Morgunblaðið - 05.01.1994, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 05.01.1994, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 1994 HANDKNATTLEIKUR Strákarnir ætla sér til Portúgals - segir Þorbergur Aðalsteinsson, landsliðsliðsþjálfari. Tveir þýðingarmiklir leikir gegn Hvít-Rússum Landsliðið sem lék gegn Króötum í Zagreb á dögunum. Gunnar Beinteinsson, Guðjón Árnason, Dagur Sig- urðsson, Einar Gunnar Sigurðsson, sem er meiddur, Konráð Olav- son, Gústaf Bjarnason, Gunnar Beinteinsson, Valdimar Grímsson, Patrekur Jóhannesson, Bergsveinn Berg- sveinsson, Guðmundur Hrafnkelsson og Geir Sveinsson, fyrirliði. ^„VIÐ gerum okkur fyllilega grein fyrir að Hvít-Rússar eru með geysilega sterkt lið og verða erfiðir viðureignar. Strákarnir eru tilbúnir að leggja mikið á sig til að kom- ast til Portúgals — og þeir sætta sig ekki við ósigur," sagði Þorbergur Aðalsteins- son, landsliðsþjálfari íhand- knattleik. íslenska landsliðið leikur tvo þýðingarmestu landsleiki sína í áraraðir í Reykjavík, mætir liði Hvít- Rússlands í Laugardalshöll- inni á föstudags- og sunnu- dagskvöld í Evrópukeppni landsliða. íslenska liðið verð- ur að vinna báða leikina til að eiga möguleika á að taka þátt í lokakeppni EM í Portúgal í sumar. Morgunblaðið/Sigmundur Ó. Steinarsson Róðurinn verður erfíður. Til að árangur náist verður_ leikur okkar að ganga vel upp. Ég veit að handknattleiksunnendur, sem lengi hafa beðið eftir alvöruleikj- um — gera sér grein fyrir þýðingu leikjanna; og þeir vita að þeir ráða úrslitum," sagði Þorbergur, sem - hefur stjórnað æfíngum landsliðs- ins tvisvar á dag að undanförnu. „Strákarnir eru ákveðnir að gera sitt besta og þeir hafa unnið heimavinnuna sína vel. Við höfum kortlagt leikmenn Hvít-Rússa, sem eru með mikla skotmenn og fremstur þar í flokki er Mikhail Jakimovitch. Við komum því með að fara vel út á móti þeim og leika fímm einn vörn til að byija með, en höfum síðan flata vörn í bak- höndinni. Markverðir okkar hafa spáð mikið í skotmenn Hvít-Rússa — horft á leik þeirra gegn Króötum á myndbandi og síðan komum við til með að sjá myndband frá leik Finna og Hvít-Rússa, sem fór fram í Helsinki á dögunum. Hvít-Rússar unnu þá 26:29 á lokasprettinum, eftir að staðan hafi verið jöfn (12:12) í leikhléi.“ „Verðum að leika yfir- vegaðan sóknarleik" „Við þurfum að leika sterkan varnarleik, þannig að markverðir okkar geti verið vel á verði. Þá verður sóknarleikur okkar að vera vel skipulagður og yfirvegaður. Hvít-Rússar eru fljótir og þeir koma til með að þakka fyrir hver mistök okkar í sókn, með hrað- aupphlaupum, sem er eitt þeirra sterkasta vopn ásamt nánast — -fijálsum sóknarleik og öflugum skyttum," sagði Þorbergur. Einn línumaður notaður? „Það er góð stemmning í lands- liðshópnum. Ég mun ekki tilkynna hvaða ellefu leikmenn byiji leikinn — fyrr en eftir æfingu á fimmtu- daginn. Nokkrir leikmenn eiga við smámeiðsli að stríða, en þeir verða