Morgunblaðið - 27.04.1994, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 27.04.1994, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ ÍÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 27. APRIL 1994 51 HANDKNATTLEIKUR / URSLITAKEPPNIN Hingað, og ekki lengra! Deildarmeistarar Hauka héldu sínu striki og lögðu Víkinga í miklum baráttuleik Sigmundur Ó. Steinarsson skrifar HAUKAR mættu ákveðnir til leiks geng Víkingi að Strand- götu og ætiuðu sér greinilega að halda uppteknum hætti þar — að fagna sigri, sem þeir og gerðu, 30:25. Haukar byrjuðu leikinn með miklum látum og léku sterkan varnarleik — komust þrisvar þremur mörk- um yfir, en baráttuglaðir Vík- ingar náðu að halda ívið þá. Mark Halldórs Ingólfssonar beint úr aukakasti eftir að fyrri hálfleikurinn var runninn út, færði Haukum tveggja marka forskot, 12:10. Varnarleikur Hauka var geysi- lega öflugur í fyrri hálfleik — liðið lék sterka hreyfanlega flata vöm, sem Víkingar áttu oft í miklum erfiðleikum með. Fyrir aftan vörnina stóð Magnús Áma- son, sem varði vel. Haukar héldu síðan uppteknum hætti í byijun seinni hálfleiks, en þá gerðu þeir hreinlega út um leikinn með því að skora Qögur mörk gegn einu marki Víkings, 16:11. Eftir það slökuðu Haukar ekki á klónni og leikur þeirra varð alltaf léttari og léttari eftir því sem á tímann leið, en Víkingar urðu þyngri og þyngri. Þeir reyndu allt til að stöðva Hauka — tóku Pál Ólafsson úr umferð, Pál og Halldór Ingólfsson og undir lokin Pál, Halldór og Petr Baumruk. Ekkert dugði og þeir félagar ásamt Sigurjóni Sig- urðssyni léku við hvern sinn fingur og skoruðu mörk í öllum regnbog- ans litum. Haukar náðu að halda Bjarka Sigurðssyni vel niðri, eins og öðr- um útileikmönnum Víkings — með því að ganga vel út gegn þeim. Hvað sögðu þeir? Páll Ólafsson, leik- stjórnandí Hauka „Þetta var geysilegur bar- áttuleikur, eins og ég reiknaði með. Við náðum að laga vamar- leikinn mikið frá því í Víkinni — og vorum ákveðnir að brjóta Víkinga á bak aftur eins fljótt og við gátum. Þeir voru erfíðir í fyrri hálfleik, en við náðum að bjóta þá niður strax í byrjun seinni hálfleiks. Þá fundum við að það vorum við sem höfðum yfirhöndina og Víkingar voru að gefa eftir. Þetta voru allt erfíðir leikir og Víkingar veittu okkur svo sannarlega harða keppni, eins og í deildarleikjun- um tveimur sem enduðu með jafntefli. Það er mikill léttir fyr- ir okkur að vera komnir í úrslit — við höfum tekið stefnuna á meistaratitilinn og byrjum hér á Strandgötunni." Gunnar Gunnarsson, þjátfarí Víkings „Við náðum ekki réttum stíg- anda í byijun seinni hálfleiks og misstum Hauka of langt frá okkur — í fimm marka forskot. Pressan varð mikil á okkur — að ná því forskoti upp, en Hauk- ar eru of sterkir til að láta þann- ig forskot af hendi. Það er sárt að horfa á eftir Haukum fara í úrslitin, því að það er alltaf skemmtilegra að vera sjálfur í baráttunni, en að horfa á. Þetta er búinn að vera góður vetur þjá okkur - hópurinn hefur verið mjög samstilltur. Við erum ekki búnir að leggja árar í bát, því að framundan eru leikir um þriðja sætið, sem gefur rétt til að leika í Evrópukeppni." LEIKMENN Hauka breyttu ekki útaf vananum var létt yfir Haukum eftir leikinn. Morgunblaðið/Þorkell Fögnuður á Strandgötunni þeir fögnuðu enn einum sigrinum á Strandgötunni í gærkvöldi. Það Þá opnaðist stundum leið inn á línuna til Birgis Sigurðssonar, sem nýtti færin sín vel þegar hann fékk knöttinn. Leikurinn var mikill bar- áttuleikur, sem tók vel á leikmenn liðanna. Víkingar, sem hafa ekki eins mikla og góða breidd og Haukar, urðu að játa sig sigraða eftir drengilega baráttu. Næsta verkefni Hauka er loka- baráttan um meistaratitilinn gegn Valsmönnum eða Selfyssingum, en Víkingar leika um þriðja sætið. Haukar - Víkingur 30:25 íþróttahúsið Strandgötu, íslandsmeistara- mót karla, 3 leikur i undanúrslitum, þriðju- dagur 26. apríl 1994. Gangur leiksins: 1:0, 1:1, 4:4, 6:3, 7:7, 10:7, 11:8, 11:10, 12:10. 