Morgunblaðið - 22.05.1992, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 22.05.1992, Blaðsíða 9
MORpUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22, MAÍ 1992 9 Frá Heilsugæslustöðinni, Grafarvogi, Hverafold 1 -3 Skráning þeirra íbúa Grafarvogs, sem ætla að fá heilsugaesluþjónustu á stöðinni, hefst föstudaginn 22. maf. Hægt er að panta tíma til skráningar milli kl. 08.00-17.00 alla virka daga. Sími heilsugæslustöðvarinnar er 681060. Heilsugæslustöðin tekur til starfa 3. júní nk. Stjórn heilsugæsluumdæmis Austurbæjar nyrðra. Stúdentastj aman, 14 karat gull, hálsmen eða prjónn. Verð kr. 3.400 Jdn Slpmunisson Skartgripovorzlan LAUGAVEG 5 - 101 REYKJAVlK SÍMI 13383 Heitu pottarnir frá TREFJUM eru fyllilega sambærilegir við þá bestu erlendu, bæði er varðarverð og gæði. Þeireru mótaðir úr akrýli, níðsterku plastefni, hörðu sem gleri og hita- og efnaþolnu. Þá er auðvelt að þrífa og hægt er að fá öryggishlíf, sem dregin er yfir pottinn, þegar hann er ekki í notkun. Pottana má hafa frístandandi eða grafa þá í jörð og ýmis aukabúnaður er fáanlegur, svo sem loft- eða vatnsnuddkerfi. AkrýlpottarnirfráTREFJUM fást í ótal litum og 5 stærðum, sem rúma frá 4 -12 manns og verðið er frá aðeins kr. 82.000 Sjón er sögu ríkari, komið í sýningarsal okkar í Stapahrauni 7, hringið eða skrifið og fáið sendan litprentaðan bækling og verðlista. Opið laugardaga frá kl. 10 -17. TREFJAR HF. Stapahrauni 7, Hafnarfirði, símar 5 10 27 og 65 20 27 Aðhald, sparnaður og fyrirhyggja Það þarf kjarkmikla stjórnmálamenn til að hafa aga í ríkisfjármálum í fyrirrúmi í mestu efnahagslægð sem gengið hefur yfir landið í 40 ár. En árangur af fyrsta starfsári ríkisstjórnarinnar hefur verið stöð- ugt gengi, lág verðbólga og lágir vextir. Þetta segir í forustugrein Alþýðublaðsins. Háleit mark- mið Fyrirsögnin á forustu- grein Alþýðublaðsins í fyrradag var „Fjámiála- ráðherra heimilanna" og fer hún hér á eftir: „Ríkisstjóm Alþýðu- flokks og Sjálfstæðis- flokks var mynduð með ábyrg ríkisfjármál að leiðarljósi. Þetta em há- leit markmið og ekki endilega meðal almenn- ings, vegna þeirra að- gerða sem slíkri stefnu er fylgja. Þeir flokkar sem standa að núverandi rík- issljórn hafa tileinkað sér nýjan hugsunarhátt og ný vinnubrögð þar sem agi í ríkisfjármálum er í fyrirrúmi. Það þarf kjarkmikla stjómmála- menn til þess að standa við slík fyrirheit þrátt fyrir að þjóðin sé að sigla í gegnum dýpstu efna- hagslægð sem yfir hana hefur gengið í 40 ár. Arangurinn af störfum ríkisstjómarinnar á fyrsta starfsári hennar er stöðugt gengi, lág verðbólga og lágir vextir. Hugarfars- breyliiig- Þetta em m.a. foi-send- ur þess að halda megi uppi öflugu atvinnulífi sem síðan er grandvöllur velferðarkerfisins. Við getum ekki haldið áfram að reka þetta kerfi á er- lendum lánum, efnahags- legt og pólitískt sjálf- stæði þjóðarinnar er í húfi. Þessi hugarfarsbylting sem ríkisstjórnin hefur mtt af stað hefur skilað sér að hluta út í þjóðfé- lagið. Nýgerðir kjara- samningar em einmitt dæmi um þetta. Þar er tekið mið af þeiin erfið- k