Morgunblaðið - 27.04.1994, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 27.04.1994, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. APRIL 1994 VIÐSKIPn AIVINNULÍF Húsbréf Avöxtunarkrafan 5,02% og hefur ekki verið lægri Viðskipti með húsbréf á Verðbréfaþingi milljarði meiri það sem af er þessu ári en allt árið í fyrra ÁVÖXTUNARKRAFA húsbréfa var komin niður í 5,02% við lok við- skipta á Verðbréfaþingi íslands í gær og hefur aldrei áður orðið jafn- lág frá því húsbréfakerfið var sett á laggirnar síðla árs 1989. Ávöxtun- arkrafa spariskírteina var 4,84% við lok þingsins. Velta húsbréfa á Verðbréfaþingi það sem af er þessu ári er orðin tæplega einum millj- arði meiri en hún var allt árið í fyrra. Ávöxtunarkrafan hefur fari jafnt og þétt lækkandi frá því um miðjan mánuðinn, er Davíð Oddsson forsæt- isráðherra lýsti því yfir í grein í Morgunblaðinu að grundvöllur væri fyrir frekari lækkun raunvaxta en HAGNAÐUR Boeing-flugvéla- verksmiðjanna minnkaði á fyrsta ársfjórðungi vegna hægari af- greiðslu flugvéla til félaga, sem berjast í bökkum, að sögn félags- ins. Hagnaðurinn minnkaði í 292 milljónir dollara, eða í 86 cent á hlutabréf, úr 325 milljónum dollara, eða 96 centum, fyrir ári. Lægri íj árfe st i ngarte kj u r og fram væru komnar í kjölfar aðgerða stjórnvalda í lok október á síðasta ári. Ávöxtunarkrafa húsbréfa var þá 5,20% og hafði verið það um nokk- urt skeið. Strax í kjölfarið lækkaði krafan í 5,13% og ávöxtunarkrafa á aukinn vaxtakostnaður áttu einnig þátt í minni hagnaði, en lægri rann- sóknar- og þróunarkostnaður bætti það upp að nokkru. Boeing-verksmiðjurnar afhentu alls 82 áætlunarþotur á fyrsta árs- fjórðungi miðað við 93 á sama tíma í fyrra. Áætlað er að á öllu árinu 1994 verði alls afhentar 260 flug- vélar að verðmæti um 21 milljarður dollara. nýjasta flokki spariskírteina í 4,90%. Síðan hefur krafan lækkað jafnt og þétt. Hún var til dæmis 5,06% á föstudaginn og 5,04% á mánudag. Áður hafði ávöxtunarkrafan lægst orðið 5,08% í febrúarmánuði. Ávöxt- unarkrafan á spariskírteinum var 4,88% fyrir viku en lækkaði í 4,75% á föstudag og var síðan 4,84% í gær og fyrradag. Rúmlega tvöfalt meiri viðskipti voru með húsbréf í gær og í fyrra- dag á Verðbréfaþinginu en alla síð- ustu viku, eða samtais 133 milljónir samanborið við 54 milljónir, og við- skipti með spariskírteini voru rúm- lega 170 milljónir fyrstu tvo daga vikunnar. Viðskipti með húsbréf á Verðbréfaþingi það sem af er þessu ári nema nú 3,7 milljörðum króna, en námu allt síðastliðið ár 2,8 millj- örðum. Viðskiptin er því nú þegar orðin 900 milljónum króna meiri en allt árið í fyrra, en í janúarmánuði hóf Seðlabankinn viðskipti með hús- bréf á Verðbréfaþinginu. Sala spari- skírteina á þinginu það sem af er árinu nemur 3,4 milljörðum króna og var samtals á síðasta ári um 14 milljarðar króna. Flugvélaiðnaður Færri vélarhjá Boeing Seattle. Reuter. Holiday Inn, föstudaginn 29. apríl 1994 09.30-10.00 10.00 -10.30 10.30- 11.00 11.00-11.15 11.15- 12.00 12.00-13.30 13.30- 14.14 14.15- 14.45 14.45-15.15 15.30- 17.00 Skráning og afhending gagna Rekstrarskoðun sem endurskoðunaraðgerð Stefán Svavarsson dósent og löggiltur endurskoðandi. Ábyrgð endurskoðandans Samanburður á endurskoðun í þágu ríkis og einkaaðila Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi. Kaffihlé Endurskoðun lítilla fyrirtækja hætt / Abolition of Small Company Audits Mrs Primrose McCabe forseti Institute of Chartered Accountants of Scotland. Hádegisverður Fjallað um bókhald og endurskoðun í Evrópu sem starfsgrein / An Analysis of the European accounting and auditing profession Mr John Flower yfirmaður rannsókna hjá European Institute for Advanced Studies in Management. Umrót á starfsvettvangi endurskoðenda Ólafur Nilsson löggiltur endurskoðandi. Samantekt, fyrirspurnir og yfírlit Sveinn Jónsson ráðstefnustjóri. Viðhorf og athugasemdir um störf endurskoðenda Bankaeftirlit Þórður Ólafsson