Morgunblaðið - 05.01.1994, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 05.01.1994, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JANUAR 1994 SAMEIGINLEG BOKUN ISLANDS OG BANDARIKJANNA Viðbrögð forystumanna stjórnarandstöðuflokkanna Atburðir dagsins stað- festa að fréttir Morgun- blaðsins voru hárréttar - segir Ólafur Ragnar Grímsson formaður Alþýðubandalagsins „ATBURÐIR dagsins hafa sýnt að fréttir Morgunblaðsins af tillögum Bandaríkjamanna fyrir nokkrum mánuðum hafa reynst vera hárréttar. Þótt bæði ráðherrar og ýmsir aðrir ábyrgir aðilar hér á íslandi hafi neitað á sínum tíma að kannast við að þær fréttir væru réttar hefur komið í ljós í dag að þær voru alveg réttar,“ segir Olafur Ragnar Gríms- son, formaður Alþýðubandalagsins. Steingrímur Her- mannsson, formaðúr Framsóknarflokksins, segir Ijóst af bókuninni sem var undirrituð í gær, að Bandaríkjamenn viljifara með alla flugsveitina á Keflavíkurflugvelli úr landi og íslendingar hafi tvö ár til að undirbúa sig undir að þurfa að taka við rekstri Keflavíkurflugvallar. „Utanríkisráðhérra staðfestir nú að Bandaríkjamenn hafi fyrir mörgum mánuðum komið fram með formlegar tillögur um að flytja alla starfsemi flughersins brott frá íslandi," sagði Ólafur Ragnar. „Það eru merkileg tíðindi, að nú skuli það loks fást staðfest að Bandaríkin höfðu fyrir mörgum mánuðum lagt fram slíkar tillögur. Því miður er það hins vegar þann- ig, að hvorki utanríkisráðherra né aðrir hafa lagt fram neina sann- færandi lýsingu á því hvers vegna utanríkisráðherra og viðræðunefnd hans hafnaði þessari ðsk Banda- ríkjamanna um að hverfa á brott með orrustusveitimar," sagði Ólaf- ur. Hann sagði nú ljóst orðið að Bandaríkjamenn hefðu fremur vilj- að draga úr hemaðarumsvifum á íslandi en íslenska viðræðunefndin hefði verið reiðubúin að sam- þykkja. „Það er ámælisvert, að sú afstaða íslensku viðræðunefndar- innar er mótuð án þess að hafa samráð við utanríkismálanefnd Alþingis og án þess að ræða það á nokkrum formlegum vettvangi á íslandi, hvort hér eigi að vera meiri hemaðarumsvif heldur en Bandaríkjamenn óska eftir. Það er líka mjög lærdómsríkt fyrir okk- ur, og ég lýsti þeirri skoðun í utan- ríkismálanefnd í dag [þriðjudag], að upplifa að fréttaflutningur Morgunblaðsins af þessum málum sé áreiðanlegri heldur en yfirlýs- ingar íslenskra ráðamanna gagn- vart utanríkismálanefnd og Al- þingi,“ sagði Ólafur Ragnar. Sagði hann það einnig sæta tíð- indum að utanríkisráðherra íslands og varavamarmálaráðherra Bandaríkjanna hefðu nú formlega undirritað sáttargjörð um að kalda stríðinu væri lokið, en Jón Baldvin þyrfti að svara þeirri spumingu hver væri þá óvinurinn í dag og hvaða ríki væri líklegt til að gera loftárás á ísland. Ólafur sagði ennfremur að þótt Bandaríkjamenn féllust Á kröfu íslensku viðræðunefndarinnar um áframhaldandi hemaðarumsvif, neituðu þeir að gera það lengur en til tveggja ára og sagði, að Jón Baldvin hefði greinilega orðið fyrir vonbrigðum með ,að fá ékki varan- lega viðurkenningu á vera banda- rískra orrastuflugvéla á íslandi því Bandaríkin áskildu sér rétt til að geta farið með alla starfsemi flug- hersins brott frá íslandi eftir tvö ár. Ólafur Ragnar sagði að nýlegir atburðir í Rússlandi hefðu engin áhrif haft á viðræður íslensku við- ræðunefndarinnar og fulltrúa Bandaríkjastjórnar. „Ögnin sem Zhírínovskíj hefur sett fram, felst fyrst og fremst í yfirlýsingum um að beita kjarnorkuvopnum bæði í Evrópu og Asíu. Viðbúnaður ann- arra ríkja gagnvart þeirri ógn snertir ekki með neinum hætti þá starfsemi sem Bandaríkin hafa haft hér á íslandi," sagði Ólafur. Bráðabirgðafyrirkomulag „Þetta er tveggja ára samningur og mér sýnist í raun alveg ljós sá vilji Bandaríkjamanna að fara