Morgunblaðið - 03.07.1996, Page 26
26 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ1996 27
PlinrgiiwWalíllí
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
SÓKN ÍSLENDINGA Á
ERLENDA MARKAÐI
ISLENDINGAR sækja nú í auknum mæli á erlenda markaði
og hafa íslenzk fyrirtæki á síðustu misserum og árum
verið að hasla sér völl erlendis og auka þar umsvifin. Þessi
þróun er bein afleiðing aukins frjálsræðis í viðskiptum.
í Morgunblaðinu fyrir nokkrum dögum var sagt frá því,
að Eimskipafélag íslands hf. hefði stofnað tvö ný fyrirtæki í
Bretlandi og með stofnun þeirra væri fyrirtækið að styrkja
stöðu sína í samkeppni á erlendri grund, einkum í Eystrasalts-
ríkjunum og Rússlandi. Með því telur félagið, að það geti
tekið þátt í þeirri þróun og uppbyggingu, sem þar á sér nú stað.
Þessi aukning á starfsemi Eimskipafélagsins í öðrum lönd-
um er ekkert einsdæmi í fyrirtækjarekstri á íslandi. Fjölmörg
önnur fyrirtæki hafa aukið umsvifin erlendis og nægir þar
m.a. að minna á útgerðarfyrirtækin Granda, Útgerðarfélag
Akureyringa, Samheija á Akureyri að ekki sé talað um fisk-
sölufyrirtækin, en öll hafa þessi fyrirtæki hleypt heimdragan-
um markaðslega séð og vinna nú í öllum heimshornum á sviði
veiða og fiskvinnslu.
Þessi þróun er í senn mjög hagkvæm íslendingum sem og
fagnaðarefni. Það hefur oft viljað standa íslenzkum fyrirtækj-
um fyrir þrifum, hve lítill markaðurinn er hér heima. Akveð-
inn fastur kostnaður fylgir því að framleiða einhverja afurð
eða láta í té ákveðna þjónustu. Eftir því sem unnt er að dreifa
þessum fasta kostnaði á fleiri viðskiptavini hlýtur það að
koma heildinni til góða og þar með hljóta aukin umsvif þess-
ara fyrirtækja að lækka verð þeirrar þjónustu sem þau veita.
ÍSLAND OG NAMIBÍA
DAVÍÐ ODDSSON, forsætisráðherra, fór í opinbera heim-
sókn til Afríkuríkisins Namibíu í júlímánuði í fyrra.
Oskar Valentin Plichta, samgönguráðherra Namibíu, kom í
opinbera heimsókn til íslands fyrir skemmstu. Halldóri Blön-
dal, samgönguráðherra, hefur verið boðið í slíka heimsókn til
Namibíu á næsta ári. Þessar heimsóknir eru eins konar inn-
sigli eða staðfesting á vel heppnuðu samstarfi íslands og
Namibíu, sem annars vegar hefur stuðlað að uppbyggingu
og jákvæðri þróun í Namibíu og hins vegar markaðssett ís-
lenzkt framtak, íslenzkt hugvit og íslenzka fagþekkingu ytra.
í heimsókn samgönguráðherra Namibíu hingað var undirrit-
að samkomulag um að Helgi Jóhannesson, lögfræðingur í
samgönguráðuneytinu, fari til tímabundinna starfa þar í landi
og aðstoði við uppbyggingu siglingamálastofnunar. Þorgeir
Pálsson, flugmálastjóri, mun og heimsækja Namibíu sem ráð-
gjafi við uppbyggingu flugstjórnarmiðstöðvar, en Grétar Ósk-
arsson, flugumferðarstjóri, hefur gegnt starfí flugumferðar-
stjóra þar í landi um eins og hálfs árs skeið. A annað hundr-
að íslendingar hafa verið búsettir í Namibíu um árbil, meðal
annars á vegum Þróunarsamvinnustofnunar íslands, sem að-
stoðað hefur þarlenda við rannsóknir og uppbyggingu í sjávar-
útvegi, og starfandi við sjávarútvegsfyrirtæki í landinu. Sam-
starf á fleiri sviðum hefur verið rætt, m.a. á sviði heilbrigðis-
þjónustu og skipasmíði.
