjósinu og blindir kettl-
ingar mjálma inní hlöðu. Stinga
þarf upp fyrir púddumar svo þær
verpi, hundamir Vaskur og Trygg-
ur fylgjast með og á kvöldin er svo
læðst út í hestagirðingu og gælt
við vinina sína.
Líklega gera sér ekki allir grein
fyrir því hvað því fylgir mikill
ábyrgðarhluti að taka böm í sveit.
Helga var eins og önnur móðir allra
þeirra Q'ölda bama, sem vom í sveit
,hjá henni og Þorbimi á Ormstöðum.
í rauninni hef ég oft hugsað til
þess, hvað Guð getur skapað full-
komna einstaklinga, þegar ég
hugsa til hennar Helgu minnar og
vem minnar í sveitinni.
Það var ekki eina ferðin hennar
Helgu uppá Bæjarholtið, þegar hún
tók á móti mér. Endalaust var hún
á þönum í kringum krakkana á
heimilinu og hljóp oft uppá Holt
með kíki til þess að geta fylgst með
okkur útá túni eða einhvers staðar
í kring. Menningin í sveitunum um
miðja öldina var einstök. Vélvæð-
ingin og græna byltingin var að
koma, en gömlu handbrögðin og
vinnuaðferðimar lifðu góðu lífí.
Traktor og hestur með aktygi stóðu
hlið við hlið.
Gamla fólkið var sagnafrótt og
Helga, sem var alin upp í Kjósinni,
kynnti fyrir okkur heila sveit, hvem
bæ og fólkið á þeirn, án þess að
við höfðum nokkra sinni komið
þangað. Þorbjöm kvað rímur og
sagði sögur og ég gleymdi því aldr-
ei á vorin þegar við tróðum moðinu
úr lambhúsinu í strigapoka og fór-
um með það í hestana norður á
tún, hvað hann kvað af mikilli inn-
lifun: „Andri hlær svo höllin nærri
skelfur, við sína granna segir hann,
sjáiði manninn vitlausan." Mér dett-
ur í hug að þetta sé úr Andra rímum
sterka, það skiptir ekki máli, kraft-
urinn í þessum kveðanda var svo
mikill að ég er viss um að það hef-
ur haft áhrif á fóðmn hestanna.
Alveg sílaldnir eins og allar skepn-
umar á þessum bæ. Mikil unun er
að umgangast þá, sem hafa yndi
af því, að öllu líði vel í kringum sig.
Bæjarstemmningin í sveitinni var
stórkostleg. Bærinn var eins og lítið
konungsríki, þar sem drottningin
hafði hugsun á öllu. Aga-eldavélin
kumraði í eldhúsinu, alltaf heitt á
könnunni, pönnukökur, skúffutert-
ur og hverabrauð. Fleyttur var
ijóminn ofanaf mjólkinni, sem stóð
í emaleraðri fötu með skyrinu og
rabarbaragrautnum. Saltað kvígu-
kjöt sótt útí mókofa eða saltfískur
í eyrapott, sem var notaður til þess
að bleyta hann upp. Spilað var í
baðstofunni og mikið hlusta á út-
varp. Veðurfréttimar vom helgar
sem messugjörð. Máttur gömlu
„gufunnar" hefur sjálfsagt oft verið
mikill, en sjaldan hefur verið hlust-
að af þvílíkri andagt og þegar búið
var að fara með gamlan bílgeymi
uppí vindmyllu, hlaða hann þar og
síðan tengja við undrið á hillu í
baðstofunni og dulmögnuð rödd
Sveins Skorra eða Gunnars Schram
þuldi Baskervillehundinn eða Hver
er Gregory.
Helga fór stundum í bæinn á
summm og kom þá alltaf með eitt-
hvað handa okkur krökkunum. Hún
hafði læknishendur. Ef myndaðist
skeina þá læknaði hún það sam-
stundis. Hún sagðist vera fullmegt-
ug með pensilínduft frá lækninum
í Laugarási. Jafnvel doði í kúnum
hvarf eins og dögg fyrir sólu ef
Helga birtist í fjósinu. Hún hafði
mjög næman skilning á ungum sál-
um og byggði þær Upp eins og
mannvirki til þess að standast næð-
ing lífsins. Astríki hennar fylgdi
okkur hvert fótmál. Þegar pabbi lá
banaleguna sleppti hún varla aug-
unum af mér.
Hún hafði kynnst ýmsu í lífinu.
Mamma hennar dó þegar hún var
fimm ára, varð bráðkvödd hjá litlu
dóttur sinni í rúminu. Hún var vist-
uð á ýmsum bæjum í Kjósinni í
uppvextinum og síðan var hún í
vinnumennsku þar. Hún var gífur-
lega verkgóð, pijónaði á hálfa
sveitina, alla aðkomukrakkana og
var alveg einstök matreiðslukona.