með flugsveitina héðan að öllu leyti,“ segir Steingrímur Hermannsson. „Þama virðist vera gengið til móts við kröfur íslendinga til bráða- birgða, að hafa einhveija flugsveit hér. Ég hef nokkra samúð með sjónarmiði Bandaríkjamanna, því það hefur orðið slík breyting í heiminum og því hljótum við að treysta á aðild okkar að NATO í vaxandi mæli,“ sagði hann. Steingrímur sagði íslendinga hafa sofíð á verðinum því Iöngu væri tímabært að huga að hvemig við ætluðum að kosta rekstur Keflavíkurflugvallar og þyrftum að huga að því að fá þar í gegn vaxandi vöra- og fólksflutninga, sem væri forsenda þess að íslend- ingar hefðu nægar tekjur af flug- vellinum. „Ég vona að menn taki á honum stóra sínum og noti þessi tvö ár til að skipuleggja Kefla- víkurflugvöll sem alþjóðlegt fyrir- tæki sem skapi atvinnu og fjár- streymi inn í landið,“ sagði Stein- grímur. „Niðurstaðan kemur ekki á óvart. það lá alltaf fyrir að utanrík- isráðherra og fulltrúar hans lögðu áherslu á að hér yrði áfram stað- sett flugsveit og ég held að þar eigi hlut að máli að þeir gerðu sér ljóst að rekstur vallarins yrði mjög erfiður fyrir okkur eina. Það kem- ur því ekkert á óvart, að Banda- ríkjamenn veita þama tveggja ára frest. Svo er spumingin hvort við getum aftur tekið upp þá samninga sem við höfðum einu sinni við Atl- antshafsbandalagið, um að fið sjáum um viðhald á vellinum og fáum greitt fyrir. Ég held að menn eigi þó ekki að treysta á það,“ sagði Steingrímur. Átak í atvinnumálum á Suðumesjum „Það er greinilegt, að Banda- ríkjamenn hafa náð fram miklum samdrætti og að þeir hafa jafnvel viljað leggja loftvamimar niður, en það hefur augljóslega verið þrýstingur frá íslenskum stjóm- völdum um að halda þeim hér á landi,“ segir Anna Ólafsdóttir Bjömsson, þingmaður Kvennalist- ans, sem á sæti í utanríkismála- nefnd. Anna sagðist gagnrýna þessa afstöðu íslenskra stjómvalda og sagði hvað alvarlegast að stjórn- völd hefðu ekki horfst í augu við samdráttinn á Keflavíkurflugvelli, sem hefði mjög alvarlegar afleið- ingar í för með sér á Suðumesjum og lítið hefði verið aðhafst við að byggja þar upp atvinnulífið. „Nú er röðin komin að okkur, að hugsa um atvinnumálin á Suðurnesjum og einnig verðum við að horfast í augu við, að við þurf- um að sjá um okkar björgunar- störf sjálf. Því ættum við fyrir löngu að hafa tekið á af fullum styrk og sóma. Ég vona að íslensk stjómvöld noti þessi tvö ár sem rætt er um skynsamlega til að byggja þetta tvennt upp, en eyða ekki tímanum í að reyna að halda í það sem að mínu mati er ónauð- synlegt og er orðið úrelt," sagði hún. Anna sagði að það hefði verið niðurlægjandi að íslendingar hefðu í viðræðunum við Bandaríkjamenn beðið um að sem minnst yrði dreg- ið úr umsvifunum á Keflavíkur- flugvelli og sagði að hlutverki ut- anríkismálanefndar hefði verið sýnd lítilsvirðing vegna þess hversu treglega hefði gengið að fá upplýsingar um gang viðræðn- anna. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Fundur með forsætisráðherra William Perry varavamamálaráðherra Bandaríkjanna á fundi með Davíð Oddssyni forsætisráðherra í stjómarráðshúsinu í gær. Davíð Oddsson forsætsisráðherra segir m.a. í viðtali við Morgunblaðið á miðopnu blaðsins í dag að hann sé mjög ánægður með að með samkomulaginu hafí staðfestst, að jafnræði sé með þjóðunum í ákvarðanatöku um vamarsamninginn. Ennfremur kvað hann at- hyglivert að með samningnum séu Bandaríkjamenn reiðubúnir til þess að ræða þann möguleika að íslendingar taki að sér rekstur þyrlubjörgunarsveitarinnar með aðstoð og atbeina Bandaríkja- manna. Ahrif samkomulagsins fyrir atvinnulíf á Suðumesjum Tiltölulega gott fyr- ir vimmmarkaðiim - segir Kristján Pálsson bæjarsljóri Njarðvíkur KRISTJÁN Pálsson, bæjarstjóri