Morgunblaðið - 15.11.1988, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1988
39
BARRÓNAR
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Regnboginn ★ ★ ★
Barflugur — “Barfly"
Leikstjóri: Barbet Schroeder.
Handrit: Charles Bukowski, eftir
eigin sögu. Tónlist: Paula Ericson.
Kvikmyndatökustjóri: Robby Mull-
er. Aðalleikendur: Mickey Rourke,
Faye Dunaway, Alice Krige, Frank
Stallone, J.C. Quinn. Bandarísk.
Cannon 1988.
Það er kunnara en frá þurfi að
segja að tilfínningamönnum, skáldum
og listamönnum er hættara við að
gerast ötulir liðsmenn Bakkusar en
öðrum. Myndin Barflugur fjallar ein-
mitt um einn slíkan, Henry Chinask-
is, (Rourke), persónu sem handrits-
höfundurinn og skáldið Charles
Bukowski byggir á eigin reynslu sem
b.-ennivínsmaður og bölsýnt skáld.
Chinaskis er dykkjurútur sem eyð-
ir lífínu mestmegnis í sóðalegum
leiguhjöllum og lélegum krám. Þegar
andinn blæs honum í brjóst yrkir
hann og sendir frá sér sögu og sögu
til birtingar. Annars er lífíð og tilver-
an brennivín og aftur brennivín,
slagsmál og stólpakjaftur. Inní grá-
móskulegan raunveruleika byttunnar
slæðast tveir kvenmenn; Wanda
(Dunaway), sem er álíka illa komin
í víninu og Chinaskis, svo og ljósið í
myrkrinu, farseðill skáldsins til betra
lífs, útgefandinn Sorenson (Krige).
Sorenson tekur Chinaskis uppá arma
sína um stund, en hann finnur að
þetta er ekki hans rétta umhverfí,
heldur líður honum sem fanga í búri
með rimlum úr gulli. Hann snýr til
baka á knæpuna, til grútartýrunnar,
Wöndu.
Mönnum getur ekki verið sjálfrátt
ef þeir fínna frelsið og sæluna á
aflóga drykkjubúlum í félagsskap
utangarðsmanna og hressa uppá til-
veruna með því að láta berja sig ein-
sog harðfísk. Enda er Chinaskis hald-
inn ólæknandi sjálfseyðingarhvöt,
skáld í mikilli kreppu, bölsýnismaður
sem kraflar sig niður í ræsið í stað
þess að klóra í bakkann. Hótfýndnin
og andlegir yfírburðir gagnvart fé-
lagsskapnum og eitt og eitt velheppn-
að kjaftshögg hjálpar uppá sakirnar.
Hér, í afskiptaleysi botnsfallsins,
líkar honum lífíð — hér vill hann vera.
Barróninn og skáldið Bukowski
fjallar um þetta volaða lífemi af
kunnáttusemi, hann átti það sjálfur.
Maður fínnur líka fyrir því hvað hélt
honum gangandi. Það var viss virðing
fyrir hlutskiptinu og sjálfum sér í
öllu kraðakinu. Áhyggjuleysi fyrir
morgundeginum og algjört, siðferði-
legt ábyrgðarleysi. Menn einsog hann
telja vafalaust ákaflegá lítinn hluta
barróna, en þeir gefa þessu þjóð-
félagi utangarðsfólks vissan sjarma.
Rourke og Dunaway eru trúverð-
ugir barrónar í Barflugum, óvenju
forvitnilegfri mynd, fyrir margra
hluta sakir.
Þeir hafa ekki einusinni áhyggjur af
tremma né timburmönnum, fá and-
legan innblástur undir örgustu kring-
umstæðum. Bukowski leiðir mann því
um aðra stigu en t.d. Miller og Ed-
wards í Dögum víns og rósa, að vísu
hinn breiða veg til vesaldóms, en það
eru fríir diykkir á vissu millibili og
barinn lokar aldrei.
Rourke er í essinu sínu í hrikalegu
gervi rónans og hefur að auki tamið
sér brennivínsfas þeirra og fálmandi,
hálflamaðar líkamshreyfíngar.