13:10, 16:11, 17:12, 18:14, 19:16, 23.19, 24:20, 26:22, 27:24, 30:24, 30:26. Mörk Hauka: Halldór Ingólfsson 9/2, Sig- urjón Sigurðsson 6, Páll Ólafsson 4, Aron Kristjánsson 3, Petr Baumruk 3, Þorkell Magnússon 2, Jón Öm Stefánsson 1. Utan vallar. 10 min. (Pétur Vilberg Guðna- son útilokaður þegar 14. mín. voru eftir.). Mörk Víkings: Birgir Sigurðsson 6, Bjarki Sigurðsson 6/4, Slavisa Cvijovic 4, Gunnar Gunnarsson 3, FViðleifur Friðleifsson 3, Árni Friðleifsson 3. Utan vallar: 6 mín. Áhorfendur: 1.200. Dómarar: Gunnar Kjartansson og Óli P. Ólsen, dæmdu ágætlega. SOKNARNYTING Iþróttahúsið við Strangötu. Þriðji leikur I undan- úrslitum (slands- mótsins, þriðju- daginn 26. apríl. Haukar Víkingur m Urslitakepnnin í handknattleik 1994 MSrk Sókrw % Mðrk Sóknir % 12 23 52 F.h 10 23 43 18 26 69 SJt 15 25 60 30 49 61 Alls 25 48 52 . 9 Langskot 9 6 Qegnumbrot 2 1 7 Hraðaupphlaup 2 4 Hom 3 ir 2 Lína 5 2 4 Níu daga hlé Níu daga hlé verður gert á úrslita- keppninni í handknattieik eftir að ljóst verður annað kvöld hvaða lið leika til úrslita. Fyrsti úrslitaieikurinn verður leikinn föstudaginn 6. maí og annar leikurinn sunnudaginn 8. maí. Síðan kemur aftur hlé þar til þriðji leikurinn verður leikinn, nú til föstu- dagsins 13. maí. Ef kemur til fjórða og fímmta leiks verða þeir leiknir sunnudaginn 15. maí og þriðjudaginn 17. maí. 'Fyrirhugað var að halda lokahóf handknattleiksmanna föstu- daginn 13. maí en því hefur nú verið Þannig vörðu þeir Markverðir liðanna vörðu þannig ! gærkvöldi, (innan sviga varið, en knötturinn fór aftur til mótheija): Magnús Árnason, Haukum - 17(6) 7(3) langskot, 6(2) úr homi, 2 af ltnu, 1(1) gegnumbrot, 1 hraðaupphlaup. Bjarni Frostason - 2 2 langskot. Reynir Reynisson, Víkingi - 6(2) 4(2) langskot, 1 úr horni, 1 gegnumbrot. Magnús Ingi Stefánsson, Víkingi - 5(2) 5(2) langskot. KNATTSPYRNA / EM 16 ARA LIÐA Tap gegn Tyrkjum jr Eg er aldrei ánægður með tap, en Tyrkir voru með fljótari og leiknari leikmenn en við. Strákarnir náðu ekki að halda jafnvægi allan leikinn,“ sagði Ásgeir Elíasson, landsliðsþjálfari, eftir að ísland hafði tapað, 1:2, fyrir Tyrkiandi í fyrsta leik sínum í úrslitakeppni Evrópu- móts landsliða 16 ára og yngri í Dublin í gær. Islendingar náðu að skora fyrst og var það Eiður Smári Guðjohnsen sem það gerði, en Tyrkir jöfnuðu með marki beint úr aukaspyrnu á 44. mínútu. Skoruðu síðan sigurmarkið á 70 mín. „Við vorum nálægt því að jafna í lok leiksins er Ásgeir Ásgeirs- son átti skot, sem hafnaði á þverslá. Það hefði verið ánægulegt að ná jafn- tefii, en það var ekki sanngjarnt eins og leikurinn þróaðist," sagði Ásgeir. ísienska liðið leikur gegn Belgíu á morgun, en belgíska liðið tapaði fyrir Úkraínu í gær, 1:2. Tvö efstu liðin úr riðlinum komast í 8-liða úrslit, en í riðlakeppninni er 3ja stiga reglan í gildi. frestað og stefnt er að því að halda hófíð föstudaginn 20. maí. Stöð 2 keypti réttinn til að senda út frá úrslitakeppninni og hefur sýnt frá öllum leikjum í lokaðri dagskrá. RÚV hefur hins vegar lítið sinnt úrsli- takeppninni og sýnt lítið frá leikjum hennar þó svo það hafi rétt til að sýna þrjár mínútur frá hveijum leik. Menn hafa haft það á orði að hléið sem nú er gert sé gert til að úrslita- viðureignirnar nái fram yfir þann tíma er nýtt lykilnúmer tekur gildi á Stöð 2. Heimir Karlsson yfírmaður íþróttadeildar vildi ekkert tjá sig um málið þegar Morgunblaðið ræddi við hann í gær. Þorgeir Haraldsson, formaður handknattleiksdeildar Hauka, er í forsvari fyrir Samtök fyrstu deildar félaga. „Þetta er fyrst og fremst markaðssetning á leikjunum. Föstu- dagar og sunnudagar eru bestu dag- amir að leika á, laugardagar eru ai- veg vonlausir þegar farið er að vora,“ sagði hann og bætti við að keppninni