Morgunblaðið - 05.01.1994, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 05.01.1994, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 1994 VOCES THULES _________Tónlist____________ Ragnar Björnsson Hátíðartónleika kallaði hópurinn tónleika sína í Kristskirkju 29. des. sl. og í framhaldi „William Byrd 1543-1623, 450 ár“. Víst má til sanns vegar færa að um hátíðartón- leika hafi verið að ræða þar sem jólahátíðin teygir sig út yfir myrkr- ið í heila þrettán daga eða nokkuð fram á næsta ár og lýkur um líkt leyti og síðasti jólasveinninn hefur yfírgefið mannheima. Hópurinn Voces Thules vill auðsjáanlega minnast þess merka organleikara og tónskálds Williams Byrds. Kannski er svolítið ónákvæmt að tala um 450 ára afmæli hans, þar sem ekki er vitað með vissu hvenær hann fæddist, skakkar þó ekki meira en ári sem deilt er um, og hvað er eitt ár í hafi milljóna. Byrd var vissulega merkilegt tónskáld, en svo var um ótal marga á þessum tímum, bæði breska og mið-evr- ópska, sem vert er að minnast og munu fimmmenningarnir Sverrir Guðjónsson, Sigurður Halldórsson, Guðlaugur Viktorsson, Eggert Pálsson og Ragnar Davíðsson ekki þurfa að kvíða verkefnaskorti í framtíðinni ef þeir ætla að minnast merku miðaldatónskáldanna, eins og heitið Thules bendir nokkuð til. En fimmmenningarnir eru til alls vísir, því hér er um vel menntaða tónlistarmenn að ræða, vel tón- næmir og raddir góðar. Þó er það hér sem mér fannst dálítið á vanta. Raddirnar eru mismikið skólaðar og á því ber einstaka sinnum þegar sérstaklega reynir á röddina, hún verður svolítið hás og mött líkt og hjá lítt skóluðum röddum í ungl- ingakórum. Þetta er reynt að bæta upp með góðri „músiseringu" en góð viðbót væri að bæta úr hinu. Ragnar Davíðsson sýndi ágætlega, bæði í hæð og dýpt, þann stuðning og vald yfir röddinni sem til þarf. Hópurinn byijaði á verki eftir nú- tímahöfund, Arvo Párt, efnið tekið úr 130. Davíðssálmi, fyrir söng- raddir, ásláttarhljóðfæri og orgel sem Hilmar Örn Agnarsson lék á, einföld tónsmíð, sem hreyfðist mik- ið innan fimmundartónbils. Þessi fyrsti hluti var fiuttur frá orgelpall- inum og gaf fallegan upptakt að því sem á eftir kom. Á eins konar milliþáttamúsík, Terra Tremuit eft- ir Byrd, gengu þeir félagar niður og fram í kór kirkjunnar og fluttu þaðan þijá þætti úr Þorlákstíðum og gerðu það fallega mjög. Gloría Tíbí, íslenskt þjóðlag í útsetningu Jóns Ásgeirssonar, var ágætlega flutt, en eitthvað fannst mér útsetn- ingin um of á rómantískum og hómófónískum nótum, meiri kontrapunktísk útfærsla hefði þarna átt betur heima. Hið mjög svo fallega þjóðlag Hátíð fer að höndum ein kom næst, en þar fannst mér svolítið á vanta í flutn- ingnum, eða öllu heldur, að kannski var um of að ræða. Þessi fallega tónsmíð nýtur sín best aðeins hæg- ari og einfaldar sungin, að ætla að bætá einhveiju við hreinleika þess- arar tónsmíðar verður yfirhlaðið. Messa fyrir þijár raddir og Ave verum corpus eftir Byrd var hvoru- tveggja mjög vel flutt. Messan er tónsmíð í nokkrum þáttum og reyn- ir víða mjög á flytjendur. Þeir félag- ar sýndu þarna mjög fína tilfinn- ingu fyrir þessari tegund tónlistar, og pólifónískur skilningur þeirra er sérlega skýr. Aftur kom Terra Tremuit eftir Byrd og þessum fallegu tónleikum lauk á Adesi festum úr Þorlákstíð- um. JAPAN - ISLAND Hanayagi Suketaroh hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir dans sinn. _________Tónlist_____________ Jón Ásgeirsson Japanskir menningardagar standa yfir í Reykjavík fyrstu