Morgunblaðið - 05.01.1994, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 05.01.1994, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 1994 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 1994 27 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið. Samkomulag um varnarstöðina Ablaðamannafundi þeim, sem dr. William J. Perry, starfandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, og Jón Baldvin Hannibalsson, utan- ríkisráðherra, efndu til í gær, sagði dr. Periy, að það væri mat banda- rískra hernaðaryfirvalda, að við nú- verandi aðstæður í heimsmálum væri unnt að draga úr varnarviðbún- aði Bandaríkjamanna um þriðjung og skera útgjöld til hermála niður um 40%. Þetta er gífurlegur sam- dráttur og niðurskurður og endur- speglar gjörbreytt ástand í alþjóða- málum frá því sem var á dögum kalda stríðsins. í ljósi breyttra aðstæðna á al- þjóðavettvangi þarf engum að koma þetta mat bandanskra hernaðaryfir- valda á óvart. I samræmi við það mátti búast við því, að Bandaríkja- menn teldu eðlilegt að endurskoða starfsemi varnarstöðvarinnar í Keflavík á þann veg, að um veruleg- an samdrátt yrði að ræða. í ljósi þeirra yfirlýsinga, sem gefnar voru af hálfu íslenzkra stjórnvalda, þegar bandaríska varnarliðið kom hingað til lands árið 1951, var og eðlilegt, að slík sjónarmið væru einnig uppi hjá íslenzkum stjórnvöldum. Það er og hefur að sjálfsögðu verið matsatr- iði hversu langt ætti að ganga í þeim efnum. Á undanförnum misser- um hefur gætt vaxandi bjartsýni um friðsamlegar horfur til frambúðar í okkar heimshluta. Á hinn bóginn setti ugg að mönnum við úrslit þing- kosninganna í Rússlandi í desember- mánuði sl., þegar í ljós kom hve mikið fylgi öfgamenn höfðu meðal rússneskra kjósenda. Niðurstaðan í viðræðum íslenzkra og bandarískra stjórnvalda, sem kynnt var í gær, er augljóslega málamiðlun á milli íslenzkra og bandarískra sjónarmiða. Niðurstað- an tekur einnig mið af málamiðlun innan bandaríska stjórnkerfisins. Við íslendingar getum vel unað við þessa niðurstöðu. Kjarninn í starf- semi varnarstöðvarinnar í Keflavík verður óbreyttur,- Haldið verður uppi loftvörnum, kafbátaeftirliti og ann- arri eftirlitsstarfsemi auk björgunar- starfsemi. Umsvifin verða hins vegar verulega minni. í stað 12 orrustu- þota er gert ráð fyrir að þeim fækki á einu ári í fjórar. Sú fækkun leiðir til þess að varnarliðsmönnum fækk- ar um tæplega fjögur hundruð á næstu árum auk fjölskyldna eða um sex hundruð manns. Þegar horft er til þess tíma fyrir nokkrum árum, þegar umsvifin voru sem mest, m.a. með staðsetningu Awacs-vélanna hér, er ljóst, að umsvifin hafa minnk- að og munu minnka verulega frá því, sem þau voru mest. Þetta er eðlileg þróun en um leið skynsám- legt að hún gerist smátt og smátt til þess að sem minnst röskun verði af þeim sökum í íslenzku efnahags- lífi og aðlögun þess að breyttum aðstæðum geti gengið fyrir sig með eðlilegum hætti. Einhver fækkun verður á íslenzku starfsliði í varnar- stöðinni en Morgunblaðið hel'ur ávallt lagt áherzlu á, að varnarliðið er ekki hér til þess að tryggja lands- mönnum atvinnu. Gert er ráð fyrir að þetta sam- komulag komi til endurskoðunar að tveimur árum liðnum. Það er líka skynsamleg niðurstaða. Þá hefur þróunin í Rússlandi og öðrum fyrrum lýðveldum Sovétríkjanna væntan- lega skýrzt betur. Þá geta þjóðirnar tvær tekið nýjar ákvarðanir um varnarsamstarfið á gi-undvelli þeirra aðstæðna, sem þá verða ríkjandi. Hugmyndir um að Islendingar taki við starfrækslu björgunarsveit- ar