Morgunblaðið - 05.11.1992, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1992
BANDARISKU FORSETAKOSNINGARNAR
Oljóst hvenær
ráðherralistinn
lítur dagsins ljós
Little Rock. Reuter.
HINN nýkjörni forseti Bill Clinton mun þegar í stað fara að til-
nefna þá, sem sæti munu taka í nýrri ríkisstjórn, að sögn margra
embættismanna hans. Er jafnvel talið hugsanlegt að tilkynnt verði
um einhveija ráðherra þegar í þessari viku. Clinton átti í gær fund
með sérstökum hópi sem undanfamar vikur hefur hist leynilega í
Little Rock, Arkansas, til að skipuleggja valdatöku demókrata, sem
verið hafa tólf ár utan ríkisstjórnar.
Eli Segal, skrifstofustjóri Clint-
ons, sagði þó að menn ættu kannski
ekki að búast við tilnefningum allt
of fljótt. Clinton hefði ekki haft
mikinn tíma til að íhuga hvemig
standa bæri að ríkisstjórnarskipt-
unum, öll hans orka hefði farið í
að vinna kosningamar, og vel gæti
verið að hann myndi vera með aðr-
ar hugmyndir en skipulagshópurinn
varðandi einhver embætti. „Hann
hefur velt því mikið fyrir sér hvem-
ig hann ætli að stjóma. En sem
stendur held ég að við munum þurfa
að doka aðeins við áður en hann
tekur af skarið varðandi menn og
málefni," sagði Segal.
Þeir sem setið hafa í skipulags-
hóp demókrata eru Mickey Kantor,
kosningastjóri Clintons, Warren
Christopher, sem var aðstoðarutan-
ríkisráðherra í ríkisstjóm Jimmy
Carters, Henry Cisneros, fyrrum
borgarstjóri San Antonio, Made-
leine Wunin, fyrrum ríkisstjóri
Vermont, Vemon Jordan, sem
gengt hefur forystu í mikilvægum
borgarasamtökum- og Mac
McLarty, gamall vinur Clintons frá
fæðingarbæ hans, Hope í Arkansas.
Miklar vangaveltur
Viðbrögð viö niðurstöðum forsetakosninganna víða um heim
Kjöri Clintons fagnað en
áhyggjur af reynsluleysi
Kantor, Betsey Wright og Bruce
Lindsey eru taldir líklegir til að fá
embætti í Hvíta húsinu, til að
mynda í embætti skrifstofustjóra.
Þá eru taldar líkur á að George
Stephanopoulos, sem var talsmaður
Clintons í kosningabaráttunni, verði
næsti blaðafulltrúi Bandaríkjafor-
seta.
Nafn Warrens Christophers kem-
ur aftur upp í tengslum við emb-
ætti ríkissaksóknara og það sama
má segja um Vemon Jordan. Þá
kæmi þar til greina Barbara Jord-
an, fyrrum þingkona og nú lagapró-
fessor í Texas.
Hver tekur við?
Bush tekur í hönd Jims Bakers eftir að hafa haldið ræðu fyrir stuðningsmenn í Houston í Texas í gær. Baker
var einn nánasti samstarfsmaður Bush og gegndi embætti utanríkisráðherra þar til hann tók við stjórn kosn-
ingabaráttu forsetans. Miklar vangaveltur em nú um hvem Clinton mun skipa sem arftaka Bakers í embætti
sem og önnur ráðherraembætti.
Bagdad, Jerúsalem, Naíróbí. Reuter.
Sljómmálamenn um allan heim óskuðu hinum nýkjöma forseta
Bandaríkjanna, Bill Clinton, til hamingju í gær. Þó viðbrögðin hafi
víðast hvar verið jákvæð vora þau áberandi varkár á mörgum stöð-
um. Þannig vömðu margir franskir stjórnmálamenn og fréttaský-
rendur við því að Clinton væri reynslulítill og að hætta væri á að
einangmnarstefna af hálfu Bandaríkjanna myndu eflast undir stjórn
hans. Douglas Hurd, utanríkisráðherra Bretlands, sagði við BBC að
hann ætti von á að hið „sérstaka samband" Bretlands og Bandaríkj-
anna myndi halda áfram og að kjör Clintons væri á engan hátt slæmt
fyrir Breta. Hann þakkaði Bush gott samstarf og sagði hann hafa
verið vin Bretlands og Atlantshafsbandalagsins.
Miklar vangaveltur eru um hverj-
ir muni skipa nýju ríkisstjómina.