daga afmælisárs íslenska lýð- veldisins og 2. janúar sl. var hald- in japönsk-íslensk menningar- dagskrá í íslensku óperunni. Jap- anir eru ein af elstu mehningar- þjóðum heims og á sviði tónlist- ar, bæði er varðar söng og hljóð- færaslátt, hafa þeir varðveitt eld- fornar venjur og er þar margt að finna, sem mjög líklega er samstofna upprunalegri tónlist- ariðkun mannsins, sem á þó um leið margt sameiginlegt með nú- tírnatónlist Vesturlanda. Á þessari menningarhátíð gat að heyra og sjá Goro-kai lista- menn dansa, syngja og leika á hljóðfæri. Fyrst voru fluttir tveir japanskir tvídansar, Gamla furu- tréð og Litbrigði haustsins, sem dansaður var af mæðgunum Hanyagi Tomiyuki og Yuki Ohta. Þetta var fallegur og stílhreinn dans og á eftir fylgdi hefðbund- inn söngur við undirleik á þriggja strengja lútu (sjamisen). Bæði söngur Kineyja Goyoh og Noriko Yumita og leikur Kineya Gosetsu og Hisai Okuda var gæddur seið- andi þokka. Hápunktur hátíðarinnar var dans Hanaygai Suketaroh, fyrst í stuttum dansi er nefnist Sverð- liljan og síðan í löngum og áhrifa- miklum dansi, er nefnist Smá- stirnið og fjallar um „frásögn iít- illar stjörnu, sem truflar kær- leiksfund Fjósamannsins og Fjósakonunnar (stjarnheitin), sem hittast bara einu sinni á ári, með sögu af heimiliseijum Þrumuguðsins". Smástirnið býr yfir miklu leikhúsi og var sam- spil dansarans við litríka tónlist- ina blátt áfram stórkostlegt. Undirritaður gat ekki heyrt betur en að bæði undirleikurinn við fyrstu dansana og síðustu tvo dansana hafi verið leikinn á Koto, sem er sérlega 'skemmtilegt hljóðfæri, en bæði undirleikurinn og söngurinn var í þessum tilfell- um leikinn af segulbandi eða hljómdiski. Síðasta japanska atr- iðið var söngur og gítarleikur í suðuramerískum stíl og var það eitthvað svo ótrúlega fjarlægt japanskri menningu og tónlistin, eftir gítarleikarann, Shiro Ohtake, var sérlega ófrumleg. íslenski þátturinn hófst á fiðlu- leik Sigrúnar Eðvaldsdóttur með samleik Þorsteins Gauta Sigurðs- sonar píanóleikara. Viðfangsefn- in voru Draumalandið, eftir Sig- fús Einarsson, Rómansa op. 6, eftir Árna Björnsson, Humor- eska, eftir Þórarin Jónsson og Melodía, eftir Tsjajkovskíj. Ás- hildur Haraldsdóttir flautuleikari lék þar næst, ásamt Þorsteini Gauta, fjórar þjóðlagaútsetning- ar eftir Árna Björnsson og Fant- asie, eftir Faure. Sigrún, Áshild- ur og Þorsteinn Gauti standa í fremstu röð okkar tónlistar- manna og var leikur þeirra mjög vel fram færður. Saman léku þær Sigrún og Áshildur dúósónötu eftir Telemann. Eitthvað voru áheyrendur ekki með á nótunum, því klappað var á milli allra þátta verksins. Íslenska þættinum lauk með söng Karlakórsins Fóstbræðra, undir stjórn Árna Harðarsonar (stjórnanda ekki getið í efnis- skrá). Viðfangsefni þeirra var ísland farsælda frón, Ár var alda, raddsetning eftir Þórarin Jóns- son, Kváll, eftir Atla Heimi Sveinsson og japanskt lag, Ja- nagawa-fljót, eftir Hakushu Kitahara. Kórinn söng þessi lög mjög vel, sérstaklega þó lag Atla Heimis, sem er drungaleg kvöld- stemmning. Japanska lagið er mjög evrópskt í gerð, hvort sem það er vegna útsetningarinnar eða söngmátans og hljómaði því eins og hefðbundið karlakórslag og var ágætlega sungið undir stjórn Árna. Það er vandasamt verk að setja saman slíka dagskrá, eins og hér um ræðir og vel hefði mátt hafa hana að öllu leyti japanska, án þess að móðga nokkurn, því list þeirra er mönnum hér á Iandi mikið nýnæmi, auk þess sem mikill áhugi er almennt á austur- lenskri list. Líklega