Morgunblaðið - 22.05.1992, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 22.05.1992, Blaðsíða 34
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1992 34 Minning: Þorbjörn Eyjólfsson Fæddur 6. apríl 1909 Dáinn 15. maí 1992 Mig langar að minnast afa míns Þorbjörns Eyjólfssonar, fyrrverandi verkstjóra frá Hafnarfirði. Mér brá þegar mamma kom til mín á fimmtudaginn var og sagði að það hefði verið hringt frá Islandi og sagði að hann afí væri orðinn með- vitundarlaus og þetta myndi ske innan sólarhrings þó svo að ég vissi hvað væri framundan hjá honum. Hann lést aðfaranótt 15. maí. Afi yar giftur Halldóru Jóhannsdóttur, hún lést fyrir tveimur árum. Afi minn var mjög mikill sögumaður það var ótrúlegt hvað hann vissi innanlands. Eitt sinn buðu þau mér með og það var farin hringvegurinn og veðrið var ótrúlega gott og stoppað nokkra daga á hveijum stað. Það sem afí gat sagt um alla þá staði sem við skoðuðum. Afi og amma reyndust mér mjög vel á uppvaxtarárunum, alltaf komu þau strax ef maður kallaði, við barna- bömin vorum þeim allt. Ég og mín- ar dætur, Jóhanna og Kristjana, áttum yndislega sex mánuði með honum og fórum þrem vikum fyrir kallið, en nú á ég góðar minningar frá honum afa mínum. Allir þeir bíltúrar sem við fórum í, vildi hann alltaf fara til Hafnarfjarðar og sýna sínum langafabömum Einarsbúð við Strandgötuna, það var hans líf og yndi. Ég þakka elsku afa fyrir allt það sem hann gerði fyrir mig og mínar dætur. Ég hugsa til hans þegar útförin fer fram frá Þjóðkirkjunni í_ Hafnarfirði föstudaginn 22. maí. Ég vil þakka öllu starfsfólki á hjúkrunarheimilinu Skjóli fyrir frá- bæra umönnun á afa mínum sér- staklega starfsfólki 4. hæðar. Hvíli elsku afí okkar í friði. Lovísa, Jóhanna og Kristjana. Vinur minn - Þorbjörn Eyjólfs- son verkstjóri, er látinn. Erfiðum kafla lífsbaráttunnar er lokið og ég veit að hann þakkar hvíldina. Með Þorbimi er genginn Hafnfirðingur sem um áratugaskeið setti mjög svip sinn á allt bæjarh'f í Hafnar- firði og var einn af þátttakendum í mikilli uppbyggingu atvinnulífsins. Þorbjöm Eyjólfsson fæddist í Hafnarfírði 6. apríl 1909. í föður- ætt var hann kominn úr Selvogun- um. Faðir hans var Eyjólfur Þor- bjarnarson, hreppstjóra og útvegs- bónda Guðmundssonar, en Eyjólfur var fyrsti organistinn í hinni kunnu Strandakirkju. Móðir Þorbjörns, Vilborg Eiríksdóttir, var ættuð frá Setbergi, sonardóttir hins nafn- kunna bónda Jóns Guðmundssonar sem þar bjó stórbúi á síðustu öld. Fjögur vom systkini Þorbjörns, bróðir, er dó ungur, og þrjár syst- ur, tvær látnar, en á lífi er frú Sólveig Eyjólfsdóttir. Samhliða bamaskólanámi hóf Þorbjörn tæpra 10 ára gamall störf hjá Éinari Þorgilssyni, kaupmanni og útgerðarmanni, og má segja að þá þegar hafi starfsvettvangur Þor- björns verið ákveðinn. Snúninga- störf í verslun Einars var upphafíð, síðan var haldið upp á reit. Þegar Þorbjöm hugðist fara til sjós 1930 stöðvaði Einar það og fól honum verkstjóm í fyrirtæki sínu aðeins 21 árs gömlum. Hvort tveggja var að aldnir verkstjórar hjá Einari létu af störfum og fyrirtæki Einars var orðið mjög umfangsmikið og þurfti því örugga og trausta verkstjórn og í huga Einars kom þar enginn til greina nema Þorbjörn. Verk- stjórastarfínu gegndi hann síðan til ársins 1966 að hann kaus að breyta til og hóf þá störf hjá Eimskipafé- lagi íslands. Á því er enginn vafi að Þorbjörn Eyjólfsson var einn af færustu og bestu verkstjórunum í Hafnarfirði og vora þeir þar margir góðir og rómaðir víða. Hann kunni afar vel til verka, enda hafði hann frá því hann var drengur nýtt sér frábæra kennslu húsbónda síns og forvera sinna í starfí, þeirra mætu verk- stjóra