Morgunblaðið - 03.07.1996, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ__________________________________________________________MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLl 1996 33
MINNINGAR
að veði til þess að það sem sungið
er megi lifa ómengað, hreint, satt.
Með þrotlausri elju, vægðarlausum
aga, innsæi og skilningi hefur hon-
um tekist að víkja burt úr flutningi
sínum sérhveijum votti sýndar-
mennsku. Eftir stendur sönglistin
ein. Þannig söngvari var Gagga.
Og þetta var það sem hún leitaðist
við að miðla til nemenda sinna.
Ég varð nemandi Göggu árið
1961. Eftir sex ára nám hjá henni
fór ég til framhaldsnáms í Hollandi
en hvarf frá söngnum og sneri mér
að skriftum. En það sem hún kenndi
í söng varð mér ekki síður mikil-
vægt í ritstörfum. Sú djúpa og víð-
feðma lífsviska sem hún bjó yfir
og fortakslaus krafa um listræn
sannindi hafði djúpstæð áhrif á
mig. Ég þakkaði henni þetta með
því að tileinka henni mína fyrstu
bók. En það verður aldrei fullþakk-
að né heldur það að ég skyldi eiga
hana að vini í þijátíu og fimm ár.
Allir sem kynntust Göggu fundu
fyrir fágætri mannlegri stærð. Per-
sónuleiki hennar var margbrotinn,
spennandi og hlýr. Og hún var ná-
lægari í samræðum en mönnum er
yfirleitt fært. Samt var hún eigin-
lega í landi út af fyrir sig. Þetta
land var ekki danskt þótt hún væri
af dönskum uppruna og það var
sannarlega ekki íslenskt þótt hún
fæddist hér og kysi að dvelja hér á
efri árum. Það var eins og þetta
land væri búið til úr öllum löndum,
sjálfri heimsmenningunni og hvorki
hægt að gefa því nafn né finna því
stað. Um það varð einungis sagt:
Það er þar sem manneskjan á
heima.
Við Elsa sendum ættingjum
Göggu og vinum einlægar samúðar-
kveðjur.
Birgir Sigurðsson.
Þá er heil öld af visku og
skemmtilegheitum gengin okkur úr
greipum með henni Göggu. Við
höfum getað gengið inn um dyrnar
hennar eins og við þurftum síðast-
liðin 30-40 ár. Á íslandi er það því
miður ekki algengt að listamenn
hafi aðgang að lærimeistara, fullum
af fróðleik, fortíð og ekki síst fram-
tíðarsýn; sem hefur reynt þett allt,
þekkt alla sem máli skipta fýrir
hina flakkandi listhugsun heimsins;
lærimeistara sem finnur strax hvað
er húmbúkk og hvað ekki, hvað er
snobb og hvað ekki, hver er „mátt-
sjúkur“, eins og hún orðaði það, og
hver aftur á móti bara duglegur.
Það renna stór fljót til sjávar.
Ég er stödd í hinni gömlu menning-
arborg Dresden þegar Gagga er
burt kölluð. Og þegar ég horfi hér
upp á hinar viðurstyggilegu minjar
um borg sem var bara splundrað í
loft upp eina nóttina, þá er ekki
hægt annað en hugsa stöðugt um
Göggu. Hér hefur hún vafalaust
sungið. Hingað koma þessa dagana
leikhús heimsins með sínar sýning-
ar sem allar eru stríðsviðvaranir,
hver með sínu nefi, hver úr sinni
borg. Um allar þessar borgir gekk
hún Gagga fyrir stríð, eftir stríð og
í stríðinu. Hún talaði og söng sinn
friðarboðskap á tungum allra þess-
ara þjóða. Mannasættir var hún,
bæði í list sinni og persónulega.
Hér í Þýskalandi var hún elskuð
og dáð, kölluð „mávur norðursins",
en hingað steig hún samt aldrei
fæti sínum eftir stríð. Nei, aldrei,
sagði hún.
