Morgunblaðið - 27.04.1994, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 27.04.1994, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. APRIL 1994 Framkvæmdir við fyrsta áfanga endurbyggingar Sundlaugar Akureyrar hafnar Rennibrautir, eimbað og nýtt sólbaðssvæði FRAMKVÆMDIR við fyrsta áfanga endurbyggingar við Sundlaug Akureyrar eru nýlega liafnar en áætlað er að þeim verði lokið fyr- ir þjóðhátíð, 17. júní. Kostnaður við þennan áfanga er um 55 milljón- ir króna. Morgunblaðið/Rúnar Þór Hagkvæm og ódýr lausn MIKLAR framkvæmdir eru við Sundlaug Akureyrar en þær munu ekki koma í veg fyrir að gestir geti baðið sig í heitum potti. Verið er að setja upp gám við laugarbakkann sem gegna mun hlutverki heita pottsins fram að þjóðhátíð þegar verkinu verður lokið. Sigurður Guðmundsson, for- stöðumaður Sundlaugar Akur- eyrar, sagði að í þessum fyrsta áfanga framkvæmdanna yrðu heitu pottarnir endurbyggðir m.a. verða þeir flísalagðir og byggt verður eimbað á milli þeirra. Nýtt sólbaðs- svæði verður gert vestan núverandi svæðis og settar verða upp renni- brautir. Samhliða brun Rennibrautirnar verða þar sem sólbaðssvæðið er nú og er önnur þeirra 55 metra löng og yfirbyggð. Hin er 11 metra löng og þriggja metra breið þannig að fleiri en einn geta rennt sér þar í einu og sagði Sigurður að hana yrði t.d. hægt að nota til keppni í samhliða bruni. Tvö akureyrsk fyrirtæki munu gera tilraun með nýja framleiðslu í tengslum við endurbyggingu laugarinnar, nýtt mjúkt gúmmíefni frá Sjöfn verður sett í lendingar- og barnalaugar og þá verður lituð- um gúmmímottum frá Gúmmí- vinnslunni komið þar fyrir. Þó að sundlaugin taki stakka- skiptum á næstu viku verður henni ekki lokað nema rétt á meðan ver- ið er að mála hana. Það verður gert í lok maí og verður þá lokað í 2-3 daga. Stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar kynnt Fasteignagjöld verða lækkuð til að styrkja byggingariðnað Miðstöð fólks í atvinnuleit Ferðatil- boðkynnt FERÐAMÁL og ýmis ferðatilboð verða til umfjöllunar í máli og myndum í Miðstöð fólks í atvinnu- leit í Safnaðarheimili Akureyrar- kirkju í dag, miðvikudag, frá kl. 15.00 til 18.00. Sævar Frimannsson fulltrúi í ferðanefnd ASÍ kynnir samninga sem gerðir hafa verið fyrir hönd fé- lagsmanna innan ASÍ og fleiri sam- taka við ýmsa þjónustuaðila á sviði ferðamála. Hér er fyrst og fremst um að ræða hagstæð kjör á ferðum, gistingu og fæði innanlands en einn- ig hafa verið gerðir samningar um afsláttarfargjöld á ferðum erlendis. Þá mun Ingvar Teitsson læknir kynna störf Ferðafélags Akureyrar og sýna litskyggnur frá starfínu og frá ýmsum áhugaverðum stöðum. ---------------- Kynning á þróunarsetri Ytri-Tjörnum, Eyjafjarðarsveit. ÞRÓUNARSETRIÐ að Ytra- Laugalandi stendur fyrir opnu húsi næstkomandi laugardag, 30. april, kl. 13.30. Þar fer fram kynning á starfsemi þess og sýning á ýmiss konar hand- verki. I smíðastofunni verða sýndir útskomir munir af nýloknu útskurð- amámskeiði og fleiri smíðisgripir. í vefstofunni verða vefarar að störfum og sýna þeir handverk sitt. - Benjamín „VIÐ ERUM þess fullviss að við höfum unnið gott verk við erfiðar aðstæður á síðasta kjörtímabili. Við sjáum ýmis batamerki á lofti sem við viljum nýta til nýrrar sóknar og munum beita öllum til- tækum ráðum til uppbyggingar atvinnulífs en við stefnum að því að mynda meirihluta í bæjarstjórn eftir kosningar," sagði Sigurður J. Sigurðsson forseti bæjarstjórn- ar og efsti maður á lista Sjálfstæð- isflokksins þegar frambjóðendur kynntu stefnuskrá flokksins fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í maí. Hvað skipulags- og