Morgunblaðið - 04.02.1988, Síða 69
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1988
69
SKÍÐI / VETRARÓLYMPÍULEIKARNIR í CALGARY
Einar Ólafsson erfarinn til Calgary:
„Gerí mér
engar
gyllivonir“
„ÉG er mjög spennturog það
verður árœðanlega mikil upp-
lifun að taka þátt í Ólympíuleik-
unum í Calgary. Ég er hœfilega
bjartsýnn á árangur en geri
mór engar gyllivonir. Á góðum
degi get ég hangið í þeim
bestu, en það fer eftir dags-
forminu," sagði Einar Ólafs-
son, skíðagöngumaðurfrá
ísafirði, sem hélt áleiðis til
Calgary í gœr ásamt þjálfara
sínum, Mats Westerlund.
Einar verður eini íslenski kepp-
andinn í skíðagöngu á
ólympíuleikunum í Calgary sem
heQast 13. febrúar. Hann keppir í
15, 30 og 50 km göngu. Þetta verð-
ur í annað sinn sem Einar keppir
á vetrarólympíuleikum, hann var
einnig meðal keppenda í Sarajevo
í Júgóslavíu 1984.
Hann hélt utan í gær ásamt Svían-
um Mats Westerlund, sem nýlega
var ráðinn þjálfari íslenska lands-
liðsins í skíðagöngu. Þeir munu
dvelja í vikutíma við æfingar, ásamt
sænska landsliðinu, í Vemon í
bresku Kólumbíu sem er miðja vegu
milli Vancouver og Calgary. Einar
keppir fyrst í 30 km göngu 15.
febrúar.
Einar hefur átt við bakmeiðsli að
stríða, en sagðist vera á batavegi.
„Ég keppti á sænska meistaramót-
inu í síðustu viku og gekk það
vonum framar. Varð í 18. sæti í
50 km göngu, 10 mínútum á eftir
Jan Ottosson, sem sigrað og náði
10. besta tímanum í boðgöngu. Ég
fann þá ekki fyrir bakmeiðslunum
og vonandi taka meiðslin sig ekki
upp í Calgary," sagði Einar.
Alpagreinaliðið, Daníel Hilmarsson
og Guðrún H. Kristjánsdóttir, halda
utan 11. febrúar ásamt Hreggviði
Jónssyni, formanni SKÍ, sem verður
fararstjóri.
Morgunblaðið/Bjami
Til Calgary
Elnar Ólafsson skíðagöngumaður frá ísafírði hélt áleiðis til Calgary ( gær.
Hér er hann ásamt þjálfara sínum, Mats Westerlund, að ganga frá skíðunum
áður en lagt var af stað.
SUND / LANDSLIÐIÐ
Sundfólk á faraldsfæti
KNATTSPYRNA
Mike England
varrekinn
Tekur þátt í mótum í Danmörku, Svíþjóð og Þýskalandi
ELLEFU íslenskirsundmenn
munu keppa á mótí í Helsing-
borg í Danmörku um aöra
helgi. Þetta er sundfólk sem
ekki stefnir aö ólympíulág-
mörkum. Fyrst veröur keppt í
sprettsundmóti, Boliden
Sprint, í 50 m laug og síöan í
Öresund-mótinu.
Eftirtaldir hafa verið valdir til
fararinnar:
Eyleifur Jóhannesson ÍA, Hannes
Már Sigurðsson UMFB, Helga Sig-
urðardóttir, Pálína Bjömsdóttir,
Ingólfur Amarson, Þórann Kristín
Guðmundsdóttir og Þuríður Péturs-
dóttir frá Vestra á ísafírði, Amþór
Ragnarsson SH, Björg Jónsdóttir
og Heba Friðriksdóttir úr UMFN
og Ingi Þór Einarsson, KR.
Þjálfari liðsins er Ólafur Þór Gunn-
laugsson og fararstjóri verður
Ingimar Guðmundsson, formaður
landsliðsnefndar.