Volgu pönnukökumar hennar
Helgu á engjamar vom svo góðar,
að það er einfaldlega ekki hægt að
lýsa því.
Foreldrar Helgu vom Sigurður
Torfason bóndi á Harðbala í Kjós,
fæddur í Gesthúsum á Seltjamar-
riesi og kona hans Sigríður Jóns-
'dóttir. Faðir Sigurðar var Torfí
sjómaður í Gesthúsum, Auðunsson
bónda á Kollslæk í Hálsasveit
Torfason. Móðir Sigurðar var
Agatha Sigurðardóttir vinnumanns
á Möðravöllum, Guðmundssonar
bónda á Brennu í Lundarreykjadal
Sigurðssonar. Móðir Agöthu var
Valgerður Magnúsdóttir bónda á
írafelli í Kjós, bróðir Sólveigar
langömmu Guðrúnar móður Bjama
Benediktssonar, forsætisráðherra.
Magnús var sonur Korts bónda á
Möðravöllum í Kjós Þorvarðarson-
ar, forföður Möðmvallaættarinnar.
Móðir Valgerðar var Halla Alexíus-
dóttir, bónda á Fremra Hálsi í Kjós
Alexíussonar og konu hans, Helgu
Jónsdóttur bónda á Fremra Hálsi
Amasonar, forföður Fremra Háls-
ættarinnar.
Móðir Helgu var Sigríður Jóns-
dóttir bónda í Hjarðameskoti á
Kjalamesi Gíslasonar og konu hans
Valgerðar Einarsdóttur bónda í
Norðurkoti á Kjalamesi Bjamason-
ar.
Bróðir Helgu var Jón bóndi á
Fremra Hálsi í Kjós, en hann er
látinn.
Undir þrítugt eignaðist Helga
son sinn, Sigurð Blöndal Magnús-
son leigubílstjóra í Reykjavík. Faðir
hans var Magnús Blöndal búfræð-
ingur og oddviti á Gijóteyri í Kjós,
síðar endurskoðandi hjá Mjólkurfé-
lagi Reykjavíkur. Kona Sigurðar er
Sólveig Jóna Guðjónsdóttir og eiga
þau þijú böm.
Um þrítugt fluttist Helga með
bam sitt í Grímsnesið og gerðist
vinnukona hjá sr. Guðmundi Ein-
arssyni á Mosfelli, en hann var frá
Flekkudal í Kjós. Einnig vistaðist
hún um tíma Sigurmundi lækni Sig-
urðssyni í Laugarási í Biskupstung-
um. 22. febrúar 1936 giftist hún
svo Þorbimi Bjamasyni á Ormstöð-
um í Grímsnesi, en hann hafði áður
verið vinnumaður hjá Sigríði Guð-
mundsdóttur, systur Tómasar
skálds, á Ormstöðum. Var nú búin
að kaupa hálfa jörðina.
A Ormstöðum vom gamalmenni,
sem Helga og Þorbjöm tóku að
sér. Fyrsta sumarið mitt í sveitinni
var Ámi Pálsson fjörgamall maður
þar, en hann lést um veturinn og
Guðrún Guðmundsdóttir hafði dáið
árið áður. Helga annaðist þessi
gamalmenni af stakri alúð auk
§ölda annarra sem komu til lengri
eða skemmri tíma í heimsókn á
Ormstaði. Svo vom Sólheimar næsti
bær, með Sesselju og öll bömin.
Við vorum margr krakkamir á
Ormstöðum fyrstu sumur mín í
sveitinni, en svo atvikaðist það
þannig, að síðasta sumarið mitt
varð einnig síðasta sumarið þeirra
Helgu og Þorbjamar á Ormstöðum.
Um haustið rákum við Þorbjöm
saman safnið heim úr Klaustur-
hólaréttum eins og við höfðum gert
í svo mörg haust saman og það oft
á hausti, eftirsafn og þriðju leitir.
Við dmkkum kaffí á Bijánsstöðum,
drógum sundur hjá Eyvík og þegar
við riðum yfír Gijótá sá ég að blik-
uðu tár í augum gamla mannsins.
Hann talaði um hvað féð væri fal-
legt og svo datt hann af baki við
Bæjarholtið. Hélt í tauminn á Herði
sínum, sem var allra hesta mestur,
jarpur, átti erfítt með að standa upp
og sagði að hnén hefðu svikið sig.
Við vomm báðir hnuggnir á leið
heim Bæjarholtið og það var óum-
ræðanlega sorglegt að fínna þennan
trega og söknuð hjá gamla mannin-
um til jarðarinnar og Grímsnessins
góða sem hafði_ fóstrað hann frá
bamæsku. „Þú Ámesþing ég elska
nafnið þitt.“
Helga bjó Þorbimi yndislegt
heimili á Laugaveginum, þegar þau
fluttu í bæinn og hann hóf störf
hjá Eimskip. í rauninni aðlöguðust
þau bæjarlífinu ágætlega. Helga
var í sjálfu sér vön Reykjavík, hafði
oft komið hingað úr Kjósinni sem
ung stúlka og þá oftast fótgang-
andi. Þorbjöm dó fyrir nær sautján
ámm og síðustu árin var Helga á
Elliheimilinu Grand við bestu að-
hlynningu.
