Morgunblaðið - 05.11.1992, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1992
Frönsk kvikmyndavika
Nýmeti í háum
gæðaflokki
Á LAUGARDAG hefst í Háskólabíói frönsk kvikmyndavika sem All-
iance Francaise og kvikmyndahúsið standa fyrir með fulltingi menning-
ardeildar Franska sendiráðsins. Hátíðin stendur yfir til 13. nóvember.
Á hátíðinni verða sýndar fimm nýjar og nýlegar franskar myndir sem
allar eiga það sameiginiegt að hafa vakið sterk viðbrögð í heimaland-
inu, bæði hjá áhorfendum og gagnrýnendum. Enn fremur verður sýnd
nýjasta kvikmynd Kristínar Jóhannesdóttur, Svo á jörðu sem á himni,
sem tilefnd er til Óskarsverðlauna af íslands hálfu að þessu sinni.
Að sögn Francoise Pérés, forstjóra
Alliance Francaise á Íslandi, er félag-
ið afar stolt af kvikmyndum hátíðar-
innar, og fagnar því að geta sýnt
íslendingum í senn nýjar myndir og
breitt úrval þeirra í háum gæða-
flokki. Auk myndar Kristínar Jó-
hannesdóttur, verða eftirtaldar
myndir á hátíðinni:
Síðasta mynd Ives Montand
Nýjasta mynd franska leikstjórans
Jean-Jacques Beneix (Diva, Betty
blue og Rosalyne og ljónin) ber hinn
óvenjulega titil „IP5-L’ile aux Pac-
hidermes" og hefur hlotið heitið
„IP5-Fflaeyjan“ í íslenskri þýðingu.
Kvikmyndin er frá þessu ári og þyk-
ir að ýmsu leyti vera skrautfjöður
kvikmyndavikunnar. Myndin fékk
mikla aðsókn í Frakklandi og má
segja að Beineix hafi endurheimt þá
hylli sem hann glataði með Rosalyne
og ljónunum er þótti stefnulaus.
„IP5-Fflaeyjan“ fjallar um þrjá menn
á misjöfnu aldursskeiði, er verða
ferðafélagar fyrir tilviljun. Tveir
þeirra, ungur veggjakrotari, Tony
(Oliver Martinez), er í leit að fyrstu
ást lífs síns, hjúkrunarkonunni Glor-
iu, sem hann hefur barið augum einn
dagspart. Förunautur hans Jockey
er stráklingur sem vill sjá snjóinn
og ef vel gengur brotthlaupna móður
sína. Þeir ræna bifreið án þess að
taka eftir að í baksætinu sefur Léon
Marcel (Yves Montand). Marcel er
óræður náungi, klyfjaður bakpoka
sem inniheldur meðal annars kort
af vötnum Frakklands og gamla
Luger- skammbyssu. Hann teymir
þá inn í skógarsvæði, leiddur áfram
af takmarki sem hann ljóstrar ekki
upp hvert er, en gæti verið fjársjóður
eða fom ást.
„IP5-Fílaeyjan“ var hinsta mynd
söngvarans og leikarans ástsæla
Yves Montand, en hann hneig niður
í kvikmyndaverinu stuttu eftir að
síðasta atriðið sem hann lék í hafði
verið fest á filmu.
Snilld eða goðgá?
Listmálarinn Vincent Van Gogh
hefur verið kvikmyndagerðarmönn-
um hugstæður í gegnum tíðina, fyrir
Sinfóníuhljómsveit íslands
Nýtt íslenskt verk
Sinfóníuhljómsveit íslands
heldur tónleika í gulri áskriftar-
röð í kvöld. Tónleikarnir hefjast
klukkan 20 og á efnisskránni er
frumflutningur á verki eftir
kontrabassaleikarann Árna Eg-
ilsson. Einleikari á tónleikunum
er Krystyna Cortes, píanóleikari,
en þetta er frumraun hennar sem
einleikari með Sinfóniuhljóm-
sveitinni.