Ragnhelöur Runólfsdóttlr reynd-
ir við olympíulagmarkið í Sviþjóð.
Hmmkeppa
f Gautaborg
15. febrúar heldur enn einn lands-
liðshópur utan til keppni og mun
freista þess að ná ólympíulagmörk-
unum. Keppt verður á opna sænska
meistaramótinu sem fram fer í
Gautaborg 17. til 18. febrúar. Þau
sem fara til Svíþjóðar em:
Magnús Már Ólafsson, Bryndís Ól-
afsdóttir, Ragnheiður Runólfsdótt-
ir, Amþór Ragnarsson og Ragnar
Guðmundsson.
Guðmundur Harðarson og Hrafn-
hildur Guðmundsdóttir fara með
liðinu til Svíþjóðar.
Eövarö Þór
ásterkmót
Eðvarð Þór Eðvarðsson tekur þátt
í sterkum sundmótum í A-Berlín
og Bonn í næstu viku. Með honum
fer Friðrik Ólafsson, þjálfari.
Mike England, landslið-
þjálfari Wales, var rekinn
í gær eftir fund knattspymu-
sambands Wales. í framhaldi
af því var tilkynnt að umsóknar-
frestur fyrir landsliðsþjálfara-
stöðuna væri til 24. febrúar.
Það voru þrír framkvæmdastjór-
ar sem þóttu lfklegastir. John
Toshack, þjálfari Reai Sociedad
á Spáni, en hann sagði í gær
að hann hefði ekki áhuga á
hlutastarfí.
Terry Yorath, framkvæmdastjfoi
Swansea, sagði 1 dag að hann hefði áhuga
i að þjálfa liðið, en stjðmarformaður
Swansea sagði að það kæmi ekki til greina
að hann þjálfaði bæði Swansea og velska
landsliðið.
Mike England hefur sjálfur sagt að hann
vilji fá David Williams, sem þjálfar og
leikur með Norwich. .Hann er rétti mað-
urinn fyrir starfið og myndi standa sig
vel,“ sajgði England.
Þá hefur Aian Durban, sem var rekinn
frá Cardiff I fyrra, lýst yfir áhuga á starf-
inu.
Það má þó búast við þv( að launin verði
ekki n\jög há. Mike England hafði 660.000
kr. f árslaun, en það þðtti of hátt!
ÍÞtfimR
FOLK
■ TERRY Venables fram-
kvæmdastjóri Tottenham er nú í
Barcelona. Þar er hann að ganga
frá skattamálum sínum síðan hann
þjálfaði liðið. Hann ætlar þó að^
nýta ferðina til að reyna að fá
Roberto Fernandes til Totten-
ham. Venables hefur rætt við
forseta Barcelona , José Nunez,
en hann vill ekki láta Fernandes
fara frá Barcelona. Það yrði dýrt
fyrir Venables að fá Fernandes
til Tottenham, myndi líklega kosta
um eina milljón punda.
■ ERIC Harrison sem tók við
Watford fyrir þremur vikum, af
Dave Basset, hefur þegar sett
mark sitt á liðið. í gær tók hann
Steve Terry af sölulista og hann
skrifaði undir tveggja ára samning
við Watford.
■ RUDI Völler, landsliðsmaður
V-Þýskalands, sem leikur með
Roma á Ítalíu, á nú yfir höfði sér
kr. 210 þús. sekt. Forráðamenn
Roma vom ekki ánægðir með að
Völler hafí farið til Frankfurt um
sl. helgi, án þess að fá leyfi til að
fara frá Róm. Völler er undrandi
á þessu og segir: „Ég fór aðeins til
Frankfurt til að leita lækninga við
meiðslunum í læri, sem hafa hijáð
mig að undanfömu.“
■ FIMLEIKASAMBAND íslands
mun halda Norðurlandamót drengja
hér á landi 1989, Norðurlandamótið
í nútímafímleikum 1989 ogNorður-
landamóti seniora 1993. Þetta var
ákveðið á fundi Norðurlandanna í
Danmörku um síáustu helgi. FSÍ
mun hefja undirbúning í þessum
mánuði.
