Morgunblaðið - 27.04.1994, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 27.04.1994, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1994 11 Svaviola I Norræna húsinu Tónlist Ragnar Björnsson Svaviola mun samansett úr Svava og víola og þá er átt við Svövu Bemharðsdóttur og víóluna hennar. Spurningin er svo hvort þetta sé skemmtilegasta samsetn- ingin og freistingin leiðir mann út í leik barnanna í gamla daga og barnanna í dag, þ.e. að leika sér með margskonar samsetningu orð- anna, savíóla, svala, síóla, svíólá, sóla sem með einu skástriki gæti orðið 8-óla. Vitanlega kemur þetta ekkert leik Svövu Bernharðsdóttur við, né heldur Kristins Arnar Krist- inssonar píanóleikara, né heldur óbóleik Matei Sarc, er aðeins gam- all og nýr dálítið skemmtilegur leik- ur. Svava og Kristinn byrjuðu tón- leikana á Arpeggionesónötu Fr. Schuberts í a-moll, sem kannske er meira þekkt sem sónata fyrir selló og píanó heldur en víólu og píanó. Þó saknaði maður ekki sellósins í leik Svövu, hún hefur sérlega fallegan tón, gott tónöryggi og söng í hveiju spori og „himnesk lengd“ Schuberts varð aldrei lang- dregin í höndunum á Svövu. Deila má um hvort fyrsta þáttinn hefði klætt betur örlítið hraðara tempó, hvort Adagio-þátturinn hefði þolað örlítið meira adagio, Allegretto- þátturinn hefði þolað örlítið léttari dansspor. En þetta eru atriði sem víst lengi má deila um. Step-by- step er stuttur og skemmtilegur þáttur, saminn fyrir víóluna hennar Svövu og þar var Svava.á heima- slóðum. Ch. M. Loeffler var eins- konar farfugl í tónlistinni, fæddist í Elsass, ólst upp í Rússlandi, Ung- veijalandi, Sviss, vann ma. í Þýska- landi og taldist amerískur, átti á tónleikum tríó í tveim þáttum sem hann kallar Tjömina og sekkja-píp- una. Tríóið bar áberandi vitni þessa „alþjóðlega" tónskálds án þess að vera slæm né leiðinleg tónsmíð. Nú bættist við óbóleikarinn Matej Sarc, eiginmaður Svövu, en sá er afbragðs óbóleikari, hefur algjört vald yfir hljóðfærinu alit frá veik- asta pp, og væri trúandi til að standast kröfur Bruckners sem skrifaði „eins veikt og hægt er“ og nokkru síðar „ennþá veikar". Lokaverk tónleikanna var eftir C.M.V. Weger, Andante e Rondo ungarese fyrir víólu og píanó þar sem margt var mjög fallega gert, en kannske óþarflega hlédrægt. Kristinn Örn er mjög góður „kam- mermúsíker" og óþarfi er af honum að fela sig um of á bak við önnur hljóðfæri. En þetta vom fallegir tónleikar og söngurinn hennar Svövu mun lengi syngja í manni og víst er rétt sem einn tónleika- gestur sagði á útleið. „Maður fer betri manneskja af svona tónleik- um.