FORSETIOG
FJÖLMIÐLAR
Ifjölmiðlaheimi nútímans komast stjórnmálamenn og emb-
ættismenn og aðrir þeir, sem bera opinbera ábyrgð, ekki
hjá því að eiga mikið samstarf við fjölmiðla. í ýmsum öðrum
löndum er svo mikil áherzla lögð á þessi samskipti af hálfu
t.d. stjórnmálamanna, að þeir haga tímasetningu mikilvægra
yfirlýsinga eftir stundaskrá fjölmiðla. Þessi samskipti mættu
vera betri hér.
Sl. mánudag óskaði Morgunblaðið eftir samtali við nýkjör-
inn forseta íslands, Ólaf Ragnar Grímsson, um úrslit kosning-
anna. Blaðið fékk þau svör, að hinn nýkjörni forseti mundi
ekki tala við fjölmiðla þann dag. í gær, þriðjudag, var þessi
ósk ítrekuð. Þá var henni svarað á þann veg, að nýkjörinn
forseti mundi ekki veita fjölmiðlum frekari viðtöl fyrr en eft-
ir embættistöku í byrjun ágústmánaðar.
Það er skiljanleg afstaða og ber að virða, að nýkjörinn
forseti haldi sig til hlés þar til eftir embættistöku og á meðan
fráfarandi forseti er enn í embætti. Erfiðara er að skilja, að
nýkjörinn forseti vilji ekki svara spurningum útbreiddasta
dagblaðs þjóðarinnar um úrslit kosninganna sjálfra, jafnvel
þótt þær séu bornar fram á mánudegi.
Morgunblaðið hlýtur hins vegar að skýra lesendum sínum
frá því, hvers vegna blaðið hefur birt umsögn allra annarra
frambjóðenda um kosningaúrslitin en ekki þess frambjóð-
enda, sem kjörinn var til embættisins.
LÖGUM samkvæmt verður að
fara fram mat á umhverfis-
áhrifum áður en ráðist er í
miklar framkvæmdir eins
og virkjun. Áður en framkvæmd fæst
samþykkt af skipulagsyfirvöldum fer
fram frummat á vegum Landsvirkjun-
ar, þar sem dregin eru fram helstu
atriði sem áhrif geta haft á umhverf-
ið. Það hefur verið gert vegna miðlun-
ar við Hágöngur og hefur niðurstaðan
verið send til skipulagsstjóra ríkisins.
Skipulagsstjóri auglýsti framkvæmd-
ina og var frummatsskýrslan kynnt í
febrúar og mars sl. Þijár athugasemd-
ir bárust en auk þess var leitað eftir
umsögn sjö opinberra aðila, tveggja
hreppa, Hollustuvemdar ríkisins, Nátt-
úruvemdarráðs, Orkustofnunar, Vega-
gerðarinnar og veiðimálastjóra. Auk
þess var send kynning til embættis
veiðistjóra, Landgræðslu ríkisins, sam-
vinnunefndar um svæðisskipulag mið-
hálendisins og Þjóðminjasafns íslands.
í frummatsskýrslu Landsvirkjunar,
sem send var embætti skipulagsstjóra
ríkisins í janúar 1996, er kynnt bygg-
ing stíflu í Köldukvísl við Syðri-
Hágöngu og hjástífla norðvestan
Syðri-Hágöngu, sem mun mynda allt
að 40 ferkílómetra lón. Auk þess er
kynnt lagning 19 km vegar að stíflu-
stæðinu frá Kvíslaveituvegi norðan
Kvíslavatns.
Hagkvæmur kostur
í skýrslunni kemur fram að Há-
göngumiðlun verði um 385 gígalítrar
að stærð. Tilgangur miðlunarinnar er
að auka miðlun á vatnasviði Köldu-
kvíslar en vatn frá Hágöngumiðlun
mun nýtast til aukinnar orkuvinnslu
núverandi virkjana á Tungnaár-Þjórs-
ársvæðinu við Sigöldu, Hrauneyjafoss
og Búrfell. Auk þess mun vatnið nýt-
ast við framtíðarvirkjanir á svæðinu
við Vatnsfellsvirkjun, Búðarhálsvirkj-
un, Sultartangavirkjun og við stækk-
un Búrfellsvirkjunar.
Með Hágöngumiðlun mun orkugeta
raforkukerfisins aukast um allt að 200
GWh/ári segir í frummatsskýrslu
Landsvirkjunar. Fram kemur að ef
borin er saman stækkun Þórisvatn-
smiðlunar yrði aukning kerfísins um
130 Gwh/a en talsvert meiri eða um
196 Gwh/a við Hágöngumiðlun en
stofnkostnaður yrði svipaður. Gerð
miðlunar við Hágöngur væri því talinn
hagkvæmari kostur. Áætlaður kostn-
aður við miðlunina er um 1,2 milljarðar.
