Morgunblaðið - 05.01.1994, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 05.01.1994, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JANUAR 1994 17 Sagan endurtekur sig eftir Tómas Grétar * Olason Afstaða Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra til starfsemi Sólheima í Grímsnesi er vægast sagt illskiljanleg. Ráðherrann hefur í 14 ár verið með stöðuga áreitni í garð heimilisins og stjórnenda þess. Sólheimar eiga merkilegan feril að baki sem fyrsta heimili sinnar teg- undar á Norðurlöndum og elsta starfandi heimili að mannúðar- og líknarmálum á íslandi. Ofsóknir framkvæmdavaldsins á hendur stofnanda þess, Sesselju Sigmunds- dóttur, eru alþjóð kunnar þegar framkvæmdavaldið svipti hana starfsleyfi og sett voru bráða- birgðalög er heimiluðu eignaupp- töku og yfirtöku ríkisins. Sem betur fer hlutu þessi bráðbirgðalög ekki staðfestingu. Samskipti fatlaðra og ófatlaðra voru opinberum aðilum stöðugt umkvörtunarefni. Eitt alvarlegasta ágreiningsefnið var mataræði á Sólheimum, en þar hefur frá upp- hafi vega verið stunduð lífræn ræktun og var því grænmeti veru- legur hluti af mataræði heimilis- fólks. Frá því um 1950 og fram til 1980 var góður friður um Sólheima og þar dafnaði samfélag í leik og starfi. Friðurinn úti En sagt er að sagan endurtaki sig og á tímbilinu 1980 til 1994 hafa enn orðið deilur og togstreita milli framkvæmdavaldsins og Sól- heima. 1. janúar 1980 tóku gildi ný lög. um aðstöðu þroskaheftra og sett var á stofn stjórnarnefnd um málefni þroskaheftra undir forystu Jóhönnu Sigurðardóttur. Friðurinn var úti líkt og 1934 þegar að barna- verndarlögin voru sett og barna- verndarráð hóf afskipti af heimil- inu. Nú var það hið nýja svæðisráð undir forystu frú Jóhönnu sem hóf afskipti af heimilinu. Stjórnar- nefndin veitti styrk til framkvæmda en ákvað að útboð og samninga- gerð skyldi vera í höndum Svæðis- stjórnar Suðurlands en ekki stjórnar Sólheima. Stjórnin taldi hinsvegar bæði sjálfsagt og eðlilegt að það væri í verkahring stjórnar heimilis- ins að annast þar framkvæmdir. 1982 lét forstöðumaður Sólheima af störfum og var starfið auglýst laust til umsóknar. Stjórnarnefnd um málefni þroskaheftra undir for- ystu Jóhönnu vildi fá að hlutast til um ráðninguna. Stjórn Sólheima taldi það ekki í verkahring stjórnar- nefndar sem opinbers ráðs að hafa afskipti af því hver yrði ráðinn for- stöðumaður fyrir sjálfseignarstofn- unina að Sólheimum. Hér eru að- eins tvö dæmi nefnd. Virðist sem Jóhanna Sigurðardóttir hafi átt erf- itt með að sætta sig við það að þurfa að láta undan í báðum þessum málum og ekki getað litið starfsem- ina á Sólheimum réttum augum síðan. í ráðherratíð Alexanders Stefánssonar félagsmálaráðherra voru samskipti Sólheima og hans sem félagsmálaráðherra mjög já- kvæð og gagnkvæmur skilningur ríkti milli aðila. Nýtt erfiðleikatímabil Eftir að Jóhanna Sigurðardóttir varð félagsmálaráðherra fyrir tæp- um sjö árum hófst nýtt erfiðleika- tímabil sem staðið hefur síðan. Ráðherrann hefur stöðugt sótt á um að fá fulltrúa i stjórn heimilis- ins, fulltrúi hennar hefur gengið á fund biskups og gert kröfu um að heimilið yrði aflient ráðherranum og félagsmálaráðuneytið hefur sent stjórn heimilisins erindi þar sem óskað er tilnefningar