Pallborðsumræður Verðbréfaþing Tómas Ö. Kristinsson Þjóðhagsstofnun Ásgeir Daníelsson 17.00-18.00 Móttaka Félagsmenn FLE eru hvattir til að tilkynna strax þátttöku í síma 68 81 18 eða bréfasíma 68 81 39 Ráðstefnustjóri: Sveinn Jónsson Félag löggiltra endursKoöenda Endanlegar afskriftir íslandsbanka 1990-93 3.795 milljónir kr. Skipt eftir atvinnugreinum Sjávarútvegur og fiskvinnsla- Verslun j— Einstaklingar í atvinnurekstri Heimili r Byggingariðnaður og verktakar Þjónusta og samgöngur Skipt eftir tryggingum /- Sjálfskuldarábyrgðir Iðnaður Fiskeldi og landbúnaður Fasteignaveð/ handveð Afurðaveð Veð í skipum/flugvélum Ekki skráðar tryggingar Fjárfestingarfélag Draupnissjóðurínn keypti hlutabréf fyrír 28 milljónir DRAUPNISSJÓÐURINN fjárfesti í hlutabréfum fyrir 28 milljónir króna á síðasta ári en seldi á sama tíma bréf fyrir 37,4 milljónir. Sala hlutabréfa var þannig 34% umfram kaup en Ragnar Ögmunds- son stjórnarformaður Draupnissjóðsins sagði á aðalfundi félagsins i gær að náðst hefði að framfylgja þeirri stefnu að ná sem næst jafnvægi í kaupum og sölum hlutabréfa á eftirmarkaði. Hagnaður félagsins varð fjórar milljónir króna. Frá upphafi hefur Draupnissjóð- urinn haft tvíþætt markmið. Annars vegar að fjárfesta í hlutabréfum óskráðra fyrirtækja þar sem sjóður- inn hefur haft augastað á stórum fyrirtækjum með arðbæran rekstur og vaxtarmöguleika og hins vegar að kaupa og selja hlutabréf félaga sem eru skráð á Verðbréfaþingi Is- lands eða OTM. í báðum tilvikum er markmiðið að hagnast á viðskipt- Svíþjóð Volvo selur Cardo-félagið Stokkhólmi. Reuter. V OL V O-bifreiðaverksmiðjurn- ar í Svíþjóð hafa selt hlut sinn í fjármögnunarfyrirtækinu Cardo fyrir 2,6 milljarða sæn- skra króna. Salan er liður í nýboðaðri stefnu Volvo á þá leið að fyrirtækið snúi sér aftur að bílasmíði eingöngu. Volvo átti 43,8% í Cardo og seldi hlut sinn verkfræði- og iðn- fyrirtækinu Incentive AB. Volvo hefur þegar selt hlut sinn í fjár- festingarfyrirtækinu Custos, norska olíufélaginu Saga Petrole- um og alþjóðlega Hertz-bílaleigu- fyrirtækinu. Volvo hefur hagnazt um 3,4 milljarða sænskra króna af sölu hlutabréfanna í þessum fyrirtækjum — að Cardo undan- skildu. Volvo hyggst einnig selja Branded Consumer Products (BCP) og 27,5% hlut í Pharmacia ÁB. Breytingu Volvo á að vera lokið fyrir árslok 1996. unum og um leið stuðla að aukinni virkni markaðarins. í ræðu Ragnars kom fram að Draupnissjóðurinn hefði verið aðili, kaupandi eða seljandi, að um 5% þeirra viðskipta á eftirmarkaði sem skráð voru í helstu félögum á Verð- bréfaþingi og OTM á árinu 1993 í fjárhæðum talið. Ekki sé langt síðan að þetta hlutfall hafi verið 20% og þá hefði stjómin haft áhyggjur af smæð markaðarins og því að félagið sjálft réði of miklu um verðþróunina. Nú væri því ekki lengur að heilsa. Lækkun á gengi hlutabréfa á síð- asta ári sagði til sín í afkomu Draupnissjóðsins. Liðurinn „gengis- breyting hlutabréfa" í rekstrar- reikningi að fjárhæð 36,3 milljónir endurspeglar lækkun á markaðs- virði hlutabréfaeignar félagsins gagnvart framreiknuðu kostnaðar- verði á árinu. Sambærileg tala fyrir árið 1992 er um 73 milljónir að teknu tilliti til 51 milljón króna óinn- leysts geymsluhagnaðs sem sjóður- inn átti í ársbyrjun 1992. Ragnar sagði í ræðu sinni að sú stefna að hlutabréfaeign fari ekki yfir 60% af heildareignum og að aðrar eignir séu ávaxtaðar í vaxtaberandi verð- bréfum hefði komið sér vel. Hluta- bréfaeign Draupnissjóðsins var í árslok bókfærð á 417 milljónir sem er um 57% eigna alls. Stjórn Draupnissjóðsins fjallaði á síðasta ári um 18 mismunandi fjár- festingarkosti en fjárfesti í tveimur. Þau félög sem fjárfest var í eru bæði skráð á Verðbréfaþingi og nam fjárfesting í hvoru félagi fyrir sig um 3 milljónum. í árslok 1993 átti Draupnissjóðurinn hlut í 23 félög- um. 12 þeirra eru skráð á Verð- bréfaþingi, átta á OTM og þrjú flokkast sem óskráð félög.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.