Núna verður mörgum hugsað til
ástúðarinnar, traustsins og hlýjunn-
ar, sem stafaði ætíð af þessari konu,
örlætisins og tryggðarinnar. Margir
foreldrar hafa hugsað hlýtt til henn-
ar og núna að leiðarlokum vill móðir
mín þakka henni allt yndislegt.
Diddi minn, Sólveig og bömin
ykkar. Ég votta ykkur mína dýpstu
samúð. Guð ástríkisins haldi Helgu
minni á Ormstöðum að hjarta sér.
Guðlaugur Tryggvi Karlsson
t
Eiginkona mín,
BJARNHEIÐUR SIGURRÍNSDÓTTIR,
Sklpholti 32,
lést í Landakotsspítala þriöjudaginn 2. febrúar.
Jaröarförin auglýst síöar.
Páll Sveinsson.
t
Hjartkær eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR JÓSEFSSON
fyrrv. húsvöröur Hallveigarstöðum,
Hátúni 4,
lést þriöjudaginn 2. febrúar í hjartadeild Landspítalans.
Kristin Guðmundsdóttir,
dætur, tengdasynir og barnabörn.
t
Móöir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
VILBORG fVARSDÓTTIR,
Furugerði 1,
lést í Landspítalanum 2. febrúar.
Leifur Björnsson, Kristin Sigurjónsdóttir,
Sigrún Björnsdóttir, Helgi Hallgrímsson,
Hreinn Björnsson, Margrét Pálmadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÁSLAUG GUÐJÓNSDÓTTIR,
Skeljagranda 7,
áður Snorrabraut 34,
veröur jarösungin frá Fríkirkjunni föstudaginn 5. febrúar kl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hennar
er bent á Sjálfsbjörg.
Alda Andrésdóttir, Þórarinn Árnason,
Jóhanna Andrésdóttir,
Sigríður Andrésdóttir, Sigurður R. Guðjónsson
og barnabörn.
t
Vinur minn, faðir, fósturfaöir, tengdafaöir og afi,
FRIÐFINNUR KJÆRNEÐSTED KONRÁÐSSON,
Austurgötu 18,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfiröi föstudaginn 5.
febrúar kl. 13.30.
Lilja Sigurðardóttir,
börn, fósturbörn,
tengdabörn og barnabörn.
t
Faöir okkar, tengdafaöir og afi,
GUNNLAUGUR ÁGÚST EINARSSON,
Lækjarmóti,
Sandgerði,
verður jarðsunginn frá Hvalsneskirkju laugardaginn 6. febrúar kl.
14.00.
Ólafur Gunnlaugsson,
Karl Þorbergsson.
t
Eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma,
GUÐRÚN ARNFRÍÐURTRYGGVADÓTTIR,
Hróarsholti, Flóa,
veröur jarösungin frá Hraungeröiskirkju föstudaginn 5. febrúar
kl. 14.00.
Bílferð veröur frá Hópferöamiöstöðinni, Bíldshöföa 2a, Reykjavik,
kl. 12.30.
Gestur Jónsson,
Ragnheiður Gestsdóttir, Einar Þórarinsson,
Tryggvi Gestsson, Alda Hermannsdóttir,
Guðjón Gestsson, Rannveig Einarsdóttir,
Hólmfríður Gestsdóttir, Tómas Kristjánsson,
Haraldur Gestsson, Jóna Sigurlásdóttir,
Kristin Gestsdóttir, Gylfi Ólafsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Faðir okkar, terigdafaðir og afi,
KRISTJÁN S. HERMANNSSON,
Tómasarhaga 32,
veröur jarösunginn frá Neskirkju föstudaginn 5. febrúar kl. 10.30.
Árni Kristjánsson,
Guðrún Kristjánsdóttir,
Steinunn Kristjánsdóttir,
Hermann Kristjánsson,
Lára Clausen,
Kjartan Jónsson,
Sigurjón Einarsson,
Rakel Ólafsdóttir
og barnabörn.
t
Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir, afi og bróðir,
ÞORSTEINN MAGNÚSSON
kjötmatsmaður,
Stigahlfð 30,
veröur jarösunginn frá Mosfelli i Mosfellssveit laugardaginn 6.
febrúar kl. 14.00.
Svanhvft Magnúsdóttir,
Súsanna Pálsdóttir, Magnús Þorsteinsson,
Erna Þorsteinsdóttir Williams,
barnabörn og systkini hins látna.