Morgunblaðið - 03.07.1996, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 1996 11
FRÉTTIR
Landgræðsla ríkisins og
heimamenn í Þorláks-
höfn standa fyrir upp-
græðsluátaki í sumar.
Markmiðið er að tryggja
varanlega uppgræðslu
sandsins í kringum
þorpið en sandfok sem
tók sig upp í vetur eftir
margra ára hlé gæti
annars ógnað byggð og
matvælavinnslu
á staðnum. Helgi
Bjarnason kynnti
sér starfið.
aði og breikkaði og þar eru nú marg-
ar milljónir tonna af sandi. Á dögum
þjóðargjafarinnar, 1975-79, var gert
mikið átak í uppgræðslu á Þorláks-
hafnarsvæðinu, sérstaklega inn af
sjávarkambinum, og segir Sveinn að
Þorlákshafnarbúar hafí fengið góðan
frið fyrir sandfoki fram í byrjun
þessa áratugar. Sveinn tekur svo
djúpt í árinni að segja að ef ekki
hefði verið unnið að uppgræðslu
væri hvorki byggð né útgerð í Þor-
lákshöfn í dag.
SUNNLENSKU árnar bera til sjávar
jarðveg sem blæs upp á hálendinu.
Framburður Ölfusár og líklega einnig
Þjórsár stöðvast í Hafnarvík austan
Þorlákshafnar. Þessi fíngerði sjávar-
sandur berst síðan inn á landið í
sunnan- og suðaustanveðrum.
Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri
segir að þetta hafi áreiðanlega verið
að gerast í nokkrar aldir. Þurrar
austan- og norðaustanáttir hafa síð-
an feykt sandinum yfir landsvæðið
við Þorlákshöfn.
Stöðugtsandfok
„Þegar þorp var að myndast hér
fyrir 1950 og útgerð að hefjast fyrir
alvöru varð ljóst að ekki var unnt
að búa við það stöðuga sandfok sem
var inn í kauptúnið. Upp úr því var
hafíst handa við uppgræðslu landsins
með sáningu melfræs í sandvarna-
garða við fjöruborðið og inni á land-
inu. Allt umhverfi Þorlákshafnar var
friðað fyrir ágangi búfjár fimmtán
árum fyrr. Tilgangurinn var að hefta
þetta sandskrið upp úr fjörunni þann-
ig að hægt yrði að takast á við land-
græðslu án þess að liggja undir stöð-
ugu áfoki," segir Sveinn.
Meigresið á sjávarkambinum safn-
aði smám saman í sig sandi, hækk-
ÞORLÁKSHAFNARBÚAR eru að útbúa golfvöll í sandhólunum.
Sá árangur sem náðst hefur á golfvallarsvæðinu hefur orðið
þeim hvatning til frekari átaka. Hér sitja Sveinn Runólfsson
landgræðslustjóri, Jón Ingi Jónsson garðyrkjustjóri og Guð-
mundur Hermannsson sveitarstjóri í grasinu við eina flötina.
REYNT er að loka skörðunum í sandvarnagarðinum með hey-
rúllum og svo er sandurinn sem hleðst að bundinn með melgresi.
Morgunblaðið/Ásdis Ásgeirsdóttir
GREINILEGA er mikið verk óunnið á sandflákunum við Þorlákshöfn þó Þráinn Sigurðsson gróðurselji nokkur þúsund Iúpínuplöntur.
Barist vid sandinn
Unnið er að styrkingu sandvama-
garðsins í fjörunni með því að fylla
í skörð og sá melfræi. Jafnframt er
unnið að alhliða landgræðsluverkefn-
um á sandsvæðunum umhverfís Þor-
lákshöfn. Melfræi er sáð í opin sand-
svæði og þar sem gróður er fyrir er
reynt að styrkja hann með áburðar-
gjöf og loðvíði plantað í þeim til-
gangi að flýta fyrir náttúrulegri
gróðurframvindu. Markmiðið er að
sjá sem mest af svæðinu innan sjáv-
arkambsins vaxið loðvíði og gulvíði
þegar fram líða stundir. Sandurinn
er gjörsneyddur öllum næringarefn-
um og því er lúpína notuð á valin
svæði þar sem gróður á í vök að
veijast og ekki er hægt að sá mel-
fræi.
