Morgunblaðið - 03.07.1996, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Einstaka bóndi á Suðurlandi hefur lokið slætti
Hætta á að heyfengur spill-
ist vegna of mikillar sprettu
Morgunblaðið/RAX
GUÐMUNDUR stendur hér við hey sem sett var í rúllUr á 17. júní.
AFAR góð grasspretta hefur verið
á landinu síðustu daga og segir
Guðmundur Lárusson, formaður
Landssambands kúabænda, að ef
ekki geri þurrk næstu daga muni
gras spretta mikið úr sér um sunnan-
vert landið og gæði heyfengsins
verða lítil. Guðmundur hefur lokið
fyrri slætti og lýkur við að taka
heyið saman í dag.
Guðmundur hóf slátt 16. júní, en
það er um tíu dögum fyrr en í meðal-
ári. Hann hefur þegar lokið við að
slá allt túnið, sem er um 55 hektar-
ar. Afar óvenjulegt er að slætti sé
lokið svo snemma. Ekki eru mörg
ár síðan bændur töldu gott ef þeir
náðu að ljúka heyskap fyrir verslun-
armannahelgi. Þess má geta að sam-
kvæmt gamla tímatalinu byija hey-
annir 28. júlí.
Ótryggur þurrkur
Þrátt fyrir að þurrkur hafi verið
ótryggur undanfarna daga hafa
margir bændur á Suðurlandi reynt
að eiga við heyskap. Gras er mjög
víða fullsprottið enda hefur verið
einstök sprettutíð síðustu daga, heitt
í veðri og votviðrasamt.
HRYGGJARLIÐIR í tæplega fertug-
um íslendingi brotnuðu í lendingu
eftir stökk af 12 metra háum kletti
niður í sjó á Calad’or suðaustur af
Palma á Mallorea upp úr hádegi á
laugardaginn. ísienskur fararstjóri á
vegum Samvinnuferða - Landsýnar,
ásamt þremur öðrum, náði mannin-
um upp og kallaði á aðstoð. Kristján
Gunnarsson, fjármálastjóri hjá Sam-
vinnuferðum - Landsýn, segir haft
eftir læknum á Mallorca að maður-
inn nái sér að fullu.
Kristján sagði að slysið hefði átt
sér stað í svokallaðri Klettastökks-
ferð. Klettastökksferðir, m.a. í þeim
tilgangi að stökkva ofan af klettin-
um, annað hvort úr 6 eða 12 m
hæð, hefðu verið farnar á vegum
ferðaskrifstofunnar slysalaust í
„Ég held að bændur hafí almennt
ekki áttað sig á vorinu. Þeir báru al-
mennt of seint á, en að mínu mati á
að bera áburð á túnin strax og hægt
er að komast um þau á traktor á
fimm ár. Ekki hefði heldur verið því
um að kenna að maðurinn hefði rek-
ið sig í klettinn eða botninn heldur
hefði hann gert mistök í stökki úr
12 m hæð og lent sitjandi en ekki
með fætuma á undan eins og gert
væri ráð fyrir. Hann hefði brotnað
í lendingunni.
Gylfi Steinn Gunnarsson, farar-
stjóri í ferðinni, kom manninum til
aðstoðar. „Við, ég og Svanhildur
vorin. Grasið hefur sprottið það hratt
að núna eru menn að komast í hin
mestu vandræði," sagði Guðmundur.
Guðniundur sagði að heyfengur
væri undirstaða fyrir afkomu bænda.
Davíðsdóttir, hinn fararstjóri hóps-
ins, vorum með honum og öðrum
hópi frá hótelinu við klettinn. Stokk-
ið hefur verið af klettinum í sjóinn
í mörg ár og aldrei orðið slys. Ég
sá manninn ekki stökkva. Hins veg-
ar sá ég hvernig hann veltist um í
sjónum og stökk því, ásamt öðrum
farþega, strax niður. Tveir voru fyr-
ir í sjónum og hjálpuðu okkur að
koma honum í land. Síðan var hlaup-
Með góðu heyi næðu bændur meiri
afurðum úr gripunum með lægri
kostnaði. Þeir gætu t.d. sparað sér
mikla fjármuni í kjarnfóðurkaup ef
heyið væri gott.
