Morgunblaðið - 27.04.1994, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 27.04.1994, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1994 23 Golfklúbbar Kópa- vogs og Garðabæjar sameinast í einn klúbb SAMNINGUR hefur verið gerður milli Golfklúbbs Garðabæjar og Golfklúbbs Kópavogs annars vegar og bæjarstjórna Garðabæjar og Kópavogs hins vegar um samruna klúbbanna og samstarf bæjarfélag- anna um frekari uppbyggingu á golfaðstöðu Golfklúbbs Garðabæjar við Vífilsstaði. Klúbbarnir hafa verið sameinaðir í einn klúbb, Golf- klúbb Kópavogs og Garðabæjar, skammstafað GKG. Við Vífilsstaði er gert ráð fyrir 18 brauta golfvelli, höggæfinga- svæði, Par-3 æfingarvelli og stækk- un golfvallarins í 27 brautir með 9 brautum á landsvæði í Leirdal innan bæjarmarka Kópavogs. Svæðið ligg- ur að núverandi golfsvæði við Vífils- staði og myndar þannig eina heild. Með 27 golfbrautum verður mögu- legt að halda vellinum opnum fyrir æfingar og almennan golfleik þótt keppni fari fram. Flýta fyrir framkvæmdum Megintilgangur sameiningarinnar er að samnýta framlög bæjarfélag- anna og flýta þannig framkvæmdum sem auðið er til framdráttar og efl- ingar golfíþróttinni segir í frétt GKG. Bent er á að athafnasvæðið sem um ræði sé landfræðilega og veðurfarslega einstætt, nærri þungamiðju höfuðborgarsvæðisins og vel fallið til golfvallagerðar. Áætlað er að taka í notkun 9 nýjar golfbrautir síðsumars á næsta ári og mynda þær ásamt núverandi velli Golfklúbbs Garðabæjar góðan 18 brauta völl. Framkvæmdum verð- ur síðan haldið áfram eftir því sem Morgunblaðið/Árni Sæberg Samstarf um golfvöll SAMNINGUR um samstarf Kópavogs og Garðabæjar og golfklúbba bæjanna Innsiglaðir. Formenn golfkiúbbanna, þeir Þorsteinn Stein- grímsson, Golfklúbbi Kópavogs, og Finnur Jónsson, Golfklúbbi Garða- bæjar, og Ingimundur Sigurpálsson, bæjarstjóri Garðabæjar, og Gunn- ar Birgisson, forseti bæjarstjórnar Kópavogs, undirrituðu samkomu- lagið. efni standa til, en með ofangreindu samstarfi er unnt að flýta því um allmörg ár, að nýju brautirnar verði teknar í notkun. Er stefnt að iands- móti í golfi á Vífilsstaðavelli árið 2000. Iceland Review breytir um svip FYRSTA tölublað Iceland Review á þessu ári kom út fyrir skömmu en j)að hefur þrengt ritstjórnarsvið sitt eftir að hafa flutt alhliða efni um Island í 30 ár. Ritið er nú fyrst og fremst helgað náttúru lands- ins, ferðaþjónustu og ferðamöguleikum hérlendis. Aðspurður sagði Haraldur J. Hamar, útgefandi að ferðaþjónustan hefði sýnt mjög já- kvæð viðbrögð við breytingunum og það sem heyrst hefur frá áskrif- endum og öðrum sem haldið hafi tryggð við Iceland Review um ára- bil, hefði líka verið mjög jákvætt. „Þetta var að sjálfsögðu heilmikið átak og verður áfram, en við efuð- umst ekki eitt andartak um að við værum að stíga skref í rétta átt. Viðtökurnar sem Iceland Review með nýjan blæ hafa hlotið