Að sögn Jóns Inga garðyrkjustjóra
verður 35-40 þúsund lúpínum plant-
að í sumar og 10 þúsund víðiplönt-
um. Fræi og áburði er sáð úr flugvél-
um og með vélum á jörðu niðri. Fyr-
ir sáningu eru sandhólar sléttaðir út.
Starfsmenn Landgræðslunnar
vinna að ýmsum verkefnum og einn-
ig vinnuflokkur sem styrktur er af
Atvinnuleysistryggingasjóði. Al-
mennur áhugi er fyrir þessu verkefni
í Þorlákshöfn. Þannig hafa vörubíl-
stjórar dreift áburði á 200 hektara
í sjálfboðavinnu. Meitillinn gaf eina
milljón til uppgræðslu og Olís styrkir
einnig verkefnið. Lionsmenn, Kiwan-
ismenn og kvenfélagskonur hafa
unnið að því. Landeigendur Hrauns
hafa einnig lagt verulega fjármuni í
uppgræðslu á sínu landi. Haldinn var
landgræðsludagur í vor og þann dag
var sáð í 70-80 hektara lands og
settar niður 6.500 lúpínuplöntur svo
dæmi sé tekið. Sveitarstjórinn telur
að á annað hundrað manns hafí unn-
ið að uppgræðslustarfinu.
Landgræðslan leggur 15 milljónir
í uppgræðslu Þorlákshafnarsvæð-
isins og er það eitt stærsta verkefni
stofnunarinnar í ár.
Ógnuu við matvælaframleiðslu
Viðmælendur eru sammála um
að með uppgræðslunni í sumar og
næstu ár sé verið að tryggja búsetu
í Þorlákshöfn. Á staðnum er fjöldi
smárra og stórra fiskvinnslufyrir-
tækja og fiskeldi og er sandfokið
talið ógnun við tilvist þeirra. Þá er
sú tíð liðin að fólk geti sætt sig við
búsetu á stað þar sem hætta er á
sandfoki. Þetta skýrir þann almenna
áhuga sem er á uppgræðslustarfínu
og er Sveinn landgræðslustjóri mjög
ánægður með það, segir að það tvö-
faldi ánægjuna fá fólkið með í starf-
ið.
GÖMUL beitarhús frá Hrauni í Ölfushreppi eru að hverfa í
sand. Nú er aðeins hægt að ganga boginn inn undir ris húsanna.
Færðumst mörg ár
aftur í tímann
I ofsaveðrum á útmánuðum 1991
og aftur árið eftir tættust upp eldri
sáningar og skörð komu í stóra sand-
varnagarðinn í íjörunni og jókst þá
aftur sandburður upp á landið. Síð-
asta vetur gerði óvenjumikil vestan-
veðúr og fauk þá sandur yfír þorpið
á nýjan leik. „Við fengum þá yfir
okkur sand af svæðum sem ekki
hefur fokið af áður. Það litaði öll
hús, eyðilagði klæðningar og sand-
skaflar mynduðust í görðum. Það var
eins og að færast mörg ár aftur í
tímann,“ segir Jón Ingi Jónsson,
garðyrkjustjóri Ölfushrepps. Teiur
hann að sandur hafí fokið yfir á vest-
ursvæðið og svo þegar óvenjulega
hvasst rok hafi komið að vestan hafi
sandurinn borist yfir þorpið.
Guðmundur Hermannsson sveit-
arstjóri segir að fyrir nokkrum ára-
tugum hafí sandfok verið hluti af
daglegu lífí íbúa Þorlákshafnar. Fólk
hafí þurft að moka sandi úr görðun-
um og enginn kippt sér upp við það.
Nú gerði fólk aðrar kröfur og gæti
ekki sætt sig við sandfok og því sé
nauðsynlegt að vinna skipulega að
því að koma í veg fyrir að það gæti
gerst.
Unnið eftir landgræðsluáætlun
Landgræðslan lét vinna land-
græðsluáætiun fyrir Þorlákshöfn
1996-2000 með það að markmiði að
tryggja varanlega uppgræðslu svæð-
isins og vegna sandfoksins í vetur
lagði sveitarstjórnin áherslu á að
SANDURINN hefur hlaðist
svo mikið upp innan við var-
nagarð að landgræðslustjóri
getur tyllt fæti ofan á sjö
metra háan símastaur.
henni yrði hrint í framkvæmd nú
þegar. Landgræðslan, hreppsnefndin
og fjöldi áhugamanna hafa tekið
höndum saman um verkefnið.