Dunaway sýnir á sér nýja hlið ogt_
sinn besta leik um langa hríð. Bar-
flugur á vonandi eftir að verða þess-
ari hæfíleikaríku leikkonu andleg
hundahreinsun, á löngu tímabili var
ekkert hlutverk hennar ofurmann-
legu hæfíleikum bjóðandi (að eigin
mati), sem leiddi til þess að uppá
síðkastið hefur hún orðið að taka því
sem til hefur fallið. Handritið og leik-
stjórnin era tilgerðarlaus og raunsæ,
afraksturinn er kaldhæðnisleg, oft
gráglettin (sbr. nágrannahjónin,
morðingjann og masókistann, oft
meinfyndin tilsvör Chinaskis), skoðun
á forvitnilegri hlið á lífinu í strætinu.^r
Kjörin fyrir alla þá sem áhuga hafa
á óvenjulegu og eftirtektarverðu
umfjöllunarefni og persónum, góðum
leik og kvikmyndagerð.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
þjónusta
Hilmar Foss
lögg. skjalaþ. og dómt.
Hafnarstræti 11,
símar 14824 og 621464.
National olíuofnar
Viðgerða- og varahlutaþjónusta.
Rafborg sf.,
Rauðarárstig 1, s. 11141.
Vélritunarkennsla
Vélritunarskólinn, sími 28040.
félagslíf
l t úA AA_lA_*.
□ Helgafell 598815117 IVAf -2
□ HAMAR 598811157 - Frl.
I.O.O.F. 8 = 17011168'/2 = Fl.
I.O.O.F. Rb. 4= 138.11158-8'/2
M.I.S.
□ Fjölnir 598811157 - 1 Frt. Atk.
□ EDDA 598815117 = 7
Hvítasunnukirkjan
Ffladelfía
Samverustund fyrir eldri meölimi
safnaðarins kl. 15.00.
Kaffi og meðlæti.
Tryggvi Ólafsson
Boðberi Fagnaðarerindis Jesú
Krists. Bið fyrir sjúku fólki til
lækninga. Gjörið svo vel að
skrifa mér i pósthólf 1518, 121
Reykjavik.
Ministries Mr. Olafsson. I pray
for people some are sickness
at God touch the people. Amen.
Fimir fætur
Dansæfing verður i Hreyfilshús-
inu sunnudaginn 20. nóvember
kl. 21.00. Mætið tímanlega. Nýir
félagar ávallt velkomnir.
Upplýsingar í síma 54366.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11796 og 19531
Þórsmörk - aðventuferð
Helgina 25.-27. nóv. verður
farin „aðventuferð" til
Þórsmerkur.
Gist i Skagfjörðsskála Langadal
og er aðstaðan þar fyrir ferða-
fólk sú besta sem gerist i
óbyggöum. Stór setustofa fyrir
kvöldvökur, stúkað svefnpláss,
tvö eldhús með nauðsynlegum
áhöldum og miðstöðvarhitun
svo að inni er alltaf hlýtt og nota-
legt. Fararstjóri skipuleggur
gönguferðir. Á laugardag verður
kvöldvaka og jólaglögg. Ferðir í
islensku skammdegi eru öðru-
vísi, missið ekki af þessari ferð.
Fararstjóri: Kristján Sigurösson.
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofu Ferðafélagsins, Öldu-
götu 3.
Ferðafélag (slands.
AD-KFUK
Fundur i kvöld kl. 20.30 á Amt-
mannsstíg 2b. „Fyrirburar,
Iffsvon þeirra og framtiðar-
horfur". Sigriður S. Friðgeirs-
dóttir sér um fundinn. Laufey
Geirlaugsdóttir syngur einsöng.
Birna Jónsdóttir endar fundinn
með nokkrum orðum og bæn.
Munið bænastundina kl. 20.00.
Allar konur velkomnar.
J
Fyrirlestur
um talnaspeki
Lynne Heertsgard heldur fyrir-
lestur um talnaspeki (numero-
logy) þar sem hún mun m.a. leið-
beina fólki við að lesa úr nafni
og fæðingardegi þess. Túlkur
verður Þórhallur Guðmundsson.
Fyrirlesturinn fer fram í húsi
Murarafélagsins Síöumúla 25 í
kvöld kl. 20.30. Miðasala við inn-
ganginn.