Þörf fyrir miðlun á
árunum 1997 til 1998
Þá segir í frummatsskýrslunni: „Því
hefur Landsvirkjun ákveðið að stefna
að gerð miðlunar við Hágöngur á
næstu árum, en fresta um óákveðinn
tíma fyrri áætlunum um hækkun á
vatnsborði Þórisvatns. Ákvörðun um
byggingu miðlunarinnar er háð samn-
ingum um byggingu stóriðju sem eru
á viðræðustigi nú. Ef miðað er við
mesta hraða við uppbyggingu stóriðj-
unnar verður þörf fyrir miðlunina
strax veturinn 1997 til 1998 og þarf
því að byggja miðlunarmannvirki við
Hágöngur á árinu 1996 og 1997 svo
unnt verði að safna vatni í lónið sum-
arið 1997.“
Samkvæmt lögum er Landsvirkjun
heimilt að fengnu samþykki ráðherra,
að gera ráðstafanir til að tryggja rekst-
ur orkuvera á Þjórsársvæðinu, m.a.
með stækkun Kvíslaveitu, stækkun
Þórisvatnsmiðlunar og stíflu við Sult-
artanga. Samkvæmt þessum lögum
hefur verið unnið m.a. að byggingu
Kvíslaveitna og mun bygging Hágöngu-
miðlunar einnig falla undir þau lög.
í frummatsskýrslunni segir að líf-
ríki sé lítið og fábreytt við Hágöngur
og að litlar breytingar muni verða
með tilkomu lónsins þótt einstaka
staðir innan svæðisins breytist mikið
einkum þeir sem fari undir vatn. Gróð-
ur sé rýr og að stærstum hluta gróður-
litlir melar, sandar og aurar og að
hluta til gróðurlítið hraun. Fuglalíf
og annað dýralíf sé mjög lítið og ekki
vitað um fískilff í Köldukvísl og Sveðju
enda væru það að mestu jökulár. Er
því haldið fram að með tilkomu Há-
göngpmiðlunar muni skapast bætt skil-
yrði fyrir fískilíf í Köldukvísl neðan
stíflunnar, þar sem jökullitur árinnar
muni hverfa að sumarlagi. Tekið er
fram að litlar athuganir og rannsóknir
hafi farið fram á lífríki svæðisins og
að æskilegt væri að gera lauslega út-
tekt á því áður en miðlunin tæki til
starfa.
Svæðið umhverfis Hágöngur er á
afrétti Ása- og Djúpárhrepps í Rang-
árvallasýslu en ekki sé ljóst hver telst
.+ -
vera eigandi landsins, segir í skýrsl-
unni. Fram kemur að sveitarstjórnum
hafi verið kynntar hugmyndir að miðl-
uninni og að engin andmæli hafi kom-
ið frá þeim. Bent er á að verið sé að
vinna að heildarskipulagi fyrir hálend-
ið og að það skipulag nái yfir land-
svæði miðlunarinnar.
Jarðhitasvæði undir vatn
í frummatsskýrslunni kemur einnig
fram að tvær jökulár falli um lónstæð-
ið, Kaldakvísl og Sveðja, sem samein-
ast rétt ofan Syðri-Hágöngu. Bent er
á að í jaðri Sveðjuhrauns komi fram
iindir, sem sameinaðar gefi um 1,6
rúmmetra af vatni á sekúndu. Vatn í
meginhluta lindanna er um +2°C
heitt, en í nokkrum hluta þeirra mæl-
ist hærra hitastig, sem bendi til blönd-
unar við jarðhita. Á eyrum skammt
norðar er jarðhitasvæði, sem sést á
yfirborði, þar sem eru gufuaugu með
um +100°C heitu vatni og einnig eru
heitar lindir um 3 km norðaustar.
Svæðið er skráð sem háhitasvæði en
virðist lítið að umfangi. Tekið er fram
að ekki sé vitað til sérstakra eða
óvenjulegra jarðmyndana á miðlunar-
svæðinu en á Köldukvíslaraurum sé
jarðhitasvæði, sem muni fara undir
vatn þegar miðlunin taki til starfa.