byggingamál •varðar kemur fram í stefnuskránni að sjálfstæðismenn ætla að ljúka gerð Borgarbrautar yfir Glerá og tengingu við Dalsbraut á næstu tveimur árum en með því skapast betri tenging Giljahverfis við miðbæ- inn. Þá er stefnt að því að ljúka skipu- lagi Naustasvæðisins sunnan núver- andi byggðar á næstu tveimur árum og að koma í framkvæmd göngu- og hjólreiðaskipulagi í bænum. Nýtt tjaldsvæði verði tekið í notkun á næsta kjörtímabili og lóðaleiga og fasteignagjöld af nýjum lóðum verði lækkað til að styrkja byggingastarf- semi í bænum eru einnig á meðal stefnumála. Sorphaugum í Glerárdal verði lokað í umhverfismálum er m.a. stefnt að áframhaldandi vinnu við end- urnýjun fráveitukerfis bæjarins þannig að allt skólp verði leitt út fyrir Glerárósa en með því verður Pollurinn hreinni og nýtist betur til siglinga og vatnaíþrótta. Á kjörtíma- bilinu vilja sjálfstæðismenn að fund- inn verði framtíðarurðunarstaður fyrir sorp og núverandi sorphaugum á Gierárdal verði lokað en þannig verður Glerárdalurinn enn öflugra útivistarsvæði. Þá vilja þeir að Krossaneshaginn verði gerður að Alls eiga 16 ljósmyndarar tæplega 80 myndir á sýningunni og er þeim skipt í sjö efnisflokka. Þetta er fjórða árið í röð sem slík sýning og sam- keppni er haldin og í þriðja sinn sem sýningin er einnig sett upp á Akur- eyri. Sýningarnar hafa hlotið verð- skuldaða athygli enda koma þar fram á skemmtilegan hátt sérkenni lands og þjóðar. Einnig má fullyrða að bestu myndirnar standist vel saman- burð við það besta sem gert er erlend- útivistarsvæði. í stefnuskránni kemur fram að framkvæmdir við Sundlaug Akur- eyrar verði forgangsverkefni í íþróttamálum og að þeim ljúki á kjör- tímabilinu._ Þá vilja þeir fylgja eftir ákvörðun ÍSÍ um að gera Akureyri að miðstöð vetraríþrótta á íslandi og einnig að Iþróttaskemman verði áfram nýtt sem íþróttahús næstu árin. Það er Áhugaljósmyndaraklúbbur Akureyrar sem stendur fyrir því að fá sýninguna norður í samvinnu við Blaðamannafélagið og Blaðaljós- myndarafélagið. Sýningin verður í Blómahúsinu við Hafnarstræti og verður hún opin frá kl. 13.00-21.00 frá fimmtudeginum 28. apríl til sunnudagsins 1. maí. Vakin er athygli á því að sýningin verður einungis opin þessa fjóra daga. Aðgangseyrir er 200 krónur. (Fréttatilkynning.) Fyrirlestur HÁSKÓUINN A AKUREYRi Tími: Laugardagurinn 30. apríl 1994 kl. 14.00. Staður: Háskólinn á Akureyri, Þingvallastræti 23, stofa 24. Flytjandi: Prófessor Helga Kress. Efni: „Oft stendur illt af tali kvenna." Um tungumál, kynferði og vald f forníslenskum bókmenntum. Öllum er heimill aðgangur. Til sölu á Akureyri - raðhúsið Borgarhlíð 6C - samtals 226 fm. Húsið er á fjórum pöllum - 5 rúmgóð svefnherbergi, sjón- varps- eða vinnuherbergi, stofa og stórt eldhús. Góður bílskúr. Einstakt útsýni. Skipti á eign í Reykjavík koma til greina. Upplýsingar hjá Fasteigna- og skipasölu Norðurlands, sími 96-11500. 1S. Vortónleikar KARLAKÓR Akureyrar-Geysir hélt árlega vortónleika sína á sunnudagskvöldið, þá fyrri af tveimur en tónleikar með sömu söngskrá verða í Akureyrarkirkju annað kvöld, miðvikudagskvöldið 27. apríl kl. 20.30. Á söngskránni eru 20 lög eftir innienda og erlenda höfunda og verður m.a. flutt lag Jóhanns Ó. Halldórssonar Land míns föður sem samið var í tilefni lýðveldisstofnunarinnar 1944. Stjórnandi kórsins er Roar Kvam og undirleikari Richard J. Simm. Sýningin Blaðaljós- myndir 1 Blómahúsinu SÝNINGIN „Blaðaljósmyndir 1993“, úrval úr verkum íslenskra blaða- yósmyndara, verður opnuð I Blómahúsinu á Akureyri á morgun, fimmtudaginn 28. apríl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.