Morgunblaðið - 05.01.1994, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 05.01.1994, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 1994 Fasteignaskattar á atvinnuhúsnæði 1 Reykjavík hækka FASTEIGNASKATTAR á allt atvinnuhúsnæði í Reykjavík hækka úr 1,19% i 1,4% á árinu 1994 og á skrifstofu- og verslunarhúsnæði verður að auki lagður 1,25% skattur sem reiknast af fasteignamati. Þetta er gert til að mæta missi útsvarstekna og landsútsvars. Alagningarreglur vegna fasteignagjalda á íbúðarhúsnæði breytast ekki og verða því ekki breytingar á þeim gjöldum 'nema þær sem breytingar á fasteigna- mati gefa tilefni til. Að sögn Jóns G. Tómassonar borg- arritara breytast álagningarreglur fasteignagjalda íbúðarhúsnæðis ekk- ert en fyrir borgarstjóm iiggur tillaga um að fasteignagjöld á atvinnuhús- næði hækki úr 1,19% af fasteignmati í 1,40%. Auk þess liggur fyrir tillaga sem borgarstjóm kemur til með að Ijalla um 6. janúar nk. um að nýta heimild í lögum, sem samþykkt voru á Alþingi 20. desember sl., til að leggja sérstakan skatt á verslunar- og skrifstofuhúsnæði. Hann verður 1,25% af fasteignamati. Lögin vom sett til þess að bæta sveitarfélögum missi aðstöðugjalda. „Áætlað er að þessi hækkun færi borgarsjóði 175 milljónir króna á árinu 1994. Hinn skatturinn sem áður var innheimtur hjá ríkinu og var 1,5% á að færa borgarsjóði 245 milljónir. Samtals eru þetta 420 millj- ónir. Þetta er sú skattlagning sem við getum sagt að stefnt sé að leggja á atvinnureksturinn á móti því að hann losni við aðstöðugjöld. Þau vom í síðustu fjárhagsáætlun 2.195 millj- ónir króna og er það 80% af álagn- ingu. Á þessu ári fékk borgin að- stöðugjöldin greidd í formi bóta- greiðslna frá ríkinu þannig að at-. vinnureksturinn hefur losnað undan gjöldum til borgarinnar að upphæð vel á/’þriðja milljarð króna. Borgin hyggst nota áðurnefndar lagaheim- ildir til að bæta upp þennan missi með 420 milljónum. Að öðm leyti er missirinn bættur upp með hækkun á útsvarsprósentu sem er í samræmi við það lágmark sem sett var í lögin sem samþykkt vom 20. desember, eða 8,4% í stað 6,7% sem það verið hefur hjá Reykja- vík síðan 1988,“ sagði Jón. Arðgreiðslur hækkaðar „Einnig liggur fyrir tillaga um að hækka arðgreiðslu borgarfyrirtækja til borgarsjóðs til að mæta hluta af þessum missi. Það em stofnanir borgarinnar eins og orkufyrirtækin þijú, rafmagnsveita, hitaveita og vatnsveita og einnig stofnanir sem hafa sjálfstæðan fjárhag eins og malbikunarstöð og gijótnám, vélam- iðstöð og trésmiðja. Fyrir liggur til- laga um að hækka kröfu um greiðslu arðs af hreinu fé til eiganda til að mæta þeim missi sem borgarsjóður verður fyrir umfram flest önnur sveitarfélög á landinu vegna missis aðstöðugjalda og reyndar landsút- svars núna einnig,“ sagði Jón G. Tómasson. Inneignir gjaldþrota fyrirtækja í Verðjöfnunarsjóði Samtök íðnaðar- ins taka til starfa UM ÁRAMÓTIN tóku Samtök iðnaðarins til starfa og taka við hlutverki sex eldri samtaka iðnaðarins og löggiltra iðn- greina. Innan vébanda Samtakanna eru um 2.500 rekstraraðil- ar sem veita 25 þúsund manns atvinnu og er velta aðildarfyr- irtækjanna um 75 milljarðar króna. Við sameininguna næst hagræðing sem nemur milli 30 og 40 milljónum á ári. Samtök iðnaðarins taka við hlutverkum Félags íslenskra iðn- rekenda, Landssambands iðnaðar- manna, Félags íslenska prentiðn- aðarins, Verktakasambands ís- lands, Sambands málm- og skipa- smiðja og Meistara- og verktaka- sambands byggingarmanna. Sam- tök iðnaðarins eru aðilar að Vinnu- veitendasambandinu og eru aðilar samtakanna um 40% af VSI. Á