Hún sem drakk með Páli ísólfs-
syni, hún sem kannaðist við Stefan
Zweig, skrifaðist á við Elias Can-
etti og ögraði Sigmundi Freud og
sýndi honum fram á að kannski
burðaðist hann sjálfur um með svo-
litla komplexa; hún sem skemmti
sér með Kiljan og lærði til kaþólsku
af Jóni Sveinssyni. Hún kvartaði
við hann undan álagi á hné. - „Já,
Gagga mín,“ sagði Nonni, „Þau erú
stirð, þessi lúthersku hné.“ En þessi
hné hossuðu samt Jóhannesi Nor-
dal, fyrrverandi Seðlabankastjóra,
í frumbernsku.
En þrátt fyrir allt þetta fjör vildi
hún samt helst tala um Reykjavík
og Eyrarbakka á árunum 1900 til
1908. Hún svaf nefnilega í barna-
vagni á einu gangstéttinni í bænum,
fyrir framan Alþingishúsið; stöðu-
mælaverðir forðast þann stað víst
enn þann dag í dag. Hún hjólaði á
fyrsta ljósastaurinn í Reykjavík og
meiddi sig, en fékk líka að fljóta
með í fýrsta bíltúrinn. Og allt þetta
mundi _ hún eins og gerst hefði í
gær. Óþijótandi sögur af fólkinu
sem hún elskaði og vildi fæðast hjá
og deyja. Það vorum víst við. Falleg-
ust fínnst mér sagan af íslensku
„au pair“ stelpunni sem danska
apótekarafjölskyldan réð til sín.
Hún kom úr aumasta kotinu í
Reykjavík, með moldargólfi, kulda
og fátækt, og fullt af krökkum
náttúrlega. Hún átti að líta eftir
börnum apótekarahjónanna og
hjálpa til, en hún gat lítið unnið því
hún hafði hvítar postulínshendur
með löngum fingrum og þegar hún
reyndi að þvo þvotta, þá blæddi
bara úr fingrunum á henni. „Hvað-
an er hún eiginlega, þessi?“ hugs-
aði Gagga með sér. En stúlkan úr
kotinu vildi spila á hljóðfæri og
syngja með börnunum, og það
meira en nægði. Gagga elskaði
hana. Þau gerðu það öll.
Ég veit að hún vildi alls ekki að
neinn væri að skrifa um sig. Hún
„nennti" ekki einu sinni að svara
Sigmund Freud stofnuninni þegar
hringt var í hana fýrir stuttu og
hún spurð um kynni sín af honum.
En ég ætla samt að stelast til þess,
og hún verður bara að fyrirgefa og
hugga sig við að þetta eru engar
5000 síður, eins og þær ættu að
vera og gætu verið með sóma.
Ég á henni nefnilega skuld að
gjalda, hún bjargaði mér einu sinni.
Þegar ég var nýútskrifuð úr leiklist-
arskóla sögðu læknar mér að leggja
starfið á hilluna, því rödd mín væri
ónýt; ég yrði bara að þegja. Þá
komu skilaboð frá konu sem hafði
setið úti í sal eitt kvöldið. Þau voru
svona: „Ég held ég geti hjálpað þér
pínulítið, ef þú kemur til mín.“
Og hún hjálpaði mér, og á stutt-
um tíma, þrátt fýrir boðorð lækn-
anna. Hún sagði að það amaði ekk-
ert að mér, bara ef ég notaði þá
rödd sem ég fæddist með og vissi
hvar sú rödd ætti heima. Það er
nefnilega hægt að ferðast víða þeg-
ar maður veit hvar maður á heima.
Það gerði hún. Og varla held ég
að það sé óvart sem hún hét nafn-
inu Engel.
Blessuð sé minning hennar.
Guðrún Snæfríður Gísladóttir.
• Fleiri minningnrgrciniir um
Engel Lund bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu
daga.
t
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma,
KATRI'N ÓLAFÍA ODDSDÓTTIR,
Álfhólsvegi 8A,
Kópavogi,
lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur föstudaginn 28. júní.
Jarðarförin fer fram frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 9. júlí
kl. 13.30.
Oddur B. Grímsson, Herdís Einarsdóttir,
Katrín Oddsdóttir, Valdimar Harðarson,
Hreiðar Oddson,
Eyrún Oddsdóttir.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
ÁSDÍS MAGNÚSDÓTTIR
frá Miðhúsum,
Karlagötu 15,
Reykjavik,
lést í Landspítalanum 30. júní.
