Morgunblaðið - 05.01.1994, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 05.01.1994, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 1994 P* ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ Daniel Day-Levvis Micheui Pfíiffer Winona Ryder maitsk scoisíss smost ttiv.cnMi mt rowtwtíi mm tiCKU. nm m rmtm mzt r-mnc nc-v.u > 's.mwi im ^ > uitm scöisbt ^ mm öAur&ii «:catuifm»w masxmm m m onssoŒSŒ' *stim immvussmmiA mctxa ».thxl«a moimi rttœrcte»iCHAa ísusuiiut. n&mxn tnurrox^jxr cocss * MArrss scotsfir. m pm ««* —w ^ Stórmyndin Öld sakleysisins gerð eftir Pulitzer-verðlauna- skáldsögu Edith Wharton. „ ★ ★ ★ ★ Besta mynd ársins. “ A.l. MBL. ★★★ H.K. DV. Tilnefnd til 4 Golden Giobe-verðiauna. DANIEL DAY-LEWIS, MICHELLE PFEIFFER OG WINONA RYDER í STÓRMYND MART- INS SCORSESE. EINSTÖK STÓRMYND SEM SPÁÐ ER ÓSKARSVERÐLAUNUM. Sýnd ki. 4.45,9 og 11.30 * i NÝJU OG STÓRGLÆSILEGU STJÖRNUBÍÓI EVROPUFRUMSYNING A GEGGJUÐUSTU GRINMYND ARSINS Hún er algjörlega út í hött.. Já, auðvitaö, og hver annar en Mel Brooks gæti tek- ið að sér að gera grín að hetju Skírisskógar? Um leið gerir hann grín aö mörgum þekktustu mynd- um síöari ára, s.s. The Godfather, Indecent Propos- al og Dirty Harry. Skelltu þér á Hróa; hún er tví- mælalaust þess virði. Leikstjóri: Mel Brooks. ★ ★ ★ ★ BOX OFFICE ★ ★ ★ VARIETY ★ ★★ L.A. TIMES Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. * SVEFNLAUS í SEATTLE sýndA-sai ki. 7.10. ★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★ Wl ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ simi eftir Pjotr I. Tsjajkovskí. Texti eftir Púshkín í þýöingu Þorsteins Gylfasonar. Sýning fostudaginn 7. janúar kl. 20. Sýning laugardaginn 8. janúar kl. 20. Sýning laugardaginn 15. janúar kl. 20. Miðasalan er opin frá kl. 15-19 daglega, sýningardaga til kl. 20. Sími 11475. - Greiðslukortaþjónusta. MUNIÐ GJAFAKORTIN OKKAR! OULIt? TÖnLEIKIft Háskólabíói fimmtudaginn 6. janúar, kl. 20.00 Hljómsueitarstjóri: Osmo Vánska Einleikari: Ollí Mustonen ttmm Sergei Rachmaninoff: | Píanókonsert nr. 3 Anton Bruckner: ;-UÁ; Sinfónía nr. 3 í d-moll ^ ,oSÍoL SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS JJ' 1 fl* OÍ.Í/LDO Hliómsveit allra íslendlngn 066600 » HALLDOR Pálsson saxófónleikari leikur með Tríói Bjössa Thoroddsení dag, miðvikudag, á Kringlukránni. Halldór er einn þeirra íslensku djassara sem hafa starfað lengst ævinnar erlendis. í Svíþjóð hefur Halldór spilað allt milli himins og jarðar. Hann lék í tvö ár með sænsku stjörn- unni Björn Skifs, einnig lék hann inná plötu með hljóm- sveitinni Abba og í sex ár með stórsveit Leif Kronlund. Halldór kom hér síðast 1987 og spilaði þá með Birni Thoroddsen og félögum. Með Halldóri og Birni leika Guð- mundur Steingrímsson og Bjarni Sveinbjörnsson á kontrabassa. Aðgangur er ókeypis og hefst uppákoman kl. 22. UR DAGBÓK LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK: Áramótin voru tiltölu- lega friðsamleg á starfs- svæði lögreglunnar í Reykjavík. Helgin virðist að öðru leyti hafa verið svipuð og aðrar helgar vetr- arins. Bókuð voru 79 ölvun- artilvik; 18 vegna hávaða og ónæðis utan dyra og innan, 8 heimilisófriðir, 15 innbrot, 7 þjófnaðir, 72 kærðir fyrir of hraðan akst- ur, 33 fyrir önnur umferð- arlagabrot, 11 vegna gruns um ölvunarakstur og þar af einn í umferðaróhappi. 