skrifstofu Samtaka iðnaðar- ins verða 18 stöðugildi og fækkar starfsfólki um 13 frá því sem var á skrifstofum stofnendanna. Að sögn Haraldar Sumarliðasonar, formanns Samtaka iðnaðarins, er veruleg hagræðing að sameining- unni, bæði hvað varðar mannahald og betri nýtingu á húsnæði. Sam- tök iðnaðarins verða tii húsa á tveimur efstu hæðum húss iðnað- armanna við Hallveigarstíg 1 í Reykjavík. „Ýmsir töldu að þetta yrði erfitt og sögðu að það væri kraftaverk ef sameiningin tækist," sagði Har- aldur Sumarliðason. „Starfsfólkið hefur staðið sig óskaplega vel í að vinna að sameiningunni." Hann sagði að reynslan yrði að skera úr um framhaldið en kvaðst sann- færður um ágæti sameiningarinn- ar. í stjórn Samtaka iðnaðarins eru, auk Haraldar, Gunnar Svavarsson, Hampiðjunni, varaformaður, Öm Jóhannsson, Árvakri, ritari, Agúst Einarsson, Lýsi, Friðrik Ándrés- son, múrarameistari, Skúli Jóns- son, Stáismiðjunni, Vilmundur Jósefsson, Meistaranum, og Öm Kjæmested, Álftarósi. Fram- kvæmdastjóri samtakanna er Sveinn Hannesson og skrifstofu- stjóri Þórarinn Gunnarsson. Fjörutíu og fjórir nemend- ur brautskráðir á Akranesi FJÖLBRAUTASKÓLI Vesturlands á Akranesi brautskráði fjörutíu og fjóra nemendur á haustönn og voru í þeim hópi tuttugu og fimm sem luku stúdentsprófi. Eilefu luku prófum á tæknisviði, fimm luku sjúkraliðanámi, tveir verslunarprófi og einn nemandi á sérkennslu- braut. Skólaslit á haustönn fóru fram 18. desember sl. Eins og venja er hlutu nemendur sem náðu góðum námsárangri við- urkenningu. Flest verðlaun hlutu nýtstúdent- amir Sigurbjörg Þrastardóttir og Helga Bára Bragadóttir sem hlaut jafnframt viðurkenningu fyrir best- an árangur stúdenta að þessu sinni. Sigmar Svavarsson fékk viðurkenn- ingu Landssambands iðnaðarmanna fyrir ágætan árangur í iðnnámi. Nýstúdentamir Sigurbjörg Þrastar- dóttir og Jóhann Kristjánsson fengu verðlaun Rótarýklúbbs Akraness fyrir góð störf að félagsmálum nem- enda. Þau fluttu jafnframt ávarp fyrir hönd brautskráðra nemenda. Athygli vakti að ellefu af stúdent- unum tuttugu og fimm luku námi sínu á sjö önnum. í annál skólastarfsins sem Þórir Ólafsson skólameistari flutti kom fram að um sjö hundmð nemendur voru skráðir til náms við upphaf haustannarinnar í dagskóla, öld- ungadeild og meistaraskóla. Kennt var á Akranesi, Ólafsvík og í Stykk- ishólmi. Fjórir skiptinemar komu í skólann frá Alaska, Costa Rica, ítal- íu og Noregi. Til viðbótar reglulegum nemend- um eru þeir sem stunduðu nám á ýmis konar námskeiðum á vegum Farskóla Vesturlands. Hefur þeim flölgað mikið undanfarin misseri sem sækja fræðslu til Farskólans. Stærsta verkefni haustsins var námskeið sem haldið var fyrir Starfsmannafélag Akraneskaup- staðar og sextíu og fimm manns luku í nóvember. í þessum mánuði voru lögð fram drög að þróunaráætlun fyrir Fjöl- brautaskóla Vesturlands. Áætlunin tekur til flestra þátta í starfí skól- ans, námsframboðs, samstarfs á Vesturlandi, fullorðinsfræðslu, starfsmannahalds, húsnæðis og að- stöðu, metur stöðu mála og gerir tillögur til úrbóta. Einnig er reynt að spá fyrir um væntanlega aðsókn að skólanum fram til ársins 2007. Fer nú fram umræða um áætlunina og er ætlunin að hún verði gefin út í endanlegri gerð á næstu önn þeg- ar leitað hefur verið umsagnar og ábendinga víða utan skólans sem innan. Á önninni var nemendum boðið á röð tónleika sem skipulögð var af Jónasi Ingimundarsyni og flytj- endur voru ýmsir kunnir tónlistar- menn. Tókst þessi nýbreytni vel og undirtektir nemenda góðar. Tímamót urðu í starfsemi skólans sl. haust er hann fékk nýtt húsnæði undir