Óskar B. Pétursson,
Ásta B. Óskarsdóttir, Þórður Ág. Henriksson,
Sigríður Ósk Óskarsdóttir,
Linda Björk Þórðardóttir, Henrik Óskar Þórðarson,
Jóhann Davfð Snorrason, Ingvi Pétur Snorrason.
t
Móðir okkar og tengdamóðir,
PÁLÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Streiti
i Breiðdal,
lést á vistheimilinu Kumbaravogi
26. júní.
Útförin verður gerð frá Áskirkju föstu-
daginn 5. júlí kl. 10.30.
Ingunn Ragnarsdóttir, Símon Wiuum,
Birgir Ragnarsson, Bettý Stefánsdóttir,
Soffia Ragnarsdóttir, Tryggvi Sigfússon,
Ásþór Ragnarsson, Kolbrún Kjartansdóttir.
t
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og
útför föður okkar, afa og langafa,
BERGÞÓRS ÓLAFSSONAR
THEÓDÓRS
húsasmíðameistara,
Bólstaðarhlíð 8,
Reykjavík.
Ólafur Bergþórsson,
Sigríður Ólafía Bergþórsdóttir Theódórs,
Bergþór Bergþórsson,
Helga Theódóra Bergþórsdóttir Theódórs.
barnabörn, barnabarnabörn
og aðrir aðstandendur.
HRAUNBERGS
APÓTEK
Hraunbergi 4
INGÓLFS
APÓTEK
Kringlunni 8-12
eru opin til kl. 22
Næturafgreiðslu
eftir kl. 22 annast
Ingólfs Apótek
Erfidrykkjur
Glæsileg kaffi-
hlaðbord, íallegir
Scdir og mjög
göð þjónusta
Upplýsingar
ísíma 5050 925
og 562 7575
FLUGLEIÐIR
HÓTEL LÖFTLEIl)IH
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
ÞORVALDS ÞORKELSSONAR.
Arndís Þorvaldsdóttir, Sæbjörn Eggertsson,
Valborg Þorvaldsdóttir, Hörður Óskarsson,
Þorvaldur Ragnarsson, Ragnar Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
ÓSKAR GUÐJÓNSSON
fyrrum starfsmaður F.S.A.,
Þórunnarstræti 85,
Akureyri,
sem andaðist á dvalarheimilinu Hlíð föstudaginn 28. júní, verður
jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 5. júlí kl. 13.30.
Gréta Óskarsdóttir, Haukur Gunnarsson,
Kristbjörn Hauksson,
Margrét Hauksdóttir, Hilmar Kristinsson,
Helga Hauksdóttir, Þorsteinn Guðbjörnsson.
t
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
ÁSGEIR PÉTURSSON
frá Hlöðutúni,
sem lést 30. júní síðastliðinn, verður
jarðsunginn frá Akraneskirkju föstudag-
inn 5. júlí kl. 14.00.
Margrét Högna Magnúsdóttir,
Þorgerður Jóna Ásgeirsdóttir,
Pétur Haukur Ásgeirsson,
Reynir Tumi Ásgeirsson.
t
Öllum þeim, er heiðruðu minningu okk-
ar ástkæru
HELGU SOFFÍU ÞORGILSDÓTTUR
fyrrverandi yfirkennara,
þökkum við vináttu og hlýhug við frá-
fall og útför hennar og óskum þeim
guðsblessunar.
Sérstakar þakklr til starfsfólks Drop-
laugarstaða fyrir frábæra umönnun,
góðvild og hlýju gegnum árin.
Gunnfinna Þorsteinsdóttir Green, Harry W. Green
Valgerður Þorsteinsdóttir, Jón Helgason,
Valmundur Þorsteinsson.
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar,
stjúpfaðir, afi og langafi,
JÓN MÝRDAL
orgelleikari,
Hvammabraut 16,
Hafnarfirði,
andaðist á heimiii sínu aðfaranótt
25. júní.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að
beiðni hins látna.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát hans.
Guðs blessun fylgi ykkur öllum.
Sigriður Sigurðard. Mýrdal,
börn, stjúpsonur, barnabörn, barnabarnabörn
og aðrir ástvinir.