Tekið er fram að rannsóknir á stærð
og eðli jarðhitans hafi farið fram
sumarið 1995 og að þeim verði haldið
áfram og verði lokið áður en svæðið
fari undir vatn.
Leitað umsagna
Að fenginni frummatsskýrslu á
mati á umhverfisáhrifum leitaði skipu-
lagsstjóri ríkisins samkvæmt lögum
eftir umsögnum opinberra aðila. Um-
sagnirnar voru sendar Landsvirkjun,
sem svaraði þeim, og er úrskurður
skipulagsstjóra byggður á frummats-
skýrslunni, umsögnum opinberra aðila
og svörum Landsvirkjunar en eins og
áður segir hefur Landsvirkjun kært
þann úrskurð til umhverfisráðherra.
Leitað var umsagnar sveitarstjórn-
ar Ása- og Djúpárhrepps og kemur
fram að þær geri engar athugsemdir
varðandi mat á umhverfisáhrifum og
telja að í matsskýrslunni komi nægi-
lega vel fram þau umhverfísáhrif, sem
verða munu á svæðinu. Benda þó á
að sveitarstjórnimar séu skipulags-
nefndir svæðisins og jafnframt er
áréttað að hrepparnir séu eigendur
afréttarins.
Ekki hætta af
tímabundinni mengun
í umsögn Hollustuverndar ríkisins
kemur fram að líklega muni umhverf-
inu ekki stafa hætta af tímabundinni
loft-, hávaða-, vatns- og úrgangs-
mengun. Þá segir: „Vatnasvæði Þjórs-
ár, Tungnaár og Köldukvíslar hefur
verið raskað mjög mikið undanfarna
tvo áratugi og hefur landslag tekið
þar miklum breytingum. Enn eru fyr-
irhugaðar breytingar á sama vatna-
svæði án þess að gerð sé tilraun til
að meta heildarumhverfisáhrif miðl-
unar/virkjunar en fleiri virkjanir eru
fyrirhugaðar á svæðinu. Löngu er
orðið tímabært að staldra við og meta
heildarumhverfisáhrif virkjunar
vatnasvæðisins. Markvisst er þrengt
að náttúru landsins með vegum, stífl-
um og raflínum. Lítill vafí leikur á
því að framkvæmdir hafa áhrif á
mætur almennings á náttúrulegu
landslagi. Taka verður tillit til þess
og samræma landnýtingu á svæðinu
og virða náttúruverndarsjónamið.
Markmið með virkjuninni er að full-
nægja ákveðinni áætlaðri raforkuþörf.
í mati á umhverfissáhrifum ber að
gera grein fyrir þeim valkostum sem
til greina koma til að fullnægja þeirri
þörf. Að hluta til má ætla að orku-
sparnaður, bætt nýting o.þ.h. séu
lausnir sem skoða bæri jafnhliða nýj-
um eða endurbættum miðl- __________
unum/virkjanamöguleik-
um.“
Bent er á í umsögninni
að enginn valkostur sé gef-
inn hvorki á öðrum miðlun-
arstað eða hvort hlífa mætti
hverasvæðunum með lægri
vatnsborðsstöðu. Hvað varði ferða-
þjónustu og útivist þurfí að gera betur
grein fyrir áhrifum af uppbyggingu á
framtíð svæðisins. Til þessa hafi Há-
göngu- Vonarskarðs- og Tungnafell-
sjökulsvæðið verið nær ósnortið og
gildi þess falið í víðáttu með torveldu
aðgengi, sérstæðri náttúru sem spillist
hratt og rýrni. Farið er fram á að
sett verði saman yfirlitstafla yfir virkj-
anir og miðlun á vatnasvæðinu, stærð
HÁGÓNGUMIÐLUN
JARÐHITASVÆÐIÐ í Köldukvíslarbotnum mun fara undir vatn með tilkomu miðlunar við Hágöngur.
Deilt um þörf fyrir
frekara umhverfismat
*
Urskurður skipulagsstjóra ríkissins um að fram
fari frekara mat á umhverfísáhrifum vegna
framkvæmda við fyrirhugaða Hágöngumiðlun
hefur verið kærður til umhverfisráðherra.
Kristín Gunnarsdóttir hefur kynnt sér
aðdraganda fyrirhugaðra framkvæmda, sem
rakinn verður í tveimur greinum.