Mikill munur milli landshluta
Guðmundur sagði að staðan á
Súðurlandi væri alls ekki dæmigerð
fyrir stöðu bænda í heild. Um norð-
anvert landið og á jörðum sem liggja
ofar í landinu væri gróður mun
skemmra á veg kominn. Þar væru
bændur almennt ekki byijaðir að slá
vegna þess að þeir væru enn að bíða
eftir betri sprettu. „Líkast til hefur
munur á sprettu milli landshluta
sjaldan eða aldrei verið meiri en í
ár. Ég talaði við bónda á Vestfjörð-
um fyrir fáum dögum sem var ekki
farinn að setja út kýr vegna þess
að það var ekki kominn almennileg-
ur gróður fyrir þær.“
Guðmundur setur allt sitt hey í
rúllur og hefur gert það síðan árið
1989. Hann sagði að með rúllunum
hefðu bændut' stigið ótvírætt
framfaraskref. í kjölfarið hefði verk-
un á heyinu batnað mikið og vinnuá-
lag við heyskap minnkað.
ið upp á hótelið og kallað á lækni
og sjúkrabíl,“ sagði Gylfi Steinn.
Hann sagðist halda að einn hrygg-
jarliður hefði brotnað í manninum.
En rannsókn á honum stæði enn yfir.
Fluttur heim fljótlega
Kristján tók fram að Gylfi hefði
brugðist hárrétt við aðstæðum. Allir
fararstjórar á vegum ferðaskrifstof-
unnar hafa gengið í gegnum nám-
skeið í neyðarhjálp. Maðurinn var
fluttur á sjúkrahús og lá í gjörgæslu
þar til í gærmorgun. Hann hefur
mátt í fótum en verður væntanlega
rúmliggjandi 4 til 8 vikur. Læknar
á Mallorca telja að maðurinn nái sér
að fullu. Hann verður fluttur til ís-
lands fljótlega.
Fölsuðu
30 öku-
skírteini
RANNSÓKNARLÖGREGL-
AN í Hafnarfirði hefur haft
til rannsóknar fölsuð ökuskír-
teini sem tekin hafa verið af
unglingum á skemmtistöðum
undanfarið. Tveir menn hafa
viðurkennt að hafa búið til um
30 skírteini og selt á 5.000
krónur hvert.
Samkvæmt upplýsingum
frá rannsóknarlögreglunni í
Hafnarfirði eru það aðallega
unglingsstúlkur sem hafa
keypt skírteinin til að komast
inn á skemmtistaði. Mennirnir
tveir, sem bjuggu skírteinin
til, komust • yfir stimpil og
tókst þeim að gera skírteinin
þannig úr garði að mjög erfitt
var að sjá að um falsanir var
að ræða.
Mennirnir eru 21 og 22 ára
gamlir, annar úr Hafnarfirði,
hinn úr Reykjavjk. Þeir hafa
nú lagt þessa iðju af og telst
málið upplýst.
Borgarráð
Sjö skóla-
sljórar
ráðnir
BORGARRÁÐ hefur sam-
þykkt tillögu skólamálaráðs
um ráðningu sjö skólastjóra
við grunnskóla í Reykjavík frá
og með 1. ágúst n.k.
Samþykkt var einróma að
ráða Ragnar Þorsteinsson
skólastjóra Breiðholtsskóla,
Yngva Hagalínsson skóla-
stjóra Hamraskóla, Ernu
Sveinbjarnardóttur skóla-
stjóra Langholtsskóla, Haf-
stein Karlsson skólastjóra Se-
lásskóla og Þórð Kristjánsson
skólastjóra Seljaskóla.
Ennfremur var samþykkt
að ráða Guðbjörgu Þórisdóttur
skólastjóra Breiðagerðisskóla
og hlaut hún 3 atkv. en Júlía
Ingvarsdóttir hlaut 2 atkv.
Samþykkt var að ráða Berg-
svein Auðunsson skólastjóra
Vogaskóla og hlaut hann 3
atkv. en Agnes Björnsdóttir
hlaut 2 atkv.
