Morgunblaðið - 04.02.1988, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1988
61
Ingibjörg Amórs-
dóttír — Minning
Fædd 17. júní 1902
Dáin 28. janúar 1988
I dag, fimmtudag 4. febrúar,
kveð ég elskulega vinkonu mína,
hana Ingibjörgu Amórsdóttur.
Mig setti hljóða 28. janúar þegar
tengdamóðir mín hringdi til að til-
kynna okkur, að móðir hennar
hefði látist þá um kvöldið í Borg-
arspítalanum. Ég hugsaði með
mér, ætli ég eigi nokkum tíma
eftir að kynnast eins góðri mann-
eskju og eignast eins góðan vin
og hana Ingibjörgu. Ég vil vitna
í orð sona minna er þeir sögðu:
„Amma mátti ekki deyja, við átt-
um eftir að segja henni svo margt
og hún var alltaf svo heit og
mjúk.“ Svona hafa sjálfsagt marg-
ir hugsað vegna þess að Ingibjörg
var öllum góð og öllum svo mikill
vinur og þó að kynslóðabilið væri
stundum mikið þá hafði hún gott
lag á að brúa það.
Já, það er stórt skarð höggvið
í ijölskylduna okkar núna, vegna
þess að þó að Ingibjörg væri orðin
þetta fullorðin, að verða 86 ára
gömul, þá hélt hún fólkinu alltaf
saman og síðustu dagana fyrir
andlát hennar var hún enn að tala
um að nú yrði hún að fara að bjóða
fólkinu til sín í mat, en það var
hennar yndi að fá að gera því sem
mest til góða. Yfírleitt hittist fjöl-
skyldan heima hjá henni og eftir-
lifandi eiginmanni hennar,
Sæmundi Bjamasyni, og bæði
tóku þau á móti okkur öllum með
mikilli hjartahlýju og vom allir
alltaf velkomnir hvemig sem á
stóð, á ég þá við hvað Ingibjörg
var orðin mikill sjúklingur og gerði
hún oft meira en hún gat. En vilj-
inn sem sjálfsagt hefur alltaf
auðkennt hana rak hana endalaust
áfram.
Elsku Sæmundur, ég vil votta
þér dýpstu samúð og bið góðan
Guð að styrkja þig í þinni miklu
sorg, en það er huggun harmi
gegn að eftir lifír minningin um
þessa góðu konu sem þú áttir,
hana Ingibjörgu.
Að endingu biðjum við öil böm-
in hennar í Hjarðarlandi 5 góðan
guð að vemda og blessa Ingibjörgu
ömmu og þakka henni allt það
góða sem hún veitti okkur.
Hrafnhildur Ingimarsdóttir
Ingibjörg var fædd að Tungu í
Nauteyrarhreppi við ísafjarðar-
djúp. Foreldrar hennar vom hjónin
Sigríður Ragnheiður Jónsdóttir frá
Dröngum í Dýrafírði, fædd 24.
júní 1877 og Amór Hannibalsson
frá Neðri-Bakka, Nauteyrarhreppi
við ísafjarðardjúp, fæddur 11. júlí
1869.
Hún ólst upp í Tungu hjá for-
eldrum sínum, ásamt 7 systkinum,
en þau vom eftir aldursröð: Hann-
es f. 1899, Sigríður f. 1900,
Ingibjartur f. 1904, Matthías f.
1906, Stefanía f. 1910, Guðmund-
ur f. 1914 og Ása f. 1917. Af
þeim systkinum em eftirlifandi
Ása og Ingibjartur, bæði búsett í
Reykjavík.
Amór lézt þ. 15. desember
1922. Skömmu eftir lát manns
síns brá Sigríður búi og fluttist
ásamt bömum sínurti til
Reykjavíkur.
Ingibjörg giftist 22. júní 1940
eftirlifandi eiginmanni sínum,
Sæmundi Bjamasyni, verslunar-
stjóra, ættuðum frá Búðardal,
Dalasýslu. Bjuggu þau í Búðardal
fyrstu árin. Þar eignuðust þau
tvíburana Auði og Þorstein, áður
hafði Ingibjörg eignast son, Ar-
nór. Faðir hans var Þorlákur
Kristjánsson, bóndi í Álfsnesi á
Kjalamesi.
Á Sólvangi í Búðardal vom þau
Ingibjörg og Sæmundur með veit-
ingarekstur af miklum dugnaði og
myndarbrag í nokkur ár. Var Ingi-
björg orðlögð fyrir hvað hún bjó
til góðan mat og hann ekki af
skomum skammti. Hún var sér-
lega dugleg og ósérhlífín og mun
hún oft hafa lagt nótt við dag á
þessum ámm.
