Morgunblaðið - 22.05.1992, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 22.05.1992, Blaðsíða 35
35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. xMAÍ 1992 Minning: Hermann S. Jakobs- son frá Látrum Fæddur 25. nóvember 1901 Dáinn 17. maí 1992 Samferðafólk okkar markar spor sín í tilverunni á margvíslegan hátt. Sumir fara geyst og láta fara mikið fyrir sér, aðrir fara sér hæg- ar. Tengdafaðir minn, Hermann S. Jakobsson, sem við kveðjum í dag hinztu kveðu frá Isafjarð- arkapellu, var ekki mikið gefinn fyrir að láta á sér bera. Hógværð- in var ætíð í fyrirrúmi hjá honum. Vissulega sannaðist á honum, að það eru ekki alltaf þeir sem hæst láta sem marka dýpstu sporin. Hermann hafði þetta rólega yfir- bragð, sem stundum gat virzt hrjúft, en af hjartalagi hans og viðmóti var enginn svikinn. Hann var maður drengskapar og stóð við sitt og vel það. Hermann fæddist að Sléttu í Sléttuhreppi og voru foreldrar hans þau Sigríður Kristjánsdóttir og Jakob Snorrason. Átti Hermann 5 systur og einn hálfbróður. Aðeins misserisgamall fór Hermann í fóst- ur til afa síns, Snorra Einarsson- ar, og föðurbróður, Jóels Snorras- onar, að Tungu í Fljótavík og flutt- ist síðan með þeim feðgum að Látrum í Aðalvík. Leit hann jafnan á Jóel sem fóstra sinn, enda dvald- ist hann með honum eftir að afi hans var fallinn frá. Lífsbaráttan var hörð í þá daga og snemma fór Hermann að stunda róðra í Aðalvíkinni og við Djúp. Á Látrum í Aðalvík kynntist hann eftirlifandi eiginkonu sinni, Maríu Guðmundu Þorbergsdóttur frá Eftri-Miðvík. Gengu þau í hjóna- band þann 26. des. 1933. Bjuggu þau að Látrum, unz fólki fór að fækka í byggðum Sléttuhrepps og árið 1946 fluttust þau hjón, ásamt börnum sínum fjórum til ísafjarð- ar. Lengst af bjuggu þau í Sund- stræti 31, eða „niður á Bökkum“ eins og sagt var, en árið 1984 fluttu þau í íbúðir aldraðra á Hlíf. Eftir að Hermann fluttist til ísa- fjarðar stundaði hann í fyrstu sjó- inn, en fór síðan í land og vann ýmsa verkamannavinnu. Lengst starfaði hann hjá íshúsfélagi Is- firðinga. Hermann var hagur mað- ur og greip mikið í smíðar. Smíð- aði hann ýmis húsgögn til heimilis- ins og var einkar laginn við að dytta að því sem aflaga fór. Hermann var ekki mikið gefinn fyrir skemmtanir, en hann hafði yndi af því að grípa í spil og var góður spilamaður. Oft hefur verið glatt á hjalla á nýársnótt, en þá hafa ungir og gamlir í fjölskyld- unni jafnan setið saman við spil og leiki framundir morgun og þau hjónin Munda og Hermann verið galvöskust í spilamennskunni. Hermann var heilsuhraustur fram á hin síðari ár, en þá fór heilsan að bila og erfitt tímabil fór í hönd. Hann var meira og minna rúmliggjandi, ýmist heima eða á sjúkrahúsinu, og þurfti mikillar umönnunar við. Guðmunda kona hans var hans styrka stoð og annaðist hann af óþreytandi um- hyggju fram á síðustu stund. Hermann andaðist á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á ísafirði sl. sunnu- dag. í nafni fjölskyldu