Lónið verður
allt að 40
ferkílómetrar
að stærð
raskaðs lands, lands sem hefur farið
á kaf og hve mörgum árfarvegum
hafí verið breytt auk yfírlits yfir áhrif
af breyttu aðgengi. Þá væri æskilegt
að fá unnar Ijósmyndir er sýni fyrir-
hugað lón frá þeim stöðum, þar sem
mest ber á því.
í svari Landsvirkjunar við umsögn
Hollustuverndar er bent á að staðhæf-
ing um áhrif af tímabundinni loft,-
hávaða-, vatns- og úrgangsmengun sé
ekki rökstudd né heldur að líklegt sé
að umhverfmu muni ekki stafa umtals-
verð hætta af þeim verði ákvæðum
mengunarreglugerðar fylgt. Að mati
Landsvirkjunar hafa þessar staðhæf-
ingar ekkert með miðlunarlón við Há-
göngur að gera án frekari röksemda.
Þá segir að aðrar athugasemdir Holl-
ustuvemdar snerti fremur einkaskoð-
anir starfsmanna á ferðamálum en
álit Hollustuverndar ríkisins.
Leitað var umsagnar Náttúruvemd-
arráðs, sem leggur áherslu á í sinni
umsögn að gögn og mats-
skýrslur vegna fram-
kvæmda berist ráðinu á
þeim árstíma að hægt sé að
athuga aðstæður á vett-
vangi. Ekki sé hægt að
meta aðstæður á hálendinu
svo viðunandi sé í stuttum
vettvangsferðum að vetrarlagi. Þá seg-
ir: „Með vísan til þess hversu umfangs-
miklar framkvæmdimar em áætlaðar
telur Náttúruvemdarráð eðlilegt að
gert verði fullt mat á umhverfisáhrif-
um. Verði ekki fallist á þetta sjónar-
mið verði tryggt að þær rannsóknir
sem eftir á að gera og niðurstöður úr
þeim liggi fyrir áður en framkvæmdir
hefjast."
í svari Landsvirkjunar segir að ekki
verði fallist á athugasemd vegna tíma-
setningar. Náttúruverndarráði hafi
verið gert viðvart í maí að loknum
forathugunum á umhverfisáhrifum að
til stæði að vinna frummat fyrir Há-
göngulón.
Rannsóknir miðaðar
við virkjanir
í umsögn Náttúrverndarráðs er
fjallað um jarðfræði svæðisins og þar
kemur fram að ráðið telji að kanna
eigi svæðið með tilliti til merkra jarð-
fræðifyrirbrigða. Rannsóknir hafi til
þessa fyrst og fremst tekið mið af
fyrirhuguðum virkjunum. Ekki væri
hægt að álykta um jarðfræði- eða
náttúrurminjar á svæðinu fyrr en slík
úttekt liggi fyrir.
Um vatnafar segir að ekki hafí
verið gerð heildarúttekt á svæðinu og
að ráðið telji nauðsynlegt að það verði
gert í heild svo meta megi áhrif miðl-
unarinnar á vatnafar nærliggjandi
svæða. Mikilvægt sé að skoða í víðu
samhengi og meta umhverfisáhrif
miðlunarinnar út frá því auk þess sem
rannsaka þurfi lindir á svæðinu til
hlítar áður en framkvæmdir hefjast.
Bent er á að ekki sé gerð grein fyrir
stöðu Hágöngumiðlunar í virkjunar-
framkvæmdum á Þjórsár/Þórisvatns-
svæðinu og beri að bæta úr því.
í svari Landsvirkjunar segir að fá
svæði á miðhálendinu séu betur rann-
sökuð en einmitt svæðið milli Þjórsár
og Köldukvíslar með tilliti til jarð-
fræði og vatnafars. Rangt sé að jarð-
fræðirannsóknir hafi hingað til tekið
mið af fyrirhuguðum virkjunum.
Landsvirkjun og Orkustofnun hafi
sameiginlega staðið að umfangsmikl-
• um jarðfræðirannsóknum og korta-
gerð á svæðinu á síðustu sjö til átta
árum. Ekki sé hægt að tengja virkj-
anaframkvæmdir beint við ákveðnar
hugmyndir um orkuaukningu eða raða
þeim á lista. Ákvörðun ráðist að mestu
leyti af hagkvæmni þeirra kosta sem
til greina komi hveiju sinni.
