Morgunblaðið - 27.04.1994, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 27.04.1994, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1994 39 Bolli Gunnars- son — Minning Fæddur 1. júlí 1918 Dáinn 19. apríl 1994 Skömmu eftir miðnætti 20. apríl andaðist tengdafaðir minn, Bolli Gunnársson, á Hrafnistu í Hafnar- firði. Bolla hafði ég kynnst lítillega um það leyti sem við hjónin giftum okkur 1972, en 1973 fórum við í sumarfrí til ísafjarðar og þá mynd- uðum við óijúfandi vináttutengsl. Bolli Gunnarsson var fæddur á Þingéyri við Dýrafjörð en fluttist ungur til ísafjarðar og ólst þar upp, elstur fimm systkina. Það var einstakt að kynnast hon- um á sínum heimaslóðum. Við Ein- ar vorum með elstu dóttur okkar, Hjördísi, sem þá var sex mánaða, og bjuggum við fjögur í símabú- staðnum inni í skógi. Bolli var glæsimenni, kurteis, skemmtilegur pg með frábæra kímnigáfu. A ísafirði lék hann á als oddi, talaði um bernskuárin, talaði við fjöllin, dalinn, ána og hríslurnar. Sjálf kunni ég vel að meta þetta, því ég átti líka sérstaklega ljúfar bernsku- minningar frá afa mínum og ömmu á ísafirði. Seinna vorum við Einar forsjóninni þakklát fyrir þetta frí, því í nóvember sama ár fékk Bolli heilablóðfall, sem hann náði sér aldrei alveg af. Á næsta ári flutti Bolli til okkar og það sumar fæddist Bryndís, önn- ur dóttir okkar hjóna. Bolli gat þá gengið með hækju, en vinstri hönd- in var lömuð. Hann gafst þó ekki upp, fór í æfingar hjá sjúkraþjálf- ara og eignaðist síðan bíl, sem hann gat farið á allra sinna ferða. Það er ekki allt ungt fólk hrifið af því að hafa tengdaföður eða móður inni á heimili sínu. Fyrir mér var það sérstök ánægja að hafa Bólla, fyrst og fremst vegna þess hve hann var einstaklega ljúfur maður. Þrátt fyrir veikindi sín, hugsaði hann fyrst og fremst um það, hvernig mér og dætrunum liði. Hann lék við eldri dótturina á með- an ég sinnti þeirri nýfæddu og þeg- ar hún var með fyrirferð og prakk- araskap þá hló hann með henni og fíflaðist. Á þessum tíma vann Einar mikið úti. Það hefði verið einmana- legt að vera heima með tvö lítil börn í nýju bæjarfélagi ef ekki hefði verið fyrir Bolla. Við Bolli höfðum alltaf um nóg að spjalla, því að fyrir utan Ísaíjarðartengslin, þá vorum við bæði Valsarar og mikið fyrir íþróttir. Það var þægilegt að hafa hann nálægt, hvort sem var í spjalli eða þögn. Hann var snyrti- menni, hjálpfús og góður. Það varir ekki allt að eilífu. í janúar 1976 lenti fjölskyldan í hremmingum og Bolli var aldrei samur eftir það. Hann fór út til Lindu dóttur sinnar á Hawaii, kom aftur heim, fór á milli stofnana og ýmist of heilbrigður eða of veikur til að falla þar inn. Að lokum komst hann inn á Hrafnistu í Hafnarfirði og þar leið honum vel. Hann hafði sitt herbergi með útsýni yfir hafið. Starfsfólkið var honum mjög gott og lagði sig fram við að skapa hon- um notalegt ævikvöld. Fyrir það erum við hjónin mjög þakklát. Elsku tengdapabbi, ég vil þakka þér fyrir yndislegan vinskap og væntumþykju. Ég veit að nú líður þér loksins vel. Þú sagðir sjálfur síðasta daginn sem þú lifðir: „Nú er ég þreyttur, nú vil ég sofna.