Morgunblaðið - 25.05.2000, Side 53

Morgunblaðið - 25.05.2000, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 2000 53 ina í gegnum þykkt og þunnt síðustu átján árin. Hugur okkar er hjá Dóru, Þórhalli, Arnþrúði og fjölskyldum þeirra og þeim vottum við okkar dýpstu samúð á sorgarstundu. Þó að maður komi í manns stað á Þingvöll- um munu þau alltaf geta gengið að gömlum vinum sínum í sveitinni vís- um. Margrét Sveinbjörnsdóttir. Eg heyrði fyrst getið um séra Heimi þegar ég var í fóðurhúsum við menntaskólanám á Akureyri. Síðar var nafn hans oft nefnt þegar hann var kominn til starfa sem rektor Skálholtsskóla, hann var umdeildur en ég fann hve prestar og leiðtogar kirkjunnar bundu miklar vonir við endurreisn þessa fornfræga staðar með sr. Heimi sem rektor. Ég man vel eftir blaðadeilum sem Heimir kom af stað og voru snarpar og snertu viðkvæma strengi hjá ýms- um. Heimir beitti þar sínum magnaða penna og hlífði engum og það var tal- að um röddina frá Skálholti. Síðar hefur mér verið sagt að Heimir hafí sæst við þá sem áttu þá í deilum við hann. Það var honum líkt. Ein setn- ingin sem hann skrifaði og sagði í öðru samhengi var að kristindómur- inn og mannúðarstefnan ættu sam- leið. Ég lagði mig eftir því að lesa það sem hann skrifaði og það var bók- staflega nautn að lesa þessa texta hvort sem það voru blaðagreinar um mál líðandi stundar, fræðigreinar, hugvekjur eða Ijóð. Þar stýrði penna stórgreindur maður sem glímdi við stærstu spurningar sem til eru og það var greinilegt að hann hlífði sjálfum sér ekki í þeirri glímu og leit- aði skilyrðislaust svara. Oft fannst mér eins og þar færi í raun viðkvæm- ur og auðsæranlegur maður á bak við meitlaðan texta fræðimanns og skálds. Trúin var honum greinilega ekki auðtekið mál, ekkert föndur. Feginn hefði ég viljað fylgjast bet- ur með honum, störfum hans og skrifum, en nám og störf í öðru landi komu í veg fyrir það. Þó bar ég gæfu til þess að kynnast Heimi og konu hans frú Dóru Þórhallsdóttur á vís- itasíu föður míns um Árnesprófasts- dæmi þegai- séra Heimir var prestur og þjóðgarðsvörður á Þingvöllum og ég ritari biskups. Því gleymi ég ekki og þá fann ég hversu gróin og sterk vinátta var milli foreldra minna og þeirra hjóna. Alltaf var það fræðandi að vera nálægt honum og þegar hann horfði framan í mann var ekki til neins að vera með neinn leikaraskap. Það kom mér mjög á óvart þegar hann nokkrum árum síðar boðaði mig á kaffifund með sér einum á grillinu á Hótel Sögu sólríkan vor- dag og kynnti mér gildandi lög um Skálholtsskóla og þá möguleika sem þau gæfu til að gera hann að gildandi menningarstofnun og ætlaðist til að ég sækti um starf rektors. Af því varð ekki en það var gleðistund að hitta þau hjón hér í Skálholti í haust sem leið þegar ljóst var orðið að ég mundi tímabundið gegna starfí rekt- ors. Þá tóku þau hvort undir sinn handlegg minn og gengu með mér inn í eina skólastofuna og við áttum langar samræður. Eg leitaði eftir það oft til séra Heimis og ætlaði svo sannarlega að þiggja heimboð þeirra hjóna að Þingvöllum og spjalla meira um