um einn full- trúa í sam-starfsráð sem fara ætti með stjórn heimilisins. Eftir að Jó- hanna Sigurðardóttir varð félags- málaráðherra var með öllu skrúfað fyrir fjárveitingar til nýfram- kvæmda á Sólheimum. Það var fyrst í mars á síðasta ári að Fram- kvæmdasjóður fatlaðra greiddi 4,5 milljónir í framlag vegna íbúða- bygginga fyrir fatlaða á Sólheim- um. Erfítt virtist vera fyrir ráðherra að sætta sig við þá ákvörðun sjóð- stjórnarinnar því þrátt fyrir loforð ráðuneytisins um að inna greiðsluna af hendi frestaði ráðherrann af- greiðslu málsins í marga mánuði. Aukafjárveiting skert í desember 1989 ákvað Alþingi að veita Sólheimum aukaíjárveit- ingu að upphæð 3,5 millj. kr. Fjár- veitingin var veitt til þess að greiða halla sem myndast hafði þegar Sól- heimar voru settir á föst fjárlög án samráðs við stjórn heimilisins. Þeg- ar fjárveitingin barst Sólheimum 29. desember hafði hún verið skert um 2.738 þús. kr. Félagsmálaráð- herra gaf þá skýringu að samsvar- andi halli í krónum talið hefði verið á launalið heimilisins í árslok 1989 og hefði það verið leiðrétt með þessu móti. Halli á launalið var þannig orðinn að laun hækkuðu umfram almennar kauphækkanir vegna kjarasamninga er fjármálaráðu- neytið gerði við starfsfólk Sólheima 21. júlí 1983 og stjórn heimilisins átti þá enga aðild. Félagsmála- ráðuneytinu hafði þá ítrekað verið bent á vaxandi halla á launalið Sólheima af þessum sökum og ósk- að hafði verið eftir leiðréttingu svo ekki kæmi til halla um áramót. Þessu erindi var ekki sinnt. Stjórn Sólheima taldi að ráðuneytið hefði ekki heimild til þess að ráðstafa fé þar sem um sérstaka fjárveitingu frá Alþingi hefði verið að ræða. Eftir itrekuð mótmæli greiddi ríkis- sjóður heimilinu 900 þús. kr. til baka 9. febrúar 1990. Stefnið okkur ef þið þorið Ekki var undan því vikist að leita álits umboðsmanns Alþingis. Hann mæltist til þess að félagsmálaráðu- neytið tæki málið til meðferðar að nýju. „Hafi það verið ætlun fjárveit- ingavaldsins að þessi fjárveiting gengi óskert til Sólheima til að greiða rekstrarhalla fyrri ára í sam- ræmi við beiðni stjórnar Sólheima ... tel ég að ráðuneytinu hafi ekki verið heimilt að ráðstafa hluta af fjárveitingu til greiðslu á dvaiar- kostnaði heimilismanna árið 1989 umfram fjárveitingu á íjárlögum þess árs.“ Umboðsmaður Alþingis lagði áherslu á að stjórnvöldum bæri að virða ákvarðanir þingsins. Þrátt fyrir þetta álit umboðsmanns Alþingis hefur fjármálaráðuneytið ekki enn boðið fram uppgjör á fjár- veitingu Alþingis samkvæmt aukaf- járlögum 1989. Hinsvegar barst stjórn Sólheima, 25. febrúar 1992, bréf frá félagsmálaráðherra sem er þá enn í árásarham. Krafa Sólheima hafði verið send til innheimtu. í bréfi ráðherrans kom fram að hann teldi það afar athyglisvert, bæði fyrir félagsmálaráðuneytið og þá ekki siður fjármálaráðuneytið, að dómstólar íjölluðu um þetta mál. Grétar Ólason „Eftir að Jóhanna Sig- urðardóttir varð félags- málaráðherra fyrir tæpum sjö árum hófst nýtt erfiðleikatímabil sem staðið hefur síð- an.