hans langar mig að koma hér á framfæri þakk- læti til starfsfólks heimahjúkrunar á ísafirði og starfsfólks á Hlíf svo og til lækna og hjúkrunarfólks á Fjóðungssjúkrahúsinu á ísafirði, fyrir alla umönnun og hlýju honum veitta. ' Hann langafi klappar ekki leng- ur á lítinn koll, en öll munum við með þakklátum huga minnast hæglátu hlýjunnar sem hann sýndi okkur öllum og þá ekki sízt afa- og langafabörnunum. Við biðjum góðan Guð að styrkja eftirlifandi eiginkonu og blessa minningu Hermanns Jakobssonar og kveðjum hann með versinu sem honum þótti svo vænt um. Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgrímur Pétursson.) Auður G. Hagalin. Hermann afi er dáinn. Hann verður jarðaður í dag og ég svo langt frá ömmu og fjöllunum mín- um bláu. Minningarnar svo margar. Afi minn og amma mín út á Bakka búa. Þau eru bæði sæt og fín þangað vil ég fljúga. Minning: Jón G. Lúðvíksson Fæddur 5. nóvember 1917 Dáinn 15. maí 1992 Jón Guðni Lúðvíksson er allur. Góður drengur er genginn sína leið á vit æðri máttai’valda. Hann var baðvörður við íþróttahús Álftamýrarskóla um langt árabil °g gegndi störfum húsvarðar í sumarleyfum. Jón var einstakur, samviskusamur svo af bar. Hann var t.d. alltaf mættur manna fyrst- ur á morgnana, þreif lóð og mok- aði frá ef snjóað hafði. Slíkur starfsmaður sem Jón var er gulli betri, ekki síst fyrir þá sem á eftir komu á vinnustað. Jón var af vestfirskum ættum sem ég þekki ekki og mun því ekki reyna að rekja. Megi hinn hæsti höfuð- smiður himins og jarðar fylgja honum á þeim brautum sem hann hefur nú lagt út á. Ég votta eftirlifandi ættingjum hans mína dýpstu samúð. Fari Jón, vinur minn, í friði. Ragnar Júlíusson, fyrrv. skólastjóri. Þessi barnagæla hefur álltaf verið vísan mín, vísan okkar afa og ömmu. Ort um okkur, um okk- ur þijú. Afi og amma bjuggu niðri á Bakka. Þangað var alltaf svo gott að koma. Það var jafneðlilegt að fara niður á Bakka og að fara heim. Og jafneðlilegt er að ræða um afa og ömmu í sömu andránni. Þau voru alltaf eitthvað eitt og óijúfanlegt. Eitthvað fast og óum- breytanlegt. Rétt eins og að á eft- ir ýsu kæmi grautur. Heilan vetur borðuðum við afi saman hádegismat. Bara við tvö og alltaf var það soðin ýsa með kartöflum og grautur á eftir. Allt- af. Afi borðaði verstfirskan hnoð- mör sem viðbit og ég majónes. Síðan var grautur. Hvorugu okkar datt í hug að hádegismatur gæti verið öðruvísi. Afi minn sagði ekki sögur eða flutti mögnuð ljóð. Hann var held- ur ekki skemmtikraftur eða brand- arakarl. Kannski var hann afi minn ekki neitt neitt á mælikvarða glanstímarita eða heimsbók- mennta. En hann var hann afi minn. Svo stór og sterkur, svo traustur, svo góður. Mikið þótti mér vænt um hann. Vinkona ömmu minnar, Elísabet Þorgeirsdóttir, segir í síðustu ljóða- bók sinni: I tímalausum veruleik eldhússins helst kvika mannlífsins við því í takt við hjartslátt landsins er lifað samkvæmt lögmálinu þar sem kaffið og spaugið ylja innvortis þeim klettum