Morgunblaðið - 25.05.2000, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 25.05.2000, Qupperneq 30
8Ö 'FtM Mf t! DAGlíH^o. MAÍ áÓOO rM ÖRöU N BL'AiÐIÐ ERLENT Rannsóknin á morði stúlknanna í Noregi Athyglin beinist að fíkniefnaneytendum Ósló. Morgfunblaðið. BRÁÐABIRGÐASKÝRSLA sem gerð var um krufningu á líkum stúlknanna tveggja sem fundust myrtar í skóglendi skammt frá Kristiansand á sunnudag sýnir að sögn Aftenposten að þeim var mis- þyrmt kynferðislega en síðan voru þær stungnar til bana með hnífi. Þær voru 10 og átta ára gamlar. Norska lögreglan vildi ekki tjá sig frekar um skýrsluna frá réttar- læknum ríkisspítalans í Ósló í gær en hún leitar enn vísbendinga á morðstaðnum sem er á útivistar- svæðinu Baneheia auk þess sem fjarvistarsannanir þeirra sem yfir- heyrðir hafa verið eru kannaðar. Áð sögn yfirvalda er enginn enn- þá grunaður um verknaðinn en fjölmiðlar hafa eftir heimildar- mönnum að málið verði að líkindum upplýst um helgina. Að sögn norska ríkissjónvarpsins hefur at- hygli manna beinst mjög að tveim körlum, tæplega tvítugum, er voru á svæðinu og báðir sagðir undir áhrifum eiturlyfja eða áfengis. Að sögn Aftenposten mun lög- reglan þegar hafa fundið fótspor eftir mann sem gæti verið morðing- inn og þar að auki fingraför en ekki hefur verið skýrt frá því hvort morðvopnið hafi fundist. Lögreglu- menn sem hjóluðu um svæðið á föstudag er glæpurinn var framinn munu hafa gefið mikilvægar upp- lýsingar en ekki er útilokað að þeir hafi séð þann sem var að verki. Liðsmenn lögreglunnar hafa meðal annars dælt vatni upp úr pollum og mýrlendi við morðstaðinn og leitað með málmleitartækjum. Einnig hefur verið safnað upplýsingum um ferðir fólks með almenningsfarar- tækjum og fengnar útskriftir á farsímasamtölum „Vitni hafa sagt okkur að allmargir baðgestir hafi verið á svæðinu rétt áður en stúlkurnar komu þangað," sagði Arne Peder- sen, yfirmaður glæparannsókna- deildar lögreglunnar. Sagði hann lögregluna æskja þess eindregið að hitta fólkið að máli til að fá sem ná- kvæmastar upplýsingar um allar mannaferðir á svæðinu á föstudag. Hann vildi ekkert tjá sig að öðru leyti um árangurinn af yfirheyrsl- um sem fram hafa farið. Sáust á Sýrutinds-svæðinu Rúmlega fertugur maður, sem fyrir 12 árum var dæmdur í ellefu ára fangelsi fyrir að bana manni með hnífi og nokkrar tilraunir til manndráps. Hann var yfirheyrður á þriðjudag en segist vera saklaus og lögreglan sé að eyða tíma til einskis með því að kanna ferðir hans um helgina. Maðurinn býr í kofaræksni í út- hverfi Kristiansands. Hann var lát- inn laus í fyrra og hefur síðan verið mikið meðal fíkniefnaneytenda á svonefndum Sýrutindi á Baneheia. Morðin voru framin skammt frá Sýrutindi. Arne Pedersen segir manninn vera mikilvægt vitni þar sem hann hafi verið á ferli í grennd við morðstaðinn um sama leyti og lög- reglan álíti að glæpurinn hafi verið framinn. Var hann yfirheyrður í ell- efu stundir samfleytt en ekki kraf- ist varðhalds. Vitni sáu auk þess til ungu mannanna tveggja á Sýru- tinds-svæðinu á föstudag og er sagt að þeir hafi verið reknir þaðan. Þeim hafi verið sagt „að hypja sig í Ljósmynd/Scanpix Tæknimenn frá glæparannsóknadeild norsku lögreglunnar að störfum á útivistarsvæðinu Baneheia. leikskólann" og hafi þeir reiðst þeim ummælum. Alls hafa um 40 vitni verið yfir- heyrð og auk þess verið rætt við um 700 manns sem töldu sig geta veitt upplýsingar um málið. Einkum er um að ræða fólk sem var á ferli á Baneheia þar sem stúlkurnar tvær, Lena Slogedal Paulsen