Hannesar Jóhannssonar og Elíasar Halldórssonar. Hafði hann einnig mjög gott lag á starfsfólki sínu, sem sóttist eftir vinnu hjá honum og því ætíð afbragðs starfs- fólk hjá Einari Þorgilssyni. Af- greiðslu fiskiskipanna var viðbrugð- ið. Nákvæmni og reglusemi með slíkum hætti að aðrir útgerðarmenn og starfsfélagar Ieituðu gjarnan til hans þegar þeir áttu við erfíðleika að etja. Fiskframleiðslan var til mikillar fyrirmyndar hjá Þorbirni. Hann hafði vanist því að skila vör- unni þannig að óskað yrði eftir áframhaldandi viðskiptum. Fyrirtæki Einars Þorgilssonar óx og dafnaði. Það var ekki aðeins togaraútgerð og saltfískvinnsla heldur einnig síldarútgerð og síðar vélbátaútgerð. Það skipti engu máli fyrir Þorbjöm. Hann brá sér í síldina norður á Djúpavík þegar þess þurfti með eða hvert á land annað þar sem togarar eða vélbátar fyrirtækisins komu að landi. Verkstjórastarfið gaf Þorbirni tækifæri til að nýta hugvit sitt til þróunar tæknibúnaðar fyrir útgerð- ina og fiskvinnsluna og það gerði hann. Fiskþurrkunarhús það sem Einar Þorgilsson byggði 1930 var sérstaklega rómað fyrir nýtískuleg vinnubrögð, sem Þorbjörn innleiddi. Uppfyllir þetta hús flestar þær kröf- ur sem gerðar era til slíkra húsa í dag. Þeir Þorbjörn, Haraldur Krist- jánsson verkstjóri og Jóhann Ól. Jónsson vélstjóri í Vélsmiðju Hafn- arfjarðar, hönnuðu og smíðuðu sér- staka þvottavél til að þrífa lestar- borð úr fískiskipum og í samstarfi við ungan vélvirkja, Snæbjörn Bjarnason, hönnuðu þeir og smíð- uðu fyrstu fiskiþvottavélina sem notuð var hér á landi. Tími til félagsstarfa var einnig hjá vini mínum Þorbirni. Verkstjór- afélagið var hans vettvangur, þar sem hann var kjörinn heiðursfélagi. Slysavamafélag íslands átti hauk í horni þar sem Þorbjörn var. Áhugi Þorbjörns á bæjarmálefnum og þjóðmálum var mjög mikill og not- aði hann hvert tækifæri sem gafst til þess að leggja stefnu Sjálfstæðis- manna lið. Honum var ljóst og studdist hann þar við reynslu sína að frelsi einstaklingsins til orðs og athafna er það sem tryggir best * Selma Olafsson Grönvold — Minning Fædd 30. janúar 1903 Dáin 12. maí 1992 Þá hefur hún frænka mín blessuð kvatt þennan heim, lokið sinni ævi- göngu sem hófst í litlu sjávarþorpi norður við íshaf og endaði í millj- ónaborg í Ameríku. Selma Grönvold var dóttir hjón- anna Karls Gustafs Grönvold út- gerðarmanns á Siglufirði og Vil- borgar Grönvold. Hún var yngst systkina sinna, en þau vora Okta- vía, Polly og Kvöldúlfur Grönvold. Er Selma var mjög ung, féll faðir hennar frá og móðirin flutti með bömin til Akureyrar, þar sem þau bjuggu í nokkur ár, en síðan flutti Vilborg með yngri bömin til Reykja- víkur, líklega um 1913-14 og þá inn á heimili elstu dóttur sinnar sem hafði stofnað heimili í Miðstræti 7. Selma gekk svo hina venjulegu leið í barnaskóla og síðan sat hún einn vetur í Kvennaskólanum i Reykja- vík en um 1920 ákveður hún að leita á fjarlægari mið, hyggst læra enska tungu og fær far með gufu- skipi til Danmerkur og síðan áfram vestur til Ameríku þar sem hún ætlaði að vera sumarlangt í vist í New York. Um haustið fannst Selmu hins Sérfræðingar í blómaskreytingum vid öll tækifæri Skólavörðustíg 12 á horni Bergstaðastrætis sími 19090 vegar ekki fýsilegt að snúa heim, vildi vera fijáls og dvaldi því áfram á heimsborginni við ýmis störf, sem oft voru illa launuð og vinnudagarn- ir langir, en hún var ung og staðráð- in í að bjarga sér,'enda fékk hún þau boð að heiman að ef hún kæmi ekki heim, gæti hún ekki átt von á neinum stuðningi frá fjölskyldunni. Selma var stolt og vildi bjarga sér, hún vann við hússtörf og barna- pössun m.a. hjá Keetings-fjölskyld- unni, sem