Engin rannsókn
á gróðurfari
í umsögn Náttúruverndarráðs segir
að engin rannsókn hafí verið gerð á
gróðurfari svæðisins í tengslum við
fyrirhugaðar framkvæmdir og er lögð
áhersla á að ítarleg könnun fari fram
á vegum viðurkenndrar rannsóknar-
stofnunar áður en framkvæmdir verði
leyfðar. Náttúruverndarráð telur og
mikilvægt að dýralíf svæðisins verði
kannað áður en framkvæmdir verða
leyfðar.
í svari Landsvirkjunar segir að gert
sé ráð fyrir að fram fari yfirlitsathug-
un á gróðurfari svæðisins og dýralífi
og að það verði gert áður en kemur
að framkvæmdum.
Um jarðhitasvæði segir í umsögn
Náttúruverndarráðs að nauðsynlegt
sé að kanna lífríki þess til hlítar áður
en framkvæmdir verða leyfðar. í
greinargerð Orkustofnunar komi fram
að við hitastigsmælingar á yfirborði
hafi komið í ljós áður óþekkt volgru-
svæði í næsta nágrenni aðaljarðhita-
svæðanna. Jafnframt að yfírborðs-
jarðhitinn sé að mestu Ieyti kaffærður
af sandi og hraunum og því full
ástæða til að beita jarðeðlis- _____
fræðilegum mælingum til
að meta stærð jarðhita-
svæðisins nærri yfirborði.
Bent er á að ekki sé ósenni-
legt að jarðhitasvæðin í
Vonarskarði og Köldukvísl-
arbotnum séu tengd, líklega
á svipaðan hátt og jarðhitasvæðin í
Kröflu og Námaskarði. Því verði að
rannsaka jarðhitasvæðin mun betur
áður en hægt sé að meta áhrif fram-
kvæmdanna á jarðhitasvæðið. Yfír-
borðsrannsóknir veiti ekki nægjanleg-
ar upplýsingar, þar sem það er víða
hulið jarðlögum og nauðsynlegt að
beita annars konar rannsóknaraðferð-
um til að kanna umfang svæðisins.
Athuga þurfi hitastig kerfisins og
orkugetu þannig að meta megi nýting-
armöguleika.
Loks segir, „Náttúrurverndarráð
telur að ekki sé hægt að fullyrða að
hægt verði að nýta jarðhitann í fram-
tíðinni ef miðlun verður gerð við Há-
göngur. Ekki er ljóst á þessu stigi
málsins hvaða áhrif lónið mun hafa á
jarðhitasvæðið enda er rannsóknum á
jarðhitasvæðinu ólokið. Ljóst er þó að
miðlunarlónið hlýtur að hafa einhver
áhrif á jarðhitasvæðið.“
í svari Landsvirkjunar kemur fram
að Orkustofnun og Landsvirkjun telji
óþarft að kanna til hlítar jarðhita-
svæðið og iífríki þess áður en fram-
kvæmdir verða leyfðar enda sé það
afar kostnaðarsamt auk þess sem
ekki verði ráðist í viðnámsmælingar
af jarðhitasvæðinu fyrr en ljóst er
hvenær verður af fyrirhugaðri miðlun.
Þá segir að gerð verði athugun á ör-
verum í hverum á svæðinu í tengslum
við úttekt á dýralífi þess í samráði
við Iðntæknistofnun. Um jarðhitann
segir að augljóst sé að áhrif lónsins
á yfirborðshitann séu mikil en ef
vinnsludýpt jarðhitans sé á 1.000-
2.000 metra dýpi yrðu áhrif lónsins
hverfandi. Hækka þyrfti jarðvatn á
svæðinu um örfáa metra í 3-4 mán-
uði á ári en á öðrum tíma árs væri
staða grunnvatns sú sama og nú.
Truflun lónsins á borun fyrir jarðhita
sé lítil og því óþarft að meta hvor
kosturinn sé hagkvæmari virkjun jarð-
hiti eða miðlun. Bent er á að við Egils-
staði fari fram vinnsla á jarðhita á
svipuðu dýpi án þess að hafa áhrif á
nýtingu hitans.
