Morgunblaðið - 15.11.1988, Page 59
59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1988
útgefinn 9. ágúst 1983, og
framseldi sjálfur til eigin ráð-
stöfunar, en greiðsluna lét
ákærði gjaldfæra í bókhaldi
Hafskips hf. sem „innlenda
sérfræðiaðstoð" gegn framví-
sun á tilbúnu fylgiskjali með
árituninni „v/úttekt reikn. hjá
B.G.“.
g) kr. 60.571,00, er ákærði lét
greiða sér með tékka, útgefn-
um 28. nóvember 1983, og
gjaldfæra í bókhaldi Hafskips
hf. sem „ýmis kostnaður
v/starfsm.“ gegn framvísun á
tilbúnu fylgiskjali með áritun-
inni „v/ýmissa reikninga hjá
B.G.“.
VI. 2.
Ákærða Björgólfi Guðmundssyni
er gefið að sök að hafa dregið sér
kr. 302.386,00 sem hluta af kaup-
verði bifreiðarinnar R-4679,
Chiysler New Yorker 4D, sem
ákærði keypti samkvæmt kaupnótu
1. desember 1983 hjá Jöfri hf., með
því að láta skuldfæra fjárhæðina
hjá Hafskip hf. og félagið síðan
endanlega greiða hana með eftir-
gjöf flutningsgjalda til Jöfurs hf.
samkvæmt kreditnótu, dagsettri
19. september 1985.
VI. 3.
Ákærða Björgólfi Guðmundssyni
er gefíð að sök að hafa dregið sér
kr. 500.000,00 til greiðslu eigin
loforðs um lán til Bláskóga hf. með
því að hafa á árinu 1983 látið skuld-
færa þessa fjárhæð á sérstakan
biðreikning hjá Hafskip hf. til lækk-
unar á skuld Bláskóga hf. við Haf-
skip hf. og síðar, í nóvember 1985,
látið gjaldfæra flárhæðina í bók-
haldi Hafskips hf. sem afslætti á
flutningsgjaldatekjum fjögurra
skipa félagsins, kl. 125.000,00 á
hvert skip.
VI. 4.
Ákærða Björgólfi Guðmundssyni
er gefið að sök að hafa hinn 14.
nóvember 1985 látið meðákærða
Áma Árnason afhenda sér eftir-
talda níu víxla af víxileign Hafskips
hf., samtals að fjárhæð kr.
1.442.214,00, alla útgefna af Haf-
skip hf. og samþykkta til greiðslu
í Utvegsbanka Islands, og hafa
síðan fénýtt víxla þessa í eigin þágu:
1. Efnagerð Laugamess til
greiðslu 24. janúar 1986, kr.
215.037,00
2. Standberg hf. til greiðslu 25.
janúar 1986, kr. 247.387,00.
3. Standberg hf. til greiðslu 10.
febrúar 1986, kr. 275.597,00
4. Eyðublaðatækni hf. til greiðslu
10. febrúar 1986, kr.
33.163,00.
5. Línan hf. til greiðslu 10. febrú-
ar 1986, kr. 34.748,00.
6. Línan hf. til greiðslu 10. febrú-
ar 1986, kr. 10.811,00.
7. Krít hf. til greiðslu 10. febrúar
1986, kr. 40.549,00.
8. Ásbjöm Ólafsson hf. til
greiðslu 15. febrúar 1986, kr.
275.000,00.
9. Ásbjöm Ólafsson hf. til
greiðslu 25. febrúar 1986, kr.
282.922,00.
VI. 5.
Ákærða Björgólfi Guðmundssyni
er gefíð að sök að hafa hinn 30.
nóvember 1984 misnotaði aðstöðu
sína í starfi hjá Hafskip hf. með
því að láta meðákærða Pál Braga
Kristjónsson gefa út þijár kredit-
nótur í því skyni að gefa eftir við-
skiptaskuld Bláskóga hf. við Haf-
skip hf., samtals kr. 1.613.596,00
og nota eftirgjöf þessa þannig í
þágu annars félags, sem ákærði
átti hlut í. Eftirgjöf skuldarinnar
var með þessum hætti:
VI. 6.
Ákærða Björgólfi Guðmundssyni
er gefíð að sök að hafa hinn 13.
nóvember 1985 misnotað aðstöðu
sína hjá Hafskip hf. með því að
gefa út kreditnótu í því skyni að
gefa eftir höfðustól skuldar Kristins
Sophusar Kristinssonar, kr.
