Morgunblaðið - 05.01.1994, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 05.01.1994, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 1994 31 Eftir baráttu Norðlendinga og Sunnlendingu um Sikil frá Stóra I Hofi var hann seldur fyrir „slikk“ til Italíu þar sem hann mun auka kyn sitt. fyrir efsta sæti í flokki sex vetra og eldri stóðhesta á fjórðungsmóti ári síðar. Tína má til fleiri dæmi um stjörnuhrap stóðhesta vegna bágrar eða misjafnrar frammistöðu á sýningum nýliðinna ára en þetta ætti að nægja. Færri kynferðislegar fullnægingar Vissulega hafa allir þessar hestar eða öllu heldur eigendur þeirra fengið að gjalda þessa er að ofan getur. Hesturinn fær færri I kynferðislegar fullnægingar og eigandinn tapar í flestum tilfellum verulegum fjármunum og lakari I hryssur eru leiddar undir hestana og gæði afkvæmanna minnka þar með. Nútímahrossarækt er , mannanna verk og vissulega er maðurinn skeikull. Deilt er um dóma á hinum eða þessum hesti og rödd brekkudómaranna endur- speglast í notkun á þeim kynbóta- hestum sem í framboði eru. Á líð- andi stund er það einmitt dómurinn sem gildir. Hátt dæmdir og dýrt seldir stóðhestar hafa setið uppi með sárafáar hryssur eins og til dæmis Reykur frá Hoftúnum sem varð þriðji á fjórðungsmóti ’91 í flokki sex vetra stóðhesta og eldri. Vakti hann feikna athygli fyrir glæsileg tilþrif en fékk aðeins tvær hryssur síðasta sumar annað gang- mál og því leigður til einkaaðila. Ástæðan fyrir áhugaleysinu voru léleg gæði sæðisins sem nú virðast komin í lag að því er niðurstöður nýlegrar rannsóknar herma og því fróðlegt að sjá hverjar vinsældir hans verða í framtíðinni. Eins og vindhanar á hlöðumæni Með þessum miklu sveiflum eru menn beint og óbeint að gera sjálfa sig að fíflum því arfgerð hestanna sem hér hafa verið nefndir og ann- arra sem fram hafa komið á sýning- um breytist ekkert. Þetta eru ná- kvæmlega sömu ættfræðilegu gullklumparnir eða úrhrökin hvort sem þeir eru hafnir til skýjanna fjögra vetra og hrynja svo næsta vor eða árið þar á eftir. Það eru fyrst og fremst skoðanir okkar menningarvitanna sem flökta til eins og vindhanar á hlöðumæni og eftir því mælast gæði stóðhestanna hveiju sinni. Vissulega leiða sýning- ar hrossa eitt og annað í ljós en stundum er því líkast að á horfi svipaður múgur og sat við ljóna- gryfjur Rómveija forðum daga og heimtaði blóð, nýtt ljón og betra fórnarlamb. Það er vonandi að áhugamenn um hrossarækt snúi við á þeirri braut sem þeir virðast á og ígrundi betur mat sitt á ungum folum sem taka nokkur feilspor í sýningu. Vissulega þarf ákveðnar kröfur í ræktunarstarfinu og tilfinn- ingasemin má ekki undir neinum kringumstæðum ráða ríkjum á hvorn veginn sem er. En svona til samlíkingar þarf ekki annað en að líta til tískusýninga í París og spyrja hvort sá fígúruskapur sem þar ríkir eigi eitthvert erindi í ræktun ís- lenska hestsins. Stutt pils í dag og síð pils á morgun er eitthvað sem ekki á heima í verkefni sem árang- ur mælist á áratuga- eða aldafresti. Asi á at- vinnubíl- stjórum HÁTT í 60 þeirra 85 bílstjóra sem fengu áminningu eða voru kærðir vegna hraðaksturs í Reykjavík frá því á morgni gamlársdags fram á mánudags- morgun eru atvinnubílstjórar. Að- sögn lögreglu er hér um óvenju hátt hlutfall að ræða. Á umræddum tíma voru -72 bíl- stjórar kærðir vegna hraðaksturs og 13 fengu skriflega áminningu vegna þess sama. Alls er um að ræða 85 bílstjóra og eru tæplega 60 þeirra atvinnubílstjórar. Einn þeirra var t.d. sviptur ökuleyfi „á staðnum" eftir að hafa verið stað- inn að því að aka á 104 km hraða þar sem hámarkshraði var 50 km á Stekkjarbakka á nýársnótt. Frá hádegi á gamlársdag fram á hádegi á nýársdag voru 25 öku- menn kærðir fyrir of hraðan akst- ur og 7 fengu skriflega áminn- ingu. Aðeins einn ökumaður var kærður fyrir of hraðan akstur á sama tíma í fyrra. Lögregla telur að góð tíð nú um áramótin hafi haft áhrif á þennan mismun. Lögreglan í Reykjavík hafði af- skipti af 11 ökumönnum frá því á gamlársdag fram á mánudag vegna gruns um ölvunarakstur. Þar af var einn aðili að umferðaróhappi. ----♦ ♦ ♦-- Hátt verð á vínberjum HÁTT verð hefur að undan- förnu verið á vínbeijum í versl- unum og stafar það af litlu framboði á góðum beijum og mikilli eftirspurn. Að sögn Eggerts Á. Gíslasonar hjá Mata hf. fer saman í desember mikil eftirspurn eftir góðum vín- beijum vegna jólanna og lítið framboð. Tími evrópskra vínbeija er liðinn og tími vínbeija af suður- hveli jarðar, t.d. Suður-Afríku og Chile, ekki enn kominn að marki. Hann sagði að árstíðabundnar sveiflur væru í framboði á flestöll- um ávöxtum og samhliða þeim verðsveiflur. Hann sagði að núna væri hátt verð á t.d. jarðarbeijum og blábeijum en verð á klementín- um og appelsínum lægra en á sama tíma í fyrra og verð á vín- beijum myndi lækka aftur upp úr miðjum janúar. EGLA • • -ROÐOG REGLA Margir litir margar stærðir. Þessi vinsælu bréfabindi fást í öllum helstu bókaverslunum landsins. Múlalundur Vinnustofa SÍBS Símar: 628450 688420 688459 Fax 28819

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.