Christopher er nefndur sem hugs-
anlegur utanríkisráðherra ásamt
þingmönnunum Lee Hamilton og
Stephen Solarz. Þá hefur borið á
nafni Jimmy Carters fyrrum forseta
í umræðunni. Carter sagði aftur á
móti á ráðstefnu í Atlanta í gær
að hann hefði ekki áhuga á fastri
ráðherrastöðu. Hann gæti þó hugs-
að sér að sinna ákveðnum tíma-
bundnum verkefnum fyrir Clinton
rétt eins og hann hafði getað hugs-
að sér að gera það í stjómartíð
Bush eða Ronalds Reagans.
Sam Nunn, formaður hermála-
nefndar öldungadeildarinnar, er tal-
inn líklegur sem næsti vamarmála-
ráðherra en einnig Colin Powell,
forseti herráðsins, og Les Aspin,
þingmaður frá Wisconsin og for-
maður hermálanefndar fulltrúa-
deildarinnar.
Spenna kringum
efnahagsmálin
Mesta spennan ríkir samt líklega
í kringum tilnefningar í þau ráð-
herraembætti sem munu hafa stjóm
efnahagsmála undir höndum enda
eru þau nöfn talin munu gefa vís-
bendingu um þær áherslur sem ríkj-
andi verða hjá Clinton í efnahags-
málum. Paul Volcker, fyrrum for-
maður bankastjómar bandaríska
seðlabankans, er mikið í umræð-
unni um næsta fjármálaráðherra
enda talið að tilnefning hans myndi
slá á allan hugsanlegan ótta mark-
aðanna varðandi Clinton. Volcker
vísaði því þó á bug í vikunni að
hann sæktist eftir embætti í ríkis-
stjóm Clintons. Þá eru taldir koma
til greina í embætti fjármála- eða
viðskiptaráðherra þeir Robert
Shapiro, efnahagsráðgjafí Clintons,
viðskiptaráðgjafinn Ira Magaziner,
Robert Reich, prófessor við Har-
vard-háskóla og bankamaðurinn
Robert Altman.
Nánustu ráðgjafar Clintons, s.s.
Helmut Kohl, kanslari Þýska-
lands, óskaði Clinton til hamingju
og sagði að þörf væri á nánari sam-
bandi þjóðanna sitt hvorum megin
við Atlantshafíð nú þegar kalda
stríðinu væri lokið. Hann sagðist
hafa hringt í Clinton um morguninn
og óskað eftir því að þeir myndu
hittast bráðlega til að leggja gmnn-
inn að góðu samstarfí á næstu
árum. Um hinn fráfarandi forseta
sagði Kohl: „George Bush var og
er góður vinur Þýskalands og Þjóð-
veija. Við stöndum í djúpri þakkar-
skuld við hann og stjóm hans.“
Richard von Weizsácker, forseti
Þýskalands, sagðist búast við að
Bandaríkjamenn myndu nú í aukn-
um mæli einbeita sér að innanríkis-
málum.
Ánægja í írak
Ríkisstjóm íraks fagnaði ósigri
Bush í kosningunum. Þegar tilkynnt
var um úrslitin í ríkisútvarpinu var
sagt: „Hinn fordæmdi glæpamaður
Bush hefur viðurkennt ósigur sinn.“
Stjómarmálgagnið al-Jumhouríyah
sagði Clinton vera myndarlegan og
gáfaðan töframann. „Hann er hins
vegar gegntekinn af valdagræðgi
og hefur verið allt frá æsku.“ Blað-
ið greindi ekki frá því hvort það
teldi Clinton skárri kost en Bush
en forsetanum fyrrverandi var lýst
sem „böðli, bamamorðingja og
slátrara tuttugustu aldarinnar."
ísraelar fögnuðu því í gær að
Bill Clinton hefði náð kjöri. Flestir
fréttaskýrendur og stjórnmálamenn
spurðu hinnar hefðbundnu spurn-
ingar: „Er þessi maður vinur isra-
els?“ og f flestum tilvikum var svar-
ið: „Líklega". Yitzhak Rabin for-
sætisráðherra sendi hinum ný-
kjöma forseta heillaóskaskeyti og
sagðist fullviss um að hið sérstaka
samband þjóðar ísraels og Banda-
ríkjanna yrði jafnt sterkt og áður
og myndi jafnvel eflast. Hinar já-
kvæðu yfírlýsingar ísraelskra ráða-
manna sem og sú staðreynd að
hann naut stuðnings flestra banda-
rískra gyðinga gerðu það hins veg-
ar að verkum að Palestínumenn
voru varkárari í yfírlýsingum sín-
um. Clinton hefur ekki tjáð sig
mikið um deilumar fyrir botni Mið-
jarðarhafs og telja margir að hann
hafí ekki mjög fastmótaðar hug-
myndir um hvaða stefnu beri að
beita gagnvart þeim heimshluta.
