Morgunblaðið - 03.07.1996, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Kröfur húsfélagsins Efstaleiti 10,12 og 14
Bent Scheving og
ráðuneyti sýknuð
HERAÐSDOMUR Reykjavíkur
sýknaði í gær umhverfisráðuneytið
og Bent Scheving Thorsteinsson,
Efstaleiti 12, af kröfum húsfélagsins
Efstaleiti 10, 12 og 14 og var húsfé-
laginu gert að greiða ráðuneytinu
200 þús. krónur og Bent Scheving
500 þús. krónur í málskostnað.
Húsfélagið fékk leyfi byggingar-
nefndar Reykjavíkur í október 1994
til að setja upp skilrúm við bar í
sameiginlegu rými hússins þar sem
er setustofa fyrir íbúa þess_ en íbúð
Bents er næst þessu rými. í desem-
ber sama ár var ákvörðun byggingar-
nefndar kærð til umhverfísráðuneyt-
is fyrir hönd Bents og þess krafist
að hún yrði ógilt. Ráðuneytið. úr-
skurðaði 1. mars 1995 að uppsetning
skilrúmanna væri það mikil breyting
á sameign í næsta nágrenni við íbúð
Bents frá samþykktum teikningum
að hann hafi mátt gera ráð fyrir að
þær yrðu ekki framkvæmdar án sam-
þykkis hans og felldi ákvörðunina
úr gildi.
Stjórn húsfélagsins fór þess á leit
við ráðuneytið 23. mars 1995 að það
tæki úrskurð sinn til 'endurskoðunar
á þeirri forsendu að það hefði ekki
fengið eðlilega aðstöðu til að skýra
sjónarmið sín áður en ráðuneytið
kvað upp úrskurð sinn. Það var gert
og úrskurðaði ráðuneytið 21. júlí
1995 að fyrri úrskurður skyldi standa
óbreyttur.
27. júlí gaf bygginganefnd
Reykjavíkur húsfélaginu frest til 20.
ágúst til að færa innréttingar í það
horf sem hafði verið samkvæmt því
byggingaleyfi sem gilti fyrir 10.
nóvember 1994. Á fundi byggingar-
nefndar Reykjavíkur 31. ágúst 1995
var lagt fram bréf lögmanns húsfé-
lagsins frá 24. ágúst. Þar var greint
frá fyrirhugaðri málshöfðun ög þess
farið á leit að frestur yrði gefinn til
að breyta innréttingum þar til
endanleg dómsniðurstaða lægi fyrir.
Bygginganefnd féllst ekki á þá
málaleitan.
Umhverfisráðuneytið fékk málið
enn einu sinni til umfjöllunar 19.
september þegar húsfélagið kærði
synjun bygginganefndar um að frest-
að yrði að framfylgja úrskurðum
ráðuneytisins frá 1. mars og 21. júlí
1995. Ráðuneytið úrskurðaði 18.
desember að ákvörðun byggingar-
nefndar skyldi standa óbreytt.
Húsfélagið höfðaði mál á hendur
Bent Scheving og ráðuneytinu. Kröf-
ur þess voru þær að úrskurðir ráðu-
neytisins frá 10. nóvember 1994 og
1. mars 1995 yrðu ógiltir og að Bent
Scheving yrði gert að þola ógilding-
ardóm.
Kröfur húsfélagsins voru m.a. á
þeim forsendum að úrskurðir ráðu-
neytisins væru byggðir á röngum
forsendum, þeir væru ekki nægilega
rökstuddir og að húsfélag geti með
meirihlutaákvörðun afráðið um
breytingar á sameign og innrétting-
um og éinstakir eigendur hefðu ekki
neitunarvald í því efni.
Fallist á forsendur
I dóminum eru úrskurðimir taldir
fullnægja að formi og efni og kröfum
sem gerðar séu skv. stjórnsýslulög-
um og rökstuðningur þeirra sagður
fullnægjandi. Dómurinn fellst á þá
meginforsendu úrskurðanna að upp-
setning skilrúmanna hafi falið í sér
svo óvenjulega ráðstöfun og mikla
breytingu frá samþykktum teikning-
um varðandi nýtingu sameignar í
næsta nágrenni við íbúð Bents Sche-
ving að þær hafi ekki mátt gera án
samþykkis hans.