og Stine Sofie Sorstronen, fundust. Þær fóru þangað á föstudag til að synda í tjörn en það höfðu þær oft gert. Hundruð stúdenta mótmæla í Peking morði á skólafélaga Peking. AFP. HUNDRUÐ námsmanna efndu til mótmæla í Peking í gær, annan daginn í röð, vegna morðs á skóla- félaga sínum. Aðgerðir námsmann- anna eru sagðar valda kínverskum yfirvöldum áhyggjum þar sem þau óttast að mótmælin magnist og snúist upp í andóf gegn kommún- istastjórninni fyrir 4. júní þegar ellefu ár verða liðin frá því hún beitti hervaldi til að kveða niður stúdentamótmælin á Torgi hins himneska friðar. Mótmælin hófust í fyrrakvöld þegar um 2.000 námsmenn komu saman við háskólann til að minnast Qiu Qingfeng, 20 ára námskonu, sem var myrt þegar hún gekk í átt að heimavist sinni eftir að hafa ------------------- EK3NAMIÐIIMN misst af eina strætisvagninum sem gengur þangað af háskólasvæðinu. Námsmennirnir hafa kvartað yfir slæmum samgöngum frá háskólan- um til heimavistarinnar í Chang- ping, um 50 km utan við Peking, og segja að nokkrar konur hafi verið áreittar þegar þær hafi þurft að ganga þangað. Gangan frá næstu biðstöð er sögð taka 40 mínútur. Námsmennirnir kvörtuðu einnig yfir slæmum aðbúnaði í skólanum og því hvernig stjórnendur skólans hafa tekið á vandamálunum. Um 800 námsmenn héldu mót- mælunum áfram í gær og nokkrir þeirra tóku þá að hengja upp vegg- spjöld þar sem stjórnin var gagn- rýnd og krafist var lýðræðis. Einn námsmannanna sagði að ljóst væri að á meðal þeirra væru nokkrir lýðræðissinnar sem vildu að mót- mælin beindust gegn stjórn komm- únistaflokksins. Frakkland Eigendur heima- síðna skrái sig París. AP. NEÐRI deild franska þingsins hefur samþykkt stjórnarfrumvarp sem kveður á um að þeir sem eiga heima- síður á Netinu verði að skrá sig hjá yfirvöldunum. Efri deild þingsins greiðir atkvæði um frumvarpið síðar í vikunni. Markmiðið með frumvaipinu er að gera einstaklinga lagalega ábvrga fyrir því sem þeir setja inn á Netið. Samkvæmt lögum nú hvílir ábyrgðin á netþjónustufyrirtækjunum. Frumvarpið var lagt fram eftir að nektarmyndir af fyrirsætunni Est- elle Halliday voru settar inn á Netið án heimildar hennar. Philippe Chantepie, tækniráðgjafi franska menningarráðuneytisins, sagði að meginmarkmiðið með frumvarpinu væri að uppræta nafnleyndina á Net- inu og auðvelda yftrvöldum að finna þá sem gerast sekir um tölvuglæpi. Libertysurf.com, stærsta netþjón- ustufyrirtæki Frakklands, hefur gagnrýnt frumvarpið og segir að kostnaðurinn sem af því hljótist skaði fyrirtækið. Frumvarpið geti einnig orðið til þess að viðskiptavinir íyrirtækisins leiti til netþjónustufyr-- irtækja í öðrum löndum þar sem ekki er krafist skráningar. Joe McNamee, talsmaður sam- taka evrópskra netþjónustuíyrir- tækja, kvaðst ekki vita um nein lög af þessum toga í Evrópu. Hann sagði að samtökin hefðu ekki tekið afstöðu til frumvarpsins en bætti við að það væri gallað og hefði ekki verið borið undir samtökin. „Við vitum ekki hversu langt það nær, eða hvernig því verður fram- fylgt, og við vitum ekki hver verður ábyrgur íyrir upplýsingum sem eru ekki réttar," sagði McNamee. Sérfræðingar segja að tæknilega verði mjög auðvelt fyrir netverja að villa á sér heimildir þegar þeir skrá sig. 7, i tCÍíT rf* 4UÁS Mi, ____________________ S* timmtuk, iM. tU itéanim. émwría. Sími 3íiíi OOOO • l’ax oöíi 9005 • SíAimníla 2 1 Skólatröð Fallegt 125 fm einbýlishús sem stendur á stórri lóð og á góðum stað í Kópavogi. Húsið hefur töluvert verið endurnýjað, m.a. er nýtt þak og nýir