Ekki mun hún hafa unað hag
sínum nógu vel í Búðardal, og
fluttust þau Sæmundur til
Reykjavíkur. Þar tóku þau að sér
mötuneyti Sjómannaskólans í
Reykjavík um tíma. Eftir að þau
hættu því fór hún að vinna í sæl-
gætisgerðinni Víkingi, og vann þar
að mestu þangað til hún hætti
vinnu utan heimilisins.
Ingibjörg var mjög félagslynd.
Eftir að hún fluttist frá Búðardal
tók hún mikinn þátt í ýmsum fé-
lagsmálum. Hún starfaði m.a. í
Kvenréttindafélagi íslands, Kven-
félagi Alþýðuflokksins og sat í
stjóm Iðju í nokkur ár.
Hún hafði ánægju af að vera
meðal fólks og naut sín þvi vel í
félagsmálum. Hún var kvenrétt-
indakona og þótti henni kjör
kvenna oft fyrir borð borin. Hún
hafði gott skap, var jákvæð og
bjartsýn, horfði alltaf á björtu hlið-
t
Jarðarför móður okkar og tengdamóður,
INGIGERÐAR LOFTSDÓTTUR,
fer fram föstudaginn 5. febrúar kl. 15.00 frá Fríkirkjunni i Reykjavík.
Hörður Óskarsson,
Ingveldur Óskarsdóttir,
Jón Óskarsson,
Þorbjörg Sigtryggsdóttir,
Einar Sveinsson,
Katrfn Marteinsdóttir.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og samúð
við andlát og útför,
HELGA S. JÓNSSONAR,
isabakka,
Hrunamannahreppi.
Anna S. Sigurðardóttir,
Jón M. Helgason,
Sigurður Jónsson.
t
Þökkum innilega öllum þeim, er sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóð-
ur, ömmu og langömmú,
DAGBJARTAR NÖNNU JÓNSDÓTTUR,
Jaðri,
Ólafsvík.
Steinn Kristjánsson,
Eygló Steinsdóttir,
Halla Bryndís Steinsdóttir,
Adolf Steinsson,
Nfna Breiðfjörð Steinsdóttir,
Hilmar Gunnarsson,
Jón Viggósson,
Birgir Jónsson,
Erla Þórðardóttir,
Áslaug Þráinsdóttir,
barnabörn og langömmubörn.
t
Þökkum innilega þær.fjölmörgu samúðarkveðjur og þann mikla
hlýhug er okkur var sýndur við andlát og jarðarför eiginmanns,
föður, tengdaföður og afa,
PÁLS INGIBERGSSONAR
frá Vestmannaeyjum,
er andaðist í Landspítalanum 15. janúar sl.
Guð blessi ykkur öll.
Maren Guðjónsdóttir,
Reynir Pálsson, Sigríður Björnsdóttir,
Bergur Reynisson, UnnurBirna Reynisdóttir,
Páll Már Reynisson.
t
Hjartkæru vinir og ættingjar. Hugheilar kveðjur og þakklæti til
ykkar allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginkonu minnar, móður og tengdamóður,
SIGRÍÐAR S. INGIBERGSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks 14-G Landspítala.
Guð blessi ykkur öll.
Skuli Sveinsson,
Sigurdís Skúladóttir,
Sveinn Skúlason, Erna Valsdóttir,
Sigríður Ágústa Skúladóttir, Ari Kristján Sæmundsen.
Theodór G. Guð-
mundsson- Kveðja
amar í lífínu. Svartsýni var henni
ekki að skapi. Síðustu árin átti
hún við mikla vanheilsu að stríða
og margar voru sjúkrahúslegumar
orðnar hjá henni. En hún var
kjarkmikil og kvartaði ekki. Hún
var ein af þeim sem gafst ekki
upp fyrr en í fulla hnefana.
Ég minnist hennar af hlýhug
og þakka henni samverustundim-
-ar. Þær hefðu mjög gjaman mátt
vera fleiri. Ég mun sakna hennar.
Ég votta Sæmundi, bömum
hennar, bamabömum og systkin-
um samúð mína. Blessuð sé
minning henrtar.
Tengdadóttir
Fæddur 9. mars 1966
Dáinn 12. janúar 1988
Með skólatöskur á bakinu, kom-
um við með haustinu lítil böm.
