Morgunblaðið - 10.06.1999, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 1999 31
Jospin sakaður um að
hafa verið Trotskusti
París. The Daily Telegraph.
LIONEL Jospin, forsætisráð-
herra Frakklands, var á þriðju-
dag sakaður um að vera fyrrver-
andi Trotskíisti af gömlum leið-
toga samtaka franskra Trotskí-
ista, sem hafa helgað sig alheims-
byltingu og því að kollvarpa hag-
kerfi kapítalismans.
Jacques Kirsner, sem var með-
limur Aiheimssamtaka kommún-
ista á sjöunda og áttunda ára-
tugnum, sagði í viðtali í franska
dagblaðinu Libération á þriðju-
dag að þeir Jospin hefðu starfað
hlið við hlið „árabil“ og að þeir
hefðu deilt sömu byltingarsinn-
uðu skoðununum.
Sögusagnir hafa lengi verið á
kreiki um pólitíska fortíð Jospins.
Forsætisráðherrann hefur reynd-
ar aldrei neitað því að hafa átt í
samskiptum við Trotskíista seint
á sjötta áratugnum þegar hann,
eins og margir franskir náms-
menn á þeim tíma, tók þátt í mót-
mælum gegn Alsírstríðinu, sem
frönsk stjómvöld héldu úti.
Jospin hefur hins vegar ávallt
neitað því að tengsl sín við
Trotskíista hafi náð lengra.
8 O € t N S £ T
Minni matarlyst • Hraðari brennsla •
Fæst í betri ap ó tekum, Lyfju or
Dreifing 1 H S , pðntunarsím
A ¥ l k
Regla á meltingui
MEIRI HOLLUSTA
MEIRA HEiLBRIGÐI
Ný réttarhöld yfir
Anwar Ibrahim
Deilt um
breytingu á
ákærunni
Kuala Lumpur. Reuters.
DÓMARI í Malasíu ákvað í gær að
fresta réttarhöldunum yfir Anwar
Ibrahim, fyrrverandi fjármála- og
aðstoðarforsætisráðherra, sem hef-
ur verið ákærður fyrir brot á lögum
sem banna samkynhneigð, um tvo
daga vegna deilu um breytingu á
ákærunni. Verjandi Anwars hafði
krafist þess að ákærunni yrði vísað
frá á þeirri forsendu að saksóknin
væri ekki réttlát eftir að aðalsak-
sóknarinn í málinu skýrði frá því að
ákærunni hefði verið breytt í annað
sinn.
„Breytingin er ekki viðeigandi af
hálfu ákæruvaldsins og ekki sann-
gjöm fyrir hinn ákærða," sagði lög-
fræðingur Anwars, Raja Aziz
Addmse.
Anwar var handtekinn í septem-
ber og ákærður fyrir spillingu og
kynferðisafbrot. Hann hefur þegar
verið dæmdur í sex ára fangelsi fyr-
ir spillingu.
Réttarhöldin nú snúast um meint
kynferðisafbrot Anwars, sem er
m.a. sakaður um að hafa haft mök
við fyrrverandi bílstjóra sinn ásamt
ættleiddum bróður sínum, Sukma
Darmawan. Verði hann fundinn
sekur á hann yfir höfði sér allt að 20
ára fangelsisdóm og hýðingu.
Dagsetningunni breytt
Samkvæmt ákæmskjalinu á Anw-
ar að hafa haft samræði við bílstjór-
ann í maí 1994 en dagsetningunni
var breytt í apríl og þá var sagt að
það hefði átt sér stað í maí 1992. Að-
alsaksóknarinn breytti dagsetning-
unni aftur í gær og sagði að kynferð-
isafbrotið hefði átt sér stað á tíma-
bilinu janúar til mars 1993.
Verjandi Anwars kvaðst hafa
bent saksóknumnum á að bygging-
in, þar sem brotið á að hafa verið
framið, hefði ekki verið reist árið
1992 og þeir hefðu því neyðst til að
breyta dagsetningunni aftur.
fimmtudag til sunnudags
Permasect og úðadælur
20%
afsláttur
Mold í útikerin
121. fef tÁ-jV
221. fef 4C Ð