Morgunblaðið - 05.01.1994, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 05.01.1994, Blaðsíða 42
42 4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 1994 STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) Það er erfitt að koma öllu í röð og reglu árdegis, en þér tekst það þegar á dag- inn iíður með góðri aðstoð vina. Naut (20. apríl - 20. maí) Þér miðar hægt í vinnunni vegna sífelldra truflana. Þú átt auðveldara með að ein- beita þér þegar truflunum linnir síðdegis. Tvíburar (21. maí - 20. júní) Þér gengur illa að finna réttu lausnina á verkefni í vinnunni þar til þú færð góð ráð hjá vini. Kvöldið verður rómantískt. Krabbi (21. júní - 22. júlí) HiiB Einhver misskilningur get- ur komið upp í vinnunni í dag. En úr rætist og þú ættir að koma miklu í verk síðdegis. Ljón (23. júl! - 22. ágúst) Þér gengur ekki vel að ein- beita þér við vinnuna fyrri hluta dags, en náinn starfs- félagi gefur þér góð ráð. Meyja (23. ágúst - 22. septemberl Farðu gætilega með fjár- muni þína. Þetta verður mikill annadagur, en þér gefst þó tími til að skemmta þér þegar kvöldar. Vog (23. sept. - 22. október) Þér gefst tækifæri til að aðstoða barn sem á við vanda að stríða. Sumir hefj- ast handa við endurbætur á heimilinu. Sporódreki (23. okt. - 21. nóvember) ®)(j0 Dagurinn hentar vel til samninga um fjármálin. Það er tekið tillit til þess sem þú hefur að segja. Ferðalag er framundan. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) & Eftir mikinn undirbúning tekst að koma á vinafundi sem verður mjög ánægju- legur. Fjárhagurinn fer batnandi. Steingeit (22. des. - 19. janúar) m Dagurinn skilar þér góðum árangri í vinnunni og þér berast góðar fréttir langt að. Skemmtu þér vel í kvöld. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) Sy* Taktu ekki mark á sögu- sögnum sem þú heyrir. Þú vinnur að áhugasömu verk- efni en færð tírna til að njóta kvöldsins með ástvini. Fiskar (19. febrúar — 20. mars) Hugsaðu þig vel um áður en þú ákveður meirí háttar fjárfestingu. Þér tekst loks að ljúka erfiðu verkefni og fagnar því í kvöld. Stjörnusþána á aó lesa setn dægradvöl. Sþár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni vísindalegra staðreynda. DÝRAGLENS /\pri n GRETTIK K.L ÓK \' TOMMI OG JENNI LJÓSKA SMÁFÓLK I KN0U) YOU'KE THINKIN6 0F 6RABEIN6 THI5 BLANK6T, ANP DKA66IN6 ME ALL 0VEKTH6 NEI6HB0RM00P Ég veit að þú ert að hugsa um að hrifsa í teppið, og draga mig um allt hverfið. THEREF0RE, IUÚ0ULP 5U66E5T YOU PUT THAT TH0U6HTIN THE DEEPE5T RECE55 0F Y0UR MlNP.. Þess vegna sting ég upp á því að þú stingir þeirri hugsun niður í þín dýpstu hugarfylgsni. BRIDS Umsjón Guðm. Páll Arnarson Fimmta jólaþrautin. Norður gefur; NS á hættu. Norður *7 ¥ ÁD8543 ♦ K82 + D74 Vestur Austur ♦ K108 ... 4» 9742 ¥1076 lllll ¥ G ♦ D1095 ♦ ÁG63 *K83 4Á1095 Suður ♦ ÁD653 ¥ K92 ♦ 74 *G62 Vestur Norður Austur Suður 1 hjarta Pass 1 spaði Pass 2 hjörtu Pass ? Hvað á að segja við 2 hjörtum? Fyrsta hugsunin er að skutlast beint í 4 hjörtu. Það hefði dálkahöf- undur gert áður en hann las fróðlega grein um áskoranir eftir Svíann Andres Wirgren. Ein ábending Wir- grens er á þessa leið: Ef þú ert í vafa um hvort skjóta eigi á geim eða gefa áskorun, kastaðu þá boltan- um til makkers ef hann hefur réttar upplýsingar um spilin þín, en segðu geimið ef fyrri sagnir þínar hafi verið „villandi“. í þessu tilviki segir Wirgren að óhætt sé _að gefa áskor- un, segja 3 hjörtu. Ástæðan er sú að þú átt styrkinn þinn að mestu í spaða og hjarta, þ.e. litunum sem þú hefur sagt. Makker getur þá tek- ið skynsamlega afstöðu á þeim grunni. Hér myndi hann að sjálf- sögðu passa, bæði með lágmark og einspil í spaða. En segjum nú að þú ættir þessa hönd og sagnir gengju eins og ofan er rakið: Norður * ¥ ♦ Vestur 4 Austur * ............. * ¥ * ♦ ♦ ♦ Suður + ♦ 108653 ¥ K93 ♦ D4 ♦ ÁG2 Hér væri mjög villandi að gefa áskorun. Makker myndi telja það jákvætt að eiga til dæmis Dx(x) í spaða og einspil neikvætt. Styrkur þinn liggur í ósögðu litunum, sem er nokkuð sem félagi þinn getur alls ekki vitað. Með svona spil er betra að göslast f geim. NS sögðu 4 hjörtu á hinu borðinu og fór tvo niður. Austur kom út með hjartagosa, sem sagnhafi drap á kóng og spilaði tígli á kóng og ás. Austur spilaði laufás og meira laufi yfir á kóng vesturs. Hann trompaði út og aftur þegar hann komst inn á tfguldrottningu: 200 í AV. Þú færð 140 fyrir að hækka í 3 hjörtu, en gefur út 100 fyrir að segja ijögur. SKAK Umsjón Margeir Pétursson Þrátt fyrir viðskiptabann, óða- verðbólgu og ömurlegt ástand í Serbíu hélt Investbankinn í Belgrad hefðbundið alþjóðaskák- mót sitt í desember. Þessi staða kom upp á mótinu í viðureign Rússans Alexanders Khalifmans (2.660), sem hafði hvítt og átti leik og Grikkjans Vasilios Kotr- onias (2.590). Svartur lék síðast 18. - Hh8-h6 í slæmri stöðu. 19. Rf5! - exf5, 20. Df2 - He6, 21. Hxe6 - Dxe6 (Nú tapar svartur drottningunni, en 21. - fxe6, 22. Bxh5+ - Kd8, 23. Db6 er laglegt og óvænt mát!) 22. Hel - Rf6, 23. Rd5 - Kd7, 24. Hxe6 - fxe6, 25. Rb6+ - Kc7, 26. De3 og skömmu síðar gaf svartur þessa vonlausú baráttu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.