vamarliðsins sem eins konar verk- takar eru athyglisverðar. Björgunar- sveitin hefur gegnt þýðingarmiklu hlutverki í slysavörnum hér á undan- förnum áratugum. í umræðum und- anfarinna mánaða um breytingar á starfsemi varnarliðsins hafa áhyggj- ur af hugsanlegri brottför sveitar- innar komið skýrt fram. Með fram- komnum hugmyndum er bent á leið til þess að auðvelda frekari breyting- ar á starfrækslu varnarstöðvarinnar á næstu ámm, ef til kemur. Aug- ljóst er að við íslendingar höfum ekki efni á að fjárfesta í þeim tækja- kosti, sem varnarliðið hefur yfir að ráða. Samningar við Bandaríkja- menn um að þeir leggi til tækjakost ogþjálfun í framtíðinni en við Islend- ingar starfslið og umsjón með rekstri eru eftirsóknarverðir fyrir okkur en gert er ráð fyrir, að um 100 manns mundu fá atvinnu við þann rekstur. Hér er bent á leið til þess, að þessi starfsemi verði í landinu með þeim hætti, sem við getum staðið undir, þótt frekari breytingar kunni að verða á starfrækslu varnarstöðvar- innar. Á fyrrnefndum blaðamannafundi vék dr. Perry að þeim ágreiningi, sem verið hefur innan bandaríska stjórnkerfisins á undanförnum mán- uðum um framtíð varnarstöðvarinn- ar og sagði: „Það er rétt, að þau sjónarmið hafa verið reifuð meðal hernaðaryfirvalda í Bandaríkjunum, að hægt væri að halda uppi trúverð- ugum loftvörnum í íslenzkri lofthelgi án þess, að nokkur F-15-orrustuþot- anna væri staðsett á íslandi, heldur væru þær staðsettar í Bandaríkjun- um en gætu brugðizt til loftvarna I íslenzkri lofthelgi með skömmum fyrirvara. Aðrir hafa haldið því fram, að F-15-vélarnar ættu áfram að vera staðsettar á íslandi. Niðurstaða þessa fundar okkar í morgun er því sú, að við förum bil beggja og ákveð- um málamiðlun, sem talsmenn beggja sjónarmiða geta sætt sig við, þ.e. að vélunum hér fækki en allur viðbúnaður og viðhald miðist ávallt við að hingað geti komið fleiri vélar, jafnframt því, sem heræfingar og flugæfingar verði stundaðar héðan með reglubundnum hætti.“ Ofangreind ummæli starfandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna eru auðvitað staðfesting á því, að fréttir Morgunblaðsins sl. vor og nú í haust um mismunandi skoðanir innan bandaríska stjórnkerfisins um framtíð varnarstöðvarinnar voru réttar. Nú hefur fengizt farsæl nið- urstaða til næstu tveggja' ára, sem allir aðilar eiga að geta verið sáttir við jafnframt því, sem samningsaðil- ar hafa vísað veginn til nýrrar aðild- ar íslendinga sjálfra að starfsemi björgunarsveitarinnar, sem er ekki ómerkasti þáttur þessa samkomu- lags. , SAMEIGINLEG BOKUN ISLANDS OG BANDARIKJANNA I VARNARMALUM Nauðsynlegt er að lágmarksvörnum sé haldið uppi á Islandi - segir dr. William J. Perry varavarnarmálaráðherra Á SAMEIGINLEGUM blaðamannafundi sem Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra og dr. William J. Perry varavarnarmálaráðherra Bandaríkjanna héldu í hádeginu í gær, í kjölfar viðræðna og niðurstaðna islensku og bandarísku viðræðunefndarinnar kom fram að dr. Perry telur að varnarþörfin á Norður-Atlantshafi, miðað við núverandi aðstæð- ur í heiminum, sé ekki mjög mikil, né heldur telur hann að hún verði ýkja mikil í náinni framtíð. „Á þessu augnabliki sjáum við enga hernaðar- lega ógn sem stafar að neinu NATO-ríki, þar með talin Island og Banda- ríkin. En það er erfitt að segja til um hvað framtíðin felur í skauti sér,“ sagði Perry. Perry telur því að nauðsynlegt sé að halda uppi iágmarks- loftvörnum frá Islandi, vegna staðsetningar landsins á Norður-Atlants- hafi, og