Morgunblaðið - 05.07.1997, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 05.07.1997, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR-&TJÚLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Húsverndarsjóði Reykjavíkur breytt úr lánasjóði í styrktarsjóð N ítj án skípta með sér 12,6 milljónum BORGARRÁÐ hefur samþykkt að veita samtals 12,6 milljónir króna í nítján styrki úr Húsvemdarsjóði Reykjavíkur árið 1997 til að lagfæra eldri hús og hús með sérstakt varðveislugildi. STYRKIRNIR eru á bilinu 190 þús- 2,5 millj. Þar af eru sjö styrkir ein milljón, tveir yfir millj. og einn 2,5 millj. Er þetta í fyrsta sinn sem veitt er úr Húsverndarsjóði eftir að honum var breytt úr lánasjóði í styrktar- sjóð. Umsóknarfrestur um styrki rann út í byijun júní sl. og bárust 24 umsóknir. Styrkþegar Styrki hlutu að þessu sinni Hrafnkell Guðjónsson og Hulda Hákonardóttir, kr. 300 þús. til að vernda upprunalega glugga og hurðir á húsunum við Hverfisgötu 16 og 16a, Björg Stefánsdóttir fær milljón til múrviðgerða og vegna glugga á Baldursgötu 28 og Sigurð- ur Jónsson, Öldugötu 50, og Dagný Guðmundsdóttir, fá 550 þús. til að gera við Garðastræti 49 að utan, laga glugga, kiæðningu o.fl. Guðrún Snæfríður Gísladóttir, fær milljón til að endurnýja járn og glugga við Skólastræti 5b, en það hús er friðað. Benóný Ægisson og Ása Hauksdóttir fá 800 þús. til að klæða húsið á Skólavörðustíg 4c og laga glugga, hurðir o.fl. Guðjón Petersen fær 400 þús. til að leggja drenlögn með húsinu við Suðurgötu 4, Þuríður Bergmann Jónsdóttir fær milljón til að laga vindskeiðar og þakglugga á Þingholtsstræti 13, en það hús er friðað. Hólmfríður Garð- arsdóttir og Páll Biering fá 700 þús. til að endurnýja austur- hlið/kjallara á Kirkjutorgi 6, en það hús er friðað. Til að lagfæra gustlokun og ytri klæðningu o.fl. á Drafnarstíg 5 er veitt 300 þús., Viðar Eggertsson fær 1,2 millj. til að laga glugga, klæðn- ingu o.fl. á Þingholtsstræti 24, Inga Þyrí Kjartansdóttir fær millj. til að laga jám, glugga, vatnsbletta og skrautlista á Spítalastíg 10, Edda Arnljótsdóttir og Ingvar E. Sigurðs- son fá 2,5 millj. til að laga kjöljárn, þakskegg, glugga o.fl. á Miðstræti 4, Bjarni Ámason fær 190 þús. til að laga skorstein á Miðstræti 6 og Páll Baldvin Baldvinsson fær 1,7 millj. til lagfæringar á tréverki, gluggum og bámjárni á Bergstaða- stræti 9a. Að sögn Jóhanns Pálsson- ar garðyrkjustjóra, var umsóknun- um skipt í þijá flokka allt eftir bygg- ingagerð, aldri húsanna og mikil- vægi í umhverflnu. „Árbæjarsafn sér um að skoða húsin auk þess sem skipaður var þriggja manna starfs- hópur, sem vann úr umsóknunum," sagði hann. Starfshópinn skipa Bryndís Kristjánsdóttir, formaður umhverfísmálaráðs og fulltrúi Reykjavíkurlista, Jóna Gróa Sigurð- ardóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokks, og Nikulás Úlfar Másson arkitekt, frá Árbæjarsafni. Forsendur lánasjóðs brostnar I byijun apríl samþykkti umhverf- ismálaráð að reglum fyrir Húsvernd- arsjóð yrði breytt úr lánasjóði í styrktarsjóð. Tillögunni var vísað til borgarráðs, sem fól borgarritara að móta tillögur um hvernig koma mætti til móts við eigendur friðaðra húsa. í umsögn borgarritara segir að forsendur fyrir sérstökum lánasjóði séu brostnar, þar sem bankar og sparisjóðir veiti hliðstæða fyrirgre- iðslu og sjóðurinn. Það sé hins vegar æskilegt að borgaryfirvöld geti stuðlað að viðhaidi gamalla húsa sem hafi menningarsögulegt eða listrænt gildi. Taldi borgarritari að breyting á sjóðnum í styrktarsjóð gæfi borg- aryfirvöldum svigrúm til þess. í umsögn borgarritara kom jafn- framt fram að tillaga um að koma til móts við eigendur friðaðra húsa gegnum fasteignaskatt þarfnaðist ítarlegri skoðunar og því var lagt til að borgarráð samþykki breytingar á húsverndarsjóði í stað þess að bíða umsagnar um fasteignaskatt. í nýjum reglum sjóðsins segir að hlutverk hans sé að veita styrki til endurgerðar eða viðgerðar á hús- næði eða öðrum mannvirkjum í Reykjavík, sem sérstakt varðveislu- gildi hafí af listrænum eða menning- arsögulegum ástæðum, enda verði framkvæmdir í samræmi við upp- runalegan byggingarstíl hússins og í samræmi við sjónarmið minja- vörslu. Ráðstöfunarfé sjóðsins skal ákveða í fjárhagsáætlun borgarsjóðs ár hvert og metur umhverfismálaráð Reykjavíkur