alla tíð síðan hélt tryggð við hana, og leit til með henni á gamals aldri. Áður en Selma hélt vestur hafði hún kynnst ungum myndarmanni í Reykjavík, Ragnari Ólafssyni, sem var sonur Péturs Ólafssonar kons- úls sem bjó í og byggði Valhöll í Reykjavík. Ragnar fór nokkra síðar á eftir Selmu til New York og þar giftu þau sig og bjuggu saman uns Ragnar dó um 1940'eftir löng veik- indi. Selma bjó lengst af á Manhatt- an í New York og vann fyrir sér við afgreiðslustörf í frægum tísku- verslunum svo sem hjá Bird and Goodman á 57. stræti og afgreiddi og ráðlagði m.a. frægu fólki sem kom þar í fatainnkaup. Þótti Selma sérlega smekkleg í vali og ráðlegg- ingum svo hún vann sér traust og virðingu í þessu starfí. Um 1975 var sjónin farin að daprast og þá treysti Selma sér ekki lengur til að gera eins og hún vildi fyrir við- skiptavinina svo hún sagði upp og hélt sig eftir það mest heima við í 40fm leiguíbúð sinni á 59. götu. Þar hitti undirritaður Selmu langömmusystur fyrst 1986. Þá var hún löngu hætt að komast ein niður stiga hússins og út, en fékk sendan til sín mat einu sinni á dag. Augun höfðu daprast svo hún gat ekki les- ið, en er fyrrum atvinnuveitandi hennar lést, hafði hann beðið vin sinn að hringja daglega í mrs. Ól- afsson og segja henni hvað væri í sjónvarpinu og helstu fréttir úr dagblöðunum. Þetta gerði hann Tom Hardison öll árin sem ég þekkti til. Selma eignaðist ekki börn og átti enga ættingja í Ameríku, em ýmsir sýndu henni ræktarsemi svo sem börnin sem hún hafði passað á þriðja áratugnum og einnig gaml- ir viðskiptavinir, svo sem Beverly Orgill, kona sem hefur séð um öll hennar mál hin síðari ár og vann í að koma Selmu á sjúkraheimili eft- ir að hún gat ekki lengur séð um sig sjálf. Selma bjó ein eftir 1940 og kom aðeins einu sinni til íslands öll þessi ár, en það var 1946, er hún flaug heim í boði Kvöldúlfs bróður síns og dvaldi hér í 10 daga. Ég minnt- ist oft á það við hana að koma heim, en hún treysti sér ekki og bjóst ekki við að þola ferðalagið eða breytingarnar. Selma Ólafsson var einstaklega hlý og viðfelldin kona sem bar svo sannarlega með sér að hún var ís- lendingur, hún bar hlýjar tilfínning- ar til Iandsins gamla og íslendinga, hún mundi ýmislegt að heiman, m.a. er hún smástelpa gekk með og leiddi Matthías Jochumson skáld á Akureyri, einnig hvað hana lang- aði að komast alla leiðina yfir Poll- inn þar sem reykurinn steig til him- ins af bæjunum í Vaðlaheiðinni. Eftir rúm 70 ár í Ameríku var ensk- an orðin henni tamari en oft komu íslensku orðin fram á varirnar og við æfðum okkur stundum í gamla málinu sem hún skildi mjög vel ennþá. Mig langar í lokin að þakka þessari gömlu frænku minni ógleymanlegar samverustundir. Hún verður jarðsett í New York í dag. Jón Karl Snorrason Valgerður Benedikts- dóttir — Kveðjuorð Fædd 17. júlí 1943 Dáin 13. maí 1992 Valla fæddist fyrir tæpum 49 árum norður í Strandasýslu að Þorp- um í Steingrímsfirði. Frumburður Benedikts Þorvaldssonar frá Þorpum og Matthiidar Guðbrandsdóttur frá Broddanesi, sem bæði eru á lífi. Síðan ólst hún upp á Hólmavík ásamt systkinum sínum, Guðbrandi, Þorvaldi, Birgi, Sigrúnu og Stein- þóri, sá tími er mér í minningunni bjartur. Snemma komu í Ijós hæfileikar hennar til hannyrða. Kommóðan hennar varð fljótlega full af dúkum, púðum og ýmsu sem ég kann ekki að nefna. En ekki flíkaði hún mikið því sem í kommóðunni var. Leið hennar lá í Húsmæðraskól- ann á Varmalandi þegar hún var 18 eða 19 ára og vissi ég að þar þótti henni gott að vera og bætti þar við djásnin í kommóðunni. Valla eignaðist tvö börn, Matthildi Eiríksdóttur, _sem er 25 ára, og Pálma Frey Óskarsson, sem er 17 