Á efnisskrá verða eftirtalin verk:
„Reflections" (íhugun) eftir Áma
Egilsson, Píanókonsert í A-moll eft-
ir Robert Schumann, Sinfónía nr. 9
eftir Dmítríj Sjostakovítsj og verkið
eftir Áma Egilsson.
í fréttatilkynningu segir að Ámi
Egilsson sé sennilega þekktastur
hér á landi sem jassleikari. Hann
hefur leikið jass með frægustu jass-
leikurum heims, til dæmis með
André Previn og John Danworth á
Listahátíð 1974. Árni hefur leikið
í sinfóníuhljómsveitum víða um
heim, einnig sem einleikari á hljóð-
færi sitt.
Ámi frumflutti fyrsta íslenska
konsertinn fyrir kontrabassa og
hljómsveit, Nið eftir Þorkel Sigur-
bjömsson. Það verk var síðar gefið
út á geisladiski undir stjóm Vladím-
írs Ashkenazys. Ámi var um árabil
prófessor í kontrabassaleik í Cali-
fomia State University í North-
ridge. Undanfarið hefur Árni látið
kveða meira að sér sem tónskáld
og hefur samið tónlist fyrir kvik-
myndir, sjónvarp og leikhús. Árni
er búsettur í Los Angeles í Banda-
ríkjunum.
Einleikari tónleikanna, Krystyna
Cortes, er fædd í Englandi, en á
ættir að rekja til Póllands. Cortes-
nafnið tók hún er hún giftist til
íslands. Krystyna stundaði nám í
píanóleik við Royal Academy of
Music í London, hvaðan hún lauk
prófi með hæsta vitnisburði. Kryst-
yna hefur verið mikilvirk í tónlistar-
lífí hér á landi bæði sem píanóleik-
ari, kórstjóri og kennari. Þetta er
í fyrsta skipti sem Krystyna kemur
911 RH 91 97fl LÁRUS Þ' VALDIMARSSON framkvæmdastjóri
L I \j\JmL\OI\J KRISTINNSIGURJÓNSSON,HRL.loggilturfasteignasali
Til sýnis og sölu meöal annarra eigna:
Á betra verði við Egilsgötu
endurn. 4ra herb. neðri hæð tæpir 100 fm í þribýlishúsi. Góð endur-
bætt sameign. Langtlán kr. 2,1 millj. Tilboð óskast.
í gamla, góða vesturbænum
5 herb. 2. hæð í reisul. steinh. 116,1 fm nettó. Nýl. parket, nýtt eld-
hús, nýtt bað. 3 rúmg. svefnherb., 2 saml. stofur. Suðursv. Góð lán áhv.
Skammt frá Menntask. v/Hamrahlíð
glæsil. neðri hæð 6 herb. þríbhúsi. 3 svefnherb. í svefnálmu, forst-
herb. m. sérsnyrtingu. Allt sér. Góður bílsk. Ágæt sameign. Hæðin er
öll eins og ný.
Fyrir smið eða laghentan
samþykkt 2ja herb. rúmg. íb. í kj./jarðh. á vinsælum stað i VesturbGrg-
inni. Þarfn. nokkurra endurbóta. Laus strax. Verð aðeins kr. 4,1 millj.
Nánari uppl. á skrifst.
• • •
Fjöldi fjársterkra kaupenda.
Margs konar eignaskipti.
Opið á laugardaginn.
ALMENNA
FASTEIGNASAIAH
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
Yves Montand í hlutverki Leons Marcel í glænýrri mynd Jean-Jacqu-
es Beineix; „IP5-Fílaeyjan“ Innfellda myndin: Atriði úr mynd Claude
Chabrols; „Madame Bovary" frá siðasta ári.
tveimur eða þremur árum voru gerð-
ar tvær myndir með stuttu millibili
um æviferil hans, til er gömul mynd
með Kirk Douglas og nú koma
Frakkar með eigin útgáfu af síðustu
mánuðum Van Goghs í lifandi lífi.
