Morgunblaðið - 05.01.1994, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 05.01.1994, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 1994 Erlingur Arnarson sjávarútvegsfræðingur Atvinnulífið tekur okkur opnum örmum ERLINGUR Arnarson, sem fyrstur var brautskráður við athöfnina í gær, sagði í viðtali við Morgunblaðið fyrir fjórum árum þegar hann hóf nám í sjávarútvegsdeild Háskólans á Akureyri, að hann væri viss um að námið yrði erfitt og að lokinni brautskráningu í gær sagði hann, að það hefði staðist, „en þetta er gott nám og á framtíð fyrir sér.“ Erlingur sagði að þeir sem til- heyrðu þessum fyrsta hópi sjávarút- vegsfræðinga sem brautskráðir eru á Islandi væru vissulega frumherjar og margt hefði breyst á þeim árum frá því starfsemi deildarinnar hófst. „Það má segja að atvinnulífið hafi tekið okkur opnum örmum. Við erum Flugeldar lýstu upp byggðina Björk, Mývatnssveit. HÉR í Mývatnssveit var meinhægt veður um hátíðarnar og hreinn og fagur jólasnjór. Svo sem venja hefur verið undanfarin ár plantaði Kiwanisklúbburinn Herðubreið jólatijám við skólana í Reykjahlíð og Skútustöðum. Tendruð voru ljós á þessum tijám fyrir jólin. Fyrstu sjávarútvegsfræðingarnir brautskráðir frá Háskólanum á Akureyri flestir komnir í vinnu og á sumrin höfum við starfað við sjávarútveg," sagði Erlingur. „Ég vil hvetja ungt fólk, sem er að gera upp hug sinn til þess hvaða nám það ætli sér að stunda, að hafa sjávarútvegsdeildina í huga. Ég er afar sæll með að hafa valið mér þetta nám.“ Tveir úr hópnum hafa fengið störf hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, einn hjá Kaupþingi, einn mun stunda rannsóknastörf hjá Háskólanum á Akureyri og einn þeirra hefur fengið starf við vöruþróun hjá Markaðs- og vöruþróunardeild íslenskra sjávaraf- urða. Erlingur sagði að enn væri óráðið hvað hann tæki sér fyrir hend- ur, en hann væri nú að skoða þau atvinnutilboð sem sér hefðu boðist. Morgunblaðið/Rúnar Þór Sjávarútvegsfræðingar VIGNIR Þór Jónsson, Erlingur Arnarson, Jón Hermann Óskarsson og Gunnlaugur Sighvatsson voru þeir fyrstu sem brautskráðir voru sem sjávarútvegsfræðingar frá Háskólanum á Akureyri. Ástmar Þorkelsson og Skarphéðinn Jósepsson gátu ekki verið viðstaddir vegna anna í nýjum störfum. Messað var í báðum kirkjum um jól og áramót og var kirkjusókn góð. Jólatrésskemmtun fyrir börn á veg- um kvenfélagsins var í Skjólbrekku 28. desember, mikill fjöldi barna sótti þessa skemmtun. Áramótabrenna Golfklúbbs Mý- vatnssveitar var á Ytri-Höfða á gamlárskvöld. Einnig var áramóta- brenna í Rauðhólum vestan Álfta- gerðis á miðnætti. Mikið var um flug- eldaskot og blys í ölium regnbogans litum sem lýstu vel upp háfjalla- byggðina hér við Mývatn, enda veður hagstætt. Gleðilegt ár. Kristján -------» .......