Skálholtsskóla, kirkjuna og kristni- tökuafmælið. Hann kveður nú á merkum tímamótum í sögu kristn- innar og ég man eftir fundi með hon- um í Háskóla Islands um miðjan níunda áratuginn þar sem rætt var um ritun kristnisögu íslands sem nú er orðin að veruleika. Um svipað leyti var farið að skipuleggja aðra þætti hátíðarársins og það var gert með guðsþjónustu í kirkjunni hans á Þingvöllum. Bréf fóru á milli okkar og símtöl og það kom alltaf fram hve Skálholtsskóli var honum kær, hann talaði um skólann sinn. Hann lagði grundvöllinn að starfi hans og andi hans svífur hér yfír vötnum. A sein- ustu ráðstefnunni hér um biblíuleg stef í íslenskum fornbókmenntum ætlaði hann að tala og valdi sér efnið ættfeður ísraels og íslenskir land- námsmenn. En heilsan var tæp. Á skrifborði mínu er bréf frá honum dagsett 4. apríl þar sem hann boðar forföll en harmar það og skrifar: „Annað á skólinn minn gamli skilið en að ég sé með þverúð við hann.“ Og hann bætir við: „Ég er orðinn var- færinn með árunum. Fyrr meir... lét vaða á súðum hvar sem var um hvað sem var. Nú er þetta breytt, og ég vil helzt hafa allt mitt á þurru, er ég stíg í stólinn.“ Ég á séra Heimi mikið að þakka, uppörvun og góð ráð sem ekki hafa öll verið nefnd hér. Nú er röddin frá Skálholti þögnuð og glímu séra Heimis lokið, glímu sem gaf samferðamönnum hans svo mikið. Guð blessi minningu hans, huggi ÍJölskyldu hans og gefi kirkju Is- lands fleiri slíkar raddir. Pétur Pétursson, rektor Skálholtsskóla. Bjartur vordagur. Guðsþjónusta í Þingvallakirkju. Séra Heimir syngur messuna. Það er eins og saga þúsund ára kristallist í orðum, tóni og lát- bragði Þingvallaklerks. Og það er sjálf Islandsklukkan sem glymur þegar gengið er úr kirkju. Nú er þessi rödd hljóðnuð. Þegar þjóðin fagnar þúsund ára kristni á Þingvöll- um munum við sakna raddarinnar sem söng miserere af þeirri auðmýkt sem þeim einum er gefin sem skilur að við eiiim ekkert af sjálfum okkur, aðeins gras sem fölnar, hvikull blossi, reykur. En hvemig getum við trúað því að röddin hlýja og djúpa sé þögnuð? Hvernig fáum við unað því að njóta ekki framar návistar hans, falslausr- ar gleði, heillar vináttu? Hvernig getum við sætt okkur við að nema ekki framar orðin dýru af vörum hans, djúphugsuð orð sem beindu sjónum okkar að því sem máli skipt- ir, því sem varir? Heimir Steinsson fór þannig með íslenskt mál að unun var á að hlýða. Hann var frjór og snjall rithöfundur. Hann var skáld. Vinir hans og bræður muna marga stund þegar hann jós af nægtabr- unni visku sinnar, fróðleiks og mann- þekkingar og þeir sátu sem bergn- umdir. I ræðu hans glitraði hvert orð og söng. Slík voru tök hans á tung- unni. Og það sem best var: „ódýr strengur aldrei sleginn, úð ei blandin lágri kennd.