■ EVRÓPUKEPPNI landsliða
í borðtennis, 3. deild, fer fram hér
á landi 20.21. febrúar. Fimm lands-
liðsmenn ásamt landsliðsþjálfara er
nú í æfínga- og keppnisferð í Dan-
mörku og undirbýr sig að kappi
fyrir mótið. Auk Islands taka þátt
landslið frá Færeyjum, Guemsey,
Jersey og Mön.
■ UNGLINGANEFND ÍSÍefn-
ir til ráðstefnu um íþróttir bama
og unglinga helgina 19.-21. febrúar
næstkomandi á Akureyri. Lögð
verður áhersla á að ráðstefnugestir
taki virkan þátt f umflöllun, en leit-
að hefur verið eftir hæfum mönnum
til framsögu og hafa undirtektir
verið góðar. Hveiju sérsambandi
og héraðsambandi gefst kostur á
að senda tvo fulltrúa á ráðstefnuna.
■ TÓMAS Guðjónsson, borð-
tennismaður úr KR, er hættur við
að hætta. Hann hafði lýst því 'yfir
að hann væra hættur í fþróttinni.
íkvöld
Einn leikur verður leikinn í
úrvalsdeildinni í körfuknattleik
í kvöld. Keflvíkingar fá Vals-
menn í heimsókn kl. 20.
HANDBOLTI / KVENNALANDSLIÐIÐ
Þrír sigrar gegn Finnum
ÍSLENSKA kvennalandsliöið í
handknattieik sigraði þaö
finnska íöllum þremur leikjum
liðanna. Fyrsti leikurinn endaði
19:11 f sföan unnu þœr 13:11
og loks 21:12 í gœrkvöldi.
Lúðvíksdóttir, Katrín Friðrikssen
og Ingibjörg Einarsdóttir gerðu þijú
mörk hver, Margrét Theódórsdóttir
og Inga Lára Þórisdóttir gerðu tvö
mörk og þær Ósk Víðisdóttir, Eva
Baldursdóttir og Kristín Péturs-
SÉRTILBOÐ +
TOLLALÆKKUN
á msiiskápum
Nú ertíminn til að fð sér FRYSTISKÁP.
Að sögn Helgu Magnúsdóttur,
fararstjóra íslenska liðsins,
léku stúlkumar sinn bestá leik í
gær. Þær höfðu eins marks forskot
í leikhléi, 8:7. „Þetta var mjög góð-
ur leikur og má segja að fslenska
liðið hafí kafsiglt það finnska í
seinni hálfleik. Þjálfarinn lét yngri
og óreyndari stúlkumar leika í fyrri
hálfeik 'og hélt þeim leikreyndari
fyrir utan. í seinni hálfleik setti
hann þær inná og þa'rúlluðu þær
fínnska liðinu upp,“ sagið Helga.
Guðríður Guðjónsdóttir var marka-
hæst að vanda með 5 mörk, Ema
dóttir eitt mark hver.
íslenska liðið sigraði það finnska í
fyrra kvöld með 13 mörkum gegn
11 í frekar slökum leik. Finnland
hafði eins marks forystu I leikhléi,
5:4. Guðríður Guðjónsdóttir og
Margrét Theódórsdóttir voru
markahæstar með 3 mörk, Ema
Luðvíksdóttir, Guðný Gunnsteins-
dóttir og Inga Lára Þórisdóttir
gerðu tvö mörk hver og Katrín
Friðrikssen eitt.
Liðið heldur til Svfþjóðar í dag og
leikur tvo leiki við sænska landslið-
ið á fóstudag og laugardag.
Electrolnx
Úrval af útlitsgölluðum 0]|
á frábœru verði.
frystlskápum
DvEMI:
Fiystiskápur H155 - 270 L
afsláttur v. útlitsgalla
tollalœkkun
53.510.-
10.230.-
3.500.-
39.780,-
Nú 35.802.- stgr.