“ Kórarnir sungu nokkur lög saman. Morgunblaðið/Silli Húsavík ÍBÚÐ SÝND í DAG! ÁLFHOLT 12 - HAFNARF. - LÆKKAÐ VERÐ NÝ OG FULLBÚIN, VÖNDUÐ ÍBÚÐ 100 fm, 3ja herb. íbúð á 1. hæð. íbúðin er rúmgóð og vönd- uð i alla staði. Parket og flísar á gólfum. AEG-tæki í eld- húsi. Sólstofa. Sérþvottahús. Verð aðeins 7.990 þúsund. Sölumaður okkar verður á staðnum kl. 17.00 í dag Til sölu 165 fm í Salthömrum 22 Einbýlishús á einni hæð, 140 fm íb. 25 fm bílsk. Gott útsýni. Húsið er rúmlega fokhelt. Upplýsingar í síma 672038 eftir kl. 19.00. * 5 herb. íbúð í Hafnarfirði Nýkomin til sölu falleg 5 herb. íbúð 105 fm á efri hæð í tvíbýlishúsi við Háukinn, byggt 1954. Mikið geymslu- pláss. Suðursvalir. Eignin er í ágætu ástandi. Laus strax. Árni Gunnlaugsson hrl., Austurgötu 10, sími 50764. 911 91 97fl L^RUS Þ' VALDIMARSSON framkvæmdastjóri L I IQvBklO/U KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. löggiltur fasteignasali Ný á fasteignmarkaðnum m.a. eigna: Ný og glæsileg í lyftuhúsi Við Vallarás á 5. hæð 3ja herb. íbúð 82,5 fm. Parket. Sólsvalir. Þarfn- ast nokkurrar viðgerðar. 40 ára húsnæðislán um kr. 5,1 millj. Fyrir smið eða laghentan Lítið endaraðhús við Réttarholtsveg. Forstofa, eldhús og stofa á hæð. 3 herb. og bað á efri hæð. Þvottahús og rúmgóð geymsla í kjallara. Þarfnast nokkurrar endurnýjunar. Skipti æskileg á 2ja-3ja herb. íbúð í nágrenninu. Góð eign - hagkvæm makaskipti Steinhús ein hæð 165 fm auk bílskúrs 23,3 fm. Vel byggt og vel með farið. 5 svefnherb. Stendur á glæsil. lóð á vinsælum stað í Vogunum. Ýmiskonar skipti á minni eign. Heimsókn Kirkjukórs Yíðistaðakirkju Húsavík. KIRKJUKÓR Víðistaðakirkju í Hafnarfirði heimsótti Húsavíkursöfn- uð um síðustu helgi og hélt þar tónleika og söng við messu í Húsa- víkurkirkju fyrir skömmu. Aðkomukórinn og kirkjukór stað- arins héldu sameiginlega söng- skemmtun undir stjórn þeirra Ul- riks Ólasonar og Roberts Faulkner við undirleik Juliet Faulkner organ- ista og trompetleikarans Önnu Lilju Klarsdóttur. Þar skiptust kórarnir á að syngja og sungu síðan sameig- inlega og fylltu kirkjuna tónaflóði sem ekki mun strax gleymast þeim sem til heyrðu. Einsöngvari var Sigurður Skagfjörð Steingrímsson, raddsterkur og áheyrilegur. Einnig sungu þeir Sigurður og heimamað- urinn Baldur Baldvinsson tvísöng. Þetta var viðburður sem vert er að endurtaki sig að kirkjukórar heimsæki hvorir aðra og helst ætti viðkomandi prestur að vera með í för og predika. Húsvíkingar þakka aðkomufólkinu fyrir þetta mikla framtak og vona að þetta verði öðrum kórum til eftirbreytni. - Fréttaritari. HEIMSFERÐIR Þú svalar lestrarþörf dagsins ásíöum Moggans! °r m. 3. - 5. júní Frá föstudagsmo Einstakt tækifæri til að nj Beint flug til Parísar á föi sunnudagskvöldi. Aðeins Bókaðu meðan enn er laust. nudagskvölds i þessari hcillandi borg. komið tii baka á ði. 19.900 5.700 me5 morgunmat. atlar kr. 3.200. Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 624600 ________! ! ,/■ ----Uiííi UQJ I--------- EIGNAHÖLLIN FASTEIGNASALA Suðurlandsbraut 20 Sími 680057 Faxnúmer 680443. Opið kl. 9-18 virka daga REYÐARKVÍSL 270 fm raðhús með risi á sólríkum og góðum stað. Vandaöar innr. Suðvestur- stofa með arni, parket o.fl. Ath. verð 15,5 millj. SPORÐAGRUNN 268 fm parh. á fráb. stað m. fráb. út- sýni. í húsinu eru 3 íb. Skipti mögul. á íb. í fjölb. m. lyftu eða á 1. hæð. KELDULAND Falleg 4ra herb. íb. á 2. hæð í fjölbhúsi v. Kelduland, Laus strax. Verð 8,3 millj. í VESTURBÆNUM Skemmtil. 