“ (EinarBenediktsson.) Skólameistarann í Skálholti, sr. Heimi, hittum við, gamlir félagar í menntamálanefnd þjóðkirkjunnar, fyrir mörgum árum. Hann var víðsýnn og framsýnn skólamaður, hafði í bernsku mótast í skóla föður síns á Seyðisfirði austur, síðan í menntaskólanum okkar kæra á Ak- ureyri og loks með lýðskólamönnum dönskum, eftir að hafa lokið námi í Háskóla Islands. það var gaman að hitta hann á biskupssetrinu forna. Mér fannst reisn hans hæfa þeim helga stað. Gamlárskvöld. Við sitjum við skjá- inn og nemum orð séra Heimis, njót- um íhygli hans og innsæis. Það er ekki heiglum hent að taka við að flytja þjóðinni hugleiðingar á hinsta kvöldi ársins. Snillingar hafa þar um vélt frá upphafi sjónvarps. Heimi verður ekki skotaskuld úr því að halda merki fyrirrennara sinna hátt á loft. Jólafundur í Félagi kennara á eft- irlaunum. Gestur er Þingvallaklerk- ur. Hann flytur okkur frásögn úr bernsku sinni. Að venju fer hann á kostum, varpar skíru ljósi á liðna daga og gæðir frásögn sína slíkri spennu að salurinn verður nánast ein hlust. Hvern hefði grunað þá að mað- ur er flutti mál sitt af slíkum þrótti, sem hann gerði, stæði að kalla við dauðans dyr? Eigi má sköpum renna. Bróðir vor hefur lokið vegferð sinni hér á jörð. Hann hefur lagt frá sér geir sinn góðan og gengið til fundar við hinn eilífa, mikla Meistara. Úr fjarlægð sendum við Björg ást- vinum hans öllum hugheilar samúð- arkveðjur og mælum fram hin sí- gildu orð: „Farðu vel, bróðir og vinur.“ Ólafur Haukur Árnason. Séra Heimir Steinsson er allur langt fyiir aldur fram. Þingvellir eru úr skorðum. Enginn séra Heimir að setja bæjarbraginn og samsama sögu og tíma líðandi stund. Drúpa Bláskógar. Séra Heimir Steinsson varð út- varpsstjóri sumarið 1991, ýmsum að óvörum. Steig vonglaður inn fyrir þröskuld Útvarpsins með mál og sögu á tæru, ekki ólíkt Konráði Maurer öldinni fyrr, sem þekkti okk- ur út í hörgul. Álls ókunnugur inn- viðum þeirrar stofnunar, sem hann hugði menningarstofnun. Útvarps- stjórinn hélt að hægt væri að stýra skútunni með réttlætiskennd að kompási og sagði mönnum upp skip- rúmi, sem hann taldi ekki holla liði sínu. En það varð eins og með selinn í baðstofunni á Fróðá, þegar sveinn- inn Kjartan færði járndrepssleggj- una í höfuð honum. Selurinn gekk upp við hvert höggið sveinsins en ekki niður. Var nú ekki um annað að gera en þruma þetta af sér svo sem Loftur í stöplinum á Hólum. Og þröskuldur hússins varð þjöl, svo leitað sé líkingar hjá henni Arnfríði Jónatansdóttur. Fimm urðu þau árin á Leitinu, og tók þá séra Heimir við sínum gamla pósti austur á Þingvöllum, þar sem hann undi svo vel með Dóru sinni. Ég held hann hafi ekki verið kal- inn á hjarta, þótt kalt hafi verið und rifjum konungsmanna. Hann hafði of djúpstæðan skilning á örlögum mannanna til þess. Tók bara upp þráðinn fyrir austan og fannst hlutur sinn góður. Þegar menn fara að bera sig til við að skrifa eftirmæli, hættir þeim ein- att til að skrifa einkum um sjálfa sig. En það verður aldrei alveg hjá því komist. Séra Heimir hafði verið út- varpsstjóri í rúmlega þrjú ár, þegar ógæfan dundi á Vestfirðingum í mynd snjóflóða. Mannfórnin varð stór. Það kom í hlut okkar á fjórð- ungsstöðinni á Isafirði, eins og séra Heimir nefndi svæðisstöðvarnar, að fjalla um þá atburði. Hann vissi að undirritaður átti mai'gt tengdafólk í Súðavík og hafði tilfinningu fyrir ástandinu. Hringdi oft vestur meðan á stóð hríðinni og