Sigurður Hallur Stefánsson hér-
aðsdómari dæmdi málið.
Verk eftir Erró fór
á 4.000 pund
MÁLVERK eftir íslenska myndlistarmanninn Erró
seldist fyrir 4 þúsund sterlingspund, eða rúmlega 400
þúsund krónur, á uppboði hjá Sotheby’s í London í
síðustu viku. Kaupandi málverksins var erlendur
einkaaðili.
Um er að ræða olíumálverk af fyrrverandi forsætis-
ráðheri-a Bretlands, Winston Churchill. Erró málaði
myndinaárið 1974, en húner 101,5 x 114 sm að stærð.
Að sögn Sigríðar Ingvarsdóttur, fulltrúa Sotheby’s
á íslandi, hefur sala á verkum Errós verið nokkuð
dræm hjá fyrirtækinu undanfarið. „Það er vissulega
ánægjulegt þegar myndir eftir íslenska myndlistar-
menn seljast hjá Sotheby’s, þótt verðið þyki ekki
mjög hátt,“ segir Sigríður. Myndin var metin á fjög- MÁLVERK eftir Erró af Winston Churchill seld-
ur til sex þúsund pund fyrir uppboðið. ist fyrir 4 þúsund pund hjá Sotheby’s í síðustu viku.
Bruni í verslun-
inni Gullauga
ísafirdi. Morgunblaðið.
RÉTT eftir hádegi í gær gaus upp
eldur í versluninni Gullauga á
ísafirði. Húsnæðið fylltist af reyk
á skammri stundu. Slökkviliðið
kom strax á fyrstu mínútum á
staðinn og fóru reykkafarar inn í
húsið.
Ástþór Helgason starfsmaður
Gullsmíðaverkstæðisins brá skjótt
við og slökkti eldinn með tveimur
duftslökkvitækjum, áður en
slökkviliðið kom á vettvang.
Eldsupptök má rekja til þess að
rafmagnsmótor brann yfir og lagði
þykkan reykjarmökk yfir allt í
versluninni. Ekki er mikið um
skemmdir í versluninni aðrar en
af reyk og dufti, en ljóst er að
mikil vinna er framundan við þrif.
I Gullauganu er rekin verslun
með skartgripi sem listamaðurinn
Dýrfinna Torfadóttir hannar og
smíðar, en hún hefur einnig verk-
stæði á sama stað.
Sálmar og ljóð dr.
Sigxirbjöms biskups
í TILEFNI af 85 ára
afmæli dr. Sigurbjöms
Einarssonar biskups
hefur Friðrikskapella
gefið út bókina Sálmar
og ljóð Sigurbjöms
biskups.
í bókinni era 87
sálmar, þýddir og fru-
mortir. Sumir þessara
sálma hafa birst áður,
en allmargir þeirra
koma nú í fyrsta skipti
fyrir almenningsjónir.
Þá eru í bókinni þýð-
ingar á nokkrum ljóð-
um eftir sænska skáld-
ið Hjalmar Gullberg.
Formála ritar Bolli Gústavsson
vígslubiskup. Þar segir meðal
annars: „Sálmaskáldið Sigur-
björn Einarsson á sér ekki langan
feril, þótt sýnt sé nú, að með
þýddum og framsömdum sálmum
muni hann marka dýpst spor,
jákvæð og tímabær, í sálmasögu
Íslendinga á ofanverðri 20. öld.
Hann hefur glatt kristna sam-
starfsmenn sína, vakið vonir um
það, að dagar nýrra sálma séu
ekki liðnir. Allir eru sálmar hans
með sígildu yfirbragði, hafnir
yfir skammæja dægurlist, en ná
eigi að síður vel til
samtímans, til
þeirra aðstæðna,
sem ríkja hér og nú.
Af andagift og
næmri málkennd
bætir hann við eldri
arf og oftar en ekki
með þær aðstæður
og athafnir í huga
þar sem sálma vant-
ar.“
Sálmar og ljóð
Sigurbjörns biskups
eru í handhægu
broti, alls 144 bls.