69 fm íb. á 2. hæð í fjölb- húsi. Góðar innr. Skipti mögul. Laus strax. VALLARÁS Falleg 2ja herb. ib. v. Vallarás. Hagst. lán. GRUNDARSTÍGUR 2ja herb. íb. á góðum stað v. Grundar- stíg. Gömul veðdlán áhv. Hagst. verð. Vantar allar tegundir eigna á skrá Það kostar ekkert að hafa samband Slgurður Wilum, sölumaður. Við Grensásveg eða nágrenni Rúmgóð 3ja-4ra herb. íbúð óskast fyrir traustan kaupanda. Má þarfn- ast endurbóta. • • • Viðskiptum hjá okkur fylgir ráðgjöf og traustar upplýsingar. AIMENNA FASTEIGHASAIAH LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370 FASTEIGNA & SKIPASALA BÆJARHRAUNI 22 HAFNARFIRÐI* SÍMI 65 45 11 Sími 654511. Fax 653270 Magnús Emilsson, löggiltur fasteigna- og skipasali. Helgi Jón Harðarson, Ævar Gíslason, Haraldur Gíslason, sölumaður skipa. Anna Vala Arnardóttir, Anna S. Ólafsdóttir. Nýtt í sölu Kelduhvammur - sérh. Ny- komin mjög falleg 117,5 fm sérh. í ný- viðg. þríb. auk bílsk. Útsýni. Allt sér. Suðursv. Áhv. húsbr. ca 6,0 millj. Verð 9,6 millj. Fagrakinn - sérh. Nýkomin i einkasölu mjög falleg 104 fm efri sór- hæð í góðu tvíb. auk 28 fm bílsk. Ról. og góð staðsetn. Allt sór. Útsýni. Vorð 9,3 millj. Hvammabraut - „pent- hoUSe“. í oinkasölu mjög skemmtil. 126 fm hæð og ris í nýl. fjölb. Stórar suðursv. Bílskýli. Áhv. húsnlán til 40 ára ca 5,0 millj. Verð 8,5 millj. Lyngbarð - Hf. - einb. Nýkom- . ið í einkasölu mjög fallegt tvfl. 180 fm einbýli vel staðsett innst í botnlanga auk tvöf. bílsk. Fullb. eign. V. 14,9 m. Hafnarfjörður - einbýli. Ný- komið mjög fallegt og mikiö endurn. þrílyft einb. ca 120 fm. 4 svefnherb. Verð 8,7 millj. Fagrakinn - 3ja-4ra. Nýkomið mjög snyrtil. ca 75 fm risíb. í góðu tvíb. Útsýni. Hús nýklætt að utan. Parket. Hagst. langtlón ca 3,2 m. Verð 6,5 m. Neðstaleiti - 4ra. i einkasöiu glæsil. ca 120 fm íb. á 2. hæð í nýl. fjölb. Eign í sórfl. Bílskýli. Verð 10,8 m. Háholt - Hf. Sérl. falleg ca 100 fm íb. á 1. hæö i nýl. fjölb. Sérinng. Allt sér. Áhv. húsbr. ca 5,0 m. Verð 8,3 m. Hlíðarbraut - sérh. Nýkomin i einkasölu sórl. falleg ca 120 fm neðri sérhæð í nýl. tvíb. Mjög fallegur garð- ur. Verð 9,9 millj. Lindarhvammur - Hf. Mjög fai- leg og rúmg. ca 80 fm risib. i góðu þríb. Fráb. útsýni. Verð 5,8 millj. Móabarð - Hf. - sérh. Mjög falleg og rúmg. sérhæð m. bílskúr sam- tals ca 160 fm. Eign í góðu standi. Hagst. lán. Langamýri - 3ja - m. bílsk. Glæsil. ca 90 fm íb. á 1. hæð í nýl. fjölb. auk bilsk. Sórinng. Endaíbúð, fulib. í sórfl. Vesturbær - KÓp. Glæsil. einlyft einb. 165 fm auk 40 fm bílsk. Sér vel umgengið, snyrtil. nýl. hús. Fallegur garður og útsýni. Verð 15,4 mlllj. Vogar - Vatnsleysuströnd. Sórl. fallegt 76 fm 3ja herb. endaraðh. v. Heiðargerði. Nýtt hús, að mestu fullb. Ahv. 3,6 millj. Verð 5,4 millj.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.