337.298,00 ásamt dráttarvöxtum
kr. 109.527,00, samtals kr.
446.825,00 og nýta eftirgjöf þessa
í persónulegum viðskiptum sínum
við nefndan Krisin Sophus.
VI. 7.
Öll framangreind brot ákærða
Björgólfs Guðmundssonar sam-
kvæmt ákæruliðum VI.1. til VI.6.
teljast varða við 1 mgr. 247. gr.
almennra hegningarlaga nr.
19/1940 en brot hans samkvæmt
ákæruliðum VI.5. og VI.6. teljast
til vara vera umboðssvik samkvæmt
249. gr. almennra hegningarlaga
nr. 19/1940.
VILkafli
Skilasvik.
Ákærðu Árna Árnasyni, Björg-
ólfi Guðmundssyni og Ragnari
Kjartanssyni er gefið að sök að
hafa á þeim tíma, er þeim gat ekki
dulist, að greiðsluþrot eða gjaldþrot
vofði yfír Hafskip hf., greitt 20.000
Bandaríkjadali nær vikulega frá
byijun ágústmánaðar 1985 og fram
í nóvember sama ár, í fyrsta sinn
6. ágúst og síðast 11. nóvember,
alls 280.000 Bandaríkjadali inn á
viðskiptareikning Hafskips, hf. hjá
Reykvískri endurtryggingu hf. og
þannig dregið taum eins lánardrott-
ins félagsins öðrum til tjóns, en
ákærðu Björgólfur og Rangar voru
á þessum tíma hluthafar og stjóm-
armenn í Reykvískri endurtrygg-
ingu hf.
Brot ákærðu Áma, Björgólfs og
Ragnars samkvæmt þessum kafla
ákæru telst varða við 4. tl. 1. mgr.
250. gr. almennra hegningarlaga
nr. 19/1940.
VIII. kafli
Brot bankastjóra og aðstoðar-
bankastjóra í opinberu starfi.
VIII. 1.
Ákærðu Halldóri Ágústi Guð-
bjamasyni, Lárusi Jónssyni, Ólafi
Helgasyni og Axel Kristjánssyni er
gefíð að sök að hafa í störfum sínum
hjá Útvegsbanka íslands gerst sek-
ir um brot í opinberu starfí, þrír
fyrstnefndu með því að hafa óhlýðn-
ast fyrirmælum bankaráðs, en
ákærði Axel fyrirmælum banka-
stjómar, og allir ákærðu með stór-
felldri og ítrekaðri vanrækslu og
hirðuleysi að því er tók til viðskipta
bankans við Hafskip hf., m.a. með
langvarandi vanrækslu um öflun
fullnægjandi trygginga fyrir lánum
og annarri íjárhagslegri fyrir-
greiðslu til félagsins og um eftirlit
með því, að verðmæti trygginganna
héldist, og ennfremur með því að
vanrækja athugun þeirra jgagna,
sem tengdust fyrirgreiðslu Utvegs-
bankans í þágu Hafskips hf., svo
sem nánar verður rakið í ákæmlið-
um VIII.2 til VIII.4, á því tímabili,
er að neðan greinir um hvem hinna
ákærðu, og allt til 6. desember
1985; er bú Hafskips hf. var tekið
til gjaldþrotaskipta, en þau leiddu
af sér stórfellt fjártjón fyrir Útvegs-
bankann, sem þegar var orðið kr.