Sálmarnir eru
flokkaðir og þeim
skipað eftir efni með sama hætti
og í Sálmabók þjóðkirkjunnar.
Efnisyfirlit er þannig gert að þar
er jafnframt vísað til laga við
sálmana.
Umsjón með útgáfunni hafði
daséra Sigurður Pálsson, umbrot
og filmuvinnslu annaði'st Offset-
þjónustan, Prenthúsið prentaði
og Félagsbókbandið — Bókfell sá
um bókband. Áður hefur Friðrik-
skapella gefið út Söngva séra
Friðriks.
Bókin er seld í bókaverslunum
Eymundssons og Kirkjuhúsinu.
Sigurbjörn
Einarsson
Hræringar á svínakjötsmarkaðnum
Mikill afsláttur næstu
daga til að örva sölu
SVÍNABÆNDUR selja fram-
leiðslu sína með allt að 25% af-
slætti til verslana þessa viku. Að
sögn Kristins Gylfa Jónssonar, for-
manns Svínaræktarfélags íslands,
hafa verið miklar hræringar á
markaðnum á þessu ári og nú hafa
sláturleyfishafar og svínabændur
á Suðurlandi tekið ákvörðun um
að slátra verulegu magni og stór-
lækka verðið í eina viku.
„Þetta er gert til að örva sölu
og svara auknu framboði. Við ger-
um ráð fyrir að það umframkjöt
sem til er seljist upp á nokkrum
dögum, það er okkar reynsla,“ seg-
ir Kristinn Gylfi og bætir við:
„Framboð á svínakjöti hefur aukist
um 20% á þessu ári miðað við sama
tíma í fyrra, en það er hins vegar
ekki alveg rétt sem Júlíus Jónsson,
kaupmaður í Nóatúni, segir um
fjölgun framleiðenda í frétt í Morg-
unblaðinu í gær. Svínabændum
hefur þvert á móti verið að fækka.
í kringum 1988 voru um það bil
130 til 140 framleiðendur í landinu
Framboð hefur
aukist um 20% frá
áramótum
en nú eru þeir innan við 90. Þeim
hefur verið að fækka gegnum árin
vegna aukinnar samkeppni og
jafnframt því hafa búin stækkað,“
segir Kristinn Gylfi.
Neysla á svínakjöti að aukast
Hann segir einnig að neysla á
svínakjöti sé að aukast verulega
og vel hafi gengið að selja. Hins
vegar sé afkoma svínabænda mjög
slæm um þessar mundir og fari
þar saman mikil verðlækkun á kjöti
frá áramótum og mjög mikil hækk-
un á fóðurverði. Þetta geri það að
verkum að mörg bú séu nú rekin
með tapi.
Verslanirnar Nóatún og Bónus
riðu á vaðið í gærmorgun með
mikinn afslátt af svínakjöti og aðr-
ar verslanir fylgja í kjölfarið í dag.
Aðspurður hvort þessi mikla
verðlækkun á svínakjöti sé líkleg
til að hafa áhrif á sölu á kjúkling-
um segist Bjarni Ásgeir Jónsson,
formaður Félags kjúklingabænda,
ekki hafa mikla trú á því. „Fram-
leiðslan er ekkert alltof mikil þessa
stundina og ekki miklar birgðir,
þar sem við vorum með útsölur í
langan tíma í vetur. Þetta gæti
auðvitað haft einhver áhrif rétt í
bili en ég geri ekki ráð fyrir að
það raski neinu nema verðlækkun-
in verði til lengri tíma,“ segir
Bjarni.
Guðbjörn Árnason, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
kúabænda, tekur í sama streng:
„Við eigum ekki við offramleiðslu-
vandamál að stríða eins og svína-
bændur. Það hefur verið mjög góð
sala á nautakjöti það sem af er
ári. Framboð og eftirspurn haldast
nokkurn veginn í hendur, þannig
að það er ekkert sem bendir til
þess að nautgripabændur þurfi að
lækka verð á sinni framleiðslu."