starfsemi sína í Stykkishólmi en þar hefur undanfarin ár verið boðið upp á tveggja ára framhalds- nám í Fjölbrautaskóla Vesturlands. Kór skólans söng við athöfnina undir stjóm Gunnars Kristmanns- sonar og þær Heiðrún Hámundar- dóttir og Anna Snæbjömsdóttir léku fyrir gesti á klarinett og píanó. Þá var flutt dagskrá tengd jólahaldi. Að athöfninni lokinni var gestum boðið til kaffidrykkju í skólanum. Alls sóttu samkomuna um fjögur hundrað manns. - J.G. 200 milljónir sem nýtast útveginum „ÞESSAR 200 milljónir, sem hafa myndast í Verðjöfnunarsjóði sjávar- útvegsins, koma auðvitað útveginum til góða, því þær verða notaðar til að standa undir rekstri Hafrannsóknarstofnunar," sagði Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra, í samtali við Morgunblaðið. I grein í Morgunblaðinu á gaml- ársdag segir Arnar Sigurmundsson, Forsvarsmenn ÞÓRARINN Gunnarsson skrifstofustjóri (t.v) og Sveinn Hannesson framkvæmdastjóri stýra daglegum störfum á skrifstofu nýstofnaðra Samtaka iðnaðarins. formaður Samtaka fiskvinnslu- stöðva, að ríkið ætli sér að yfirtaka og þjóðnýta allt að 200 milljóna króna inneignir gjaldþrota fyrir- tækja í Verðjöfnunarsjóði. Þar vísar hann til framvarps um afnám sjóðs- ins og ráðstöfun eigna hans. „Þessar 200 milljónir era inni- stæður, sem ekki er hægt að heim- færa á tiltekna framleiðendur og hafa myndast þegar fyrirtæki hafa hætt rekstri eða orðið gjaldþrota,“ sagði sjávarútvegsráðherra. „Sjóð- urinn var ekki séreignasjóður, svo ekki var hægt að greiða úr honum til ákveðinna aðila og lögin kváðu einnig skýrt á um að það sem greitt hafði verið í sjóðinn kom ekki til álita sem eign þegar þrotabú vora gerð upp. Peningamir voru því ekki séreign fyrirtækja, heldur eign sjóðsins. Síðar var farið að halda greiðslum í sjóðinn sérgreindum, en samt sem áður mynduðu þær aldrei neina inneign," sagði Þorsteinn Páls- son sjávarútvegsráðherra. 30 sveitarfélög ræða samemingu ALLT bendir til að aðeins verði kosið í seinni umferð kosninga um sam- einingu sveitarfélaga um sameiningu Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna. Forráðamenn meira en 30 sveitarfélaga viða um land eiga nú i formleg- um og óformlegum sameiningarviðræðum, að sögn Braga Guðbrandsson- ar, formanns samráðsnefndar um sameiningu sveitarfélaga. Bragi segir að fjögur sveitarfélög í Vestur-Barðastrandarsýslu hafi samþykkt sameiningu og séu í form- legum viðræðum og búist sé við að Tálknfirðingar fái að fylgjast með þeim, þannig að þeir geti slegist í hópinn ef þeim sýnist svo. Á norðan- verðum Vestfjörðum eru hafnar við- ræður milli Mosvallahrepps, Suður- eyrarhrepps, ísafjarðar og Flateyrar- hrepps. Bæjarstjóm Bolungarvíkur hefur óskað eftir aðild að þessum viðræðum og sömuleiðis Þingeyrar- hreppur og Mýrarhreppur í Dýra- firði, en sameining var felld í þessum þremur sveitarfélögum. Ef niður- stöður viðræðnanna verða samein- ingu í vil verður hún borin undir íbú- ana eftir almennum ákvæðum sveit- arstjómarlaga. í Dalasýslu eru fimm sveitarfélög í viðræðum og einhveijar þreifingar í gangi í Mýrasýslu. Á utanverðu Snæfellsnesi samþykktu fjögur sveit- arfélög sameiningu og þar er unnið af krafti, að sögn Braga. Í Þistilfirði era þreifingar í gangi milli sveitarfélaga, fundir eru hafnir með Norðfjarðarhreppi og Neskaup- stað. Nesjahreppur, Mýrarhreppur og Höfn í Hornafirði samþykktu sameiningu og líklegt að formlegar viðræður hefjist innan skamms, að sögn Braga. Nýstúdentar NÝSTÚDENTAR frá Fjölbrautaskóla Vesturlands. Ljósmyndastofa Akraness

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.