ára. Dótturdæturnar eru tvær og þótti henni ákaflega vænt um þær. Síðustu árin var Valla í sambúð með indælis manni, Þórólfi Þorleifs- framþróun til aukinnar hagsældar fyrir samfélagið. í starfi sínu naut Þorbjörn mikils stuðnings konu sinnar, Halldóru D. Jóhannsdóttur, sem hann kvænt- ist 12. nóvember 1932. Reyndar starfaði Halldóra oft með honum hjá fyrirtækinu, en hún lést 12. júní 1990. Einkadóttir þeirra hjóna er Jóhanna Sigríður sem gift er Guðmundi Guðmundssyni og börn þeirra urðu fímm. Þorbjöm Eyjólfsson tengdist ungur fjölskyldu afa míns og ömmu, Geirlaugar Sigurðardóttur og Ein- ars Þorgilssonar. Þegar ný kynslóð óx úr grasi héldust vináttuböndin. Ég mun ekki hafa verið hár í lofti, þegar fundum okkar Þorbjörns bar fyrst saman. Hann sagði mér oft sögur af því þegar afí minn kom með mig og við þrír fórum eitthvað saman. Tíminn leið og síðar fékk ég leiðsögn Þorbjörns í starfi sem ég hefi búið að. Ég naut vináttu hans og ómetanlegs stuðnings alla tíð og þegar ný kynslóð birtist var Þorbjörn hinn sami vinur. Ég vil að leiðarlokum þakka vini mínum, Þorbirni Eyjólfssyni, langa og ánægjulega samferð og allt sem hann gerði fyrir mig. Eigendur fyr- irtækis Einars Þorgilssonar og fjöl- skyldur þakka honum ómetanleg störf hans og við biðjum honum Guðs blessunar. Fjölskyldu hans sendum við samúðarkveðjur. Matthías Á. Mathiesen. í dag er við kveðjum Þorbjörn Eyjólfsson langar okkur að þakka honum samfylgdina. Bedda hef ég þekkt frá því ég man eftir mér. Hann bast ungur móðurfólki mínu sterkum böndum, og er ég rifja upp í huga mér æskuárin mín í Sléttu- hlíðinni, þar sem móðurfólk mitt dvaldi á sumrin, er Beddi inní mynd- inni. Hann starfaði um langan aldur við fyrirtæki Einars Þorgilssonar, lengst af sem verkstjóri í saltfisk- og skreiðarverkun fyrirtækisins á Einarsreit. Er við hjónin hófum framleiðslu á saltfísk og skreið á Einarsreit 1987 kom Beddi oft til .okkar að fylgjast með verkuninni og leggja okkur góð ráð. Hann lét ekki orðin nægja heldur gaf sér tíma til að fara uppá hjalla með Friðbirni til að sjá hvernig frágangurinn væri þar og vorum við alsæl ef Beddi hældi hausunum eða skreiðinni, því þá vissum við að allt væri í lagi. Hann sagði okkur margar sögur frá fyrri tíð, lýsti hann fyrir okkur verk- un á saltfíski í þá daga eins og það hefði gerst í gær, svo skýrar voru lýsingar hans. Þrátt fyrir að veikindi vora farin að hetja á hann kom hann alltaf og tók ríkulegan þátt í gerð sjón- varpsþáttar 1989, þar sem hans sögulegi þáttur var mikils virði. Að vera aðnjótandi þess að mað- ur með þá þekkingu í okkar fagi sem Beddi hafði skyldi sýna okkur þann áhuga og vinskap í uppbygg- ingu okkar fyrirtækis er ómetan- legt. Ég og Friðbjöm munum minn- ast Bedda með þakklæti og virðingu um ókomin ár. Við vottum íjölskyldu hans sam- úð okkar. Blessuð sé minning Þor- björns Eyjólfssonar. Valgerður Sigurðardóttir. syni, Gautlandi 11, Reykjavík, og horfðu þau björtum augum á fram- tíðina. I byijun þessa árs kom í ljós að hún gekk með banvænan sjúk- dóm, sem hún barðist við af hetju- skap þar til yfir lauk og hún andað- ist á Landspítalanum 13. maí sl. Er við hjónin heimsóttum hana fyrir páska var hún rúmliggjandi og fórum við að dást að blúndunum á sængunum hennar, kom í ljós að þarna var eitt djásnið úr kommóð- unni hennar og sagðist hún vera búin að nota blúndurnar á fleiri en eitt sængurver, þannig að vei entist handavinnan hennar. Við sendum Þórólfi, börnunum og öllum aðstandendum inninlegar samúðarkveðjur og biðjum guð að vera þeim nálægur. Megi blessun hvíla yfir minningu hennar. Valdi og Lauga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.