Asíuríki óttast
einangrunarstefnu
Leiðtogar Asíuríkja sögðust
fagna kjöri Clintons þó að ljóst
væri að þeir óttuðust að fullyrðing-
ar um að hann væri hallur undir
einangrunarstefnu væru ekki órök-
studdar. „Við vonum að hin nýja
ríkisstjórn muni taka mjög einarða
afstöðu gegn einangrunarstefnu til
að vemda fijáls viðskipti í heimin-
um,“ sagði Kiichi Miyazawa, for-
sætisráðherra Japans. Michio Wat-
anabe utanríkisráðherra sagði að
demókratar vildu tollamúra og að
þeir hefðu reynt að stöðva innflutn-
ing á ódýrum japönskum vamingi.
Það var þó greinilegt að Kínveij-
ar óttuðust það mest allra Asíuríkja
að viðskiptakjör þeirra gagnvart
Bandaríkjunum myndu versna.
Clinton gagnrýndi það mjög í kosn-
ingabaráttunni að Bush hefði ekki
sýnt kommúnistastjóminni nægi-
lega hörku vegna mannréttinda-
brota þeirra.
í flestum Afríkuríkjum voru
menn jákvæðir gagnvart kjöri Clint-
ons en töldu einnig að það breytti
litlu fyrir álfuna. „Ástandið verður
óbreytt. Hann mun ekki koma hing-
að og leysa okkar vandamál;
skuldabyrði og hungursneyð. Við
erum neðarlega í forgangsröðinni,"
Umbætur í heilsugæslukerfínu
vom meðal lykilatriða í kosninga-
baráttu Clintons og má búast við
því að hann muni leggja áherslu
á það meðan á hveitibrauðsdögum
hans stendur að tryggja öllum
rétt til heilbrigðisaðstoðar.
Rúmlega 30 milljónir Banda-
ríkjamanna eru ótryggðar eins og
málum er nú komið. Clinton vill
bæði draga úr kostnaði við heil-
brigðiskerfíð, sem kostar meira á
hvem einstakling en víðast hvar í
hinum vestræna heimi og draga
úr áhrifum tryggingafélaga. Hann
sagði háttsettur embættismaður
stjómarinnar í Tanzaníu. í
Zimbabwe sagði dagblaðið Gazette
að margir íbúar þriðja heimsins
hefðu verið hlynntari Clinton en að
ólíklegt væri að einhveijar breyting-
ar yrðu frá „árásarstefnu Bush“.
F.W. de Klerk, forseti Suður-Afr-
íku, óskaði Clinton til hamingju og
sagðist hlakka til að byggja áfram
upp það góða samband sem mynd-
ast hefði milli Pretoríu og Washing-
ton í stjómartíð Bush. Suður-afrísk-
ir fréttaskýrendur bentu þó á að
ef eitthvað kæmi upp á varðandi
umbótastefnu de Klerks væri stjórn
Clintons líklegri til að taka stöðu
með blökkumannahreyfíngum á
borð við ANC.
kveðst geta sparað allt að 400
milljarða dollara á ári áður en öld-
in er á enda með aðgerðum sínum
og tryggt hveijum Bandaríkja-
manni heilsugæslu um leið.
Þetta verður auðveldara en að
segja það. Tryggingafélög lögðust
flest á sveif með Bush í kosninga-
baráttunni og þau eiga eftir að
þiýsta mjög á þingið þegar Clinton
reynir að fá frumvarp sitt sam-
þykkt. Hann verður að vera vel
vakandi ætli hann að gæta þess
að heilbrigðisáætlun hans verði
ekki útþynnt í meðförum þingsins.
Nýtt heilbrigðis-
kerfi í fyrirrúmi
Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÞEGAR næsti forseti Bandaríkjanna hélt sigurræðu sína í Little
Rock í Arkansas skömmu eftir miðnætti aðfaranótt gærdagsins
sagði hann að nú væri komið að því að taka á vandamálum, sem
hingað til hefðu verið sniðgengin. Nefndi hann alnæmi, umhverfis-
mál og nauðsyn þess að fá fólk til að sameinast og sækja styrk í
fjölbreytileika þjóðarinnar.