Morgunblaðið - 22.05.1992, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 22.05.1992, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1992 19 Frans Andriessen vara- forseti framkvæmda- stjórnar EB: Bjartsýni að gera ráð fyrir nýjum aðildarríkj- um EB 1995 FRANS Andriessen, varaforseti framkvæmdastjórnar Evrópu- bandalagsins, átti í gær viðræður við ráðherra EFTA-ríkjanna. Að þeim loknum átti hann fund með Jóni Baldvin Hannibalssyni utan- ríkisráðherra þar sem m.a. var rætt um hvað myndi jgerast þeg- ar öll ríki EFTA að Islandi und- anskildu yrðu kominn inn í Evr- ópubandalagið. Sagði Andriess- en við Morgunblaðið að hann hefði mjög skýra skoðun á því hver staðan yrði. Til væri samn- ingur um réttindi og skyldur og þó svo að EFTA myndi „tæmast“ stæði hann fyrir sínu. Hins vegar væri það spurning hvort allar stofnanir yrðu nauðsynlegar ef Islendingar einir yrðu _ eftir. Þetta þyrfti að ræða við Islend- inga þegar þar að kæmi. Svíar, Finnar, Austuríkismenn og Svisslendingar hafa þegar sótt um aðild að EB og búist er við að Norðmenn geri það einnig síðar á árinu. Sérstak- lega Svíum er það mikið kappsmál að samningavið- ræðum ljúki 1994 og að þeir geti orðið aðilar 1995. Þetta telur Andri- essen hins vegar vera allt of mikla bjartsýni. „Ég á von á því að aðild- arviðræður þessara ríkja muni taka aðeins lengri tíma en menn búast við. Það eru mörg erfið mál sem þarf að ræða,“ sagði hann. Aðspurður um hvort hann sæji fyrir sér að íslendinar gætu orðið aðilar miðað vi þá fyrirvara sem þeir gerðu í sjávarútvegsmálum sagði hann að ef Islendingar myndu sækja um aðild fengju þeir sömu meðferð og allir aðrir. „Það hafa aldrei verið veittar neinar viðvar- andi undanþágur af hálfu banda- lagsins. Einungis aðlögunartími. íslendingar geta því ekki búist við að fá viðvarandi undanþágu í sjáv- arútvegsmálum. Á fundi sínum með ráðherrum EFTA ræddi Andriessen m.a. stöð- una í GATT-viðræðunum og mátti heyra á ráðherrunum af þeim fundi loknum að þeir væru bjartsýnir á að lausn væri í nánd. Við Morgun- blaðið sagði Andriessen að það væri sín skoðun að með góðum pólitískum vilja af hálfu beggja aðila mætti ná málamiðlun og þá ekki bara í landbúnaðarmálum. . „Persónulega held ég að við munum ná samkomulagi á þessu ári,“ sagði Andriessen og bætti síðan við: „Og það jafnvel mun bráðlega." felUMO* \JhifUiUA SÉRSTAKLEGA VÖNDUÐ OG VERKFÆRI FRÁ spear & jacksom RÁÐGJÖF SÉRFRÆÐINGA UM GARÐ- OG GRÓÐURRÆKT VERSLUN SÖLUFÉLAGS GARÐYRKJUMANNA GRÓÐURVÖRUR SF. SMIÐJUVEGI 5, 200 KÓPAVOGUR, SÍMI 4321 1 ÖflKIN 2U8-3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.