“ Þú fékkst fallegt og friðsælt andlát og ég trúi því að andi þinn svífi nú á öðru sviði. Hafðu þökk fyrir allt. Sigrún Ingólfsdóttir. Látinn er stóri bróðir minn, Bolli Gunnarsson. Hann var elstur okkar systkin- anna á ísafirði, og dugnaðarforkur og forystumaður. Hann var skáta- foringi, og þegar að loknu barna- skólaprófi fór hann að vinna fyrir sér á símstöðinni á ísafirði. Við brölluðum margt um ævina. Á stríðsárunum ætluðum við að verða ríkir á því að kaupa vörubíl og keyra fyrir herinn. En þann bíl flæddi í sandbleytu uppi í Gufu- nesi, og stóran trukk frá hernum, sem ætlaði að draga hann upp, flæddi líka, og svo fór á endanum að við töpuðum á öllu saman. Þá var Bolli að vinna á símstöðinni í Reykjavík sem símritari, en skömmu síðar hófu Loftleiðir milli- landaflug með flugvélinni Geysi, og þá réðst hann til þeirra sem loft- skeytamaður. Þá vorum við báðir einhleypir, ég keyrði norðurrútuna og bjó vestur í Sörlaskjóli, en Bolli flutti til pabba sem bjó í Thorvald- sensstræti, og þegar Bolli var að koma úr millilandafluginu var hann jafnan hlaðinn allskyns góðgæti bæði föstu og fljótandi, og þá var oft glatt á hjalla. Bolli var glæsimenni og íþrótta- maður mikill, bæði fótboltamaður í fremstu röð og lék með Val, og skíðameistari vestur á ísafirði. Svo gerðist það á þessum árum að flug- vélin Geysir týndist og hennar var leitað árangurslaust dögum saman. Mikill harmur var að fólki kveðinn yfir ótíðindunum, þótt sjálfur tryði ég því aldrei einhverra hluta vegna, að áhöfnin, Bolli bróðir minn og félagar hans, hefðu farist. En ég gleymi því aldrei þegar ég fékk tíð- indin um að vélin væri fundin uppi á Bárðarbungu á Vatnajökli, og heyrst hefðu neyðarsendingarnar sem Bolla tókst að senda út af slys- staðnum. Honum gekk allt í haginn á þess- um árum, bæði í vinnu og einka- lífi. Hann flutti til New York þar sem hann starfaði sem umboðsmað- ur Loftleiða, kom svo heim og byggði sér glæsilegt einbýlishús. Hann átti sjö hraust og mannvæn- leg börn. Én svo veiktist hann á miðjum aldri, missti atvinnuna og lamaðist af heilablóðfalli og bar ekki sitt barr eftir það. Hann var sjúklingur tvo síðustu áratugina. En hann var harðjaxl og vorkenndi sér aldrei, og var lítið um það gefið að fólk sýndi sér meðaumkun, enda var hann stórmenni að upplagi. Blessuð sé minning hans. Kári Gunnarsson. Það er komið að leiðarlokum hjá pabba. Kannski héldum við, að af því að hann var lengi búinn að vera heilsulítill, þá yrði ekki eins þungt að kveðja hann. Það má vera að við höfum haldið að við værum búnar að kveðja hann með því að aðlagast þeirri staðreynd að hann væri sjúklingur. En þegar ljóst var að hann nálgaðist sína hinstu stund á meðal okkar, þá fundum við að svo var ekki. Það fer enginn fyrr en kallið kemur og fyrr er ekki hægt að kveðja. Nú þegar komið er að sárri kveðjustund fyrir fjórar systur finna þær huggun sína í vitn- eskjunni um það að elskaður pabbi þeirra er kominn þangað heim sem sjálfur Drottinn Jesús tekur á móti honum. Elsku pabbi okkar. Hann var jú besti pabbinn í öllum heiminum, um það efuðust aldrei fjórar Bolladæt- ur. Þessar fjórar dætur eru Guði þakklátar fyrir þann pabba sem þær fengu. Honum þótti svo undur vænt um stelpurnar sínar og sýndi þeim það á ótal vegu. Mörg er sú minn- ing sem ber því vitni, en það eru slíkar minningar sem streyma fram í hugann nú þegar við megum til að kveðja hann pabba. Þessar minn- ingar milda hörku þeirrar stað- reyndar að pabbi skuli vera farinn. Minningar um þær mætur sem hann hafði á „Bollaseríunni“ sinni, stelp- unum sínum sem hann sagði að væru þær fallegustu sem til væru. Þegar við einhveiju sinni inntum hann eftir því hvort hann teldist vera ríkur maður kvað hann svo vera og það meira að segja forrík- ur, af því að hann ætti fjórar dýr- mætar dætur. Slíkt tilsvar var dæ- migert fyrir hann og einkennandi fýrir viðmót hans