—- Kristinn H. með tvenna tónleika KRISTINN H. Árnason gítar- leikari heldur tvenna tónleika norðan heiða, þá fyrri í Deigl- unni annað kvöld, fimmtudags- kvöldið 6. janúar, en þeir seinni verða í sal Borgarhólsskóla á Húsavík 7. janúar og hefjast þeir báðir kl. 20.30. Á efnisskránni eru verk eftir Narvaez, Tárrega, Bach, Brouwer, Granados og Barrios. Kristinn lauk burtfararprófi frá Tónskóla Sigursveins D. Kristins- sonar árið 1983 og stundaði fram- haldsnám í Bandaríkjunum, Eng- landi og á Spáni. Árið 1987 var hann valinn úr hópi fjölda umsækj- enda til að sækja síðasta nám- skeiðið sem gítarleikarinn Andres Segovia hélt. Hann hefur haldið tónleika hérlendis og erlendis auk þess sem hann hefur spilað í út- varpi og sjónvarpi. (Fréttatilkynning.) Kristinn H. Árnason ■ BÆNAGANGAN hefst kl. 20 á hveiju kvöldi þessa viku í Hvíta- sunnukirkjunni. Gengið er í kring- um bæinn. Bænarefni: Að sjó- mannaverkfallið leysist fljótt, að atvinnuástandið batni, biðjum fyrir bæjarstjórninni og ráðamönnum og mörgu fleiru. Verum dugleg að mæta og vel búin til göngu. Munið endurskinsmerkin. (Fréttatilkynning.) Um 730 manns voru á atvinnu- leysisskrá áður en starfsfólk ÚA kom inn til skráningar rétt fyrir áramótin, en þar er um að ræða um 250 manns. Ljósi punkturinn í atvinnuleysisskráningunni var í gær sá að starfsfólk Strýtu, um 60 manns, sem verið hafði atvinnu- laust vegna hráefnisskorts, hóf vinnu á ný. Það ræðst síðan af lengd sjómannaverkfallsins hversu lengi starfsfólk ÚA verður á atvinnuleys- isskrá. Um 70% þeirra sem skráðir eru atvinnulausir eru úr Verkalýðsfé- laginu Einingu og þá eru í kringum 100 félagsmenn úr Iðju, félagi verk- smiðjufólks og Félagi verslunar- og skrifstofufólks á atvinnuleysisskrá. 14 þúsund atvinnuleysisdagar Sigrún Björnsdóttir, forstöðu- maður Vinnumiðlunarskrifstofu Akureyrarbæjar, sagði að í desem- ber síðastliðnum hefðu atvinnuleys- isdagar verið rúmlega 14 þúsund, en þó hefði einhver hópur verið að störfum í atvinnuátaki í þeim mán- uði. Áður voru atvinnuleysisdagar flestir í janúar á síðasta ári, rúm- lega 11 þúsund. í árslok 1992 voru tæplega 500 manns -skráðir atvinnulausir á Ak- ureyri og höfðu þá aldrei verið fleiri. Nú ári síðar eru nær helmingi fleiri skráðir atvinnulausir, en þegar áhrifa sjómannaverkfalls hættir að gæta á atvinnuleysisskránni má samt búast við að um 250 fleiri verði á skránni um nýliðin áramót en þau fyrri. Verðum skólanum til sóma Starfssjóður háskólanna stofnaður í tilefni af tímamótunum FYRSTU sjávarútvegsfræðingarnir voru brautskráðir frá Háskólan- um á Akureyri i gær, réttum fjórum árum eftir að starfsemi sjávar- útvegsdeildar skólans hóf starfsemi. „Ykkar bíða krefjandi störf í þeirri atvinnugrein sem enn gerir Island byggilegt,“ sagði Jón Þórð- arson forstöðumaður deildarinnar m.a. í ávarpi til sjávarútvegsfræð- inganna, en megintilgangur deildarinnar er að gefa þeim sem vilja skapa sér framtíð í sjávarútvegi tækifæri til að verða sér úti um verkfæri sem að gagni koma i atvinnugreininni. Starfsmönnum deild- arinnar hefur á tímabilinu fjölgað úr tveimur í tólf. Við athöfn í húsakynnum sjávarút- vegsdeildar á Glerárgötu í tilefni brautskráningarinnar tilkynnti Sveinbjörn Björnsson rektor Háskóla íslands um stofnframlag í samstarfs- sjóð háskólanna sem Háskóli íslands hefði lagt í eina milljón króna. „Há- skóli íslands vill í tilefni þessara tímamóta í uppbyggingu Háskólans á Akureyri ítreka vilja sinn til sam- starfs