því hafi niðurstaðan orðið sú hjá samningsaðilum að fækka F-15 orrustuflugvélum sem staðsettar eru hér úr 12 í fjórar að lágmarki og mun sú fækkun eiga sér stað í áföngum út þetta ár. Jón Baldvin greindi frá því á blaðamannafundinum að á lokastigi umræðnanna, þ.e.a.s. í gærmorgun, hefði komið fram sú tillaga af hálfu Bandaríkjamanna, að teknar yrðu upp viðræður, með það í huga að auka hlut Islendinga í rekstri flugbjörgunarsveitarinnar. Þær viðræður gætu hafist á þeim tveggja ára aðlögunartíma sem framundan væri, og gætu falið það í sér að Islendingar önnuðust rekstur þyrlubjörgunarsveitarinnar í verktöku. „í fyrsta lagi staðfesta ísland og Bandaríkin skuldbindingar sínar sam- kvæmt tvíhliða vamarsamningi ríkj- 1. Bandaríkin staðfesta á ný skuldbindingar sínar samkvæmt tvíhliða varnarsamningnum frá 1951. 2. ísland staðfestir að bandarískt herlið og herlið bandamanna skuli áfram vera í Keflavíkurstöðinni. 3. Fyrir hönd Atlantshafsbanda- lagsins og í samræmi við það sem þau hafa tekist á hendur sam- kvæmt Norður-Atlantshafssamn- ingnum, árétta Bandaríkin skuld- bindingar sínar um að gera ráðstaf- anir til varnar íslandi með þeim skilmálum sem kveðið er á um í Norður-Atlantshafssamningnum og í tvíhliða varnarsamningnum frá 1951. 4. íslendingar munu til varnar landinu, og með tilliti til varna þess svæðis sem Norður-Atlants- hafssamningurinn tekur til, veita þá aðstöðu á íslandi sem samkomu- lag verður um að nauðsynleg sé samkvæmt hinum tvíhliða varnar- samningi frá 1951. 5. Bæði ríkin staðfesta nauðsyn þess að þau hafi náið samráð sín á milli um málefni er öryggi varða, bæði tvíhliða og innan Atlantshafs- bandalagsins, eftir því sem Banda- ríkin og Atlantshafsbandalagið laga sig að nýjum aðstæðum á sviði öryggismála að kalda stríðinu loknu. 6. Ríkisstjórnir íslands og Banda- ríkjanna eru þeirrar skoðunar að þróun mála á alþjóðavettvangi geri þeim kleift að takast á hendur aðlögun í herafla til að sinna sam- eiginlegum skyldum sínum á sviði öryggis- og varnarmála. í samræmi við skuldbindingar Bandaríkjanna gagnvart íslandi samkvæmt 3. lið anna,“ sagði Jón Baldvin á fundinum. í öðru lagi gerðu ríkin með sér sam- komulag um fyrirkomulag varnarsam- hér að ofan hafa ísland og Banda- ríkin komist að samkomulagi um: — að fækka orrustuþotum, en við- halda að minnsta kosti íjórum í því skyni að tryggja áfram virkar loftvarnir á Islandi, — að í Keflavík verði áfram haft skipulag og aðstaða til að halda úti orrustuflugvélum, — að leitar- og björgunarflugsveit- inni verði haldið, — að flotaflugstöðin verði starf- rækt áfram, — að íslenska ratsjárkerfinu verði haldið við, — að heræfingum „Norður-Vík- ingur“, sem fara fram annað hvert ár, verði haldið áfram, — að tvær smærri deildir flotans hætti starfsemi, samkvæmt nánari ákvörðun beggja ríkis- stjórna. 7. Báðir aðilar samþykkja að gera það sem í þeirra valdi stendur til að draga úr kostnaði við rekstur Keflavíkurstöðvarinnar. 8. Ríkin tvö munu efna að nýju til samráðs í því skyni að endur- skoða ákvæði samkomulags þessa og komast að sameiginlegri niður- stöðu um þau í lok tveggja ára tímabils frá og með 1. janúar 1994. Fyrir lok þessa tímabils munu ríkin tvö takast á hendur viðræður til að kanna möguleika á að ísland axli aukna ábyrgð á sviði þyrlu- björgunarstarfa. William J. Perry varavarnarmálaráðherrá Bandaríkjanna. Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra íslands. Reykjavík, 4. janúar 1994. starfsins, að sögn utanríkisráðherra, sem fæli annars vegar í sér áréttingu áframhaldandi veigamikilla þátta, eins og áframhaldandi starfrækslu flota- stöðvari n n ar, fl ugbjörgu nars vei tar- innar, ratsjárkerfísins, reglubundnar heræfingar og loftvarnir. Hins vegar fæli samkomulagið í sér aðlögun starf- seminnar að breyttum aðstæðum, þar sem sérstaklega væri kveðið á um tvennt: Annars vegar um fækkun orr- ustuflugvéla úr 12 í 4, sem væri skil- greint sem það iágmark sem þyrfti, svo hér teldust trúverðugar loftvarnir; hins vegar væri um að ræða lokun tveggja smærri deilda flotans. „Einnig samþykkja aðilar að géra það sem í þeirra valdi stendur til þess að draga úr kostnaði við rekstur Keflavíkur- stöðvarinnar. Umræður um það munu halda áfram, en engar ákvarðanir hafa verið teknar,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson. í þriðja lagi sagði utanríkisráðherra íslands að ríkin hefðu fallist á að heija viðræður í því skyni að endur- meta ákvæði samkomulagsins og komast að sameiginlegri niðurstöðu um þau, í lok tveggja ára tímabils, frá og með 1. janúar 1996. „Á loka- stigi viðræðnanna kom fram sú tillaga af hálfu samningsaðilanna, Banda- ríkjamanna, að við tækjum upp við- ræður með það í huga að auka hlut íslendinga í rekstri flugbjörgunar- sveitarinnar. Þær viðræður geta hafist á aðlögunartímanum. Þetta er ekki ákvörðun og ekki skuldbinding, en er þáttur í hugmyndum um að auka hlut Islendinga að þessu leyti,“ sagði utan- ríkisráðherra. Jón Baldvin sagði að ef niðurstaðan yrði sú.að íslendingar tækju að sér rekstur þyrluflugbjörg- unarsveitarinnar, á grundvelli verk- töku, þar sem Bandaríkjamenn legðu til tækjakost og þjálfun, gætu um 100 ný atvinnutækifæri fyrir íslendinga verið fólgin í slíkri tilhögun. Hernaðarógn hefur minnkað umtalsvert Dr. Perry svaraði spurningu Morg- unblaðsins í þá veru, hvernig banda- rísk stjórnvöld skilgreindu breytt hlut- verk Keflavíkurstöðvarinnar, í ljósi breyttra aðstæðna í heiminum, svo- hljóðandi: „í fyrsta lagi hefur svoköll- uð hernaðarógn á Norður-Atlantshafi minnkað umtalsvert, en það breytir ekki því mati bandarískra stjórnvalda .að staðsetning íslands og varnar- stöðvar á Keflavíkurflugvelli er enn . þýðingarmikil og heldur áfram að vera mikilvæg, að því er varðar stað- setningu herafla og flugvéla til að sinna Ioftvörnum. Með þetta tvennt í huga höfum við komist að þeirri niðurstöðu ásamt ís- lensku ríkisstjóminni, að í Ijósi breyttra aðstæðna í heiminum, sé rétt að minnka Ijölda þeirra orrustuþotna sem varanlega verða staðsettar í Keflavík, en viðhalda þeim tækjabún- aði og aðstöðu sem fyrir hendi er á Keflavíkurflugvelli með þeim hætti að ávallt sé um virkt loftvarnasvæði að ræða, þannig að ákveðinn hluti flug- vélakosts okkar í Bandaríkjunuin sé ætíð í viðbragðsstöðu, þannig að með litlum eða engum fyrirvara getum við sent orrustuþotur inn í íslenska loft- helgi.“ Perry sagði að með hliðsjón af stað- setningu landsins, yrði varnarstöðin í Keflavík áfram einnig þýðingarmikil til þess að sinna kafbátaeftirliti á sigl- ingaleiðum Norður-Atlantshafs. Perry sagði það mat bandarískra hernaðar- yfirvalda að samkvæmt gjörvallri varnaráætlun Bandaríkjanna væri miðað við núverandi aðstæður í heim- inum að draga úr vörnum Bandaríkj- Ljósm.: Vamarliðið Orrustuþota af gerðinni F-15, sömu tegundar og þær fjórar þotur eru, sem eftir verða á íslandi til varnar landinu. Bókun ráðherranna MEÐ tilliti til hinna miklu breytinga sem orðið hafa á sviði öryggis- mála í Evrópu og á Norður-Atlantshafi vegna loka kalda stríðsins hafa