gluggar og gler. Falleg og gróin lóð. Góð eign. Æskilegur afhendingartími er í mars á næsta ári. V. 14,9 m. 9482 Skaftahlíð Vorum að fá í einkasölu góða 4ra herb. 104,1 fm íbúð á 1. hæð í Sigvaldahúsinu við Skaftahlíð. Eignin skiptist m.a. í rúmgóða stofu, hoi, þrjú herbergi, baðherbergi og eldhús. Saml. þvottahús og sérgeymsla. Tvennar svalir. Húsið var standsett í fyrra. Fjórar íbúðir eru í stigaganginum og er ein íbúð á hæð. íbúðin getur losnað nú þegar ef óskað er. V. 11,9 m. 9359 Dani ferst við klifur á Mount Everest Kaupmannahöfn. Morg’unblaðið. UNGUR Dani, 27 ára gamall her- maður, lést á laugardaginn er hann féll niður í sprungu skammt frá tindi Mount Everest. Daninn, Jeppe Stoltz, var að klífa fjallið, en samtímis var annar danskur leið- angur einnig á fjallinu. Stoltz og fé- lagi hans höfðu lent í byl og höfðu snúið við áður en þeir komust á tindinn. Félagi hans fullyrðir við Berlingske Tidende að Stoltz, sem var vanur fjallgöngumaður, hafi ætíð gætt fyllsta öryggis og því sé um slys að ræða, ekki skort á að- gát. Stoltz og félagi hans höfðu lagt af stað síðasta spölinn upp á tind; inn í bítið á laugardagsmorgun. I 8.500 metra hæð brast á með kafa- ldsbyl, en alls er fjallið 8.848 metr- ar á hæð. Félagi hans ákvað þá að snúa við en Stoltz hélt áfram. Skömmu síðar ákvað hann þó einn- ig að snúa við. Það var á leiðinni niður, skömmu eftir að hafa snúið við, að Stoltz missti fótanna og rann niður á klettasyllu, 200 metrum neðar. Þar kom spánskur gönguhópur honum til hjálpar, þar sem hann lá og var á lífi. Það gekk þó ekki og Stoltz rann áfram 1.500 metra fall. Búist er við að hann hafi látist í fallinu, lík hans hefur ekki enn fundist. Fé- lagi Stoltz ætlar að vera áfram á fjallinu og leita líksins en þegar síðast fréttist hafði ekki viðrað til leitar. Um leið og Danirnir tveir freist- uðu þess að komast á tindinn norð- anmegin frá, sem er algengasta leiðin, voru aðrir tveir- Danir á leið upp suðurmegin. Þeir komust á tindinn og aftur til baka niður í næstu búðir heilir á húfi. Maí er aðal klifurmánuðurinn á Everest, þar sem þá er helst að vænta stöðugs veðurs á þessu ann- ars svo óstöðuga veðrasvæði, en þrátt fyrir að skilyrðin þyki skárri en á öðrum árstímum er ávallt alira veðra von á tindinum. Um þessar mundir eru fjörutíu leiðangrar að glíma við tind Mount Everest. Fjórir Danir hafa komist á tind- inn, þar af tveir núna um síðustu helgi. Einn fjórmenninganna er kona, Lene Gammelgaard, sem heimsótti ísland í fyrra og sagði frá reynslu sinni. Um leið og hún fór upp fórust nokkrir á tindinum. Einn þeirra sem komst upp þeg- ar hún kleif fjallið 1996 var Banda- ríkjamaðurinn Jon Krakauer, sem skrifaði metsölubókina „Into Thin Air“ um reynslu sína. Frá því Everest var fyrst klifið 1953 hafa um 800 manns freistað þess að komast á tindinn og um 150 hafa látist. Stoltz er annar Daninn, sem lætur lífið á Everest. Heimsmet fellur á tindinum Nýtt heimsmet var sett á fjallinu í gær er Apa Sherpa kleif tindinn í ellefta sinn en enginn hefur áður farið svo oft á tind Mount Everest. Apa náði tindinum í dagrenningu í gærmorgun ásamt tólf öðrum köppum og er það í fyrsta sinn sem svo margir klifurmenn úr sama hópi klífa tindinn sama dag. Apa, sem er betur þekktur undir nafn- inu „Everest-hetjan“, fór á tindinn eftir hrygg sem liggur í suðaustur frá fjallinu og varð þar með sá fyrsti sem lagt hefur á tindinn eftir bæði Nepal- og Tíbet-leiðum og tekist ætlunarverk sitt.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.