um kennslu og rannsóknir. Til að styrkja þetta samstarf hefur Háskóli Islands lagt til hliðar eina milljón króna sem stofnframlag í samstarfssjóð háskólanna. Það er von okkar að þessi sjóður auðveldi kennurum og nemendum beggja há- skólanna samskipti og samvinnu sem eflir starf háskólanna og eykur það gagn sem þeir vinna landi og þjóð,“ sagði Sveinbjörn. Halldór Árnason aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra afhenti deild- inni styrk til tölvukaupa við athöfn- ina, en auk þess flutti Stefán Bald- ursson skrifstofustjóri menntamála- ráðuneytis ávarp og kveðjur frá ráð- herra. Svavar Gestsson, sem gegndi stöðu menntamálaráðherra er deildin var stofnuð, ávarpaði samkomuna og fagnaði mjög Jafnréttishjóna- bandi“ háskólanna, en aukið sam- starf þeirra var boðað. Erlingur Arn- arson einn sjávarútvegsfræðinganna sagðist í stuttu ávarpi vera stoltur af því að hafa lokið námi við deild- ina. „Ég vona og veit að við verðum Háskólanum á Akureyri og atvinnu- lífi þjóðarinnar til sóma í framtíð- í máli Jóns Þórðarsonar kom fram að íslenskur sjávarútvegur hefði sér- stöðu samanborið við flest önnur lönd m.a. að því leyti að víðast hvar væri hann flokkaður með landbúnaði og ekki ætlað leiðandi hlutverk. „Við þurfum því að varast að sækja lausn- ir á vanda okkar til annarra þjóða, þær eru ekki þar, við verðum að skapa lausnir miðað við það um- hverfi sem við búum við,“ sagði Jón. Hann sagði einnig að stórauka þyrfti áherslu í öllum greinum sem lúta að matvælaframleiðslu og verslun með matvæli, ekki bara í háskólum heldur þyrfti að hlú að verkmenntun þeirra sem að matvælaframleiðslu störfuðu, en þær greinar hefðu verið hornkerl- ingar í íslensku menntakerfi hingað tii. „Þeirra hefur kannski helst verið getið í skólastofum og á heimilum í hótunarformi, „ef þú stendur þig ekki, fíflið þitt, þá lendirðu í frysti- húsinu“ eða „æltar þú að eyða ævinni í slorinu?“. Þetta viðmót þjóðarinnar hefur mótað viðhorfið til sjávarút- vegsins um of,“ sagði Jón og bætti við að löngu væri orðið tímabært að breyting yrði á, við yrðum að vera stolt af sjávarútvegi og matvæla- framleiðslu og menntakerfið yrði að taka þannig á að þeir bestu gætu hugsað sér að starfa á þessu sviði. Verkmenntaskólinn ó Akureyri býður upp á fjarkennslu um tölvur á vorönn. Kenndir verða áfangarnir enska 102 og enska 212. Kennsla hefst 11. þessa mánaðar og lýkur með prófi í maí. Nánari upplýsingar og skráning á skrifstofu skólans á milli klukkan 8.00 og 15.00 í síma 96-11710. Skólameistari. Fjórtán þúsund atvinnuleysisdagar í desember Um eitt þúsund manns skráðir atvinnulausir UM 1.000 manns eru nú skráðir atvinnulausir á Akureyri og eru um 70% þeirra félagsmenn í Verkalýðsfélaginu Einingu. Hluti hóps- ins býr við tímabundið atvinnuleysi þar sem engin vinnsla er í frysti- húsi Útgerðarfélags Akureyringa, en ef starfsfólk ÚA er undanskil- ið eru samt um 200 fleiri á atvinnuleysisskrá í bænum en var um síðustu áramót þegar atvinnuleysistölur voru hvað hæstar. Á fyrstu dögum janúarmánaðar eru nýskráningar orðnar um 40 talsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.