Ekki vegur fyrir ferðamenn
Um aðra umhverfisþætti segir í
umsögn Náttúrurverndarráðs að ráðið
leggi áherslu á að ekki verði opinn
akvegur fyrir ferðamenn yfir aðalstífl-
una. Ráðið gerir ekki athugasemd við
efnistökustaði eða við fyrirhugaðar
vatnsvarnir á byggingartímanum en
leggur áherslu á að jarðraski verði
haldið í lágmarki. Um vegi og vinnu-
búðir segir að í matsskýrslunni sé
getið þriggja valkosta um lagningu
vegar að vinnusvæðinu. Einn kostur
sem nefndur sé er um 19 km langur
vegur frá Kvíslaveituvegi. Yegarstæð-
ið hafi ekki verið mælt og því ekki
hægt að sýna snið í veginn en endan-
leg hönnun vegarins verði gerð sumar-
ið 1996 eftir að vegarstæðið hafi ver-
ið mælt. Náttúruverndarráð telur
gögn um vegarstæðið að vinnusvæð-
inu ófullnægjandi og að ekki sé hægt
að leggja mat á vegarstæðið að svo
stöddu. Nauðsynlegt sé að frekari
gögn berist ráðinu áður en umsögn
sé gefin. Bent er á að þar sem um
nýjan veg sé að ræða væri eðlilegast
að vegurinn færi í sérstakt mat. Það
sama ætti við um aðra vegagerð sam-
fara framkvæmdunum.
í svari Landsvirkjunar segir að
skekkjumörk hæðarlínu í veglínu að
vinnusvæðinu séu 1-2 metrar miðað
við reynslu af mælingum á svæðinu
og hæðarlína vegarins því nokkuð ljós.
Mæling veglínu muni því nánast engu
breyta fyrri ákvörðun Náttúrurvernd-
arráðs, því litlu breytti hvort vegurinn
væri 1 eða 1,2 metrum hærri í landinu
yfir sjávarmáli en kortin sýndu. Þegar
sagt sé í matsskýrslu að vegarstæðið
hafi ekki verið mælt sé átt við að sú
veglína, sem lögð sé til grundvallar,
hafi ekki verið mæld sérstaklega.
Minna sandfok
í umsögn Náttúruverndarráðs um
miðlunarlónið segir að í matsskýrslu
Landsvirkjunar sé þvi haldið fram að
sandfok á svæðinu muni minnka, þar
sem Köldukvíslaraurar muni fara und-
ir vatn. Ráðið bendir á að aurburður
á svæðinu muni aukast til muna ef
miðlun verður gerð við Hágöngur, þar
sem framburður árinnar mun að miklu
__________ leyti setjast til við stífluna.
Það sé hæpin fullyrðing að
jarðvegsfok muni minnka
með tilkomu stíflunnar, þar
sem vatnshæð í lóninu mun
sveiflast töluvert, aurburð-
ur á svæðinu mun aukast
til muna og framburður
KostnaAur
viA Há-
göngumiAlun
1,2 milljarAar
muna
árinnar sé mjög fokgjam.
í svari Landsvirkjunar segir að full-
yrðing matsskýrslunnar sé rétt. Hún
byggist á áralöngum mælingum á
rennsli og ísalögum á svæðinu. Miðað
við að söfnun í lónið hefjist. um miðjan
maí muni það fyllast um miðjan ág-
úst. Allan veturinn og fram að þeim
tíma að frost fer úr jörðu og yfirborð
jarðvegs nái að þoma yrði ekkert fok
á svæðinu. Á lónsvæðinu mætti reikna
með að frost fari ekki úr jörðu fyrr
en um miðjan júlí. Hætta af foki að
lónbotni væri því frá fyrri hluta júlí
og fram í miðjan ágúst, sem er mun
styttri tími en nú er.
Bent er á að grunnvatnsstaða um-
hverfis lónið með hækkandi vatns-
borði valdi hækkun á stöðu grunn-
vatns á svæðinu, sem leiðir til þess
að minni hætta er á foki úr bökkum
lónsins. Fræðilega virðist því útilokað
að umsögn eða fullyrðingar Náttúru-
verndarráðs geti staðist varðandi upp-
blást.ur og fok úr lóninu. Rannsóknir
á Blöndulóni og Sultartangalóni bendi
ekki til uppblásturs eða foks úr lónun-
um. Þvert á mót hafi fyrir byggingu
Sultartangastíflu verið viðvarandi
uppblástur og fok á stóru svæði á
Sultartanga og sunnan hans en nú
beri ekki á því í nánd við lónið. Þess
í stað hafi orðið stórfelld gróðuraukn-
ing á svæði sunnan iónsins.