orðnir góðir. Héðinn Gilsson er að ná sér á strik eftir axlarmeiðslin,“ sagði Þorbergur, en leikmanna- hópur hans er þannig skipaður: Markverðir: Bergsveinn Berg- sveinsson, FH, Guðmundur Hrafn- kelsson, Val, Sigmar Þröstur Osk- arsson, KA. Hornamenn: Gunnar Bein- teinsson, FH, Konráð Olavson, Stjörnunni, Valdimar Grímsson, KA. Línumenn: Geir Sveinsson, Avedisa, Gústaf Bjarnason, Sel- fossi og Hálfdán Þórðarson, FH. Utileikmenn: Dagur Sigurðs- son, Val, Guðjón Arnason, FH, Héðinn Gilsson, Dússledorf, Jón Kristjánsson, Val, Júlíus Jónasson, Avidesa, Ólafur Stefánsson, Val, Patrekur Jóhannesson, Stjörnunni og Sigurður Sveinsson, Selfossi. Miklar líkur eru á því að Þor- bergur tefli aðeins fram einum línumanni, Geir Sveinssyni, þannig að hann hafi úr fleiri leikmönnum að velja í aðrar stöður. Sigurður Sveinsson leikur sína fyrstu lands- leiki frá því í heimsmeistarakeppn- inni í Svíþjóð í fyrra. Forsala aðgöngumiða á leikina hefst í hádeginu í dag í Kringlu- sporti og Sporthúsinu, Laugar- vegi. Miðasala hefst í Laugardals- höll kl. 17 báða keppnisdagana, en leikirnir hefjast kl. 20.20. C1 HAHDKHATTLEIKSSflMBAHD ISLANDS ÍÞRÓTTAMIDSTðlHNHI, LA06ARDAL, 114 REYKJAVÍK Þeir, sem telja sig eiga rétt á miðum á landsleiki íslands og Hvíta-Rússlands, er fram fara í Laugardalshöll dagana 7. og 9. janúar 1994, vinsamlegast vitji þeirra á skrifstofu Handknattleikssam- bandsins föstudaginn 7. janúar milli kl. 14.00 og 16.00. Handknattleikssamband íslands. Heimsmeistarakeppnin á íslandi 1995 Utvarpsstjóri boðar CWL á samningafund Heimir Steinsson, útvarps- stjóri Ríkisútvarpsins, sendi í gær svissneska fyrirtækinu CWL bréf, þar sem hann boðar fulltrúa þess á formlegan samn- ingafund í Reykjavík í næstu viku vegna sjónvarpsútsendinga frá heimsmeistarakeppninni í handknattleik á íslandi á næsta ári. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu í gær fór Alþjóða hand- knattleikssambandið, IHF, fram á að samningum um sjónvarps- sendingar yrði lokið fyrir næstu mánaðarmót, en ef það tækist ekki áskildi það sér rétt til að íhuga annan keppnisstað. IHF seldi einkaréttinn á sjónvarpsút- sendingum frá keppninni til CWL, en fyrirtækið hafði ekki svarað boðum um samningavið- ræður. Fram kom í samtali við Hákon Gunnarsson, fram- kvæmdastjóra framkvæmda- nefndar HM á íslandi, að CWL væri að bíða eftir formlegu boði útvarpsstjóra og var talið að það yrði sent í dag eins og raunin varð á. Málið snýst um hver eigi að bera kostnað af útsendingunum héðan og er, samkvæmt heimild- um Morgunblaðsins, á mjög við- kvæmu stigi vegna þess hvað naumur tími er til stefnu. Afrit af bréfínu var m.a. sent til IHF pg framkvæmdanefndar HM á íslandi og sagði Hákon stórt skref stigið. „Ég er mjög ánægður með síðustu viðbrögð og er ennþá vongóður um að málið fái far- sæla lausn." SKIÐI Ein besta ganga mín - sagði Daníel Jakobsson sem náði 26. besta tímanum á sænska meistaramótinu DANÍEL