“ Ráðuneytið telur hinsvegar með öllu óviðunandi að á sama tíma og mála- ferli ættu sér stað færu fram við- ræður Sólheima og ráðuneytis um sérstakt afgjald til Sólheima til að mæta viðhaldi og afskriftum fastaljármuna annars vegar og söluafgjaldi fyrir heitt vatn hinsveg- ar. A mannamáli er hér verið að segja: Stefnið okkur ef þið þorið en þá verður heldur ekkert samið við ykkur á meðan. Spurningin hlýt- ur að vera hvort ráðherra geti hag- að sér á þennan hátt, dregið fyrst mál úr hömlu og síðan borið fram hótanir á rósamáli. Sex ára bið eftir ákvörðun Ákvörðun um að setja Sólheima á „föst ljárlög" varð þess valdandi að verulega dró úr stuðningi ein- staklinga og félagasamtaka við heimilið. Margir aðilar töldu að búið væri að gera heimilið að ríkis- stofnun og þar með þyrfti það ekki lengur stuðnings við. Sólheimar urðu fyrir verulegu fjárhagslegu AIHLB3A TOLVUKHRFI HUGBUNAÐUR FYRIR WINDOWS glKERFISÞRÓUNHF. FÁKAFEN111 - SÍMl 688055 Gestaíbúðin Villa Bergshyddan í Stokkhólmi íbúðin (3 herbergi og eldhús í endurbyggðu 18. aldar húsi), er léð án endurgjalds þeim, sem fást við listir og önnur menningarstörf í Helsing- fors, Kaupmannahöfn, Ósló eða Reykjavík, til dvalar á tímabilinu 15. apríl til 1. nóvember. Umsóknir um dvöl í Villa Bergshyddan, þar sem fram komi tilgangur dvalarinnar og hvaða tíma sé óskað, svo og upplýsingar um umsækjanda, skal senda til Hásselby Slott, Box 520, S-162 15 Vállingby, fyrir 28. febrúar nk. Ekki eru notuð sérstök umsóknareyðublöð. Nánari upplýsingar fást hjá skrifstofu borgar- stjóra, sími 632000. tjóni vegna þessa. Ákvörðun félags- mála- og fjármálaráðuneytisins 1983 um að yfirtaka launagreiðslur og samningamál starfsmanna olli erfiðleikum í rekstri. í raun var heimilið að verulegu leyti svipt for- ræði í fjármálum. Var beiðni stjórn- ar Sólheima margítrekuð ár eftir ár um að fá forræði þessara mála að nýju. Það var svo Ioks 1990 að nýr ráðuneytisstjóri kom til starfa í ijármálaráðuneytinu að málið var afgreitt á einni klukkustund og yf- irtóku Sólheimar 1. febrúar 1991 launagreiðslur og samningamál starfsmanna. Málið hafði verið til meðferðar í tæp sex ár. Söfnunarfé yfir 100 milljónir Þrátt fyrir að Sólheimar, svo ein- kennilegt sem þa_ð er, sem elsta stofnun fatlaðra á íslandi, hafi enga fjárveitingu fengið til nýfram- kvæmda úr Framkvæmdasjóði fatl- aðra í ráðherratíð Jóhönnu Sigurð- ardóttur fyrr en í marsmánuði 1993, hefur myndarlega verið stað- ið að framkvæmdum á Sólheimum. Staðurinn hefur verið endurbyggð- ur, aðstaða fatlaðra er eins og hún gerist best, glæsilegt íþróttahús byggt og nýjar vinnustofur teknar í notkun. Virðist sem þessar fram- kvæmdir, sem allar miða að bættum aðbúnaði hinna fötluðu, hafí farið sérstaklega fyrir brjóstið á ráðherr- anum. Hundruð fólks, ef ekki þús- undir, hafa stutt þessa uppbygg- ingu og hefur Styrktarsjóður Sól- heima lagt heimilinu til yfir 100 milljónir frá 1986 en að öðru leyti hafa framkvæmdir verið fjármagn- aðar með lánum frá Húsnæðisstofn- un. Með þessum hætti hefur verið sparað stórfé úr opinberum sjóðum. I stað þess að fagna þessu fram- taki, og að verið sé í raun að greiða götu annarra framkvæmda með eigin söfnunarfé Sólheima, hefur ráðherrann verið með stöðugar dylgjur undanfarin ár um fram- kvæmdir á Sólheimum. Ráðherrann verður að axla ábyrgð Ráðherra félagsmála kaus þá leið að fara í ljölmiðlastríð sem enginn vinnur og skaðar Sólheima. Ráð- herra er reiður þegar sannleikur kemur upp á