Brugðið er upp myndum frá bænum
Auvers sur Oise og Montmartre-
hverfí Parísarborgar í aldalok. Jacqu-
es Dutrong leikur titilhlutverkið en
leikstjóri myndarinnar er Maurice
Pialat, sem tilheyrði „nýbylgjunni" í
frönskum kvikmyndum, sem menn
eins og Jean-Luc Godard og Franco-
is Truffaut leiddu. Hann virðist ekki
Hannu
fram sem einleikari með Sinfóníu-
hljómsveit íslands.
Stjórnandi tónleikanna er fínnski
hljómsveitarstjórinn Hannu Koiv-
ola. Hann er í hópi þeirra ungu
finnsku hljómsveitarstjóra sem eiga
það sammerkt að hafa stundað nám
hjá þeim fræga kennara Jorma
Panual. Meðal þeirra má nefna
Petri Sakari, Osmo Vánska, Vlad-
hafa skilið við uppruna sinn, því
myndin vakti afdráttarlaus viðbrögð
franskra áhorfanda. Þeir sem aðhyll-
ast stílbrögð leikstjórans hrópuðu
Snilld, en hinir sem vilja halda í þjóð-
söguna um Van Gogh töluðu um
helgispjöll, og þótti Pialat vanvirða
minningu listamannsins.
Madame Bovary
Fjaðrafokið sem Emma Bovary
olli árið 1857, eins og Flaubert fram-
reiddi hana ofan í hneykslunargjarna
lesendur með natúralísku raunsæi í
stað rómantískrar upphafningar,
hefur tryggt verkinu langlífí og skip-
Krystyna
ímír Ashkenazy og Esa Pekka Sal-
onen. Koivola er einnig mjög fær
trompetleikari, tók einleikarapróf
sem slíkur frá Síbelíusarakadem-
íunni 1983. Frá og með næsta
hausti hefur Koivola verið ráðinn
aðalhljómsveitarstjóri sinfóníu-
hljómsveitarinnar í Gávle í Svíþjóð
og sinfóm'uhljómsveitarinnar í Oulu
í Finnlandi.
að því á stall meðal stórvirkja
franskra bókmennta. Jean Renoir
kvikmyndaði söguna árið 1934 og
Vincente Minnelli nokkrum áratug-
um síðar. „Madame Bovary" er þó
ekkert áhlaupaverk að kvikmynda.
Leikstjóri „Madame Bovary" (1991)
er Claude Chabrol sem var eins og
Pialat, framarlega í flokki frönsku
„nýbylgjunnar“ og hefur auk þess
sótt til áhrifavalda eins og Hitchocks.
íslenskir vinir franskra kvikmynda
hafa séð myndir hans á stangli hin
síðustu ár, og ennfremur muna þeir
eflaust eftir myndum eins og „Ótrúa
konan“ (La Femme infidéle) og „Rétt
fyrir náttkomu" (Juste avant la nuit)
seni hann gerði kringum 1970, eða
„Les Cousins" frá árinu 1959 sem
færði honum frægð og frama. Leik-
konan ágæta Isabelle Huppert leikur
Emmu Bovary, sem orðin er lang-
þreytt og vonsvikin í hjónabandi sínu
og Bovary læknis, og tekur til við
leit að „hinni einu sönnu ást.“ Leitin
tekur á sig aðrar myndir en hún
ætlaði, og fljótlega gerir hún sér
grein fyrir eigingimi og sjálfselsku
karlpeningsins.
Giljagaur og „Hógværa stúlkan"
„Hógværa stúlkan" (La Discréte)
er frumraun leikstjórans, Christian
Vincent, en myndin var frumsýnd
árið 1990 og öðlaðist vinsæidir.