Jakobsson skíðagöngu- maður náði 26. besta tímanum af 150 keppendum í 15 km göngu með frjálsri aðferð á sænska meistaramótinu sem fram fór um síðustu helgi. „Þetta er ein besta gangan mín frá upphafi og sýnir að ég er á réttri leið. Ég var óheppinn — datt rétt áður en ég kom í mark- ið og missti við það eina tíu keppendur framúr mér,“ sagði Daníel. Keppnin var hluti af sænska meistaramótinu og var keppt í svokölluðu veiðistarti. Fyrri daginn var keppt í 10 km göngu með hefð- bundinni aðferð og síðari daginn í 15 km göngu með fijálsri aðferð og ræst út eftir frammistöðu fyrri dag- inn. Daníel sagði að sér hefði gegnið illa fyrri daginn. „Ég tók áhættu með smurningu, sem gekk ekki upp,“ sagði Daníel sem varð í 44. sæti. Sigurvegari í báðum göngunum var Jan Ottoson, sem var með 40 sekúndna forskot á næsta mann eft- ir fyrri daginn. Hann kom fyrstur í mark í 15 km göngunni síðari daginn en Torgny Mogren varð annar. Daní- el var um tvær mínútur á eftir Otto- son síðari daginn og gefur það hon- um um 40 alþjóðleg styrkleikastig (FlS-stig), en íslenska ólympíulág- markið er 85 FlS-stig. „Ég er mjög ánægður með síðari daginn." Rögnvaldur Ingþórsson frá Ak- ureyri og Ólafsfirðingamir, Sigurgeir Svavarsson og Ólafur Björnsson, kepptu í 10 km göngu með hefðbund- inni aðferð í ólympíubrautinni í Lille- hammer í Noregi á sunnudaginn. Rögnvaldur náði bestum árangri þeirra, hafnaði í 101. sæti af 148 keppendum. Hann var 4,20 mín. á eftir sigurvegaranum, Vegard Ul- vang frá Noregi, og fékk fyrir það um 100 FlS-stig. Sigurgeir varð í 109. sæti, 20 sek. á eftir Rögnvaldi og Ólafur í 138. sæti. „Ég var ekki ánægður með þessa göngu. Ég þarf að gera betur en þetta,“ sagði Rögn- valdur. „Ég stefni á að ná lágmarki fyrir Óiympíuleikana (85 FlS-stig) og ég veit að ég get það.“ Daníel, Sigurgeir og Rögnvaldur keppa í dag í 30 km göngu með hefðbundinni aðferð og er gangan hluti af sænska meistaramótinu. KARFA / NBA LétthjáUtah Leikmenn Utah Jazz áttu ekki í nokkrum erfíðleikum þegar þeir tóku á móti Dallas Mavericks í NBA- deildinni í fyrrinótt. Heimamenn sigr- uðu 115:85 og var Tom Chambers stigahæstur með 20 stig en Karl Malone gerði 19 í jöfnu liði Utah. Hjá gestunum var Jim Jackson stiga- hæstur með 23 stig og Jamal Mas- hburn gerði 20. Sigurinn þarf ekki að koma á óvart því Dallas hefur tapað 22 af síðustu 23 leikjum sínum í vetur og hefur gengið verst allra liða, aðeins unnið tvívegis í 28 leikjum. Utah hefur hins vegar unnið í níu af síðustu tíu leikj- um. FELAGSLIF Herrakvöld FH Herrakvöld FH verður í Kænunni, föstudag- inn 7. janúar kl. 20. Veislustjóri verður Guðmundur Ámi Stefánsson, r-áðherra. For- sala aðgöngumiða verður í Sjónarhóli, Kaplakrika. Aðatfundur hjá knattspymukonum Aðalfundur Hagsmunasamtaka knatt- spyrnukvenna verður haldinn [ íþróttahúsi Austurbergs laugardaginn 8. janúar og hefst kl. 17.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.