11 önnur umferðaróhöpp og þar af meiðsli á fólki í tveimur tilvikum, 9 líkams- meiðingatilvik, 17 skemmdarverk og 28 rúðu- brot. Alls eru 493 tilvik bókfærð á tímabilinu. Á sunnudagskvöld var tilkynnt um lausa hesta við Hallsveg í Gufunesi. Haft var samband að venju við vörslumann borgarlands- ins, en hann sagði starf sitt hafa verið lagt niður tíma- bundið frá og með áramót- um. Borginni hafði láðst að tiikynna þá ráðstöfun til lögreglu. Ekki er vitað hvað varð um hrossin. Á nýársdag var tilkynnt um slys á Þingvallavegi. Þar hafði maður fallið af hestbaki og var hann flutt- ur á slysadeild með sjúkra- bifreið. Gamlárskvöld var rólegt. Um miðnætti var þó til- kynnt um eld í sinu á þaki húss við Silungakvísl, en engar skemmdir hlutust af. Þá var tilkynnt um eld í garðskála við Bleikjukvísl. Þar urðu nokkrar skemmd- ir. Samkvæmt venju hóp- uðust unglingar saman við Hraunbæ 103. Lögreglan þurfti 7 sinnum að hafa þar afskipti af ölvuðum ungl- ingum og aka þeim til síns heima. Einungis f einu til- felli þurfti að færa unglinga á lögreglustöðina og biðja foreldra að sækja þá. Full- trúar foreldrafélaga skól- anna voru á svæðinu og hafði það tvímælalaust já- kvæð áhrif. Samkvæmt venju er ann- ríkið mest hjá lögreglu á nýársmorgni. Þessi var þar engin undantekning. Mikið var af ölvuðu fólki um alla borg fram undir að verða níu. M.a. fréttist af 73 ára gamalli konu með skurð á handlegg eftir að hafa þurft að vísa manni út úr íbúð sinni. Piltur var að lemja unnustu sína í miðborginni, en sættist við hana þegar lögreglan kom á staðinn. Tilkynnt var um eldri konu á ferð í Grafaryogi með hluta af grindverki undir hendinni. Maður lagðist til svefns í vegkanti við Hring- braut. Hann var fluttur til síns heima. Kona réð ekki við unglingsdóttur sína í kjallara húss í vesturborg- inni, en sú var sofnuð er lögregla konj á vettvang. Unglingur hringdi úr síma- klefa við Austurvöll og þorði ekki út úr honum þar sem menn biðu fyrir utan og vildu lemja hann. Hon- um var bjargað úr síma- klefanum. Tveir vinir í vest- urbænum lentu í áflogum og kom annar blóðugur á lögreglustöðina. Þeir ákváðu að sættast. Maður veifaði kúbeini að Ieigubíl á Hlemmtorgi. Sá fékk að gista fangageymslurnar. Olóður maður braut rúðu í útihurð slysadeildar Borg- arspítaians. Hann var færð- ur í fangageymslu. Annar ölóður maður reyndi ítrekað að bijóta sér leið í gegnum glerdyr á Hlemmi. Hann var einnig færður í fanga- geymslu. Nokkuð bar á ölvun og ófriði á heimilum á nýárs- morgun. Sinna þurfti sjö útköllum þar sem fólk var orðið mjög ölvað og þreytt. Þá hafði komið til illinda á meðal heimilisfólks. Þurfti lögreglan ýmist að koma á sáttum eða ijarlægja fólk þannig að friður mætti komast á að nýju. Líkamsmeiðingarnar urðu flestar aðfaranótt ný- ársdags og á nýársmorgun. Flytja þurfti tvo rnenn eftir slagsmál á Hótel Islandi á slysadeild. Aðra tvo þurfti að flytja þangað eftir slags- mál á veitingastað á Hverf- isgötu 86 og tveir aðrir voru færðir í fanga- geymslu. Maður var fluttur á slysadeild eftir slagsmál í miðborginni og annar eft- ir slagsmál í Rósenberg- , kjallaranum. Þá fór einn á slysadeild eftir að hafa orð- ið undir í slagsmálum og bitinn á Kaffi-Grand. í dagbók lögreglunnar í Reykjavík eru skráð 57.564 tilvik á árinu 1993. Þau voru 55.679 árið 1992, en 61.412 árið 1991. Aukning- in milli áranna 1992 og 1993 virðist mest vera á sviði umferðarmáiefna. Lögreglan í Reykjavík óskar landsmönnum öllum gleðilegs árs. Tríó Bjöms Thoroddsen. ■ JAZZ I Djúpinu. Jap- anska jazzsöngkonan Akiko Vchída heldur tónleika í Djúpinu í kvöld, miðviku- daginn 5. janúar. Hún er nú búsett í Bandaríkjunum þar sem hún stundar nám við Berklee College of Music í Boston. Leiknir verða gamal kunnir jazz-söngvar í bland við nýrra efni. Með henni leika Ólafur Jónsson saxó- fónleikari, Hilmar Jensson gítarleikari, Þórður Högna- son bassaleikari og Matthías M.D. Hemstock trommu- leikari. Tónleikarnir hefjast kl. 21. ÞJOÐLEIKHUSIÐ sími 11200 Stóra sviðið kl. 20.00: • MAVURINN eftir Anton Tsjekhof 5. sýn. fim. 6. jan. - 6. sýn. sun. 9. jan. - 7. sýn. lau. 15. jan. - 8. sýn. sun. 23. jan. • ALLiR SYNiR MÍNIR eftir Arthur Miller. Fös. 7. jan., nokkur saeti laus, - fös. 14. jan. - fim. 20. jan. • KJAFTAGANGUR eftir Neii Simon. Lau. 8. jan. - fim. 13. jan. - lau. 22. jan. • SKILABOÐASKJÓÐAN eftir Þorvald Þorsteinsson Ævintýri með söngvum Sun. 9. jan. kl. 14., laus sæti v/forfalla, - lau. 15. jan. kl. 14, sun. 16. jan. kl. 14. Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13.-18. og fram að sýningu sýningardaga. Tekiö á móti símapöritunum virka daga frá kl. 10.00. Græna linun 996160. Stóra svið: • EVALUNA eftir Kjartan Ragnarsson og Óskar Jónasson. Tónlist og söngtextar: Egill Ólafsson. Útsetningar: Ríkarður Örn Pálsson. Hljómsveitarstjóri: Árni Scheving. Dansar: Michaela von Gegerfelt. Lýsing: Lárus Björnsson. Leikmynd: Óskar Jónas- son. Leikstjóri: Kjartan Ragnarsson. Leikendur: Agnes Kristjónsdóttir, Ari Matthíasson, Árni Pétur Guðjónsson, Ása Hlín Svavarsdóttir, Bryndís Petra Bragadóttir, Edda Heiðrún Backman, Egill Ólafsson, Ellert A. Ingimundarson, Jakob Þór Einarsson, Jón Hjartarson, Karl Guðmundsson, Magn- ús Jónsson, Margrét Ólafsdóttir, Margrét Pálmadóttir, Pétur Ein- arsson, Sigurður Karlsson, Soffía Jakobsdóttir, Sólveig Arnars- dóttir, Theódór Júlíusson, Valgerður Dan, Þór Tuliníus, Þröstur Leo Gunnarsson o.fl. Hljómsveit; Kjartan Óskarsson, Kjartan Valdimarsson, Pétur Grétarsson, Richard Korn, Stefán S. Stefánsson, Vilborg Jóns- dóttir og Óskar Ingólfsson. Frumsýning fös. 7. janúar, uppselt, 2. sýn. sun. 9. janúar, grá kort gilda, uppselt, 3. sýn. mið. 12/1, rauð kort gílda, fáein sæti laus. • RONJA RÆNINGJADÓTTIR e. Astrid Lindgren Sun. 9. janúar kl. 14. • SPANSKFLUGAN e. Arnold og Bach Lau. 8. janúar. Litla svið kl. 20: • ELÍN HELENA e Árna Ibsen Fim. 6. janúar. Lau. 8. janúar. Ath.: Ekki er hægt að hleypa gestum inn i salinn eftir að sýning er hafin. Miðasalan er opin frá kl. 13-20 alla daga nema mánudaga. Tekið á móti miðapöntunum ( síma 680680 kl. 10-12 alla virka daga. Bréfasími 680383. - Greiðslukortaþjónusta. Námskeið um samskipti hjóna FJÖLSKYLDUFRÆÐSLAN heldur námskeið með Eivind Fröen um hjónabandið og samskipti hjóna 6., 7. og 8. jan- úar nk. Námskeiðið verður haldið í safnaðarheimili Breiðholts- kirkju í Mjódd og hefst það kl. 20 og stendur tii kl. 23 hvert kvöld. Aðgangseyrir er 1.500 kr. á mann og eru veit- ingar innifaldar. Skráning er hafín. Eivind Fröen er eftirsóttur norskur fjölskylduráðgjafi og fyrirlesari með mikla reynslu á sviði fjölskyldumála. Hann er kennari að mennt og hefur einnig lagt stund á guðfræði og fjölmiðlun. Námskeið þetta hefur hann unnið í samstarfi við eiginkonu sína, Margreti Kern Fröen, sem er banda- rísk. Fjölskyldufræðslan er stofnun er sett var á fót fyrir nokkrum árum til að sinna fræðslu og námskeiðum um fjölskyldumál. Hún er tengd samtökunum Ungt fólk með hlutverk sem einnig starfræk- ir biblíuskóla og starfsmiðstöð á Eyjólfsstöðum á Fljótdals- héraði. Fjölskyldufræðslan starfar á vettvangi þjóðkirkj- unnar. iÁ LEIKFEL. AKUREYRAR s.96-24073 • GÓÐVERKIN KALLA! Höfundar leikrita, laga og söngtexta: Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason. Sýn. lau. 8. jan. kl. 20.30. Fjölskyldusýning sun. 9. jan. kl. 15. Miöasalan er opin alla virka daga nema mánudaga frá kl. 14-18. Sýningardaga fram að sýningu. Sunnudag frá kl. 13-15. Sími 24073. Símsvari tekur við pöntunum utan opnunartíma. Greiðslukortaþjónusta.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.