Iskönnunarflug
Jaðarinn 32
mílur frá
landi
ÍSJAÐARINN er nú næst
landi 32 sjómílur norður af
Kögri.
Þetta kom fram í ískönnun-
arflugi TF-Sýnar úti fyrir
Vestfjörðum og Norðurlandi í
gær.
Vegna þoku var ísröndin
að mestu leyti könnuð með
ratsjá. Næst landi var ísjaðar-
inn 51 sjómílu norðvestur af
Blakk, 47 sjómílur norðvestur
af Barða, 32 sjómílur norður
af Kögri og 47 sjómílur norð-
austur af Hornbjargi.
Að því er fram kemur í yfir-
liti frá Landhelgisgæslunni
gæti verið að stakir jakar og
ísdreifar út frá ísröndinni sæ-
just ekki í ratsjá flugvélarinn-
ar.
Ungar teknir
í fóstur eftir
móðurmissi
BÖRN á leikjanámskeiði í Öldutúnsskóla tóku
á mánudag fimm unga í fóstur eftir að æða-
kollan móðir þeirra hafði orðið fyrir bifreið
á Reykjanesbraut. Einn unginn Iést hins vegar
í gær og var því ákveðið að fela Fjölskyldu-
og húsdýragarðinum ungana til varðveislu,
mætti það verða til að haida í þeim lífinu.
Hlynur Sigurðsson flokksljóri á leikjanám-
skeiðinu, segir að um hádegi á mánudag þeg-
ar börn og leiðbeinendur voru að koma úr
göngutúr frá Ásfjalli, hafi þau rekist á bæjar-
starfsmann sem var að reyna að nálgast ung-
ana og lét vita um hið hörmulega óhapp.
Hræddir og villtir
„Hann spurði okkur hvort við gætum farið
með ungana niður að tjörn, en sagði síðan að
það væri sjálfsagt ekki ráðlegt, því að þá
gætu bæði kettir og svartbakur komist í þá
og étið. Ungarnir voru hræddir og villtir, en
við náðum þeim og tókum í fóstur. Síðan skírð-
um við þá, hávirðulegum og þjóðlegum nöfn-
um, Höskuld, Sturlu, Skafta, Vigdísi og Yrsu
Þöll. Skafti dó síðan í gærmorgun og fékk
virðulega útör,“ segir Hlynur.
Að fegnum leiðbeiningum frá Fjölskyldu-
og húsdýragarðinum var ungunum gefinn
kattamatur, stappaður mjög smátt, og var
honum sprautað upp í þá. Einnig geta þeir
borðað bleytt brauð, hafragraut og soðin hrís-
Morgunblaðið/Sverrir
KRAKKARNIR á leikjanámskeið-
inu voru forvitnir og hrifnir af
fósturbörnum sínum meðan á dvöl
þeirra stóð, en ákveðið var að fag-
menn tækju við ungunum, til að
auka Hfslíkur þeirra.
grjón. Gefa þarf ungunum á tveggja tíma
fresti og tók einn starfsmaður leikjanám-
skeiðsins, Gerður Magnúsdóttir, að sér að
vakna á tveggja tíma fresti í fyrrinótt til að
fóðra ungana. Búið var um ungana í kassa
fóðruðum með peysum og með vatni í skál.
Tveggja daga ævintýri
Um það bil 80-90 börn á aldrinum 6-13 ára
hafa verið á námskeiðinu eftir hádegi og um
30 fyrir hádegi, og segir Hlynur að krakkarn-
ir hafi verið gríðarlega forvitnir um ungana.
„Börnin vildu öll halda á þeim og klappa,
en við reyndum að stilla því í hóf þannig að
ekki væri verið að hnoðast alltof mikið með
litlu greyin. Þetta var tveggja daga ævintýri
hjá okkur, og krakkarnir hafa verið rosalega
spenntir en nú er rétt að fagmennirnir taki
við,“ segir hann.
íslendingur slasaðist á Mallorca er hann stökk af 12 metra kletti
Fararstjóri skjót-
ur til hjálpar