Morgunblaðið - 05.01.1994, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 05.01.1994, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 1994 23 Windows 3.1 • PC grummr Nauðsynlegur undirbúningur fyrir alla sem þurfa að nota PC tölvur. Vandað námskeið sem skilar þér vel á leið. Tölvu- og verkfræðiþjónustan Verkfræðistofa Halldórs Kristjánssonar Grensásvegi 16*stofnuð 1. mars 1986 ® LTtl DAN Við kennum alla sa m kvæmisdansa Suðurameríska, standard og gömlu dansana. Svo kennum við líka barnadansa. Einkatímar fyrir þá sem vilja. Fjölskyldu- og systkinaafslattur. Innritun og upplýsingar 3. - 7. janúar kl. 10-22 í síma 64 1111. Kennsla hefst miðvikudaginn 5. janúar. í lok kennsluannar verður ball fyrir alla nemendurna og grímuball fyrir börnin. Æfingin skapar meistarann Opið hús öll laugardagskvöld. DANSSKÓLI , SIGURÐAR HAK0NARS0NAR AUÐBREKKU 17, KÓPAVOGI Fyrsta úthlutun úr Fræðslusjóði brunamála UTHLUTAÐ var nýlega úr Fræðslusjóði brunamáia í fyrsta skipti. Sjóðurinn var stofnaður með reglugerð félagsmálaráð- herra i mars sl. í samræmi við lög um brunavarnir og brunamál frá árinu 1992. Markmið sjóðsins er að veita slökkviliðsmönnum, eldvarnaeftirlitsmönnum og öðr- um þeim sem vinna að brunamál- um styrki til náms á sviði bruna- mála. í reglugerðinni um sjóðinn segir að veita skuli styrki til framhalds- menntunar, endurmenntunar, rann- sókna og þróunarstarfa vegna brunamála. Þá er stjórn sjóðsins, sem er stjórn Brunamálastofnunar, heimilt að standa fyrir námskeiðum vegna framhalds- og endurmennt- unar í brunavörnum. Stjórn sjóðsins auglýsti í sumar eftir umsóknum um styrki úr sjóðn- um. 33 umsóknir bárust frá ein- staklingum og ein frá hópi slökkvi- liðsmanna. Stjórnin ákvað 2. des- ember sl. að styrkja 7 einstaklinga til náms auk hóps slökkviliðsmanna. Slökkvilið Reykjavíkur fær styrk til að senda fjórtán yfirmenn slökkviliðsins á þjálfunarnámskeið í Svíþjóð. Tveir slökkviliðsmenn fá styrki, Guðmundur Th. Ólafsson til að sækja námskeið fyrir eldvarna- eftirlitsmenn í Bretlandi og Björn Sveinsson til að sækja leiðbeinenda- námskeið fyrir reykkafara í Bret- landi. Halldór Vilhjálmsson þjálfun- arstjóri fær styrk til að sækja nám- skeið í brunarannsóknum í Bret- landi. Siv M. Oscarsson hjúkrunar- fræðingur fær styrk til að sækja námskeið í starfsmannaheilsuvernd Styrkþegar Morgunblaðið/Þorkell HLUTI þeirra sem fengu styrki úr Fræðslusjóði brunamála sem afhentir voru í Brunamálastofnun. í Svíþjóð. Birgir Finnsson, sem stundar nám í brunatæknifræði við tækniháskólann í Lundi, fær styrk til áframhaldandi náms þar, Sig- mundur Eyþórsson fær styrk til náms í slökkviliðsfræðum og bruna- vörnum við Oklahoma State Uni- versity. Svana Helen Björnsdóttir rafmagnsverkfræðingur, f.h. verk- fræðistofunnar Stika, fær styrk til að gera þarfa- og kerfisgreiningu á víðtækju brunavarnakerfi. Kerf- inu er ætlað að vera safn upplýs- inga um brunavarnir og eldsvoða. í því verða geymdar teikningar af byggingum auk tölulegra upþlýs- inga um brunavarnir og eldsvoða. Gert er ráð fyrir að það tengist landsupplýsingakerfi sveitarfélaga og geti Brunamálastofnun, slökkvi- lið og fleiri aðilar sótt þangað upp- lýsirigar auk þess sem það geti ver- ið stjórntæki við björgunarstörf. Sveinspróf í fram- reiðslu og matreiðslu SVEINSPRÓF í framreiðslu og matreiðslu eru haldin 4. og 5. jan- úar 1994 í Hótel- og veitingaskóla íslands að Suðurlandsbraut 2. Framreiðslunemar sýna veislu- borð af ýmsu tilefni og matreiðslu- nemar sýna rétti úr ýmsum hráefn- istegundum, listræna og fagur- skreytta. Sýningin á sveinsprófsverkefn- unum er opin almenningi frá kl. 14 til 15. Metsölublaó á hvetjum degi! Hallarmúla • Kringlunni • Austurstræti úiHiAim UAÚMA ¥ Utsalan byrjar Opnað kl.9 ^ /tái Opið daglega frá kl. 9-18 í dag 5. janúar ,Ýi'P§ ^ tískuverslun /IfW^hf v/Nesveg, Seltjarnarnesi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.