staðfesta þá skoðun okkar. Við prentum í lið- lega 20.000 eintökum, byggjum á gömlum merg en stefnum að því að gera ritið enn verðmætara íslensku atvinnulífi," segir Haraldur. Til við- bótar hefðbundinni dreifingu senda Flugleiðir í London blaðið til 3.000 aðila, férðaskrifstofa og blaða- manna. Flugleiðir í Bandaríkjunum eru með tilraunaútsendingu í svipuð- um stíl, 1.000 eintök. „Ferðaþjónustan með öllum sínum öngum er að yerða veigamikill at- vinnuvegur á íslandi — og kannski sá sem á næstu árum mun veita fleira fólki starf en aðrir atvinnuveg- ir landsmanna. Það var tímabært að láta á það reyna hvort ferðaþjón- ustan vildi eða gæti nýtt þá mögu- leika sem Iceland Review getur veitt þegar til lengri tíma er litið,“ segir Haraldur. „Það var líka tímabært fyrir Iceland Review að stokka spilin og aðlagast enn frekar aðstæðum og viðhorfum sem breyst hafa mikið í samskiptum íslands við önnur lönd á þeim 30 árum sem liðin eru frá því að ritinu var hleypt af stokkun- um.“ Haraldur J. Iiamar PAVIGRE S Sterkar og ódýrar flísar ALFABORG f KNARRARVOGI 4 < ‘ 686755 Diplomat fistölva alvörn 486 Uppfæranleg 25-6K Mllz UoáingSlalion ^ ¥ BOÐEIND Austurströnd 12. Sími 612061. Fax 612081 V_____________________________________y DU PONT bflalakk notað af fagmönnum um land allt. Er bfllinn þinn grjótbarinn eða rispaður ? DU PONT lakk á úðabrúsa er meðfærilegt og endingargott. ohíSbsi I Faxafeni 12. Sími 38 000 URVAL NOTAÐRA BILA HUNDAY PONY 1300, árg. ‘94, 5 gíra, 3ja dyra, rauður, ek. 12. þ.km. Verð 850 þ. MMC LANCER 1500, árg. '89, sjálfsk., 4 dyra, bleikur, topplúga, álfelgur, ek. 81 þ.km. Verð 730 þ. HYUNDAI PONY 1300, árg. ’93, 5 gíra, 3ja dyra, rauður, ek. 12 þ.km. Verð 750 þ. MMC LANCER 1500, árg. ’91, sjálfsk., 5 dyra, rauður, ek. 70 þ.km. Verð 980 þ. TOYOTA CGROLLA GTi 1600, árg. ’89, 5 gíra, 3 dyra, rauður, topplúga, ek. 98 þ.km. V. 660 þ. TOYOTA COROLLA 1300, árg. ’88, sjálfsk., 4 dyra, rauður, ek. 70 þ.km. Verð 550 þ. LADA SAFÍR 1500, árg. ’94,5 gíra, 4 dyra, vínrauður, ek. 4 þ.km. Verð 520 þ. SUBARU JUSTY 1200, árg. ’91, 5 MAZDA 626 2000, árg. ’89, sjálf- MMC COLT 1500, árg. ’89, sjálf- gíra, 5 dyra, hvítur, ek. 14 þ.km. sk., 5 dyra, Ijósbrúnn, ek. 107 sk., 3ja dyra, grænn, ek. 70 þ.km. Verð 800 þ. þ.km. Verð 790 þ. Verð 690 þ. VW GOLF 1600, árg. ’88, 5 gíra, 3ja dyra, hvítur, ek. 93 þ.km. Verð 550 þ. LADA SAFÍR 1300, árg. ’91,4 gíra, 4 dyra, vínrauður, ek. 34 þ.km. Verð 290 þ. MMC LANCER 1500, árg. '87, 5 gíra, 4 dyra, grár, ek. 81 þ. Verð 480 þ. CHRYSLER LE BARON, árg. ’88, sjálfsk., 5 dyra, vínrauður, ek. 77 þ.km. Verð 790 þ. LADA SPORT 1600, árg.’91, 5 gíra, 3ja dyra, rauður, ek. 46 þ.km. Verð 540 þ. Greiðslukjör til allt að 36 mánaða án útborgunar Opið virka daga kl. 9-6, laugardaga kl. 10-14. HMEa * NOTADIR f Æk Æk BIIAR 1 814060/681200

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.