sem vita að hinumegin við borðið er líka klettur með hlýja, vinnusama hönd og góð augu. Þannig var eldhúsið þeirra. Enginn heilsaði okkur barna- börnunum eins og afi. Bakklappið hans var einstakt. Nærri lá, að í okkur stæði þegar afi bauð okkur velkomin vestur þegar við hittumst aftur, eftir einhveija ijarveru. Það var svo gott, það var svo hlýtt að finna þykkar, mjúkar, vinnulúnar hendur hans á bakinu, um leið og við kysstum skeggjaðan vanga hans. Afi minn var sköllóttur. Það hafði mér aldrei dottið í hug. Hann var sköllóttur, með silfraðan hárkraga. Allir virtust vita þetta nema ég ef marka má eitt minning- arbrot mitt. Ég kom inn í eldhúsið og afi sat á sínum stað, derhúfu- laus. Hafði eitthvað komið fyrir? Hafði orðið slys? Rosalega varð ég hissa. Derhúfan hans hafa var nefnilega í mínum huga hluti af honum sjálfum, rétt eins og nefið. Þegar ég hugsa til baka er það þeim mun furðulegra hversu hvumsa ég varð, því ég svaf svo oft hjá þeim á Bökkunum. Ég fór vestur í fyrrasumar. Eig- inlega eingöngu til að kveðja afa. En hann lék á læknana, dauðann og mig, rétt eins og Þórður kakali forðum. Og nú er hann afi minn dáinn, farinn. En hann er ekki farinn langt, ekki frá mér. Afi er hjá mér núna eins og alltaf, hjá okkur öllum. Svo dóstu af sömu hógværð og þú lifðir og enn get ég ekki grátið aðeins sagt takk, takk fyrir allt sem þú gafst mér því ég veit að guð passar þig svo vel. E.Þ. Elsku amma mín, við mamma erum með þér í anda, í faðmi fjalla blárra, og trúum því og treystum að vorið, með birtu sína og yl, lini söknuðinn og að góður guð styrki þig nú, sem endranær. María Björk. # BUGK&DECKER' SUMARTILBOÐ TS 30 NÝTT-SAMLOKURIST Sumartilboö kr. 3.894 HANDRYKSUGUR Sumartilboö frá SE 10, 20 STRAUJÁRN Sumartilboö frá kr. 3.490 DCM 321 KAFFIVÉLAR Sumartilboö frá kr. 2.690 TA 51 kr. 2.216 Útsölustaöir: Axel Sveinbjömsson, Akrancsi Árvirkinn, Selfossi Borgarljós, Rcykjavík Brynja, Reykjavík Byggt og búiö, Reykjavík Byko, Hafnarfiröi Byko, Hringbraut Einar Stcfánsson, Búöardal Glóey, Reykjavík Guöni E. Hallgrímss., Grundarfiröi H.G. Guöjónsson, Reykjavík Hagkaup, Reykjavík Hólf og gólf, Breiddinni Húsiö, Stykkishólmi Jónas Þór, Patreksfiröi Kassinn, Ólafsvík K.B., Borgamcsi K.L., Þórshöfn K.R., Hvolsvelli K.V.H., Hvammstanga K.V., Vopnafiröi Ncisli, Vcstmannaeyjum Óttar Sveinbjörnsson, Hcllissandi Radíóvinnustofan, Akureyri Rafborg, Grindavík Rafbúöin Áifaskciöi, Hafnarfiröi Rafbúö Vesturbæjar Rafsjá, Bolungarvík Rafsjá, Sauöárkróki Rafvörur, Rcykjavík Rás, Þorlákshöfn Reynir Ólafsson, Kcfiavík S. Guöjónsson, Kópavogi Sigurdór Jóhannsson, Akranesi Siguröur Fanndal, Siglufiröi Sindrastál, Rcykjavík Skipavcrslunin, Reykjavfk Straumur, ísafiröi Sveinn Guömundsson, Egilsstööum Sveinn Ó. Elíasson, Neskaupstaö Verslunin ósbær, Blönduósi Þríhymingurinn, Hellu Öryggi, Húsavík LOKAÚTSALA ALLT Á KR. SOO aö^seljast PRÚTTIÐ MARKAÐSHÚSIÐ, & 10.14.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.