ríkisstjórnir Bandaríkjanna og Islands, í samræmi við tvíhliða varnarsamninginn frá 1951, átt viðræður um hvaða varnarstyrkur í Keflavík sé hæfilegur til varnar Islandi. Komist hefur verið að eftirfarandi samkomulagi. Morgunblaðið/Árni Sæberg Undirritun bókunarinnar SAMEIGINLEGA bókun ráðherranna var undirrituð í gær á 5. hæð Perlunnar á Oskjuhlíð. Að baki ráðherrunum standa viðræðunefndir landanna. anna, sem næmi þriðjungi samdráttar í mannafla, og um 40% niðurskurði hernaðarútgjalda Bandaríkjanna. „En niðurskurðinn verður aldrei með þeim hætti, að við stefnum möguleikum okkar til skjótra viðbragða í hættu. Hernaðarógnin er ekki til staðar þessa vikuna, eða jafnvel þetta árið, en við verðum að vera viðbúnir breyttum aðstæðum hvenær sem er, og því er mikilvægt að halda við og vera með lágmarksviðbúnað hveiju sinni,“ sagði Perry. Ágreiningur um loftvarnir frá íslandi innan Bandaríkjahers Morgunblaðið spurði Perry um þann ágreining innan bandaríska stjórn- kerfisins, sem orðið hefur að frétta- efni á undanförnum mánuðum, um hversu langt skuli gengið í niður- skurði umsvifa varnarliðsins á Kefla- víkurflugvelli, þegar bandaríski flug- herinn var með tillögur um að allar F-15 vélarnar væru kallaðar heim, en bandaríski sjóherinn, með stuðningi bandaríska utanríkisráðuneytisins, taldi að þannigyrði lágmarks loftvörn- um ekki sinnt á trúverðugan hátt frá Íslandi, og þannig fremur tekið undir viðhorf íslensku viðræðunefndarinnar: „í fyrsta lagi vil ég leggja áherslu á það sem við allir erum sammála, þ.e. ríkisstjórnir beggja Iandanna og bandarísk hernaðaryfirvöld, bæði flugher og sjóher, að mikilvægt er að standa við ábyrgð þá sem Bandaríkin hafa axlað, samkvæmt tvíhliða varn- arsamningi ríkjanna, að standa við það ákvæði að halda uppi loftvörnum i íslenskri lofthelgi. Það eina sem ágreiningur hefur verið um undan- farna mánuði, er með hvaða hætti tryggjum við best að því markmiði verði náð að axla ábyrgð og halda uppi loftvörnum. Það er rétt að þau sjónarmið hafa verið reifuð meðal hernaðaryfirvalda í Bandaríkjunum að hægt væri að halda uppi trúverðug- um loftvörnum í íslenskri lofthelgi, án þess að nokkur F-15 orrustuþotn- anna væri staðsett á Islandi, heldur væru þær staðsettar í Bandaríkjunum, en gætu brugðist til loftvarna í ís- lenskri lofthelgi með skömmum fyrir- vara. Aðrir hafa haldið því fram að F-15 vélarnar ættu áfram að vera staðsettar á Islandi. Niðurstaða þessa fundar okkar í morgun er því sú að við förum bil beggja og ákveðum málamiðlun, sem talsmenn beggja sjónarmiða geta sætt sig við, þ.e. að vélunum hér fækki, en allur viðbúnað- ur og viðhald miðist ávallt við að hing- að geti komið fleiri vélar, jafnframt því sem heræfingar og flugæfingar verði stundaðar héðan með reglu- bundnum hætti,“ sagði Perry. Varnarþörf metin fyrst, síðan fjárþörfin Morgunblaðið spurði Perry jafn- framt hvort íslendingar mættu eiga von á því sem árvissum viðburði eftir 1996, að varnir landsins yrðu í upp- námi, einfaldlega vegna þess að bandarískir stjórnmálamenn ættu í vandræðum með að koma saman fjár- lögum sínum: „Við fjárlagagerð met- um við náttúrlega varnarþörfina hveiju sinni, bæði í Bandaríkjunum og hjá bandamönnum okkar í NATO- ríkjunum og ákveðum fjárþörfina út frá því mati.