hvaða hús og fram- kvæmdir skuli styrkja. Reglurnar gera ráð fyrir að um- hverfísmálaráð auglýsi eftir um- sóknum eigi síðar en 1. mars ár hvert og skulu umsóknir berast inn- an mánaðar. Árbæjarsafn skal veita ráðinu umsögn um styrkumsóknir og skal eingöngu veita styrk til þeirra framkvæmda, sem umhverf- ismálaráð og umsögn Árbæjarsafns metur hæfa. Tekið er fram að komi í ljós að styrknum hafí ekki verið varið til tilgreindra framkvæmda eða vikið hafi verið frá verklýsingum eða teikningum, sem fylgja umsókninni, skal styrkþegi endurgreiða styrkinn þegar í stað. Gert er ráð fyrir að umhverfis- málaráð geti sett sérstök skilyrði varðandi einstakar styrkveitingar, s.s. að styrkur skuli greiddur út í hlutum, að ráðið áskilji sér rétt til að fela embætti borgarverkfræðings eða öðrum eftirlit með framkvæmd- unum og að framkvæmdum verði lokið innan tiltekins tíma. Ein stærsta hestasýn- ing í Bandaríkjunum Islenski hesturinn var einna vinsælastur ÍSLENSKI hesturinn naut mikillar athygli á einni stærstu hestasýning- unni í Bandaríkjunum, Equitana, sem haldin var í Louisville í Kentucky-fylki, dagana 19. til 22. júní sl., að sögn Kolbrúnar Ólafsdótt- ur eins eiganda hestasölufyrirtækis- ins Pétur Jökull Hákonarson og fjöl- skylda. Yfir fimmtíu tegundir af hestum voru kynntar á sýningunni, en alls voru þar um 600 hestar. Sýninguna sóttu tæplega fimmtíu þúsund manns. Kolbrún sagði að 20 íslenskir hestar hefðu tekið þátt í hestasýn- ingunni, en auk fyrirtækisins Pétur Jökull Hákonarson, hafí kanadískir og bandarískir aðilar verið með ís- lenska hesta þar til sýnis. „íslensku hestarnir tóku þátt í sýningu á hveiju kvöldi og vakti athygli hve kraftmiklir þeir voru þrátt fyrir smæðina,“ sagði hún. Á daginn gafst sýningargestum hins vegar kostur á að fara á hestbak og þótti eftirtektarvert hve taumlétt- ir hestarnir voru, skapgóðir og mjúk- ir á tölti." Kolbrún sagði að viðtökur og klapp sýningargesta hefði verið mælt eftir hveija sýningu hestanna og samkvæmt því hefði íslenski hest- urinn notið mestrar hylli. Þá segir Kolbrún að fyrirtæki hennar hafí verið með kynningarbás á sýning- unni og að þar hafi ótvíræður áhugi sýningargesta á íslenska hestinum komið í Ijós. Kolbrún sagði að þetta hefði verið sölusýning og þessi mikli áhugi sýningargesta ætti örugglega eftir að skila sér í meiri vinsældum íslenska hestsins í Bandaríkjunum. Aukið vægi svæðis- bundinnar samvinnu HALLDÓR Ásgrímsson, utanríkis- ráðherra, sat utanríkisráðherrafund Eystrasaltsráðsins er haldinn var í Riga í Lettlandi 2.-3. júlí sl. Helsta umræðuefnið var framkvæmdaáætl- un Eystrasaltsráðsins. í frétt frá utanríkisráðuneytinu segir: „í máli sínu vakti utanríkisráðherra athygli á auknu vægi svæðisbundinnar sam- vinnu og mikilvægi Eystrarsalts- ráðsins í því að efla stöðugleika og öryggi í Evrópu. Einnig minnti utan- ríkisráðherra á reynslu Norðurlanda af innbyrðis samstarfi og fagnaði auknu samstarfí Norrænu ráðherra- nefndarinnar og Norðurlandaráðs við Eystrasaltsráðið. Utanríkisráð- herra lagði ennfremur áherslu á mikilvægi samstarfs á sviði éfnhags- og viðskipta við Eystrasalt og á öfluga baráttu aðildarríkja gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Utanríkisráðherrafundurinn sam- þykkti að setja á laggirnar fasta skrifstofu Eystrasaltsráðsins í einu aðildarríkja ráðsins." Aftur í gæsluvarðhald HÆSTIRÉTTUR hnekkti á fimmtu- dag úrskurði Héraðsdóms Reykjavík- ur um gæsluvarðhald yfír tveimur mönnum af þeim þremur sem rændu starfsmann 10-11 verslananna í apríl sl. Hæstiréttur úrskurðaði að þeir skyldu sæta gæsluvarðhaldi til 8. ágúst nk. Þriðji maðurinn hefur hafið af- plánun á þriggja og hálfs árs fang- elsi fyrir innflutning á fíkniefnum árið 1995. HAUKUR Þórarinsson, Hákon Pétursson, Anneliese Virro og Kolbrún Ólafsdóttir á íslenskum hestum í Kentucky i Bandaríkjunum. Nýtt dagblað á Internetinu www.xnet.is RÚNAR EINAR Vilhjálmsson Miintylá Myndir vantaði VEGNA mistaka birtust ekki myndir í gær af Einari Mántylá með fréttinni um doktorsvöm hans í sameinda- erfðafræði og með fréttinni af Rúnari Vilhjálmssyni sem var skipaður pró- fessor í félagsfræði við námsbraut í hjúkrunarfræði við Háskóla íslands. Beðist er velvirðingar á mistökunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.