Njarðvíkurbæjar, segist telja að samkomulag íslenskra og bandarískra stjórnvalda um aðlög- un í skipan varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli tryggi þá atvinnu sem íslenskir starfsmenn hafa á Keflavíkurflugvelli, og að því leytinu til sé samkomulagið tiltölulega góð úrslit fyrir vinnu- markaðinn á Suðurnesjum. Jóhann Geirdal, formaður Verslunar- mannafélags Suðurnesja, segist telja samkomulagið vera gálga- frest til tveggja ára og þann tima verði að nýta vel til þess að hugsanlega breyttar aðstæður að þeim tima liðnum komi ekki í bakið á mönnum. Kristján Pálsson sagðist ánægð- ur með það hversu vel hefði tekist til í samningaviðræðunum við bandarísk stjómvöld. „Ég hef reyndar ekki séð þetta samkomulag en mér heyrist að það verði einhveijar flugvélar hérna sem þýðir að starfsliðið í kringum flugvöllinn og viðhald hans verði með svipuðum hætti og yerið hef- ur. Að þyrlusveitin verði jafnvel meira á höndum íslendinga fínnst mér kannski þýða að við ættum að geta komið meira inn í þann rekstur með okkar fólki í framtíð- inni, en Bandaríkjamenn taki þátt í kostnaðinum, sem ætti þá kannski að auka störf á sérhæfð- um sviðum. Þrátt fyrir þetta verða menn alltaf að vera með það á bak við eyrað að vera varnarliðsins getur verið breytingum háð með skömmum fyrirvara, og með frið- vænlegri heimi sjá allir að það eru minni líkur fyrir því að slík varnar- starfsemi geti orðið til frambúðar. Menn ættu því ekki að líta á þetta sem neina allsheijar- og endanlega lausn á þeim vandamálum sem gætu orðið í kringum brotthvarf hersins þegar þar að kemur,“ sagði Kristján, Ákveðin skilaboð Jóhann Geirdal, formaður Verslunarmannafélags Suður- nesja, sagði að niðurstaða samn- ingaviðræðna íslenskra og banda- rískra stjórnvalda væri jákvæð fyrir atvinnulífið á Suðumesjum, en hins vegar væri samningaferlið einnig mjög ákveðin skilaboð um það hvað væri í vændum. „Ég held áð það sé alveg ljóst ' að þó þetta hafi verið fest tíl tveggja ára núna þá þurfum við að búa okkur undir það að taka bæði meira af starfseminni í okkar hendur og byggja upp atvinnu fyrir það fólk sem þarna hefur verið í vinnu. Þó það fækki ekki um marga núna í þessum niður- skurði þá er þetta það sem fram- undan er. Þetta er. því einhver gálgafrestur sem við fáum með þessu móti og við megum ekki sofna á verðinum," sagði.hann. „Maður var snemma farinn að skynja það í þessum umræðum að eitthvað af flughemum yrði eftir og þá væntanlega fyrst og fremst til að festa björgunarsveitina. Ég sé því ekki að þetta hafi í för með sér fækkun íslenskra starfsmanna á Keflavíkurflugvelli, en það era tiltölulega fáir íslendingar sem vinna beint hjá flughernum. Stöðin er rekin af flotanum og það sem meira er þá er atvinnuþátttaka flughermanna utan hermennsku í þjónustustörfum meiri en flotaher- manna, þannig að brottför þeirra kemur til með að rýma einhver störf en um leið að draga úr eftir- spurn,“ sagði Jóhann. Óvissu eytt Stefán Friðfínnsson, forstjóri íslenskra aðalverktaka, sagðist ekki telja að það samkomulag sem gert hefur verið hefði nein áþrif varðandi starfsemi íslenskra aðal- verktaka í nánustu framtíð, en hann vissi ekki til þess að neitt af því sem hugsanlega hefði verið á verkefnaskrá fyrirtækisins væri tengt vera flugsveitarinnar. „Út af fyrir sig erum við fegnir að það skuli vera komin niðurstaða í þetta mál og það eyðir þeirri óvissu sem var. En þegar það kem- ur í ljós um hvað var verið að ræða og hvað er samið um þá hefur það í sjálfu sér aldrei skipt neinu máli fyrir starfsemi okkar. Hvað varðar starfsfólk okkar og starfsemi eram við þó fegnir að þeirri óvissu sem var hefur verið eytt,“ sagði Stefán.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.