gagnvart okkur stelpunum hans. { nærveru hans vorum við alltaf svo sérstakar, svo dýrmætar. Þannig er það enn og verður allt- af í minningunni um hann pabba. Hann skildi fjórar stelpur eftir með fullvissuna um það að aðrar eins stelpur væru ekki til. Hann skildi þessar fjórar stelpur líka eftir með fullvissuna um það að annar eins pabbi væri ekki til. Fyrir það þökk- um við himneskum föður okkar allra, í Jesú nafni. Linda, Erla, Helga og Lilja Bolladætur. Við fráfall móðurbróður okkar, Bolla Gunnarssonar, verður ekki hjá því komist að láta hugann reika og rifja upp ýmsar skemmtilegar myndir frá uppvaxtarárum okkar bræðranna. Samskipti okkar við Bolla frænda voru óvenju mikil þar eð móðir hans og amma okkar bjó á heimili okkar og Bolli sonur hans ólst upp með okkur bræðrum. Af þessum frænda okkar stafaði ákveðnum ævintýraljóma. Hann hafði á yngri árum unnið til afreka á skíðum vestur á ísafirði og varð síðar íslandsmeistari í knattspyrnu. Ekki dró úr ljómanum að Bolli lærði til loftskeytamanns og flaug með Loftleiðum á fyrstu árum þess fyrir- tækis. Fjölskylda okkar naut þess að eiga frænda sem fór víða um heim- inn og kom heim færandi hendi. Þegar Bolli flytur ásamt fjölskyldu vestur um haf brást það aldrei að rétt fyrir jólin birtist stór kassi full- ur af gjöfum og ýmsu góðgæti sem var vandfundið hérlendis. Á þessum árum kom hann alltaf öðru hvoru heim í erindum Loftleiða. Það brást ekki að fyrsti viðkomustaðurinn var Kaplaskjólsvegurinn þar sem amma Guðlaug bar fram ýsu með vest- firskum mör. Alltaf þótti okkur bræðrum skrýtið að sigldur maður- inn skyldi vilja svo hversdagslegan mat til hátíðabrigða. Bolli frændi var jafnan glaðvær, skemmtilegur í viðmóti og okkur leið vel í návist hans. Hann fylgdist vel með því sem við vorum að gera, sem fólst aðallega í því að vita hvernig okkur gekk í fótboltanum og í skólanum. Svo vel líkaði okkur við hann að við gátum alveg fyrir- gefið honum að vera Valsmaður. Raunar vissum við að allir góðir og gegnir ísfirðingar eru KR-ingar inn við beinið. Við bræður munum um ókomin ár geyma í huga okkar mynd af Bolla Gunnarssyni sem. glaðværum og hlýlegum frænda. Við kveðjum hann með virðingu og þökk. Magnús Ingimundarson, Gunnar Ingimundarson. Vetur var að kveðja og sumar- koma á næsta leiti, þegar lífshlaup góðvinar míns, Bolla Gunnarssonar, hafði runnið sitt skeið til enda. Bolli átti við mikla vanheilsu og lömun að stríða síðustu tvo áratug- ina, svo hvíldin hefur verið kærkom- in eftir langa og erfiða lífsbaráttu. Bolli var fæddur á Þingeyri „í faðmi fjalla blárra", sonur hjónanna Gunnars Andrew og Guðlaugar Jós- epsdóttur. Hann var elstur fimm barna þeirra hjóna, en systkini hans eru Kári, Kjartan, Lilja og Jósep, sem lést fyrir nokkrum árum. Bolli var ágætur skíðamaður á yngri árum fyrir vestan, tók þátt í mótum og vann til verðiauna. Eftir að fjölskyldan fluttist suður til Reykjavíkur, réðst Bolli til starfa hjá Ritsímanum og vann þar í mörg ár. Hann fékk snemma „fiugbakter- íuna“ eins og títt var um unga menn á árunum eftir seinna stríð. Hafði hann fengið vilyrði um starf sem loftskeytamaður hjá Loftleið- um, er nýlega höfðu hafið braut- ryðjendastarf í millilandaflugi okk- ar með Skymaster-vélum. Sótti Bolli því um leyfi hjá Ritsímanum um frí frá störfum í nokkra mánuði meðan hann var að átta sig á hlut- unum. Raunin varð hins vegar sú, að Bolli ílengdist í hinu nýja starfi sínu hjá Loftleiðum, sem heillaði hann svo mjög. Bolli starfaði síðan hjá félaginu