Morgunblaðið - 22.05.1992, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 22.05.1992, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1992 21 Ráðstefna um ríkisfjár- mál haldin á morg’un LANDSMÁLAFÉLAGIÐ Vörður, Skattanefnd Sjálfstæðisflokksins og Samband ungra sjálfstæðismanna efna til ráðstefnu um ríkisfjár- mál á Hótel íslandi á laugardag. Friðrik Sophusson, fjármálaráð- herra, kynnir fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar og að því loknu munu hin ýmsu atriði hennar reifuð í framsöguerindum sjö annarra ræðumanna. „Markmið ráðstefnunnar er að draga upp mynd af heildarútlínum í ríkisfjármálum,“ sagði Ólafur Örn Klemensson, ráðstefnustjóri og for- maður Varðar, í samtali við Morg- unblaðið. Hann kvað umræðurnar í meginatriðum skiptast í tvennt, annars vegar um tekjuhlið og hins vegar um gjaldahlið ríkisfjármála. I umræðum um tekjuhliðina mun Yngvi Harðarson, hagfræðingur Félags íslenskra iðnrekenda, ræða um og rekja efni nýframlagðra draga að frumvarpi um skattlagn- ingu fjármagnstekna. Að því loknu mun Einar Hálfdánarson, löggiltur endurskoðandi, ræða um bætta skattheimtu. „Þetta er mál sem hefur verið á vörum manna í ára- tugi en virðist lítill gaumur hafa verið gefinn þegar til kastanna kemur. Raunar virðist það aðeins vera í fjármálaráðherratíð Sjálf- stæðisflokksins sem átak hefur ver- ið gert í þessum málum,“ sagði Ólafur. Hann lagði áherslu á að nú hafi fjármálaráðherra uppi miklar ráðagerðir um bætta skattheimtu, og því hafi þótt rétt að taka þetta til umræðu sem sérstakan mála- flokk. Einnig verður rætt um tekjuöflun með sölu ríkiseigna, en í áætlun ríkisstjórnarinnar fyrir þetta ár sagði Ólafur að áætlað væri að afla um eins milljarðs króna með því móti. „Það ■virðast því miður vera einhveijir erfiðleikar í sambandi við þetta markmið. Til dæmis náðu lög um sölu Sements- og Síldarverk- smiðjanna ekki fram á þessu þingi. Það sama á við um bankana — að breyta Landsbankanum og Búnað- arbankanum í hlutafélög er auðvit- að forsenda þess að hægt sé að selja þá,“ sagði Ólafur Örn. „Það sem ekki skiptir minna máli, er að sala ýmissa fyrirtækja sparar ríkinu ótrúlegar íjárhæðir á hveiju ári. Framlag ríkisins til Ríkisskipa og Álafoss, til dæmis, hafa verið um fimm milljarðar króna á síðustu tíu árum,“ sagði hann. Um gjaldahliðina að öðru leyti mun Benedikt Jóhannesson, töl- fræðingur, ræða um launakerfi rík- isins og starfsmannahald, og einnig mun Þórleifur Jónsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands iðn- aðarmanna, fjalla um útboð og hag- ræðingarmál. Mikilvægi hallalausra fjárlaga er yfirskrift erindis Steingríms Ara Arasonar, hagfræðings. Að sögn Ólafs Arnar mun hér verða fjallað um málið frá almennu, hagfræði- legu sjónarmiði. Undir lok ráðstefn- unnar mun Geir H. Haarde, alþing- ismaður Sjálfstæðisflokksins, flytja samantekt og helstu niðurstöður ræðumanna. Ráðstefnan er öllum opin, og hefst hún á laugardag klukkan 12.00 með hádegisverði í norðursal Hótels íslands og lýkur eigi síðar en kl. 16.30. Að ráðstefnunni lok- inni verður boðið til síðdegismót- töku í Valhöll. AÐALFUNDUR Vinnuveitendasambands íslands verður haldinn ídag, föstudaginn 22. maí 1992, f Súlnasal Hótels Sögu. Dagskrá: Kl. 12.00 Fundarsetning. Kl. 12.15 Hádegisverður aðalfundarfulltrúa og gesta. Kl. 13.15 Ræða formanns VSÍ, Einars Odds Kristjánssonar. Ræða fjármálaráðherra, Friðriks Sophussonar. Kl. 14.00 Búum betur - bætum hag Lífeyriskerfi á vegamótum. 6 sjóðir eða 66? Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ. Hvað sparast við sameiningu sveitarfélaga? Sigfús Jónsson, framkvæmdastjóri Nýsis hf. Hagræðing í hagsmunagæslu? Gunnar Svavarsson, formaður FÍI. Fyrirspurnir - umræður. Kl. 15.30 Skýrsla framkvæmdastjóra fyrir liðið starfsár og önnur aðalfundarstörf. Kl. 16.30 Ályktun aðalfundar. Kl. 17.00 Fundarslit. Einar O. Kristjánsson Friðrik Sophusson Þórarinn V. Þórarinsson Sigfús Jónsson Gunnar Svavarsson Peugeot 106 ber höfundum sínum fagurt vitni, listasmiðunum sem lögðu alla hæfileika sfna, metnað og hugvit í að gera þennan glæsilega bíl sem fullkomnastan. Hnitmiðuð hönnun gerir Peugeot 106 lipran, lifandi og rúmgóðan borgarbíl. íslendingar gera þá kröfu til bíla að þeir standist erfiða prófraun á misjöfnum vegum. Meistara- smiðir Peugeot höfðu að leiðarljósi að finna sem næst fullkomið samræmi milli stærðar hans og þyngdar og þess hversu kraftmikill bíllinn er. Niðurstaðan er sú að Peugeot 106 hefur reynst afbragðs vel úti á vegum og með eindæmum sparneytinn. Peugeot 106 er ekki stór bíll, en hann hefur marga stóra kosti. Verð frá 672.500 kr. Í3 JÖFUR NÝBÝLAVEGI 2 - SÍMI 42600 N A

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.