fylgdist með sínu fólki á stöðinni. Þegar við hjónin komum til Reykjavíkur á úthallanda vetri, buðu þau Dóra okkur til nota- legs hádegisverðar á Hótel Holti. Það var hlýlegt. Sú mynd sem þjóðin hafði af séra Heimi Steinssyni var ef til vill af manni, sem setti á svolítið langar ræður. Hann fór ekki varhluta af því í áramótaskaupinu eða hjá Sigmundi í Mogganum. Hitt vissu kannski færri, að séra Heimir hafði lúmskt skopskyn. Á stjórnarárum hans í Út- varpinu var farið að senda út á vestra hlustunarsvæði Svæðisútvar- psins með kaffi og rjómapönnukök- um á Patreksfirði að sveitasið. Mörgum var boðið að vera við, þegar kveikt var á, og séra Heimir talaði við fólkið og var hrókur alls fagnað- ar. Daginn eftir athöfnina var beðið flugs og ókum við þá upp í Sauðlauks lygnan dal ásamt Georg Magnússyni tæknimanni, töluðum um Upplýsing- una og virtum fyrir okkur Gerðið hans séra Björns í Sauðlauksdal. Þegar við komum að flugstöðinni á Sandodda, glumdi þar ekki einhver herjans-poppmúsík í gjallarhonum frá Rás 2. Séra Heimir leit með vel- þóknun upp á hátalarana ofar durum og lét þess getið, að á heyrðist, að fé sitt stæði mörgum fótum. Við Hansína kona mín kveðjum séra Heimi Steinsson með söknuði. Mynd hans og dagfar eru skýr í minningunni og hann á eftir að spásséra með okkur alla leið. Dóru og afkomendum sendum við samúð- arfullar kveðjur. Finnbogi Hermannsson. Það var í mars 1966 að leiðir okkar séra Heimis lágu saman með sér- stökum hætti er við fórum fjórir guð- fræðinemar á jeppa norður í Skaga- fjörð til séra Sigfúsar J. Árnasonar á Miklabæ. Eftirvænting var í huga að hitta bróður sem nú var langt kom- inn með sinn fyrsta vetur í prests- þjónustu. Ferðin var torsótt, kostaði erfiði og úthald enda vissi ég ekki um marga bíla sem fóru norður yfir Holtavörðuheiði þann sólarhring. Ég nefndi það við séra Heimi nú á þessu ári að ég þyrfti að sýna honum myndir úr ferðinni forðum. Hann brosti við og hugði gott til þess. Það hefur nú ráðist annan veg. Margar minningar leita á hugann. Séra Heimir var þennan vetur í lokaund- irbúningi fyrir sitt embættispróf en gaf sér eigi að síður tíma til ferðar. Það kom ekki að sök því hann tók eitt hæsta embættispróf í guðfræði sem tekið hefur verið. Við vorum bjartsýnir í upphafi og hugðum gott til farar í störfum fyrir kirkju Drottins. Séra Heimir átti m.a. það mark að sameina þjóðkirkj- una undir einu merki. Þegar litið er til baka sjáum við að það hefur tekist betur en margir gera sér grein fyrir því þjóðkirkjan hefur ekki á öldinni verið samstilltari til átaka en nú und- ir lok aldarinnar. Ekki vissum við hvemig leiðin yi'ði en þekktum vel blikur á lofti enda margir sem töldu að þjóðkirkja yrði ekki að störfum um þessi alda- mót. Prestaskortur var þá tilfinnanleg- ur og fór vaxandi. Fjölmörgum em- bættum þjónað í aukaþjónustu. Séra Heimir var glaðbeittur og sókndjarfur með heitar hugsjónir. Vopn hans voru beitt. Hugurinn skarpur, þekkingin örugg og fágætt vald hafði hann á íslensku máli, kjarnyrtur með þeim hætti að eftir var tekið. Leið hans lá til móts við fjölþætt