422.000.000,00 samkvæmt árs-
reikningi bankans 1985. Ákærði
Halldóm Ágúst var bankastjóri frá
því í maí 1983, ákæðm Láms og
Ólafur vom bankastjórnar frá 1.
júní 1984, og ákærði Axel var for-
stöðumaður lögfræðingadeildar og
frá 1. júní 1984 aðstoðarbanka-
stjóri, en honum var frá ársbyijun
1987 falið að sinna sérstaklega við-
skiptum Hafskips hf. og Útvegs-
bankans.
VIII. 2.
Málið er höfðað gegn ákærða
Axel Kristjánssyni fyrir að láta
undir höfuð leggjast að rækja
starfsskyldur sínar samkvæmt þeim
fyrirmælum, sem honum vom gefín
af bankastjóm Útvegsbanka Is-
lands í ársbyijun 1978, um að fylgj-
ast með rekstri Hafskips hf. og
hafa eftirlit með því, að nægar
tryggingar væm ætíð fyrir skuld-
bindingum félagsins gagnvart
bankanum, m.a. með svofelldri van-
rækslu við gerð yfirlita vegna þess-
ara viðskipta á tímabilinu 8. maí
1979 til 3. júní 1985:
a) Að styðjast við við gögn og
upplýsingar, sem starfsmenn
Hafskips hf. létu honum í té,
í stað þess að afla sjálfur upp-
lýsipga um raunvemlegt verð-
mæti hinna veðsettu eigna.
b) Að tilgreina verðmæti trygg-
inga í skipum Hafskips hf. að
vemlegu leyti sem nafnverð
tryggingaréttindanna án tillits
til markaðsverðs skipanna og
þar með þess verðfalls á kaup-
skipum, sem varð á alþjóðleg-
um markaði á þessum tíma.
c) Að hækka að ófyrirsynju hinn
1. mars 1981 tryggingargildi
skipa Hafskips hf. úr 70% í 85%
af áætluðu markaðsverði.
d) Að telja meðal trygginga fyrir
skuldbindingum bankans
vegna Hafskips hf. ýmis veð-
andlög, sem vom verðlaus eða
lítils virði sem trygging, svo
sem ódagsettan tryggingavixil
að fjárhæð 990.000 vesturþýsk
mörk, veð í fasteigninni
„Tívolí“ við Njarðargötu í
Reykjavík að fjárhæð 300.000
Bandaríkjadalir samkvæmt
tryggingarbréfi útgefnu 1.
febrúar 1985, almennt veð í
tækjum, samtals að íjáhæð
4.400.000 Bandaríkjadalir,
samkvæmt þremur tryggingar-
bréfum, útgefnum 7. mars
1980, 12. ágúst 1982 og 1.
febrúar 1985.
e) Að telja meðal trygginga fyrir
skuldbindingum Hafskips hf.,
í yfirlitum, dagsettum 18. apríl
1985 og 3. júní 1985, skulda-
bréf vegna hlutafjáraukningar
í félaginu að fjárhæð kr.
80.000.000,00, þó að Útvegs-
bankinn hefði aðeins fengið
hluta þeirra afhentan á nefnd-
um dögum.
VIII. 3.
Málið er höfðað gegn ákærðu
Halldóri Ágústi Guðbjamasyni,
Láms Jónssyni, Ólafi Helgasyni og
Axel Kristjánssyni fyrir að hafa
vanrækt athugun ársreikninga,
milliuppgjöra, rekstrar- og
greiðsluáætlana Hafskips hf. auk
annarra gagna, er fyrirsvarsmenn
félagsins afhentu bankanum, eftir
að ákærðu hófu störf sem banka-
stjórar og Axel sem aðstoðarbanka-
stjóri, í tilefni af beiðnum um fjár-
hagslega fyrirgreiðslu bankans, og
það þrátt fyrir vitneskju þeirra um
vemlega rekstrarerfiðleika félags-
ins og veika eiginfjárstöðu á þessu
tímabili, en vanræksla ákærðu fólst
m.a. í því að gera ekki sjálfstæðar
athuganir á raunvemlegri afkomu
félagsins og forsendum þeirra áætl-
ana, sem Hafskip hf. lagði fyrir
bankann, m.a. um Atlantshafssigl-
ingar félagsins, og gæta ekki að
áhrifum mismunandi reiknings-
skilaaðferða, sérstaklega varðandi
reiknaðar telq'ur vegna verðlags-
breytinga.