Ljósgeislinn
(áður Ljósgjafinn).
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
Kópavogur - spilakvöld
Spilakvöld Sjálfstæðisfélaganna i Kópavogi verður í Sjálfstæðis-
húsinu, Hamraborg 1, þriðjudaginn 15. nóvember kl. 21.00 stund-
víslega.
Góð verðlaun, mætum öll.
Stjórnin.
Sjálfstæðisfélag Akureyrar
Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Akureyrar verður haldinn laugardaginn
19. nóvember nk. kl. 14.00 i Kaupangi.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Félagsmenn eru hvattir til þess að mæta.
Stjórnin.
Selfoss - Selfoss
Bæjarmálafundur verður haldinn þriðjudaginn 15. nóvember nk. að
Tryggvagötu 8, Selfossi kl. 20.30. Málshefjendur verða bæjarfulltrúarn-
ir Bryndís Brynjólfsdóttir, Haukur Gislason og Valdimar Þorsteinsson.
Félagar fjölmenniö.
Bæjarmáianefnd
Sjálfstæðisfélagsins
Óðins.
Félag Sjálfstæðismanna í
Langholti - aðalfundur
Aðalfundur félagsins veröur haldinn
fimmtudaginn 17. nóvember kl. 20.30 i
Valhöll, Háaleitisbraut 1. Gestur fundarins
verður Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgun-
blaðsins.
Dagskrá:
1. Venjulega aðalfundarstörf.
2. Ræöa, Styrmir Gunnarsson: „Sjálfstæðis-
flokkurinn - stjómarslitin - framtiðinV
3. Almennar umræður.
Allt sjálfstæöisfólk velkomiö - kaffiveitingar.
Stjórnin.
Hverfafélagið í
Smáíbúða-, Bústaða- og
Fossvogshverfi
Félagar vinsamlega greiðið heimsenda gíróseöla fyrir árgjaldið 1988
sem fyrst.
Stjórnin.
ísafjörður
Aðalfundur Sjálfstæðiskvennafélags (sa-
fjarðar verður haldinn þriðjudaginn 15. nóv-
ember kl. 20.30 i Sjálfstæðishúsinu, 2.
hæð.
Dagskrá:
1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Kaffiveitingar.
3. Önnur mál.
4. Gestur fundarins, Einar Kr. Guðfinns-
son, raeðir stjórnmálaviðhorfin.
Stjómin.
Sjálfstæðisfélagið Hug-
inn, Árnessýslu
Aöalfundur Sjálfstæðisfélagsins Hugins, Árnessýslu, verður i Ara-
tungu fimmtudaginn 17. nóvember kl. 21.00.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf
2. Alþingismennirnir Þorsteinn Pálsson, Eggert Haukdal og formað-
ur kjördæmisráðs, Árni Johnsen koma á fundinn og ræða lands-
og héraðsmál.
Stjórnin.
Stjórnmálaástandið í
ísrael að nýafstöðnum
þingkosningum
Utanríkismálanefnd SUS, Heimdallar og Týs efna til fundar næstkom-
andi þriðjudagskvöld um stöðu mála i (srael nú að lokum þing-
kosningum þar í landi.
Gestur fundarins verður Yehiel Yativ sendiherra fsraels á fslandi
með aösetur í Noregi. Mun hann hafa framsögu á ensku um stjórn-
málaástandiö í ísrael, en taka siöan þátt í umræðum og svara fyrir-
spurnum.
Fundurinn sem veröur haldinn á þriðjudagskvöld 15. nóvember kl.
20.30 í Valhöll er opinn öllu áhugafólki um utanrikismál.
Utanrikismálanefnd SUS.
Aðalfundur Hvatar
verður þriðjudaginn 15. nóvember kl. 20.30 í Valhöll.
Dagskrá:
- Venjuleg aöalfundarstörf.
- Ávörp:
Maria E. Ingvadóttir, fráfarandi formaður Hvatar og
Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstaeðisflokksins.
Fundarstjóri: Margrét S. Einarsdóttir.
Fundarritari: Hallveig J. Kolsöe.
Hvatarkonur, fjölmennið á aðalfundinn.
Stjórnin.