Og saman eltumst við og stækkuð-
um, lærðum og kannski vitkuð-
umst, þóttumst fullorðin. Saman
áttum við vonir og drauma,
kannski hugsjónir. Saman áttum
við vonbrigði og sorgir. Og þó
stundum hafí eitthvað komið upp
á, náðum við saman aftur, og héld-
um saman.
En nú er einn okkar horfínn,
Theodór Grímur Guðmundsson
farinn. Alltof ung emm við, til að
þurfa að sjá á eftir félaga okkar.
En við vitum að vini okkar líður
vel og að að því kemur að við hitt-
umst aftur.
Lilli og Ella, systur, ættingjar
og vinir. Teddi er mitt á meðal
okkar og mun alltaf vera.
Bekkjarfélagar af Blönduósi.
Glaður hópur á góðri stund. 16.
júní, eins árs stúdentaafmæli. Einu
sinni enn situr F-bekkur frá ámn-
um 1983—1986 saman og
skemmtir sér hver sem betur get-
ur. Teddi, eini karlmaður bekkjar-
ins, situr hljóður með vinalegt bros
á vör. Brosið breikkar þegar sko-
tið er fram sniðugum athugasemd-
um og hlátur heyrist frá honum.
Gleðiglampi fyllir augun. Hver
hefði trúað að þetta væri í síðasta
skiptið sem allur bekkurinn kæmi
saman, að Teddi yrði ekki oftar
með okkur?
Hvað skal segja þegar bekkjar-
bróðir og vinur á unga aldri fellur
frá. Orð megna svo' ósköp lítils.
Aðeins minningin um svarthærða,
rólega strákinn lifír.
Teddi var atorkusamur á sviði
félagsmála í M.A. Hann hafði mik-
inn áhuga á pólitík og hélt ósjaldan
heitar ræður. Talaði af tilfínningu.
Augun tindmðu af áhuga. Hann
vildi vera virkur, geta stuðlað að
meira réttlæti ogjafnræði. Eflaust
hefur honum fundist áhugaleysi
okkar æði mikið en hann lét aldr-
ei bilbug á sér fínna og kímdi á
sinn góðlátlega hátt.
Nú tindra augun ekki lengur
og söknuður fyllir hugi okkar. Við
áttum saman góðar stundir sem
gleymast aldrei. Við sendum ást-
vinum Tedda okkar innilegustu
samúðarkveðjur og hafí hann þökk
fyrir samveruna og vináttuna.
Bekkjarsystur úr M.A.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jaröarför eigin-
manns mins, föður, tengdafööur, afa og langafa,
GUÐFINNS L. FRIÐRIKSSONAR,
Grundarhóli 1,
Bolungarvfk.
Björg Jónsdóttir,
Ingibjörg Guðfinnsdóttir,
Jón E. Guðfinnsson,
Kristrún Guðfinnsdóttir,
Sæbjörn Guðfinnsson,
Guðmundur Guðfinnsson,
Gylfi Guðfinnsson,
Magnea Guðfinnsdóttir,
Rannveig Guöfinnsdóttir,
Jóna Guðfinnsdóttir,
Hjörleifur Guðfinnsson,
Margrét Guðfinnsdóttir,
Sigurður Guðfinnsson,
barnabörn og
Einar Þorsteinsson,
Guðbjörg Hermannsdóttir,
Guðmundur Agnarsson,
Rannveig Margeirsdóttir,
Bryndfs Ragnarsdóttir,
Gunnar Þorgilsson,
Árni Másson,
Ingvar Ástmarsson,
Þorbjörg Harðardóttir,
Rúnar Þór Þórðarson,
Sigrún Þorgilsdóttir,
barnabarnabörn.
t
Þökkum auösýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
SIGRÍÐAR STEFÁNSDÓTTUR,
Ásvallagötu 31,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki deild A-5 Borgarspital-
anum fyrir góða umönnun í veikindum hennar.
Ásdís B. Óskarsdóttir, Gfsli Jónsson,
Jón Kr. Óskarsson, Sigurborg H. Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför
móður okkar og tengdamóður,
ÞÓRDÍSAR MAGNÚSDÓTTUR,
Bollagötu 2,
Reykjavfk.
Gunnar Runólfsson,
Jón Hilmar Runólfsson,
Brynja Dfs Runólfsdóttir,.
Ingibjörg Eiíasdóttir,
Ragnheiður Haraldsdóttir,
Vatnar Viðarsson.
Lokað
Lokað föstudaginn 5. febrúar frá kl. 13.00-16.00 vegna
útfarar GUÐRUNAR TRYGGVADÓTTUR.
Höfðadekk hf.