Myndin fjallar um ungan rithöfund
að nafni Antoine (Frabrice Luchini),
sem senn er verkfæri atburðarásar-
innar og gerandi. Hann hyggst slíta
sambandi við ástkonu sína en hún
verður fyrri til og hleypur í fang
annars manns. Hinn auðmýkti
kvennatælari er staðráðinn í því að
kynnast sem fyrst annarri stúlku,
heilla hana upp úr skónum, svíkja
hana síðan og ná þannig fram hefnd-
um á kvenkyninu í heild. Hann trúir
vini sínum (Maurice Garrel) fyrir
ráðabruggi sínu, og ekki líður á löngu
uns á vegi hans verður ungur nemi,
Catherine (Judith Henry) sem hann
flekar. En Antoine ræður ekki við
atburðarásina jáfn fullkomlega og
hann heldur, og spyrja má að leiks-
lokum. Myndin þykir hafa flest ein-
kenni þekkilegrar myndar; fléttu sem
virðist einföld en leynir á sér, vel
skrifað handrit og gott skopskyn.
Leikstjórinn notar París sem sögu-
svið og varpar kímilegu ljósi á kaffi-
hús og öngstræti borgarinnar sem
búið er að klisjugera með ótal bókum
og kvikmyndum, en um leið ástúð-
legu. Þema myndarinnar; tæling og
svikráð, minnir á ýmsar franskar
bókmenntir 18. aldar, t.d. „Les
Liaisons dangereuses.“
Celine
Isabelle Pasco leikur hjúkrunar-
konu í þessari glænýju mynd leik-
stjórans Jean-Claude Brisseau, sem
forðar ungri stúlku (Lisa Hérédia)
frá drukknun. Milli þeirra glæðist
sérkennileg ást og harmþrungin.
Eins og þessi efnislýsing gefur til
kynna, er um að ræða óvenjulega
mynd sem fléttar saman trúarlegu
táknsæi og skyldum hugleiðingum
um heilagleika, almættið, kraftaverk
og dauðann. Gagnrýnendur hafa
hrósað henni mjög fyrir efnistök og
dulúðugt andrúmsloft.
SFr
Blóð, sviti o g tár
og Arni Egilsson
Jass______________
Guðjón Guðmundsson
Það verður í nógu að snúast fyr-
ir jassunnendur í vikulokin því
tvennir stórtónleikar eru framund-
an. Bandaríska jassrokkveitin
Blood, Sweat and Tears heldur tón-
leika á Hótel íslandi í kvöld og
Árni Egilsson bassaleikari leikur
með íslenskum félögum á Ömmu
Lú annað kvöld, föstudagskvöld.
Árni Egilsson bassaleikari og
tónskáld, sem búsettur er í Holly-
wood, lék á eftirminnilegum tón-
leikum á Rúrek-hátíðinni sl. sum-
ar. Nú er Árni kominn aftur til
landsins til að vera viðstaddur
flutning Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands á verki sem hann hefur sam-
ið. Hann kemur fram á miklu jass-
kvöldi á veitingahúsinu Ömmu Lú
á föstudagskvöld. Árni mun leika
á kontrabassann með boga en
Þórður Högnason sér um hefð-
bundnari bassaleik, en á plötu
Árna, Fascinating Voyage, var liðs-
uppstillingin svipuð, nema hvað
Ray Brown var þar í hlutverki
Þórðar. Auk þeirra leika á Ömmu
Lú Pétur Grétarson á trommur,
Árni Scheving á víbrafón og Þórar-
inn Ólafsson á píanó, en þeir tveir
síðastnefndu voru í villtu formi með
Árna á Rúrek-tónleikunum sl. sum-
ar. _
Áður en sveit Árna Egils kemur
fram hita þtjár sveitir upp. Fyrsta
ber þar að telja bræðingssveitina
Gammana, sem sendi frá sér
hörkudisk í sumar, Af Niðafjalli.
Árni Egilsson.
Þá kemur fram Jasskvartett
Reykjavíkur og tríó Guðmundar
Steingrímssonar, en með tríóinu
syngur söngkonan góðkunna Linda
Walker.