um áraraðir, bæði sem flugliði á millilandavélunum, og síð- ar í nokkur ár sem stöðvarstjóri í New York. Þetta voru án efa bestu ár ævi hans, því flugið átti hug hans allan. Ekki er hægt að skilja svo við þann kafla í lífi Bolla meðan hann starfaði hjá Loftleiðum, án þess að minnst sé eins örlagaríkasta atviks, sem hann upplifði um ævina. Hér er átt við þau tíðindi, er millilanda- vélin Geysir týndist á leið frá Lúx- emborgar til Reykjavíkur í sept- ember 1950, en Bolli var þá einn af sex manna áhöfn vélarinnar. Umfangsmikil leit var gerð að Geysi i nokkra daga uns flugmenn á „Vestfirðingi“, Katalínuflugbáti Loftleiða, komu auga á vélina, þar sem hún hafði brotlent á Vatna- jökli. Þegar menn voru að verða úrkula vonar um að flugvélin myndi finnast, barst sú gleðifregn, að Geysir væri fundinn og öll áhöfn vélarinnar á lífi og heil á húfi. Mik- il fögnuður varð um land allt og engu líkara en landsmenn allir hefðu heimt sína nánustu úr helju. Ég ræddi þetta örlagaríka atvik við Bolla skömmu eftir að það gerðist, og eins bar það nokkrum sinnum á góma síðar. Er mér ekki örgrannt um, að það hafi markað nokkur spor í líf hans síðar meir. Bolli var hið mesta glæsimenni á velli, stundaði íþróttir á yngri árum eins og fyrr getur, átti auð- velt með að umgangast og laða að sér fólk, enda hrókur alls fagnaðar á góðra vina fundum. Liðin eru hartnær 45 ár frá okkar fyrstu kynnum, sem alveg hefðu getað átt sér stað í gær. Við hjónin eigum margar ljúfar og fagrar minningar frá áralangri vináttu og ógleymanlegum sam- verustundum, bæði hér heima og erlendis, með þeim Bolla og Erlu, en hún og kona mín eru æskuvin- konur. Fyrir það þökkum við af heilum hug. Bolli var tvíkvæntur, en leiðir skildu. Með fyrri konu sinni, Hjör- dísi Einarsdóttur, eignaðist hann tvo syni, Einar Gunnar og Bolla Þór. Seinna kona Bolla er Þóra Erla Ólafsdóttir, en þau áttu saman fimm böm, Arthur Björgvin, Lindu Sigrúnu, Erlu, Helgu og Lilju. Nú, þegar vetur hefur verið kvaddur og náttúran að vakna úr dróma skammdegisins, stöndum við á vegamótum og leiðir skiljast um sinn með vini okkar, Bolla Gunnars- syni. Far þú í friði, góði vinur, „í faðm íjalla blárra“, á vit sólar og sumars. Við Svava sendum börnum Bolla og öðrum aðstandendum innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning góðs drengs. Njáll Símonarson. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu vegna andláts og útfarar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SOFFÍU SMITH. Karl G. Smith, Margrét Guðmundsdóttir, Örn Smith, Elsa L. Smith, GunnarSmith, Edda Eiríksdóttir, Hilmar Smith, Anna Ottadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Hjartans þakkir faerum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför föður okkar, tengdaföð- ur, afa, langafa, bróður og mágs, BJÖRGVIIMSG. ÞORBJÖRNSSONAR, Sörlaskjóli 3. Björn Björgvinsson, Valdis Caltagirone, Guðbjörg Björgvinsdóttir, Björgvin Sigurðsson, Heiðdis Einarsdóttir, Sigríður Maria Sigurðardóttir, Jón Gísli Guðlaugsson, Anita ísey Jónsdóttir. Sigurbjörn Þorbjörnsson, Betty Þorbjörnsson. + Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð vegna fráfalls móður okkar, HALLDÓRU SIGURJÓNSDÓTTUR fyrrverandi skólastjóra Húsmæðraskólans, Laugum. Halldór Halldórsson, Svanhildur Halldórsdóttir, Kristín Halldórsdóttir. Lokað Vegna jarðarfarar BOLLA GUNNARSSONAR verður lokað eftir hádegi í dag, miðvikudag 27. apríl. Fotoval, Skipholti 50B.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.