yfirborðið en telur sennilega í lagi að ausa út óhróðri og ósannindum um stjórnendur Sóiheima og virðist ekki gera sér grein fyrir að þeir hafa líka rétt til að reiðast. Til glöggvunar lesendum skal tekið fram að það er Alþingi sem setur lög um umönnun fatlaðra en félagsmálaráðuneytið sér um framkvæmdina og ber ábyrgð á heimilisfólki á Sólheimum. Ráð- herra getur ekki skýlt sér á bak við stjórn Sólheima gagnvart ábyrgðarhlutverkinu. Opinberar tölur og skýrslur um kostnað vegna búsetu, vinnu og frítímastarfs 40 heimilismanna eru Sólheimum mjög í hag á undanförn- um árum borið saman við ríkisrekin úrræði. Er því óskiljanlegt að ráð- herra sjái ekki svo um að heimilis- fólk á Sólheimum njóti sömu rétt- inda og aðrir fatlaðir á landinu og meti að verðleikum gjafir og sjálf- boðastörf sem fjöldi manna og kvenna leggja Sólheimum til ár hvert og allt miðast við að blómlegt og gott mannlíf dafni á Sólheimum eins og verið hefur frá upphafi. Höfundur hefur starfað að málefnum Sóllwima síðastíiðin 30 ár ogernú varaformaður framkvæmdastjórnar Sólheima. Mímir Hraðnámstækni Skemmtu þér og vertu mörgum sinn- um fljótari að læra. Nýjustu kennslu- aðferðir auðvelda þér námið. Enska - þýska - spænska. 10 vikna námskeið hefjast 24. jan. Sum stéttarfélög taka þátt í kostnaði. Sfmar 10004 og 21655. Macintosh f. byrjendur 17.-2«. jan. kl. 9-12 e«a 17.-26. jan. kl. 19:30-22:3« Windows og PC grunnur 13. - 20. janúar kl. 19:30-22:30 FileMaker Pro 24.-28.janúarkl. 16-19 Unglinganám byrj. & frh. 12 vikur, 2 klst í viku, hefjast lau 29. janúar Umsjón tölvuneta Novell, 16 vikur, 3 klst í viku, hefjast 25. jan. = Stýrikerfið og System 7 ° Macintosh: 19.-21. janúar kl. 16-19 Windows kerfisstjórn 31.jan-3.feb kl.9-12 Word námskeið Macintosh og Windows: 17.-21.jan kl. 13-16 eða 24.-28.jan kl. 16-19 Fáðu senda námsskrá Tölvu- og verkfræöiþjónustan Grensásvegi16 Sími 68 80 90 NYTT FRA BANDARÍKJUNUM FIGURFORM USA( ® / Befri liðan, \ /betra litlitog lallogra likamslotfn tneð/FIGURFORM, ' I USÁ® (rá Svérisson Þriggja vikna skammtur á sirstöku kynnlngarverði aöeins kr. 1.990,- Lífrænt krómefnasamband (Chromium picolinate) sem oft er kallað „fitubrennarinn" (a Super Fat Burner) og var þróað af vfsindamönnum vlð Bandaríska landbúnaðarráðuneytið, sem fékk á þvi einkaleyfi (Us. patent. no. 4.315.927). Rannsóknir bandarísku vísindamannanna dr. Muriel Gilmann og Gary W. Evans, en niðurstöðurnar hafa vakið mikla athygli, fjölluðu m.a. um getu FIGURFORM USA® til að: ★ Sefa hungurkenndina og minnka ásókn (sætindi. ★ Byggja upp vöðvana og auka þrekið. ★ Brenna líkamsfitu. FIGURF0RM USA®: ■* Hefur verið rannsakað og þróað í samvinnu við bandarísk yfirföld (USDA). ★ Milljónir Bandaríkjamanna hafa hagnýtt sér þessa merkilegu upþgötvun fyrir heilsu sína og útlit. ★ Inniheldur réttan dagskammt af Chromium picolinate, 1600 míkrógrömm. ★ Aukaávinningur fyrir íþróttafólk við uppbyggingu likamans. ★ Samfelld sigurganga í Bandaríkjunum. Þitt tækifæri núna! ★ FIGURFORM USA® eraðelns selt hjá SVENSSON með einkaleyfi. Belis Heilsuvörur hf. Póstverslun sími 667580. Opin kl. 9-18, símsv. e. lokun Svensson® Heilsubúðin í Mjódd, sími 74602. Opið mánud. - föstud. kl. 13-18,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.