VIII. 4.
Ákærðu Halldóri Ágústi Guð-
bjamasyni, Lámsi Jónssyni og Ól-
afi Helgasyni er fengið að sök að
hafa á starfstíma sínum sem banka-
stjórar vanrækt eftirlit moð því, að
tryggingar þær, sem Útvegsbank-
inn hafði fyrir skuldbindingum
sínum vegna Hafskips hf. héldu
verðgildi sínu eða hefði yfirleitt það
verðgildi, sem þær vom skráðar
fyrir, og að gerðar væm fullnægj-
andi ráðstafanir til þess, að ávallt
væm fullnægjandi tryggingar fyrir
þessum skuldbindingum. Ákærðu
er þannig gefið að sök að hafa tek-
ið góð og gild ýmis veðandlög, án
þess að fyrir lægi fullnægjandi at-
hugun á verðmæti trygginganna,
og byggt að stómm hluta á nafn-
verði tryggingarréttindanna án til-
lits til verðmætis þeirra, svo sem
nánar er lýst í stafliðum a,b,d og e
í ákæmlið VIII.2, að því er með-
ákærða Axel varðar.
Þá er ákærðu gefið að sök að
hafa, til viðbótar því að leggja nafn-
verð tryggingarréttindanna eitt til
gmndvallar, veitt Hafskip hf. fjár-
hagslega fyrirgreiðslu, eftir að fram
var komið yfirlit um skuldbindingar
og tryggingar vegna Hafskips hf.
hinn 10. október 1984, er sýndi að
skuldbindingamar vom kr.
17.326.000,00 hærri en trygging-
um nam. Ákærðu héldu enn áfram
að veita félaginu fjárhagslega fyrir-
greiðslu þrátt fyrir síversnandi
stöðu tiygginga að þessu leyti,
þannig að skuldbindingar námu kr.
23.353.000,00 umfram tryggingar
samkvæmt yfírliti, dagsettu 11.
febrúar 1985, kr. 18.334.000,00
samkvæmt yfirliti, dagsettu 3. júní
1985.
Ákærðu er gefið að sök að hafa
með þeim hætti, er greinir í ákæra-
lið þessum, vísvitandi látið farast
fyrir að hlíta fyrirmælum 2. mgr.
2. gr. í erindisbréfum fyrir banka-
stjóra, samþykktum af bankaráði
Útvegsbanka íslands 24. febrúar
1983 og 28. desember 1984.
VIII. 5.
Háttsemi ákærðu Halldórs
Ágústs Guðbjamasonar, Lámsar
Jónssonar, Ólafs Helgasonar og
Axels Kristjánssonar telst varða við
140. gr. og 141. gr. almennra hegn-
1. Umsaminn afsláttur kr. 969.134,00
2. Eftirgjöf á pakkhúsleigu samkv. 14reikningum kr. 440.085,00
3. Bakfærðir vextir vegna ýmissa reikninga kr. 204.377,00
ingarlaga nr. 19/1940, sbr. 14. gr.
laga nr. 12/1961 um Útvegsbanka
íslands, sbr. nú 23. gr. laga nr.
86/1985 um viðskiptabanka, sbr.
og 22. gr. og 37. j*r. reglugerðar
nr. 31/1962 fyrir Utvegsbanka ís-
lands.
IX. kafli
Brot bankaráðsmanna í opinberu
starfi.