og krefjandi verkefni. Hann sat tvo þekktustu staði Árnessþings með sóma. Uppbygging Skálholtsskóla var verk brautryðjandans og ekki voru störf hans síðri á Þingvöllum þar sem hann átti sérlega gott með að opna helgi staðarins fyrir háum sem lágum. Alla tíð hafði hann ríkan guðfræðilegan metnað og nutum við þess oft samferðamenn hans í upp- byggilegum erindum og hlýrri hvatningu til vandaðra vinnubragða. Við prestar í Árnessprófastsdæmi heiðrum minningu hans með trega og þökkum góða og gefandi sam- fylgd. Guð blessi minningu séra Heimis Steinssonar og græði sár eiginkonu hans og ástvina. Úlfar Guðmundsson, Eyrarbakka. Heimir Steinsson, æskufélagi og vinur, er fallinn frá langt um aldur fram. Kynni okkar hófust í Mennta- skólanum á Akureyri; þangað kom Heimir að áliðnum vetri 1954 og settist í þriðja bekk eftir að hafa lesið lexíur sínar heima á Seyðisfirði frá veturnóttum. Hann fékk inni á „Suð- urvistum" í gamla skólahúsinu þar sem við bekkjarfélagarnir bjuggum allmargir fyrir. Inn í tiltölulega kyrrt loft heimavistarinnar bar þessi síðbúni skólasveinn með sér ferskan andblæ þar sem sósíalískir hug- myndastraumar blönduðust ást á ljóðlist og bókmenntum og yndi af söng. Allt þetta hafði Heimir hlotið í vöggugjöf í föðurhúsum, hjá Arn- þrúði og Steini skólastjóra. Öðrum veitti hann ótæpilega af gáfum sín- um: fyrr en varði myndaðist um hinn örgeðja og andríka pilt hópur póli- tískra skoðanabræðra, skáldmenna og söngvina sem áttu eftir að deila með honum gleði og áhyggjum æskuáranna. Þetta var á árum kalda stríðsins, tímabili óvæginna hugmyndafræði- legra átaka og kröfuharðra skuld- bindinga um hollustu ungra sem ald- inna; í bakgrunni ógnaði kjarnorkusprengjan. Heimir tókst á við harðan heim af þeim ákafa sem honum var gefinn. Að sama skapi ól hann með sér ríka þörf fyrir að eign- ast athvarf og hlutdeild í heimi skáldskapar og staðleysu „þar sem fegurðin ríkir ein...“ Við Akureyrar- pollinn endurlifði Heimir fyrst nýr- ómantíkina frá dögum „íslensks að- als“ og „Svartra fjaðra“, og með tímanum gerðist hann sérstaklega handgenginn kveðskap Steins Stein- ars og „Ljósvíkingnum". Sjálfur fór Heimir að yrkja ungur að árum; í 5. bekk var hann orðinn skólaskáld. Veturinn eftir ritstýrði hann skóla- blaðinu, „Muninn“, þar sem hann birti mörg kvæði ásamt öðrum félög- um eins og Ara Jósefssyni og Hall- dóri Blöndal. Þennan vetur deildum við Heimir herbergi úti í bæ og ég varð þannig býsna nákominn þeim hughrifum sem ljóð hans spruttu af. Eitt þeirra, „Tum“, endar svo: Og þegar ég hef dvalið langa daga í draumi ljósum ofar vitundinni. Þá vakna ég um vetrarnótt og hrópa á visið blóm, er grær í sálu minni. Á þessum árum var gott að eiga Heimi fyrir sálufélaga. ir Að stúdentsprófi loknu skildu leið- ir og samfundir urðu stopulir eins og verða vill í dagsins önn. En aldrei slitnaði sá þráður vináttu sem spannst á menntaskólaárum okkar. Þegar við höfðum síðast samband símleiðis fyrir nokkrum vikum, strengdum við heit um samfundi í vor - á Þingvöllum. Dóru og ættingjum vottum við Hanna Kristín dýpstu samúð. Loftur