hefur bæði dansinn og tónlistin veríð minnst kynnt hér á landi en kvikmynda- gerð, myndlist og bókmenntir hafa verið í miklum metum, enda hafa Japanir átt stórkostlega heimslistamenn í öllum þessum greinum. MENNING/LISTIR Tónlist Söngtónleikar í Ytri-Njarðvíkur- kirkju Jóhann Smári og Sigurður Sævars- synir halda söngtónleika í Ytri-Njarð- víkurkirkju í kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20.30. Á efnisskránni eru sönglög og aríur eftir Karl O. Runólfsson, Sveinbjöm Sveinbjömsson, Mozart, Schumann, Verdi, Tsjajkovskíj, Ravel og fleiri. Undirleikarar eru Ragnheiður Skúladóttir, Sigrún Sævarsdóttir og Elín Halldórsdóttir. Sigurður er að ljúka söngnámi við Nýja tónlistarskólann nú í vor undir leiðsögn Alinu Dubik. Jóhann lauk ein- söngvaraprófi við framhaldsdeild The Royal College of Music nú í haust og stundar nú nám við sameiginlega óperudeild The Royal College og Royal Academy of Music í London. Ragnheið- ur er yfirkennari Tónlistarskólans í Keflavík. Sigrún stundar píanó- og básúnunám við Tónlistarskóla Kefla- víkur og Eiín stundar söng- og píanó- nám við The London College of Music. Kammertónleikar í Seltj arnarneskirkj u Kammertónleikar verða í Seltjamar- neskirkju í kvöid, miðvikudagskvöld, Aðstandendur söngtónleikanna I Ytri-Njarðvíkurkirkju í kvöld. Elín Anna ísaksdóttir, Guðrún Edda Gunnarsdóttir, Kristín Guð- mundsdóttir og Örnólfur Kristjánsson. kl. 20.30. Samsetning kammerhópsins er óvenjuleg, en hann skipa Elín Ánna Isaksdóttir píanóleikari, Guðrún Edda Gunnarsdóttir mezzósópran, Kristín Guðmundsdóttir flautuleikari og Öm- ólfur Kristjánsson sellóleikari. A efnis- skrá er verkið Söngvar frá Madagask- ar eftir Ravel ásamt tríói, dúettum og Ijóasöngvum eftir Brahms, Danzi, Sancan, Hindemith og Wolf. Miðaverð er 800 krónur. Myndlist Ingibjörg Jóhanns- dóttir sjnir í Gallerí Umbru . Ingjbjörg Jóhannsdóttir opnar myndlistarsýningu í Galierí Úmbru, Amtmannsstíg 1, á morgun, fimmtu- daginn 6. janúar. Þetta er fyrsta einka- sýning Ingibjargar, en hún útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Sslands árið 1992 og er nú að ljúka framhalds- námi við Pratt Institute í New York. Á sýningunni, sem kallast „Heima- lands mót“, eru ellefu myndir unnar með blandaðri tækni á pappír. Mynd- efnið er ísland í íjarlægð; minningar og hugmyndir um landið sem var lofað af þjóðskáldum, landið með sínum órofna sjóndeildarhring og endalausa bláma. Sýning Ingibjargar Jóhannesdóttur stendur til 26. janúar og er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13-18. Gerðuberg Sýning á verkum ungl- inga og bama MYNDLISTARSÝNINGIN „Mennesker mödes — mannleg samskipti“, sem er sýning á verk- um barna og unglinga frá Norð- urlöndunum, verður opnuð laug- ardaginn 8. janúar kl. 15. í Gerðubergi. Sýningin er skipu- lögð af samtökum norrænna myndlistarkennara. Sýningin lýsir hvernig norræn börn og unglingar upplifa mannleg samskipti. Viðfangsefnin eru ást, íjölskylda, hefðir, leikur, vinátta, dauði, sorg og skemmtun — þau lýsa mannlegu samfélagi, haming- justundum jafnt og eininanaleik. Sýningin kemur hingað til lands frá Danmörku og fer frá Gerðu- bergi til Akureyrar þar sem hún verður dagana 26. febrúar til 13. mars. Sýningin er styrkt af Nordisk Kulturfond. Sýningin verður opin mánudaga til fimmtudaga kl. 10-22 og föstu- daga til sunnudaga kl. 13-16. Við opnunina mun Kór Langholtskirkju syngja og boðið verður upp á „barnahanastél“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.