“ Því næst spurði Morgunbíaðið Perry, hvort óhætt væri að líta þann- ig á að eftir þær viðræður sem nú hafa farið fram, með þeirri niðurstöpu sem hann og utanríkisráðherra ís- lands kynntu, að báðir aðilar hins tví- hliða varnarsamnings um varnir ís- lands, frá árinu 1951, hefðu nú gagn- kvæman skilning á því hvað fælist í samningnum, eða hvort líta mætti þannig á, að þegar Bandaríkjamenn væru í vanda með fjáriagagerð sína, þá kynnu varnir landsins að vera í húfi, ef bandarísk stjórnvöld vildu túlka samninginn á nýjan leik, sam- kvæmt þeirra eigin mati: „Við sam- þykktum í morgun að við höfum sam- eiginlegan skilning á því sem felst í samningnum og við munum ekki ræða nýja eða aðra túlkun á honum, fyrr en að einhveijum árum liðnum. Hvort ástand öryggismála í heiminum breyt- ist á þeim árum, liggur að sjálfsögðu ekki fyrir nú,“ sagði Perry. Varnarliðsmönnum fækkar um 380 til ársins 1997 Síðdegis í gær hélt Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra síðan annan blaðamannafund, þar sem tími fyrri fundarins, þar sem hann og Perry sátu saman fyrir svörum, var naumt skammtaður, og var varavarnarmála- ráðherrann Iagður af stað áleiðis vest- ur urn haf á nýjan leik kl. 14.40 í gær. Á fundi utanríkisráðherra með íslensku pressunni voru ýmis atriði hinnar sameiginlegu yfirlýsingar ráð- herranna skýrð nánar og farið út í framkvæmdaátriði breyttra og minni umsvifa varnarliðsins á Keflavíkur- flugvelli á næstu árum, jafnframt því sem aðdragandi þessarar niðurstöðu var rakinn í grófum dráttum, allt aft- ur til marsmánaðar 1992. í máli ráðherrans kom fram að samtals mun hermönnum á Keflavík- urflugvelli fækka um 380 til ársins 1997. Ytrustu kröfur Bandaríkja- manna frá því að þeir lögðu til að allar F-15 orrustuvélarnar yrðu kvaddar heim, hefðu á hinn bóginn gert ráð fyrir mun meiri fækkun og mun meiri niðurskurði í mannahaldi og umsvifum, sem að mati íslenskra stjórnvalda hefði gert það að verkum að ákvæði um lágmarksvarnir Is- lands, samkvæmt varnarsamningnum frá 1951, hefðu ekki verið uppfyllt. „Ég vil árétta aðalatriði þessarar sam- eiginlegu bókunar dr. Perrys og minnar. Bandaríkin og ísland stað- festa skuldbindingar sínar samkvæmt tvíhliða varnarsamningi ríkjanna. Það er grundvallaratriði að báðir aðilar féllust á það í viðræðunum, að þær færu fram á grundvelli gagnkvæmra skuldbindinga, sem í varnarsamningn- um frá 1951 fólust,“ sagði Jón Bald- vin. í samtali við Morgunblaðið í gær, sagði Jón Baldvin Hannibalsson utan- ríkisráðherra m.a. að nú væri lokið viðamestu viðræðum um varnar- og öryggismál íslendinga, frá því að tví- hliða varnarsamningur Islands og Bandaríkjanna var gerður árið 1951. Davíð Oddsson forsætisráðherra um samkomulagið Jafnræði í ákvarð- anatöku viðurkennt DAVÍÐ Oddsson kveðst afar ánægður með niðurstöðu varnarvið- ræðnanna, sem lauk í gær með formlegri undirskrift Jóns Baldvins Hannibalssonar utanríkisráðherra íslands og dr. Williams J. Perrys varavarnarmálaráðherra Bandaríkjanna á sameiginlegri bókun þeirra tveggja. Davíð fagnar viðurkenningu þess að hér sé nauðsyn- legt að hafa lágmarksloftvarnir, hann telur að staða þjóðanna að því er varðar samráð og ákvarðanatöku um varnir landsins hafi verið jöfnuð með þessu samkomulagi, auk þess sem hann telur at- hyglisvert að Bandaríkjamenn séu nú reiðubúnir til þess að ræða við íslensk stjórnvöld um að íslendingar taki að sér rekstur banda- rísku þyrlubjörgunarsveitarinnar, með atbeina og aðstoð Banda- ríkjamanna. „Ég er mjög ánægður með þessa niðurstöðu, mjög ánægður," sagði forsætisráðherra í samtali við Morg- unblaðið í gær, eftir að dr. William J. Perry varavarnarmálaráðherra Bandaríkjanna hafði gengið á hans fund og honum höfðu verið kynntar niðurstöður í samningaviðræðum