Ákærðu Valdimar Indriðasyni,
Arnbnirni Kristinssyni, Garðari Sig-
urðssyni og Kristmanni Karlssyni,
sem allir áttu sæti í bankaráði Út-
vegsbanka íslands á ámnum 1981
til 1985, um lengri eða skemmri
tíma, allt þar til bú Hafskips hf.
var tekið til gjaldþrotaskipta 6.
desember 1985, er gefíð að sök að
hafa sem bankaráðsmenn sýnt af
sér saknæma vanrækslu við yfir-1-^
stjóm bankans og við eftirlit með
starfsemi hans og þannig látið hjá
líða að fylgjast með skuldbindingum
og tryggingum vegna viðskipta
bankans við Hafskip hf., sem var
einn af helstu viðskiptaaðilum hans,
en samkvæmt fundargerðum bank-
aráðsins var ekki fjallað um mál-
efni Hafskips hf. á starfstíma
ákærðu í ráðinu fyrr en 1. mars
1985. Málið er höfðað gegn ákærða
Valdimar sem bankaráðsmanni frá
14. júní 1983 og formanni banka-
ráðs Útvegsbanka íslands frá 1.
janúar 1985, ákærðu Ambimi og
Garðari sem bankaráðsmönnum frá
1. janúar 1981 og ákærða Krist-^
manni sem bankaráðsmanni frá 1.
janúar 1985.
Háttsemi ákærðu Valdimars,
Ambjöms, Garðars og Kristmanns
telst varða við 141 gr. almennra
hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 8.
gr. og 12 gr. laga nr. 12/1961 um
Útvegsbanka Islands, sbr. nú 9. gr.
og 18. gr. laga nr. 86/1985 um
viðskiptabanka, sbr. og 32. gr. og
g- og i-liði 35._ gr. reglugerðar nr.
31/1962 fyrir Útvegsbanka íslands.
X. kafli
Brot endurskoðanda Útvegs-
bankans í opniberu starfi.
Ákærða Inga Randveri Jóhanns-
syni er gefið að sök að hafa látið
undir höfðu leggjast í störfum
sínum sem kjörinn endurskoðandi
Útvegsbanka íslands og jafnframt
sem löggiltur endurskoðandi, allt
frá árinu 1981 og þar til bú Haf-
skips hf. var tekið til gjaldþrota-
skipta 6. desember 1985, að rækja
eftirlitsskyldu sína vegna viðskipta
bankans við Hafskip hf., sérstak-
lega að því er varðaði tryggingar
vegna skuldbindinga bankans
gagnvart félaginu, og að hafa ekki
komið á framfæri við stjórnendur
Útvegsbankans aðfinnslum og
ábendingum um þær misfellur, sem
honum var kunnugt um í þessum
viðskiptum, en ársreikninga bank-
ans frá og með árinu 1981 hefur
ákærði áritað sem löggiltur endur-
skoðandi.
Háttsemi ákærða Inga Randvers
Jóhannssonar telst varða við 141.
gr. almennra hegningarlaga nr.
19/1940, sbr. 7. gr. og 10. gr. laga
! nr. 67/1976 um löggilta endurskoð-
endur, sbr. 12. gr. og 4. mgr. 15.
gr. laga nr. 12/1961 um Utvegs-
banka íslands, sbr. nú 42. og 43.
gr. laga nr. 86/1985 um viðskipta-
banka, sbr. og IV. kafla reglugerð-
ar nr. 31/1962 fyrir Útvegsbanka,^-
íslands.
XI. kafli
Dómkröfur.
Þess er krafíst, að allir ákærðu
verði dæmdir til refsingar og
greiðslu alls sakarkostnaðar og að
ákærði Helgi Magnússon verði auk
þess með dómi sviptur réttindum
löggilts endurskoðanda samkvæmt
1. mgr. 15. gr., sbr. 7. gr. laga nr.
67/1976 um löggilta endurskoðend-
ur, sbr. 68. gr. almennra hegningar-
laga nr. 19/1940 með áorðnum*
breytingum.
Úndirritaður gefur út ákæm
þessa með heimild í skipunarbréfi
dómsmálaráðherra, dagsettu 6.
ágúst 1987, sbr. 22. gr. laga nr.
74/1974, um meðferð opinberra
mála.
Reykjavík 11. nóvember 1988.
Jónatan Þórmundsson