Morgunblaðið - 05.07.1997, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 05.07.1997, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1997 49- 4 I i f I i i i i i 1 i i j I < 4 4 4 4 i 4 { i { < < < < < < FANGAFLUG FRUMSYNING: MENN I SVORTU B.i. 12 ára. SMDIGITAL EHEEDIGITAL ÆWTTfcPJ fiakkaeini ...í öllum þeim ævintýrum sem þú getur ímyndað þ£r! UVeosW m VISNAÐU l iRINGIARINN I f^0m|j3AME ANACONDA Alþjóðleg deigla Eftir margra ára starf að öllum gerðum tónlistar gafst Halldór Lárusson upp á því að gera það sem hann langaði ekki að gera, fluttist til Hollands og stofnaði alþjóðlega hljómsveit. „ Morgunblaðið/Ásdís HALLDÓR Bragason trommuleikari. TROMMULEIKARINN Halldór Bragason var áberandi í íslensku tónlistarlífí fyrir nokkrum árum en segist aldrei hafa fundið sig almennilega í því sem hann var að gera. Hann ákvað því að flytja út til að breyta til og fá aftur áhuga á tónlist sem hann segir hafa farið dvínandi. Það gaf góða raun því fyrir skemmstu kom út diskur með alþjóðlegu hljómsveitinni Lanyi þar sem hann leikur á trommur. Halldór segist hafa ákveðið að flytja út til að reyna að finna sig í tónlist árið 1994. „Um líkt leyti heyrði ég upptöku með manni sem söng og lék á kora, vestur-afríska hörpu, Seydouba Soumah, og heill- aðist alveg af tónlist hans. Eg vissi aftur á móti ekki hvar í heiminum þessi maður væri niður kominn, en hollenskur kunningi minn, Piet- er Pennings, slagverksleikari sem ég lék með í Júpíters, hjálpaði mér yið að hafa upp á honum og komst ég að því að hann átti þá heima í Hollandi, en ég hafði einmitt tek- jð stefnuna þangað. Ég setti mig í samband við hann og lýsti áhuga mínum á að vinna með honum, sendi honum myndband sem ég hafði gert og það varð til þess að hann vildi ólmur vinna með mér. Við hittumst daginn eftir að ég kom út og það var eins og við hefðum verið að bíða hvor eftir öðrum alla tíð.“ Halldór segist hafa einsett sér að lifa á tónlist þegar út væri komið og því hafi hann verið búinn að skrifast á við fjölda manns ytra til að undirbúa jarðveginn sem best. „Það má segja að ég hafí verið nánast búinn að missa áhug- ann á tónlist, en að koma út varð til þess að kveikja hjá mér áhuga aftur. Við Soumah og Pennings fórum að spila saman, stofnuðum hljómsveitina Lanyi, og svipast um eftir fólki sem við vildum vinna með. Það gekk ekki vel, við vorum sífellt að ráða menn og reka, en á endanum varð til sá hópur sem tók upp plötuna, en reyndar hefur bæst við í hópinn eftir að hún kom út.“ Seydouba Soumah semur flest lög sveitarinnar, en hann er þekkt- ur tónlistarmaður í sínu heima- landi, Gíneu, og hefur verið at- vinnumaður í tónlist frá sextán ára aldri, meðal annars verið í Les ballets Africains de Guinée, sem þykir mikill heiður. Útsetningar eru aftur á móti flestar úr smiðju hljómborðsleikara sveitarinnar, en það leggja allir sitthvað af mörk- um og því ólíkir heimar sem mæt- ast. „Tónlistin er tilgerðarlaus, enda erum við ekki að rembast eitt eða neitt. Við þykjumst ekki vera afrísk hljómsveit, þetta er alþjóðleg deigla þar sem saman koma áhrif frá Gíneu, Indónesíu, Hollandi, og íslandi.“ Halldór segir að vissulega sé sérkennilegt að trymbill norðan af íslandi sé kominn á kaf í af- ríska tónlist og hafi loks fundið sig þar. „Afrísk tónlist hefur alltaf heillað mig uppúr skónum og ég veit ekki af hverju og þrátt fyrir að hafa reynt fyrir mér í flestum tónlistarformum á íslandi hef ég aldrei kunnað almennilega við mig, kannski helst í Júpíters. Það vantaði eitthvað og ég neitaði oft verkefnum sem mér voru boðin vegna þess að ég gat ekki hugsað mér að spila tónlist sem ég kunni ekki við; ég hef alltaf dáðst að þeim sem geta verið leiguliðar í tónlist og gert nánast hvað sem er og alltaf framúrskarandi." Halldór segir að sveitin hafí töluvert að gera víða í Evrópu og eftirspurn hafi sífellt aukist, ekki síst eftir að diskurinn kom út. Meðal annars segir hann fram- undan tónleikaferð um Karíbahaf, en mesta ævintýrið fyrir hann sjálfan og félagana, yrði að leika á íslandi. Iþróttamað- ur Þórs í Þorlákshöfn ÍÞRÓTTAMAÐUR Þórs í Þorláks- höfn var valinn fyrir skömmu og fyrir valinu varð Tinna Pálsdóttir fijálsíþróttakona. Tinna, sem er 17 ára, keppti í meyjaflokki á síðastac ári og varð sex sinnum íslands- meistari, setti tvö héraðsmet og eitt íslandsmet. Hún var í sigurliði HSK í bikarkeppni 16 ára og yngri. Við sama tækifæri var Númi Snær Gunnarsson sundmaður val- inn efnilegur unglingur og fimleika- deildin fékk viðurkenningu fyrir öflugt starf á árinu. Óskar Þórðar- son var valinn körfuboltamaður, Tinna Sæmundsdóttir hnitmaður, Anna Júlíanna Guðmundsdóttir fimleikamaður og Arnar Már Ólafs- son sundmaður Þórs. TINNA Pálsdóttir íþrótta- maður Þórs í Þorlákshöfn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.