leikurn sem að þjóðinni steðja vegna ytri þreng- inga. Hagræðing er allra hagur Launþegasamtökin í landinu meta fremur stöðugt gengi og jöfnuð í ríkisfjármálum en gegndariausar kaup- hækkanir. Það er kaup- mátturinn sem gildir. Það aðhald og sá spam- aður í rikiskerfinu sem núverandi stjómarflokk- ar hafa beitt sér fyrir er þegar farið að skila árangri, en hagræðingin á eftir að koma enn betur í ljós þegar til lengri tíma er litið. Það sem mestu máli skiptir er að starfs- mennimir sjálfir séu hafðir með í ráðum við endurskipulagningu hins ofvaxna ríkiskerfis, sem við búum við í dag. Að- haldið vekur menn til umhugsunar um kostn- aðinn sem liggur að baki velferðarrikinu og þá staðreynd að það er rek- ið af skattgreiðendum landsins. Hagræðingin er því hagur okkar allra. Heimilin Það er hins vegar mik- ilvægt, ekki síst þegar að kreppir í hinu efna- hagslega umhverfi, að þessi boðskapur komist inn á heimili iandsmanna. Rikið, verkalýðshreyf- ingin og atvinnurekend- ur skapa neytendum að- eins leikreglumar fyrir rekstur heimilanna í iandinu, en það em neyt- endumir sjálfir — fjár- málaráðherrar heimil- anna sem ráða mestu um afkornu þeirra. Aðhald, spamaður og fyrir- hyggja í fjármáluin heim- ilanna em góð leið til þess að bæta lífskjör al- mennings. Heilbrigð samkeppni á markaðnum og stöðugt eftirlit neyt- endamia sjálfra er einnig til þess fallið að halda verðinu niðri. Neytendur verða því að taka virkan þátt í þessu eftirliti markaðarins og standa vörð um sína eigin hags- muni. Sú staðreynd blasir við í velmegunarsamfélagi nútimans að 85% fjöl- skyldna býr í eigin hús- næði og á þar að auki talsverðar eignir í formi sumarbústaða, bifreiða og heimilistækja. Stór hluti þessa fólks hefur lika lifað langt um efni fram. Neysluæði Flottræfilshátturinn, innkaupaáráttan og neysluæðið em með ólík- indum hjá ákveðnum hópum í þjóðfélaginu. Það hlýtur því að vera sjálfsögð ábending til al- mennings að dregið úr neyslu á þeim samdrátt- artímum sem nú ríkja. Á tímum sem þessum hlýt- ur fólk að hugsa sig tvisv- ar um áður en það ákveð- ur að bæta meiru á rekst- ur heimilanna, í formi fleiri bíla, sólarlanda- ferða eða heimilistækja. Það að hvert heimili selji sér sinn eigin fjárlaga- ramma er örugglega ein besta kjaiabótin í dag. Það væri auðvitað órétt- mætt að minnast ekki á þami hóp fólks í þjóðfé- laginu sem býr við kröpp kjör og getur þvi ekki með nokkm móti sparað meira. Þessi hópur er ekki stór en hann er of stór á meðan ennþá er til fólk sem lifir undir fátækramörkum. Sú leið- rétting sem nú er verið að framkvæma á velferð- arkerfinu er einmitt í þvi fólgin að færa fé frá bjargálna fólki til þeirra sem minna mega sín og þurfa virkilega á aðstoð hins opinbera að lialda. Alþýðuflokkurinn - Jafnaðarmannaflokkur íslands mun beita sér fyrir endurbótum af þessu tagi, en það gerist ekki nema með sameigin- legu átaki okkar allra.“ IftJR SÍMINN ER 689400 BYGGT & BUIÐ KRINGLUNNI FÖSTUDAGUR TIL FJÁR KANTSKERI í DAG Á KOSTNAÐARVERÐI 1 I KRINGLUNNI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.