ís- lenskra og bandarískra stjórnvalda, um fyrirkomulag varnarstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli á næstu árum. Forsætisráðherra telur að niðurstaða samninganna sé mjög í anda þess sem íslenska viðræðunefndin lagði frá upphafi áherslu á. Davíð sagði að samningaviðræð- urnar hefðu vissulega tekið alllangan tíma, og lengri en í upphafí hefði verið ætlað, en þær hefðu verið vin- samlegar og í vinsamlegum anda. „Mér finnst mikilvægast við þessa niðurstöðu, að það er viðurkennt, það sem kom strax fram í samtali mínu við A1 Gore varaforseta Bandaríkj- anna, þar sem hann í umboði Banda- ríkjaforseta lýsti því yfír, að þetta yrði sameiginleg niðurstaða ríkj- anna. Það er dálítil breyting frá því sem áður var, því hér á árum fyrr voru vélar, til dæmis AWACS-rat- sjárflugvélarnar, kallaðar til baka, orrustuþotur og fleira, án þess að íslensk stjórnvöld hefðu nokkuð með það að gera, heldur lásu bara um það í hermálablöðum eða fréttu eftir öðrum leiðum, eftir á, sem var auð- vitað ekki í nógu góðu samræmi við varnarsamninginn,“ sagði forsætis- ráðherra. Sjónarmið íslands um loftvarnir viðurkennt Davíð kvaðst því telja að sam- komulag það sem hefði tekist í gær, liefði mjög jafnað stöðu þjóðanna, að þessu leyti, og það kvaðst hann telja afskaplega mikilvægt. „Mér finnst einnig mikilvægt,“ sagði hann, „að það hefur verið tryggt með þess- um samningi, að það sjónarmið ís- lands um að hér verði ásættanlegar loftvarnir, verður virt og slíkar loft- varnir verða því til staðar hér á landi. Jafnframt finnst mér það mjög at- hyglisverð hugmynd sem þarna er reifuð um þyrlubjörgunarsveitina. Þetta er sjónarmið sem reifað var af okkar hálfu, fyrir tveimur eða þremur árum, um þátttöku Islend- inga í rekstri sveitarinnar, í nefnd sem Björn Bjarnason veitti þá for- stöðu.“ Davíð sagði að Perry hefði sagt á fundinum með honum undir hádegi í gær, að í þessu gæti falist sá mögu- leiki að íslendingar með atbeina og aðstoð Bandaríkjamanna tækju að sér rekstur þyrlubjörgunarsveitar- innar. „Þannig gæti falist í þessari hugmynd að rekstur björgunarflug- sveitarinnar yrði hreinlega boðinn út og íslendingar sæju um slíka verk- töku og rekstur, með atbeina og þátttökukostnaði Bandaríkja- manna,“ sagði Davíð. „Þetta ásamt fleiri atriðum í samningnum gæti heldur orðið til þess að okkar starfs- mönnum á Keflavíkurflugvelli myndi heldur fjölga, en Bandaríkjamönnum heldur fækka. Allt eru þetta mjög jákvæðir hlutir, og eins það að ákveð- ið hefur verið að samningaferlið heldur áfram um hin smærri atriði og bæði ríkin ákveða að taka upp framhaldsviðræður um málið eftir tvö ár. Það þýðir ekki annað en það, að menn meta þá stöðuna upp á nýtt. Grundvallarviðhorfið sem við- urkennt er þarna, um að báðar þjóð- irnar hafa með þessar ákvarðanir að gera, á jafnréttisgrundvelli, það er það mikilvægasta í þessu sam- bandi," sagði Davíð Oddsson forsæt- isráðherra. Björn Bjarnason formaður utanríkismálanefndar Stefnt að sameiginlegri niðurstöðu eftir tvö ár BJÖRN Bjarnason, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, segir að varnarsamningur íslands og Bandaríkjanna standi óhaggaður og segir að mikilvægt orðalag komi fram í lokaákvæði sameigin- legu bókunarinnar sem undirrituð var í gær þar sem segir, að ríkis- stjórnir landanna muni aftur hafa samráð sín í milli og stefnt sé að sameiginlegri niðurstöðu um ákvæði samkomulagsins í lok tveggja ára tímabils. „Eg tel að þetta orðalag um sameiginlega niðurstöðu sé mjög mikilvægt fyrir