Morgunblaðið - 22.05.1992, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 22.05.1992, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1992 NQATUN LAMBAKJOT á tilboðsverói Læri 629,- og 729,- Þurr- kryddoð Hryggir 599,- og 699,- Þurr- ktyddoð Lærissneiðar úr miól 869,- og 969,- Þurr- kryddoð Sirlonsneiðor 549,- og 595,- Þurr- kryddað Kótilettur 615,- °g 695,- Þurr- kryddoð Grillsneiðar 589,- og 689,- Þurr- kryddað Bógsneiöar.................. ..kr. 498,- '/2 frampartur sagaður...kr. 448,- 1 Stór grillborgari 49,- m/brauói kr. Nautahakk kr.599, BBQ sósa 510 ml ............kr. 69,- Grillkol 4,54 kg .............kr. 238,- Kartöfflur 1 kg___________________kr. 29,- NÓATÚNI 17 ® 61 70 00 ROFABÆ 39 •Sf 67 12 00 HAMRABORG KÓP. ® 4 38 88 LAUGAVEG1116 ® 2 34 56 ÞVERHOLTI MOS. ® 66 66 56 FURUGRUND KÓP. ® 4 20 62 \ I I I \ Frá blaðamannafundi ráðherra EFTA í gær. Morgunbiaðið/Svemr Ráðherrafundur EFTA í Reykjavík: Samkomulag um skiptingu 1 kostnaðar vegna EES Ráðherrafundi EFTA lauk á Hótel Sögu í gær. Á fundinum var m.a. tekin ákvörðun um að EFTA-dómstóIlinn, sem settur verður á laggirnar í tengslum við Evrópska efnahagssvæðið, verður í Genf og einnig náðist samkomulag hvemig skipta ber þeim kostn- aði sem hlýst af EES-samningnum milli aðildarríkjanna. Má gera ráð fyrir því að þegar við tökum að fullu þátt í EES verði út- gjöld íslendinga rúmlega tvö hundmð milljónir króna á ári. Alls er áætlað að heildar- kostnaður EFTA-ríkjanna vegna EES-samningsins muni nema um 700 milljónum svissneskra franka eða sem nemur tæpum 28 milljörð- um íslenskra króna. Samkvæmt samkomulaginu frá í gær munu íslendingar greiða 0,7% af því sem rennur til þróunarsjóðs fyrir Suður-Evrópu og til sameiginlegra verkefna EB og EFTA en 6/7 út- gjalda EFTA verða vegna þessara tveggja liða. Hundrað svissneskir frankar, eða 1/7 heildarupphæðar- innar, mun renna ti! reksturs EFTA og stofnana vegna EES og greiða íslendingar 1,2%^ þess kostnaðar. Alls munu því íslend- ingar greiða rúmar 200 milljónir þegar upp er staðið eða um 0,8% af vergri þjóðarframleiðslu. ís- Jón Baldvin segir, að fyrir ráð- herrafundi EFTA hafi fyrst og fremst legið þrjú úrlausnarefni varðandi Evrópska efnahagssvæð- ið, og þau hafi verið leyst. í fyrsta lagi hafi þui-ft að ákveða skiptingu kostnaðar milli EFTA-ríkjanna vegna rekstrar EFTA, nýrra stofn- ana sem fylgdu EES og vegna samstarfsverkefna með Evrópu- bandalaginu, einkum á sviði þró- unar og menntamála. Sú lausn hafi verið íslendingum afar hag- stæð. í annan stað hafi svo þurft að ákveða stöðu þjóðtungna EFTA- ríkjanna í EES. Alpaþjóðirnar, sem séu þýsku- og frönskumæ- landi, hafí talið sig hafa möguleika á að fá gögn, svo sem lög og reglu- gerðir, á þjóðtungum sínum frá lenskir embættismenn telja þetta vera mjög jákvæða niðurstöðu því eins og stendur greiða íslendingar 1,7% heildarútgjalda EFTA. í lokayfirlýsingu fundarins harma ráðherrarnir þróunina á landssvæði fyrrum Júgóslavíu og þá sérstaklega átökin í Bosníu. Einnig er minnst á GATT-viðræð- urnar og sagt að ekki muni miklu að þar verði hægt að ná samkomu- lagi. Hvetja ráðherrnarnir til að reynt verði að slá á hnútinn í við- ræðunum svo hægt verði að kom- ast að sameiginlegri niðurstöðu. Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, sem nú er í for- sæti EFTA, sagði á blaðamanna- fundi að Ioknum ráðherrafundin- um að fundurinn hefði verið „mjög mikilvægur". Þarna hefði ráðherr- EB og hafi því verið ófúsar að taka þátt í sameiginlegum þýðing- arkostnaði EFTA. A fundinum hafi verið áréttað að þýðing og túlkun á lögum og reglum innan EES væri sameiginlegt verkefni allra ríkja, sem aðild að því ættu, en jafnframt yrðu teknar upp við- ræður við EB um málið og ekki fengist endanleg niðurstaða fyrr að þeim loknum. Jón Baldvin segir að í þriðja lagi hafi verið ákveðið á ráðherra- fundinum að stofna aðrar aðal- stöðvar EFTA í Briissel. Þar yrði fjallað um samkeppnisreglur á Evrópska efnahagssvæðinu, en önnur mál yrðu áfram til umfjöll- unar í aðalstöðvunum í Genf. Þá hefði verið samþykkt að EFTA- dómstóllinn yrði staðsettur í Genf. unum gefist tækifæri til að meta EES-samninginn í heild sinni ein- ungis þremur vikum eftir að hann var undirritaður. Væru öll aðildar- ríkin bjartsýn á það þeim myndi takast að staðfesta samninginn á þessu ári svo að hann gæti tekið gildi um næstu áramót. Ráðherrar Finnlands, Austur- ríkis og Sviss voru spurðir hvort | þeir væru að „flýta sér“ jafn mik- ið og Svíar varðandi EB-aðild. Pertti Salolainen, utanríkisvið- i skiptaráðherra Finnlands, sagði eina helstu ástæðu þess að Finnar hefðu ákveðið að sækja um aðild j nú væri að þeir vildu vera farþeg- ar í nákvæmlega sömu lest og Svíar og Austurríkismenn inní EB. Hins vegar væri ljóst að mikil verkefni lægju fyrir Evrópuband- alaginu í kjölfar Maastrichts og óvíst hvenær það yrði reiðubúið að taka inn ný aðildarríki. Wolfgang Schussel, fjármála- ráðherra Austurríkis, sagði Austu- ríkismönnum ekkert liggja á. Þeir hefðu sótt um aðild sumarið 1989 og vonuðust til að á næsta leiðtog- afundi EB, sem haldinn verður í Lissabon myndu koma skýr skila- boð um að aðildarviðræður gætu farið að hefjast og að endanleg ! ákvörðun um það yrði tekin á leið- togafundinum í Edinborg síðar á árinu. » Framtíð EFTA og mikilvægi EES kom einnig til umræðu á blaðamannfundinum og sagði Jón ' Baldvin að ekkert lægi enn fyrir um hvepær nokkurt EFTA-ríki myndi gerast aðili að EB. Þeir bjartsýnustu vonuðust eftir að það gæti orðið 1995 en margir væru hins vegar þeirrar skoðunar að það væri ekki raunhæft fyrr en 1996-97. Fram til þess tíma væri EES eina trygging EFTA-ríkjanna fyrir tryggum aðgangi að hinum innra markaði EB. Ef íslendingar sætu að lokum einir eftir í EFTA sagði hann að EES-samningurin yrði staðfestur af hveiju einasta ríki og myndi hann því verða áfram í gildi. Ef íslendingar taka ekki ákvörðun um EB-aðild þá verður hægt að líta á EES- samninginn sem varanlegan samning við bandalagið. En verður það nóg til langframa. Það er allt- of snemmt að segja til um það,“ ( sagði Jón Baldvin. Næsti ráðherrafundur EFTA verður haldinn 1.-2. desember í Genf. Ein erfiðasta samninga- lota okkar innan EFTA - segir Jón Baldvin Hannibalsson JÓN Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, segir að á ráðherra- fundi EFTA í Reykjavík hafi átt sér stað samningalota, sem sé með þeim erfiðustu, sem hann hafi tekið þátt í innan samtak- anna. Það hafi komið í lilut íslands að beita sér fyrir lausn á ágreiningsefnum fundarins og það hafi tekist á síðustu stundu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.