Engar rannsóknir
á lífríki árinnar
Náttúruverndarráð bendir á í sinni
umsögn að engar rannsóknir hafi far-
ið fram á lífríki árinnar og að ekkert
sé vitað um hvort skilyrði fyrir fisk-
gengd verði hagstæðari með tilkomu
miðlunarinnar, þó að leiða megi getum
að því. Bent er á að frá náttúruvernd-
arsjónarmiðum þurfi aukin fiskgengd
ekki endilega að vera ákjósanleg eða
jákvæð fyrir umhverfið. Jafnframt að
minnkandi árframburður sé ekki endi-
lega til bóta þar sem aurburður sé til
dæmis nauðsynlegur fyrir endurnýjun
á landi og geti einnig verið nauðsyn-
legur fyrir lífríkið í ám.
Þá segir að Náttúruverndarráð telji
að gera þurfi ítarlega úttekt á gróður-
fari og dýralífí svæðisins áður en fram-
kvæmdir verða leyfðar. Þar sem engar
rannsóknir hafi farið fram sé ekki full-
nægjandi að gera lauslega könnun á
dýralífi svæðisins heldur verði að fara
fram ítarleg úttekt á því. Á grundvelli
þeirrar könnunar yrðu áhrif fram-
kvæmdarinnar á umhverfíð metin.
Náttúruverndrráð telur að kanna
þurfi jarðfræði svæðisins og jarðhita-
svæðið til hlítar áður en til fram-
kvæmda kemur. Ekki sé vitað hvort
merk jarðfræðifyrirbrigði séu á svæð-
inu og nægjanlegar upplýsingar um
jarðhitasvæðið liggi ekki fyrir. Þá seg-
ir: „Ekki er hægt að meta svo viðun-
andi sé umhverfisáhrif framkvæmdar-
innar fyrr en svæðið hefur verið rann-
sakað og niðurstöður liggja fyrir. Þá
hljóti að teljast eðlilegt að ákvörðun
um það hvort ráðast eigi í gerð miðlun-
arinnar verði ekki tekin fyrr en niður-
stöður rannsóknanna liggja fyrir.“
Að lokum er bent á að meta þurfi
umhverfisáhrif virkjanaframkvæmda
á hálendi landsins í heild. „Gerð miðl-
unar við Hágöngur er því undanfari
annarra virkjanaframkvæmda á
svæðinu og hækkun Þórisvatns. Því
er nauðsynlegt að virkjanafram-
kvæmdir á hálendinu verði skipulagð-
ar í heild sinni og að tekið verði fullt
tillit til náttúruverndarsvæða og fyrir-
hugaðra náttúruverndarsvæða við
gerð virkjanaáætlana."
Óraunhæft að meta
umhverfisáhrif að
loknum rannsóknum
I svari Landsvirkjunar segir að litlu
sé við að bæta það sem áður hafi
komið fram að Náttúruvemdarráð
telji matsskýrsluna veita ófullnægj-
andi upplýsingar um umhverfisáhrif,
þar sem úrvinnslu gagna sé ólokið auk
þess hafi hluti þeirra rannsókna aldrei
farið fram, sem gera eigi áður en
ráðist sé í framkvæmdir. Fram kemur
í svari Landsvirkjunar að það sé mik-
ill misskilningur að telja það raun-
hæft að framkvæma mat á umhverfis-
áhrifum að loknum öllum mögulegum
rannsóknum. Sumar rannsóknir séu
þess eðlis að þær yrðu ekki gerðar
fyrr en kæmi að framkvæmdum. Þá
segir: „Meginrannsóknir áður en kem-
ur til mats á umhverfisáhrifum hljóta
eðli málsins samkvæmt að vera yfír-
litsrannsóknir, sem gefa vitneskju um
heildaráhrif mannvirkis.“
Fram kemur að Landsvirkjun hafí
á síðustu 3-4 árum haft uppi áætlun
um að veita Þjórsá við Norðlingaöldu
til Þórisvatns í stað þess að virkja
fallið beint með virkjun niður í Sultar-
tangalón. Ekki sé ráðgert að hækka
Þórisvatn að svo stöddu ef af þessu
yrði. Fullt tillit hafí verið tekið til
náttúruvemdarsvæða við þessar at-
huganir og rannsóknir á síðasta ára-
tug og enn lengur í fullu samráði við
N áttúruverndarráð.