Guttormsson. Haustið 1975 kom ég, þá 18 ára* gömul, til íslands til að stunda nám í Lýðháskólanum í Skálholti. Ég hafði frétt af skólanum og sendi eftir upp- lýsingum um hann. Fljótlega barst mér svarið - 14 þéttskrifaðar blað- síður með upplýsingum um staðinn, skólann og námið - á íslensku, undir- ritað af Heimi Steinssyni rektor. Á dönsku lét hann þess getið að til að geta haft gagn af skólavistinni þyrfti ég að hafa nægilegt vald á íslensku til að geta skilið bréfið. Eftir tveggja daga uppflettingar í orðabók Blön- dals á háskólabókasafninu í Bergen var ég litlu nær um Skálholtsskóla, en ákvað að láta það ekki aftra mér og sótti um skólavist. Það reyndist afdrifai-fk ákvörðun í mínu lífi. I* - Þetta var mín fyrsta ferð að heim- an og Heimir og Dóra gengu mér í foreldrastað. Þau tóku á móti mér á gulu bjöll- unni sinni og opnuðu heimili sitt fyrir mér í mánuð áður en skólinn byrjaði til að ég gæti lært íslensku. Ég fékk einkakennslu í íslensku hjá sr. Heimi. Það voru skemmtilegir tímar, þar sem ekki var eytt miklum tíma í glósun og málfræðistagl, ég veit ekki hvort okkar skemmti sér betur. Heimir var krefjandi kennari og . gerði ekki ráð fyrir að þurfa að end-' ui'taka hlutina oft. Hann kenndi mér ekki bara tungumálið, heldur vakti hann áhuga minn og ást á málinu, ís- lenskum bókmenntum, sögu og menningu og lagði grunninn að því hversu vel mér hefur síðan gengið að aðlagast þessu nýja heimalandi mínu. Þetta var 4. starfsár Lýðháskól- ans í Skálholti og þau hjónin ráku skólann af miklum eldmóði og um- hyggju fyrir nemendum. Heimir var margfróður maður og miðlaði óspart af sínu, en var um leið mjög fróðleik- sfús og tilbúinn til að læra af nem- endunum. Hann var forvitinn um alla hluti og hafði áhuga á að heyra sjónarmið þess unga fólks sem horí-' um var trúað fyrir. Hann hvatti stöð- ugt til rökræðna og umræðna um allt milli himins og jarðar og var ekki feiminn við að ræða við okkur um grundvallaratriði í heimspeki, pólitík og trúmálum af opnum huga og á jafnræðisgrundvelli. Hann lagði stöðugt áherslu á gildi menntunar, ekki bara sem tæki til frægðar og frama, heldur sem tæki til að öðlast skilning á manninum og samfélagi mannanna. Þannig stjórnaði hann þessum skóla í besta anda lýðhá- skólahugsjónarinnar. Ég veit um marga nemendur sem notuðu árið í Skálholti til að hugsa sinn gang og ákveða framtíðarstefnuna undir áhrifum og leiðsögn sr. Heimis. ' - Eftir að Heimir og Dóra fóru frá Skálholti hittumst við sjaldnar, en alltaf þegar leiðir lágu saman fund- um við einlæga vináttu og áhuga þeirra. Minningargreinaskrif var eitt þeirra séríslensku fyrirbæra sem sr. Heimir kynnti og skýrði fyrir mér og því langar mig að minnast hans með þessu móti. Elsku Dóra, við Kristján sendum þér og þínum okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Okkur hefur alltaf þótt svo vænt um ykkur og þið höfðuð mótandi áhrif á líf okka^ beggja. Gry og Kristján Eggert. • Fleiri minningargreinar um Heimi Steinsson bíða birtingar ogmunu birtast íblaðinu næstu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.