hefði allri verið hnikað aftar vegna samninga við íslenska útvarpsfélagið Örn Magnússon framkvæmdastjóri HSÍ sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að bréf hefði verið sent til félag- anna og þau beðin uin að svara fyrir ákveðinn tíma. „Þrjú félög svöruðu og voru jákvæð vegna niðurröðunar- innar og við fengum engar athuga- semdir við þetta,“ sagði Örn. Þess má geta að keppnin uin þriðja sætið hefst þriðjudaginn 3. maí Qg ársþing HSÍ verður haldið í Vest- mannaeyjum á milli annars og þriðja leiks í úrslitunum, 11. og 12. maí. „Mér finnst of langt þangað til úrslitakeppnin hefst — níu dagar eru of löng livíld," sagði Páll Ólafsson, Haukum, í gærkvöldi. toéim FOLK- BAYER Munchen og Nttrn- berg verða að leika að nýju í þýsku úrvalsdeildinni 4. maí, eða þremur dögum fyrir síðustu umferð deildar- keppninnar. Þýska knattspyrnu- sambandið ákvað þetta í gær, eftir að nefnd hjá sambandinu var búin að fara yfír leik liðanna um helg- ina, sem Bayern vann, 2:1, á marki, sem var ekki mark — knötturinn fór aldrei inn fyrir marklínuna, heldur framhjá markinu. LEIKMENN Manchester United fá 13.000 sterlingspund (um 1,4 millj. ísl. kr.) hver, ef þeir ná að vinna tvöfalt — bæði deildar- og bikarkeppnina. ANDREAS Limpar, sem Everton keypti frá Arsenal á 1,1 millj. pund, er ekki vinsæll meðal stuðningsmanna Everton. Ástæð- an fyrir því er að Limpar hafði í samningi sínum, að honum væri frjálst að fara frá félaginu ef það félli 2. deild. ÍTALSKA félagið Cremonese vill frá Limpar til liðs við sig og fer hann til félagsins ef Everton fellur. MIKLAR líkur eru á því að Liverpool láti Mark Wright, fyrr- um landsliðsmiðvörð Englands, fara aftur til Southampton. Hann hefur lítið leikið með Liverpool að undanfömu. KENNY Dalglish, fram- kvæmdastjóri Blackbum, hefur áhuga á að kaupa Nigel Clough frá Liverpool, en Clough hefur lítið fengið að spreyta sig hjá félag- inu síðan það keypti hann frá Nott. Forest. SAMPDORÍA hefur augastað á Alan Shearer, miðheija Black- burn. Félagið er tilbúið að borga 10 millj. punda fyrir Shearer og vikulaun hans yrðu 3,4 millj. ísl. kr. Þess má geta að David Platt er með 2,6 millj. ísl. kr. í vikulaun hjá félaginu. Shearer mun þá taka stöðu Ruud Gullit, sem er á leið- inni aftur yfir til AC Mílan. MARK Stein, miðheiji Chelsea, sem hefur ekki leikið með vegna meiðsla síðan í byijun mars, verður klár í bikarúrslitaleikinn gegn Man. Utd. á Wembley 14 maí. Stein skoraði 12 mörk í fjór- tán leikjum áður en hann meiddist. BELGÍSKA knattspyrnusam-' bandið vill gera landsliðsþjálfara- samning við Paul Van Himst fram yfir HM í Frakklandi 1998. ■ TONY Woodcock fyrrum landsliðmaður Englands í knatt- spyrnu, og leikmaður Arsenal og Kölnar hefur verið ráðinn þjálfari þýska liðsins Leipzig fyrir næsta tímabil, en liðið fellur í 1. deildina þýsku, á ekki möguleika á að halda sæti sínu í úrvalsdeildinni. Wo- odcock hefur þjálfað Fortuna Köln í 2. deildinni í Þýskalandi og einnig nokkur áhugamannalið þar um slóðir. ■ TONY Dorigo, bakvörður Le- eds vonast til að vera klár í slaginn-' í dag þegar lið hans mætir Manc- hester United. Hann mun þá kljást við Andrei Kanchelskis hjaUn- ited. ■ ARSENAL hefur kallað Paul Dickov til liðs við liðið fyrir úrslita- leikinn gegn Parma í Kaupmanna- höfn. Dickov var lánaður til Brig- hton í einn mánuð og hefur gert fimm mörk í átta leikjum. ■ STUART Pearce gæti misst af leik Nottingham Forest og Derby í dag, en hann meiddist í baki á sunnudaginn er Forest lö4M| við WBA. ■ DANUT Lupu, rúmenskur miðjumaður, hefur skrifað undir tveggja ára samnig við Rapid Buc- hares en það þurfti að leysa kapp- an úr fangelsi í Grikklandi þar sem hann hefur verið í 10 mánuði vegna þjófnaðar. Nýja félagið þurfti að greiða Panathinaikos tæpar l4"' milljónir fyrir Lupu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.