okkur frá pólitískum sjónar- hóli séð,“ segir Björn. „Ég tel að miðað við núverandi aðstæður sé unnt að veita Islandi loftvarnir með að minnsta kosti fjór- um orrustuvélum eins og talað er um í bókuninni og það sé fullnægj- andi,“ segir Björn. „Ég tel ákaflega mikilvægt að öllum þáttum varnanna sé sinnt og bókunin tryggir að það verður gert,“ segir hann. Samráð í öryggismálum „Þegar var farið í þessar viðræður við Bandaríkjamenn um stöðuna í öryggis- og varnarmálum í septem- ber 1992, var það gert meðal annars i því skyni, að tekið yrði upp samráð á milji stjórnvalda í Bandaríkjunum og á íslandi um framkvæmd varnar- samningsins við breyttar aðstæður. Síðan þróuðust þær viðræður þannig, að þegar Davíð Oddsson forsætisráð- herra hitti A1 Gore, varaforseta Bandaríkjanna, í byijun ágúst 1993, var staðfest af Bandaríkjastjórn að það skyldi ekki aðeins haft samráð við íslendinga um þessi mál, sem við töldum eðlilegt, heldur yrði einnig miðað að þvi að um sameiginlega niðurstöðu yrði að ræða. Það er tek- ið fram í lokamálsgrein bókunarinn- ar, að stefna eigi að sameiginlegri niðurstöðu. Þetta tel ég mikilvæga pólitíska’ viðurkenningu fyrir okkur og í anda þess samstarfs sem hófst í september 1992. Ég vek einnig athygli á að í 5. grein bókunarinnar er gert ráð fyrir að samráð haldi áfram um stöðuna í alþjóðamálum og framvindu örygg- isrnála almennt. En í lokagrein bók- unarinnar er talað urn, að teknar verði upp viðræður um þessa bókun sérstaklega eftir tvö ár og ég lít svo á að það eigi ekki síst rætur að rekja til þess, að Bandaríkjamenn telja, að þeir þurfi að átta sig á þessari stöðu með hliðsjón af fjárveitingum og samskiptum Bandaríkjastjórnar við þingið í Washington. Varnar- samningurinn frá 1951 er ótíma- bundinn og gildir þar til honum er sagt upp,“ sagði Björn. Rekstur björgunar- sveitarinnar Björn lagði einnig mikla áherslu á þýðingu lokasetningar bókunarinn- ar, um að ríkisstjórnir landanna skuldbindi sig til að kanna möguleika á að íslendingar taki aukinn þátt í leitar- og björgunarmálum. „Þetta kemur heim og saman við tillögur sem gerðar voru af nefnd sem ég veitti forstöðu varðandi þyrlumálin og skilaði áliti í október 1991. í því var lagt til að kannað yrði eftir pólitískum leiðum hvort það væri vilji hjá Bandaríkjastjórn til að íslendingar tækju þessi störf að sér. Við töldum mjög mikilvægt að þetta yrði kannað og niðurstaða fengist um þetta atriði áður en ákvarðanir yrðu teknar um þyrlukost Landhelg- isgæslunnar og starfsemi þyrlu- björgunarsveitar á vegum hennar. Embættismönnum var falið að kanna » þetta og þá kom fram, að það virtist ekki vera áhugi hjá Bandaríkjamönn- um að ræða þetta við okkur. Nú er þetta komið þarna inn, að því er mér skilst að frumkvæði Bandaríkja- manna. Þetta tel ég mjög mikilvægt því ég hef lengi haldið því fram að reynsla okkar af rekstri Ratsjár- stofnunar hljóti að leiða til þess að við lýsum yfir áhuga á að taka að okkur rekstur á fleiri sviðum í tengsl- um við varnir landsins. Þar hef ég talið skynsamlegt að líta til björgun- arsveitarinnar.“ t Björn sagðist aðspurður telja, að þessi möguleiki skapaði nýjar for- sendur í umræðum um þyrlukost Landhelgisgæslunnar. „Ég veit að það hafa farið fram athuganir á veg- um ríkisstjórnarinnar á tækjabúnað- inurn á Keflavíkurflugvelli en þyrl- urnar þar eru meðal hinna fullkomn- ustu í heiminum. Auk þess ræður • sveitin yfir tækjum til að taka elds- neyti á flugi,“ sagði hann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.