Morgunblaðið - 05.01.1994, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 05.01.1994, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 1994 41 ÍÞRÓTTIR Sigiirður Sveinsson valinn afreksmaður UMFS 1993 Sigurður Valur Sveinsson var útnefndur íþróttamaður Ung- mennafélags Selfoss á verð- launahátíð félagsins 30. desember. Sigurður var einnig tilnefndur handboltamaður Selfoss, Þórdís Gísladóttir best fijálsíþrótta- manna, Gylfi Sigurjónsson knatt- spymumaður Selfoss, Sigurlína Garðarsdóttir sundmaður Selfoss, Ingólfur Snorrason karatemaður, Björn Grétarsson júdómaður, Ása Ninna Pétursdóttir fimleikamaður Selfoss og Bjami Magnússon körfuknattleiksmaður Selfoss. Golfklúbbur Selfoss veitti viður- kenningu besta golfmanni ársins, Gunnari Marel Einarssyni og Bergi Sverrissyni í yngri flokki. Bryndís Brynjólfsdóttir forseti bæjarstjómar Selfoss afhenti Sig- urði farandbikar, bæjarstjónarbik- arinn, sem fylgir sæmdarheitinu íþróttamaður Umf. Selfoss. „Láttu eldmóðinn skína í gegn í öllum þínum verkum. Settu á fulla ferð áfram með þínum félögum,“ sagði Bryndís meðal annars þegar hún ávarpaði íþróttafólkið og íþrótta- mann félagsins sérstaklega. Kom skemmtilega á óvart „Þetta kom skemmtilega á óvart og það er alltaf gaman að fá slík- an heiður. Ég vona að ég og við handboltamenn stöndum undir Sigurður Valur Sveinsson íþróttamaður Umf. Selfoss 1993. nafni á komandi vikum,“ sagði Sigurður Sveinsson og hann lét þess einnig getið að nauðsynlegt væri að skapa íþróttunum starfs- grundvöll því í þeim væri fólgið mikið forvarnarstarf. Þær gæfu ungu fólki tækifæri til að fá útrás fyrir athafnaþörf. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson. Afreksfólk Ungmennafélags Selfoss ásamt íþróttamanni félagsins. KÁNTRÝ Kántrýsöngkonan Tammy Wynette á batavegi Kántrýsöngkonan Tammy Wynette sem lögð var inn á spítala um jólaleytið fársjúk vegna sýkingar í meltingarvegi eða gallblöðru virðist vera á batavegi, að því er heimildir herma. Verður hún flutt af gjör- gæslu á allra næstu dögum inn á einkaherbergi. Tammy Wyn- ette, sem einna þekktust er fyr- ir söng sinn „Stand By Your Man“, hefur átt við ýmiss konar heilsuvandamál að stríða undan- farin ár. í veikindum sínum nú yfir hátíðarnar hafði henni borist íjöldi óska um góðan bata frá fólki víðs vegar úr heiminum. Haft var eftir henni nú í vikunni að hún þakkaði guði fyrir að vera á lífi og vildi koma þakk- læti á framfæri til allra þeirra sem beðið hefðu fyrir sér. Tammy Wynette

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.